Þjóðviljinn - 29.09.1989, Síða 23

Þjóðviljinn - 29.09.1989, Síða 23
ANDREA JÓNSDÓTTIR D/tGURMAL r* Tína fullsödd af sviöinu... ... en áfram skal þó haldiö enn um hríð, eins og kemur fram í nýju viðtali við rokkdrottninguna Tínu Turner í Melody Maker (23.9.) og hér er stolið úr. Stúlk- an sem tekur viðtalið, Carol Clerk, byrjar á að segja að Tína sé ótrúlega smávaxin, hversdags- lega klædd án nokkurs andlits- farða - ja, nema með hressilega rauðan varalit, og að hún sé mjög falleg í návígi. Og ekki versnar lýsingin þegar kemur að viðmóti Tínu... Carol segir hana mýktina uppmálaða, rólega, vingjarn- lega, glaðlega, og algjöra and- stæðu við villiköttinn Tínu sem æðir um á sviðinu. Blaðakonan bjóst sem sagt við að þurfa að taka á honum stóra sínum til að hafa í fullu tré við þessa gustmiklu söngkonu, sem í staðinn sjarmeraði hana upp úr skónum. Þær sátu því í huggu- legheitum í sólbaði með sitthvora sódavatnsflöskuna uppi á þaki heima hjá Tínu í London, þangað sem hún flutti ekki fyrir ýkja- löngu, en hún kvað ekki þora að búa lengur í Bandaríkjunum, vegna alls þess ofbeldis og glæpa sem þar er orðið landlægt - a.m.k. borglægt. Tína byrjar á að svara spurn- ingum um hvort hún komist hjá að halda hljómleika til að fylgja vinsældum nýútkominnar plötu sinnar, Foreign Affair, en eitt Iaga af henni, The Best, er á Topp 10 í Bretlandi. Ástæðan fyrir spurningunni er sú, að Tína lýsti því yfir fyrr á þessu ári að hún færi ekki framar í hljóm- leikaferðalög. „Ég held ég neyðist til þess,“ segir stjarnan ekki sérlega spennt, „en ég ætla ekki að ganga fram af mér eins og 1987. Það er eitt sem víst er, að ég hef ekki saknað sviðsins, og kem ekki til með að gera þegar ég hætti. Ég er búin að standa á sviði í 28 ár. Mig langar ekki til að gera það allt mitt líf. Ég hef fengið út úr því það sem ég vildi. Ég varð fýrsta svarta kven-rokkstjarnan, fólk hafði trú á mér, ég reis undir því, og fullnægði líka eigin kröfum. Þannig að þótt ég ætti aldrei eftir að stíga á svið framar væri mér nákvæmlega sama. Flestir trúa þessu ekki og segja: „O, hún heldur þessu áfram til eilífðar", en þeir skulu bara fá að sjá“. Langaöi í leiklist í viðtalinu kemur á daginn að Tína hefði tekið aðra listgrein fram yfir sönginn ef hún hefði mátt ráða. „Mig langaði alltaf að fara út í leiklist, en fyrir svarta konu er auðveldara að komast að í tón- list, fyrir utan það hef ég mestan áhuga á að leika þau hlutverk sem karlmenn fá... Sást þú Bruce Willis í Die Hard? Það er þannig hlutverk sem ég vildi leika. Ég held ég yrði góð ef ég fengi að spreyta mig á einhverju slíku“. Um þessar mundir eru afskipti Tínu af kvikmyndaheiminum í sambandi við handritsgerð upp úr ævisögu hennar I, Tina. Mikið hefur verið rætt um hver muni leika rokkdrottninguna, og kom- ið upp nöfn eins og Whitney Ho- uston, en nú mun ákveðið að óþekkt leikkona fari með hlut- verkið og Tína syngi sjálf þau lög sem í myndinni verða. „Við erum að klára aðra yfir- ferð á handritinu“, andvarpar Tína. „Við áttum í smávand- ræðum með að halda réttum blæ - þeir vildu reyna að slétta aðeins úr hrjúfleikanum, en það er bara ekki hægt að gera suma hluti fal- lega. Kvikmyndafólk er dálítið erfitt. Fyrir utan það er ég orðin hundleið á þessari sögu minni. Ég skrifaði hana af því að ég var búin að fá nóg af að fólk var alltaf að tala við mig um Ike Tumer og spurja mig um músikina hans. Hvaða músik??? - ég varð reið, allt að því óþolandi pirruð, svo ég hugsaði með mér að eina leiðin til að Iosna við þetta fólk væri að gefa út þessa bók. Og nú með kvikmyndinni lendi ég í að rifja upp öll þessi ófögm leiðindi aft- ur“. En þær stöllur taka upp léttara hjal, og tala um nýju plötuna og myndbandið sem fylgir The Best, en í því kemur fram, að því er blaðakonan segir, fallegasti karlkyns mótleikari sem sést hef- ur í langan tíma, með Tínu að minnsta kosti. Hann er hestur, sem var hugmynd Tínu og hún stóð fast við, þrátt fyrir vafa- samar undirtektir þeirra sem áttu að sjá um kvikmyndatökuna. En hún fékk stuðning Lols Creme sem er ásamt gömlum félaga sín- um úr poppinu Codley, mikill myndbandaframleiðandi í Bret- landi. Sendi Jagger „fax“ af og til Tfna Turner er sannfærð um að nýja platan sé sú besta sem hún hefur gert fram til þessa, og að hún eigi líklega ekki eftir að gera aðra betri. Þá skoðun sína byggir hún á því að svo erfitt sé að fá góð lög til að syngja, og hún hafi verið einstaklega heppin í þetta skipti - það sé einmitt ástæðan fyrir að hún hafi drifið sig í að taka upp þessa plötu... lögin hafi streymt til hennar... „Þetta eru allt lög sem Mick Jagger hefði örugglega viljað fá að syngja... þess vegna valdi ég þau“. Og aðspurð um kunningsskap þeirra segir hún: „Við sendum hvort öðru „fax“ ef við vitum af hvort öðru í borg- inni. Hann hefur mikla kímni- gáfu, er alger stríðnispúki og er alltaf til í einhvern leikaraskap. Han er einn af þeim sem, ef hann kæmi að þér nakinni inni í bún- ingsklefa, tæki nærbuxurnar þín- ar og héldi þeim á lofti svo að þú næðir þeim ekki. Við höfum bæði gaman af að bæta hóflegri ósiðsemi í vinnu okkar - mér finnst það vera það sem við eigum sameiginlegt. Og okkur finnst báðum jafn gaman að hittast. Hann er aldrei regings- legur eða stífur - David (Bowie) á til að bregða sér í það hlutverk, en aldrei Mick“. Tína Turner trúir á spádóma, allt frá stjömuspeki til yfirskilvit- legra krafta. Svona sér hún fyrir sér líf sitt í bráð, en lætur ósk- hyggjuna ráða í aðeins meiri lengd: „Ég á fyrir höndum um það bil mánaðarvinnu í sambandi við nýju plötuna. Svo verð ég héma heima og sit ýmist hér úti eða þama inni og horfi hingað út, og geri dálítið af engu um tíma. Ég mundi vilja vinna í tíu ár í viðbót, þangað til ég verð sextug. Þá vildi ég draga mig í hlé og fara að skrifa og dútla fyrir sjálfa mig. Ég mundi vilja búa í góðu húsi, í gróðursælu umhverfi við stöðu- vatn og foss, hafa bækur og arin, og bara hvfla mig í fimm ár; halda nokkur kvöldverðarboð fyrir vini og horfa á góðar kvikmyndir með þeim. Það langar mig að gera - bara njóta þess að vera til - lifa - í smátíma“. (A snöri úr MM) Tína Turner með Zelmu móður sinn á fyrstu alþjóðlegu rokk og ról verðlauna- af hendingarhátíðinni fyrr á þessu ári - upp á ensku heitir sjóið The International Rock’n’Roll Awards... nokkurskonarRokk-Óskarsverðlaunahátíð. Sú gamla(eldri...) sagði eftir að hafa hlýtt þar á Tin Machine: „Mér líkaði betur við David (Bowie) þegar hann sðngLÖG”. Tina treöur upp með stjörnubandi í lok Alþjóðlegu rokk-og-róll-verðlaunahátíðarinnar f ár. Keith Richard og Eric Clapton eru henni til sinn hvorrar handar Föstudagur 29. september 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SfÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.