Þjóðviljinn - 29.09.1989, Qupperneq 20
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Stigamet Fischers er að falla
Kasparov í banastuði á Interpolis-mótinu
Stigamet Bobby Fischers 2785
Elo er að falla. Þegar tefldar hafa
verið ellefu umferðir á stórmót-
inu í Tilburg í Hollandi er Garrí
Kasparov langefstur. 91/2 vinn-
ingur úr 11 skákum er frábær ár-
angur og andstæðingar hans hafa
sjaldnast náð 30 leikjum. Flestir
áttu von á harðvítugri baráttu
Kasparovs og Kortsnojs þegar
þeir leiddu saman hesta sína í
gær, en Kasparov hafði ekkert
fyrir því að yfirbuga andstæðing
sinn. Hann jók því enn á for-
skotið og nú er spurningin aðeins
hversu marga vinninga hann
hlýtur á lokasprettinum. Fái
hann 21/2 vinning úr þremur síð-
ustu skákunum nær hann alveg
örugglega 2790 stigum og senni-
lega duga 2 vinningar.
Jóhann Hjartarson gerði í gær
hatamma tilraun til að rétta sinn
hlut á mótinu. Hann átti mun
betri stöðu gegn Ljubojevic, lenti
í tímahraki og fórnaði þar manni.
Lengi vel gat hann tekið jafntefli
með þráskák, en vildi meira.
Skákin fór í bið og staða Jóhanns
er vonlaus.
Urslit í 11. umferð í gær urðu
annars þessi:
Kasparov - Kortsnoj 1:0
Piket - Sax ‘/2:V2
Agdestein - Ivantsjúk V2:*/2
Ljubojevic - Jóhann biðskák
Eitthvað höfðust þeir að í gær, Jóhann með vonlitla stöðu í biðskák,
en Kasparov rúllaði Kortsnoj og er að ver^a stigahæsti skákmaöur
sögunnar. Mynd: Þóm.
Staðan:
1. Kasparov 9*/2 v. 2. Kortsnoj 7
v. 3. Sax 5 v. 4.-5. Jóhann Hjart-
arson og Ljubojevic 4V2 v. + bið-
skák. 6.-7. Agdestein og Ivant-
sjúk 4+2 v. 8. Piket 3 v.
í skák Kasparovs og Kortsnojs
í gær kom til sögunnar afbrigði
Nimzoindversku-varnarinnar
sem farið hefur sigurför um
skákheiminn undanfarna mán-
uði. 4. Dc2 er leikur Capablanca.
Honum fannst þetta eðlilegasta
svar hvíts við Nimzoindversku
vörninni, kærði sig lítið um tví-
peð og var auk þess sannfærður
um ágæti biskupaparsins. Mörg-
um áratugum síðar komast menn
að sömu niðurstöðu:
Tilburg 1989, 11. umferð:
Garrí Kasparov
- Viktor Kortsnoj
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rc3 Bb4
4. Dc2d5
5. cxd5
(Kortsnoj hefur sennilega búð
sig vel undir framhaldið 5. a3
Bxc3+ 6. Dxc3 sem hefur áður
komið fyrir í skákum' Kaspar-
ovs.)
5. .. exd5
6. bg5 h6
7. Bh4
(Mun skarpara en 7. Bxf6 Dxf6
9. a3 Bxc3+ 9. Dxc3 en þannig
tefldist ein besta skák heimsbik-
armóts Stöðvar 2: Beljavskí -
Portisch.)
7. .. c5
8. dxc5
(Fræg er skák Keres og Bo-
tvinniks í úrslitakeppni sovéska
meistarmótsins 1941: 8. 0-0-0
Bxc3! 9. Dxc3 g5 10. Bg3 cxd411.
Dxd4 Rc612. Da4 Bf5 13. e3 Hc8
14. Bd3 Dd7! 15. Kbl Bxd3+ 16.
Hxd3 Df5 17. e4 Rxe4 17. Kal
0-0 og fjórum leikjum síðar gafst
Keres upp. Vegna þessarar
skákar hefur sjöundi leikur hvíts
ávallt þótt ónákvæmur.)
8. .. 0-0
(Hér mæla fræðin með 8. ..
Rc6.)
9. e3 Rbd7
10. Bd3 Da5
11. Re2 Bxc3+
(Þessi uppskipti benda til þess
að Kortsnoj sé ekki ánægður með
byrjunina 11. .. Dxc5 er kannski
lítið eitt betra, en hvítur á mun
betri stöðu eftir t.d. 12. a3.)
12. Dxc3 Dxc3+
13. Rxc3 Rxc5
14. Be2g5
15. Bg3 Be6
16. f3 a6
(Kemur í veg fyrir - Rb5. Að
öðru leyti hefur leikurinn engin
áhrif á gang mála og mótstöðu-
laust nær hvítur að hefja sókn á
báðum vængjum.)
17. e4! Hfc8
18. hxg5 hxg5
19. 0-0-0 Rcd7
20. Kbl Kg7
21. Bb3 Hc5
22. e4! dxe4
23. Bxe6 fxe6
24. Rxe4 Ha5
25. Hhel Rf8
26. Rd6 1)6
27. Bf2 Rd5
28. Bd4+ Kg6
29. Rc4
- Hér lagði Kortsnoj niður
vopnin. Hann tefldi þessa skák
eins og dæmdur maður. Fram-
haldið gæti orðið 29. .. Hb5 30.
Hhl+ Kg831. Hh5(30... Kf631.
a4 Hb3 32. Ka2 og vinnur a.m.k.
skiptamun) og vinnur.
Drottningarpeðsbyrjun Kasp-
arovs er ógnvekjandi enn sem
fyrr. Sennilega hafði tékkneski
stórmeistarinn Ludek Pachman
nokkuð til síns máls þegar hann
skrifaði bókina: „1. d2-d4!“.
Forkastanleg vinnubrögð
Hluti núverandi stjórnar
Bridgesambands íslands sam-
þykkti á skyndifundi sl. föstudag
að fresta úrslitaleiknum í Bikar-
keppni sambandsins, um óákveð-
inn tíma. Ástæður; ekki var hægt
að koma við beinni útsendingu
frá leiknum á Stöð 2.
Forsaga þessa einstæða máls
innan bridgehreyfingarinnar er
afar skrautleg, svo ekki sé meira
sagt. Á stjórnarfundi BSÍ mánu-
daginn 3. apríl (rúmir 6 mánuðir
síðan) var upplýst (svo notað sé
orðalag fundargerðar) að Stöð 2
mundi sýna frá leikjum í undan-
úrslitum og úrslitum Bikar-
keppninnar. Á stjórnarfundi BSÍ
mánudaginn 24. apríl er forseta
(Jóni Steinari Gunlaugssyni) fal-
ið að leita eftir aðild fyrirtækis að
Bikarkeppninni gegn fjárfram-
lagi. Á stjórnarfundi miðviku-
daginn 7. júnf eru málin rædd
varðandi Bikarkeppni BSÍ. Á
stjórnarfundi miðvikudaginn 6.
september (þá eru liðnir 3 mán-
uðir frá síðasta stjórnarfundi)
liggur fyrir aðild Eurocard og Út-
sýnar að þessu máli og fram-
kvæmdastjóra falið að annast
nauðsynlegan undirbúning við
beina útsendingu á „úrslitum”
Bikarkeppninnar (hvað varð um
undanúrslitin?). Um þetta le.yti lá
ljóst fyrir hvaða 4 sveitir spiluðu í
undanrásum. Allt annað lá
einkar óljóst fyrir, spilatími,
spilastaður, fyrirkomulag o.fl.
Nú, þessi hluti keppninnar var af-
greiddur á ódýran hátt í Sigtúni
(ekkert nema gott um það að
segja, þegar sýnt er aðhald í
BRIDGE
mótahaldi, jafnvel þótt menn
slysist á það...). Eftir þá leiki var
ljóst hvaða tvær sveitir myndu
spila til úrslita, helgina 22.-23.
september, eins og auglýst hafði
verið. Og þá hófst lokaþátturinn í
þessum skrípaleik. í ljós kom að
Stöð 2 var ekkert inni í þessum
málum, en var á þessu stigi tilbú-
in að „díla” við Bridgesambandið
um öflun forrits til notkunar í
beinni úsendingu (grafík). Og
Bridgesambandið var afar þakk-
látt þessum höfðingsskap stöðv-
arinnar, að leggja það á sig að
sýna frá einum vesælum útslita-
leik í einhverri íþróttagrein, þar
sem menn gretta sig í framan af
andlegri áreynslu, til merkis um
að lífsmark sé með þessum hinum
sömu mönnum. Áð gretturnar
stafi ekki af samlokunni sem
snædd var á hlaupum, 15 mín.
fyrir leik, er algerlega ósannað
mál í íþróttinni.
Og þá er komið að forseta, sem
hefur haft veg og vanda af þessu
máli (aðallega vanda fram að
þessu). Tveimur dögum fyrir
úrslitaleik (á spilakvöldi hjá
Bridgefélaginu) segir hann orð-
rétt: „Leiknum verður ekki frest-
að, nema báðar sveitirnar sam-
þykki það”.
Og önnur neitaði þessum til-
mælum. Þá var hóað í mótanefnd
daginn eftir og óskað eftir frestun
frá henni. Tveir af þremur í þeirri
nefnd urðu við tilmælum forseta
og úrskurðuðu að leiknum skyldi
Ólafur
Lárusson
frestað. Sá þriðji kunni aðeins
meira fyrir sér í lögum íþróttar-
innar og sat hjá. Taldi þetta alfa-
rið mál stjórnar, sem boðuð var í
skyndi í hádeginu á föstudag.
Náðist í 7 manns, en af þeim voru
2 vanhæfir, sökum skyldleika í
málinu (annar í úrslitasveit og
hinn í mótanefnd). Úrslit máls í
stjórn urðu 3-2 með frestun. Eng-
in bókun var gerð um framhald,
dagsetningar o.fl.
Eg hef nú rakið í aðalatriðum
þetta mál, frá upphafi til þessa, er
að kom að yfirstjórn sambands-
ins ákvað að fresta heilum úrslita-
leik í landsmóti, vegna hugsan-
legrar þátttöku sjónvarps og ein-
hverrar peningaupphæðar, sem
skiptir engu meginmáli fyrir
hreyfinguna í landinu. Lítils-
virðing yfirstjórnar í garð þeirra
spilara sem í hlut eiga, er með
eindæmum. Eða hver er réttur
spilaranna? Eru orð forseta (sem
mörg vitni eru að) einskis virði?
Eru auglýsingar frá skrifstofu
Bridgesambandsins, svonefnd
mótaskrá, einskis virði? Er
Bikarkeppni Bridgesambands ís-
lands einskis virði? í hvaða leik
eru þessir menn? Var þeim ekki
ljóst, er í óefni var komið, að sá
liður keppninnar sem átti að sýna
í sjónvarpi, og einhver peninga-
greiðsla kæmi fyrir, var úr sög-
unni, þegar önnur sveitin neitaði
að samþykkja frestun. Er
eitthvað skýrara til í þessu máli?
Um framhald í þessari sápu-
óperu er allsendis óvíst. Það get-
ur vel verið að Stöð 2 finni sér
rúm í dagskránni, jafnvel á þessu
ári. Spurningin er: Mæta þá báð-
ar sveitir til leiks? Og hvar stend-
ur þá þetta mál?
Þau pör, sem gefa kost á sér í
iandsliðshóp íslands í opnum
flokki, eru beðin um að tilkynna
skriflega um áhuga sinn til lands-
liðsnefndar fyrir 9. október 1989.
Landsliðsnefndarmenn, sem
einnig veita allar nánari upplýs-
ingar um fyrirkomulag landsliðs-
valsins og taka á móti skriflegum
tilkynningum eru:
Guðmundur Eiríksson, Melbæ
20,110 Rvk; hs: 78570, vs: 17060
Hjalti Elíasson, Álfhólsvegi
12a, 200 Kópavogur; s: 40690
Magnús Ólafsson, Forskot,
Pósthólf 5018,125 Rvk; s: 623326
Formaður landsliðsnefndar er
Guðmundur Eiríksson. Þjálfari
landsliðshópsins og síðar lands-
liðsins verður Hjalti Elíasson.
Farið verður með allar beiðnir
sem trúnaðarmál.
Landsliðshópurinn mun æfa
reglulega í tveimur lotum undir
stjórn landsliðsþjálfara. Fyrri
lotan stendur yfir til áramóta.
Síðari lotan hefst í febrúar og lýk-
ur með landsliðsvali í apríl 1990.
Landslið íslands í opnum
flokki fær það verkefni að verja
NM titil okkar í Færeyjum í júní
1990.
Flest bridgedæmi fjalla um til-
tekin spil eða spilara. Fæst taka
fyrir það atriði, sem skiptir
mestu. Hvað er rétt og hvað er
rangt í spilaíferð. Lítum á tvö
dæmi:
20 Sk)A — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 29. september 1989
s: 10632 H: K6 T: K96 L: 8643
S: KG94 S: D7
H: DG85 H: 10432
T: G852 T: D103
L:: Á S: Á85 H: Á97 L: G1097
T: Á74
L: KD52
Suður er sagnhafi í 1 grandi.
Útspil Vesturs er tígultvistur.
Hver er eina staðan þar sem sagn-
hafi fær EKKI 2 slagi á lauf? Jú,
ofangreind staða, ef við spilum
ekki spilið rétt. Lausnin er að
taka á ásinn í tígli heima og spila
lágu laufi, frá hjónunum. Ef
laufið er 3-2, fáum við alltaf 2
slagi á litinn.
Hitt dæmið er svona;
S: K963
H: Á10
T- Á5
L: Á6532
S: G S: 10
H: D83 H: KG7642
T: 10842 T: KD9763
L: KDG97 L: - - -
S: ÁD87542
H: 95
T: G
L: 1084
Suður er sagnhafi í 4 spöðum
og útspil Vesturs er laufakóngur.
Lausnin í þessu spili (og ávallt
rétta lausnin) er að láta smátt úr
borði. Hvað gerir Vestur? Meira
lauf, drottning? Aftur smátt úr
borði. Meira lauf, gosi? Aftur
smátt úr borði og slagir sagnhafa
verða aldrei færri en 10 (hjartað
fer niður í ásinn í laufi). En hvað
gerist ef við drepum strax á ásinn
í laufi? Austur trompar, og niður-
staðan er 9 slagir. Vissulega lá
laufið illa, en óheppni er ekki
alltaf ástæða fyrir slakri spila-
mennsku (eða réttara sagt, slæm-
ri spilaútkomu). Stórhluti af mis-
tökunum liggur í óljósri kunnáttu
spilamannanna sjálfra, í stöðum
sem þessum.
Tekið úr Encyklopedia
of Bridge