Þjóðviljinn - 13.10.1989, Side 26
Ásmundarsaiur v/ Freyjugötu, Sig-
urborg Stefánsdóttir, málverk. Til
23.10.16-20 virka daga, 14-20 helg-
ar.
Bókasafn Kópavogs, Rafn Stefáns-
son, blýantsteikningar og málverk,
10-21 mán-fö, 11-14 lau til október-
loka.
FÍM-salurinn, Jónína Guðnadóttir,
skúlptúrar og lágmyndir. Til 17.10.
13-18 virka daga, 14-18 helgar.
Galleri Borg, Torfi Jónsson, vatns-
litamyndir frá Vestfjörðum. Til 24.10.
10-18 virka daga, 14-18 helgar.
Gallerí 11, Skólavörðustíg 4 a, Tumi
Magnússon, málverk. Til 15.10.14-
18daglega.
Hafnarborg, Strandg. 34 Hf, 14-19
alla daga nema þri. Kaffistofa: Sigur-
björn Eldon Logason, vatnslitamynd-
ir.
Kjarvalsstaðir, opið daglega 11-22.
Til 22.10: Stefán Axel Valdimarsson,
málverk. Erró, málverk.
Listasafn ASÍ, Fréttaljósmyndir 89
(World Press Photo 89), opn lau kl.
14.Til29.10.16-20virkadaga, 14-20
helgar.
Listasaf n Einars Jónssonar opið
helgar 13.30-16, höggmyndagarður-
innalladaga11-17.
Listasafn íslands opið alla daga
nema mánudaga kl. 11 -17. Til 5.11.
yfirlitssýning á verkum Jóns Stefáns-
sonar. Mynd októbermánaðar Svanir
e/Jón, leiðsögnin Mynd mánaðarins
fer fram í fylgd sérfræðings fi kl.
13:30. Aðgangur að sýningu og leið-
sögn ókeypis og öllum heimill.
Listasaf n Sigurjóns, lokað til 21.10.
Mokka, Hrefna Lárusdóttir, málverk.
Til 19.10.
Norræna húsiö, til 29.10: Kjallari,
Björg Þorsteinsdóttir, olíukrítar- og
vatnslitamyndir, opn. laukl. 14,14-19
daglega. Anddyri, Öðruvísi fjöl-
skyldumyndir, Ijósmyndir e/ Tone Ar-
stila, JimBengtson, FrankWatsonog
Nönnu Bisp Buchert, 12-19 su, 9-19
aðradaga.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Valgarður
Gunnarsson, málverk. Til 25.10.10-
18 virka daga, 14-18 helgar.
Riddarinn, Hafnarfirði, Við búðar-
borðið, sýn. tengd verslun fyrri tíma, á
vegum Byggðasafns Hf.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið helgar 14-18, e/ eftir
samkomulagi.
Þjóðminjasafnið, opið þri, fi, lau og
su 11 -16. Bogasalur: Ljósmyndin
150 ára - Saga Ijósmyndunar á ís-
landi. Til nóvemberloka, aðgangur
ókeypis.
TÓNLIST
Xiao-Meu Zhu píanóleikari frá
Shanghai leikur Duport-tilbrigðin og
sónötu í D-dúr e/ Mozart og 12 són-
ötur e/ Scarlatti í Hafnarborg, Hafnar-
firði sunnudkv. 20:30.
Kammermúsíkklúbburinn heldur
tónleika í Bústaðakirkju sunnu-
dagskv. 20:30. Szymon Kuran og
Andrzej Kleina (fiðlul.), Sarah Buc-
kley (lágfiðla) og Gary McBretney
(selló) flytja Strengjakvartetta í G-dúr
og B-dúr e/ Mozart og Strengjakvart-
ett (As-dúr e/ Sjostakovitsj.
LEIKLIST
Alþýðuleikhúsið, ísaðargellur, í
kvöld og lau 20:30.
Frú Emilía, Skeifunni 3 c, Djöflar, í
kvöld og su 20:30.
íslenska óperan, Brúðkaup Fígarós,
íkvöld kl. 20, næstsíðasta sýn.
Litla leikhúsið, Gerðubergi, Regn-
bogastrákurinn lau kl. 12, su kl. 15,
fáar sýningareftir.
Þjóðleikhúsið, Oliver! í kvöld kl. 20,
lau og sukl. 15og kl.20.
ÍÞRÓTTIR
Handbolti. 1 d.ka. FH-HK, Grótta-lR
lau. kl. 16.30.1 .d.kv. FH-Haukar,
Grótta-KR lau. kl. 15.00 og Valur-
Stjarnan lau. kl. 16.30.2.d.ka. FHb-
Selfoss lau. kl. 13.30, Valur b-
Ármann sun. kl. 20.00.2.d.kv.
Þróttur-Selfoss Seljaskóla lau. kl.
14.00.3.d.ka. UBK b-Völsungur fös.
kl. 20.00, Ármann b-Völsungur Selja-
skólalau. kl. 15.15, UMFA-Haukarb
sun. kl. 14.00.
HITT OG ÞETTA
MÍR Vatnsstíg 10, kvikmyndasýn. su
kl. 16, Lenín 1918 eftir Mikahíl
Romm, myndin segir frá atburðum
sumarið 1918, vandamálum ráð-
stjórnarog tilræði við Lenín. Að-
gangur ókeypis og öllum heimill.
Félag áhugamanna um bókmenntir,
Þórir Kr. Þórðarson prófessor við
Guðfræðideild H.l. heldurfyrirlestur
um Biblíunafrásjónarmiði bók-
menntafræða í Norræna húsinu lau
kl. 15:15.
Er heimilið hornreka þjóðfélagsins?
Stofnfundur Landssamtaka heima-
vinnandi fólks verður að Holiday-lnn
lau kl. 13:30.
Það er leikur að læra, ráðstefna
Pelle erobreren ★★★★
(Pelle slgurvegari)
Þá er hún loks komin til Islands og þvílík
kvikmynd! Sannarlega meistarverk ársins
og það albesta sem komið hefur frá Dönum
og jafnframt Norðurlöndum í mörg ár. Bille
August hefur tekist að gæða fjórðung
skáldsögu Nexös einstöku lífi með yndis-
legri epískri frásögn. Samleikur Hvenegrd
og Von Sydows er með ólíkindum og kvik-
myndatakan gullfalleg. Upplifun sem eng-
inn má láta fara framhjá sér. Húrra fyrir
Dönum.
The Dawning ★★★
(Dögun)
Athyglisvert og vel gert drama frá Bret-
landi. Hopkins, Howard (I sínu síðasta hlut-
verki), Pidgeon og Simmons gera þessa
mynd að sannkallaðri perlu þótt lítið fari
fyrir henni.
The Bear ★★★
(Björninn)
Annaud kemur vissulega nokkuð á óvart
með þessum óð sínum til náttúrunnar en
það verður ekki frá honum tekið að myndin
er listavel gerð. Falleg og rómantísk mynd
og góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna,
sérstaklega þá sem unna óspilltu náttúru-
lífi. Aðalleikararnir fara á kostum!
Sherlock and Me ★★
(Sherlock og ég)
Hárfínn breskur húmor um hlutverka-
skipti Holmes og Watsons, en þó með fullri
virðingu fyrir sögum A. C. Doyles. Caine
hefur loks valið sér hlutverk af kostgæfni
og Kingsley er ekki verri en sem Gandhi á
sínum tíma. Góð hugmynd og ágætlega
útfærð. Prýðis góð skemmtun.
A Cry in the Dark ★★★★
(Móðir fyrir rétti)
Mynd um fórnarlömb náttúrunnar og
jafnvel enn frekar fórnarlömb mannlegs
samfélags þegar þaö tekur á sig hina
grimmustu mynd. Schepisi teflir fram nátt-
úrunni gegn almenningi og fjölmiðlum
þannig að úr verður einhver áhrifamesta
kvikmynd sinnar tegundar í langan tíma.
Mynd sem allir hafa gott af að sjá.
Survival Quest ★
(Upp á lif og dauða)
Misheppnuð spennumynd með einum
rugl söguþræðinum enn. Állt saman heldur
rýrt í roðinu og segir auglýsingaplakatið allt
sem segja þarf.
Laugarásbíó
The Boost ★★★
(Tálsýn)
Ahrifamikil og góð mynd um örlög ungra
hjóna sem falla í hringiðu spillingar og
eiturlyfja í ríkidæmi Los Angeles. Minnir
stundum á Daga víns og rósa nema hvað
nú er auðvitað kók í stað sprútts og myndin
er einnig talsvert hrottafengnari. James
Woods er góður sýkópati að venju og Sean
Young fær alla samúö áhorfandans.
K—9 ★
James Belushi er afskaplega þreytu-
legur í þessari slöppu gamanmynd. Hund-
urinn getur lítið gert að því hvað myndin er
kjánaleg, ekkert frekar en apinn sem var
með Clint Eastwood hér um árið. Nú bíðum
við bara eftir að sjá næstu buddy-mynd því
alltaf reyna þeir að skipta um partner. Stól-
arnir voru ágætir.
Bíóhöllin
Batman ★★
Vinsældirnar eru greinilega djörfu
auglýsingasukki Warner-bræðra að þakka
fremur en kvikmyndinni sjálfri. Myndin á
sínar fyndnu hliðar þegar Jókerinn spriklar
og sprellar en annars nær Batman ekki
uppí nefið á sér fyrir útjaskaðri klisju. Ba-
singer er ekki einu sinni sexí og þá er nú
mikið sagt.
Lethal Weapon II ★★
(Tveir á toppnum 2)
Gibson og Glover eru gott gengi og
Pesci skemmtilega óþolandi en því miður
er myndin yfirkeyrð af ófrumlegum byssu-
bardögum og hvimleiðum hrottaskap. Ekk-
ert er þó verra en steingeldur söguþráður-
inn sem allir hafa séð áður.
Licence to Kill ★★★
(Leyfið afturkallað)
Ein besta Bond-myndin í langan tíma.
Dalton er 007 holdi klæddur og spannar allt
frá hörkutóii til sjentilmanns. Broccoli hefur
hrist, en ekki hrært, upp í Bond-ímyndinni
með góðum árangri.
The Gods Must Be Crazy II ★
(Guðirnir hljóta að vera geggjaðir 2)
Ágæti fyrri myndarinnar var einkum
snjallri og frumlegri hugmynd að þakka. Því
er ekki fyrir að fara hér heldur er, einsog
alltof oft, reynt að notfæra sér vinsældir
fyrri myndarinnar til að gera aðra eins. Á
sér sínar góðu hliðar en þær hverfa fyrir
hinum verri.
Her Allbi ★★
(Með allt í lagi)
Hreint ágætis skemmtun þarsem
Hvað á að gera um helgina?
Leifur Guðjónsson
Ég verð á VMSÍ-þinginu sem fulltrúi Dagsbrúnar, - svo það sé nú á
hreinu.Verði það búið á laugardaginn einhverntíma,-byrja ég vinnu í
Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi á sunnudagsmorgun. Sem sagt full-
bókað og ég drekk ekki brennivín um þessa helgi.
Kvenréttindafélags Islands um leik-
skólastigið verður á Holiday-lnn lau
kl. 10-15. Ráðstefnan er öllum opin.
Doktorsvörn við læknadeild H.l.
verður í Odda stofu 101 lau kl. 14. Atli
Dagbjartsson ver ritgerð sína um til-
raunir á ærfóstrum til að kanna áhrif
beta-örvandi og hamlandi lyfja á eðli-
leg viðbrögð hjarta- og æðakerfis
fóstranna, og á efnaskiptabreytingar
þeirra við vefildisskorti. Andmæ-
lendur: próf. Jelte de Haan frá Hásk-
ólanum í Maastricht, Hollandi og dr.
Jón ÓlafurSkarphéðinsson lífeðlis-
fræðingur. Vörnin eröllum opin.
Mormónar halda ráðstefnu að
Skólavörðustíg 46 su kl. 9:30-11:30.
Gestur og aðalræðumaður er Russell
M. Nelson, postuli kirkjunnar, hjart-
askurðlæknirog höf. kennslubóka og
fræðirita. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni, Göngu-Hrólfur hittist á
morgun kl. 11 að Nóatúni 17, opið
hús í Goðheimum, Sigtúni 3 su kl. 14.
Frjálst, spil og tafl, dansað frá kl. 20.
Félag eldri borgara í Kópavogi, spila-
kvöld í kvöld kl. 20 í Félagsheimili
Kópav.
Ferðafélagið, dagsferðir su: 10:30
Hafravatn- Leirdalur-Bringur, 13
Katlagil-Grímmansfell- Bringur.
klaufinn Tom Selleck likir eftir Cary Grant
hér á árum áður. Vel er fléttað á milli hinnar
raunverulegu sögu og skáldskapar rithöf-
undarins en atriðin með Rúmenum og þar
með talið lokaatriðið heldur hugmynda-
snauð.
Bíóborgin
Hana nú leggur upp í laugardags-
gönguna frá Digranesvegi 12 kl. 10 í
fyrramálið. Nýlagað molakaffi.
Útivist, dagsferðirsu: Kl. 131.
Stórstraums- og kræklingafjöruferð í
Hvalfjörð. 2. Esja- Kerhólakambur.
Hjólreiðaferðir frá Árbæjarsafni
13:30 su: 1. Heiðmerkurhringur
minni, 2. Létt hjólreiðaferð fyrir alla;
Árbæjarsafn- Hljómskálagarður.
Haustlitaferð í Þórsmörk 13.-15.10.
Kvenfélag Bústaðakirkju heldur
kökubasar su kl. 15 í Safnaðarheim-
ilinu. Tekið á móti kökum og basar-
munum lau 13-15, su frá kl. 10.
Kattavinafélag íslands heldurflóa-
markað til ágóða fyrir dýraspítalann
Kattholt að Hallveigarstöðum, Túng-
ötumeginlau kl. 14.
Skaftfellingafélagið verður meö
kvikmyndasýningu og kaffi í
Skaftfellingabúð, Laugavegi 178 su
kl. 14.
Kvennadeild Barðstrendingafélags-
ins verður með basar og kaffisölu í
Safnaðarheimili Langholtskirkju su
kl. 14.
Ameríska bókasaunu loáshaga 16er
nú opið 11:30-18 virka daga. Ollum
velkomið að nýta sér þjónustu
safnsins.
áttu tveggja ólíkra kvenna. Agætlega
leikin, sérstaklega er Midler hrífandi í einni
buddy-myndinni enn. Myndin reynir hins-
vegar að segja alltof mikið, einsog dæmi-
gerð væmin míní-sería, og veldur hún ekki
þessum mikla söguþræði.
Háskólabíó
The January Man ★★
(Janúar maðurinn)
Skemmtileg blanda af gríni og spennu,
gamni og alvöru frá Pat O'Connor. Persón-
utöfrar aðalpersónanna, ásamt góðum
húmor í bland við morðrannsókn heldur
þér vel við efnið. Akkilesarhæll myndarinn-
ar er þó ótrúleg vinnubrögð morðingja og
furðu fávísar löggur áður en hetjan okkar
kemur til leiks. Að þvi leyti hefur Shanley
(Moonstruck) oft skrifað betur.
Batman ★★
Vinsældirnar eru greinilega djörfu
auglýsingasukki Warner-bræðra að þakka
fremur en kvikmyndinni sjálfri. Myndin á
sinar fyndnu hliðar þegar Jókerinn spriklar
og sprellar en annars nær Batman ekki
uppí nefið á sér fyrir útjaskaðri klisju. Ba-
singer er ekki einu sinni sexí og þá er nú
mikið sagt.
Lethal Weapon II ★★
(Tveir á toppnum 2)
Gibson og Glover eru gott gengi og
Pesci skemmtilega óþolandi en því miður
er myndin yfirkeyrð af ófrumlegum byssu-
bardögum og hvimleiðum hrottaskap. Ekk-
ert er þó verra en steingeldur söguþráður-
inn sem allir hafa séð áður.
Forever Friends ★★
(Alltat vinir)
Um margt ágæt lýsing á langvarandi vin-
Indiana Jones III ★★★
(Síðasta krossferðin)
Indiana hefur aftur náð sér á strik eftir
misheppnaða mynd númer tvö. Þessi er
ferskari fantasia en áður og ekki versnar
myndin á því að hafa Connery sem Dr.
Jones sr. En sértu að leita að rólegri stund *
með möguieika á heimspekilegum vanga-
veltum skaltu náttúrlega fara eitthvað ann-
að.
Stjörnubíó
Chances Are ★
(Lífið er lotterí)
Enn ein útgáfan af Heaven Can Wait
sem aftur var gerð eftir Here Comes Mr.
Jordan frá 1941. Þessi er heldur rýr í roð-
inu, þótt auðvitað bregði fyrir ágætum
bröndurum inná milli einsog efnið gefur
tilefni til. Maður snýr aftur og verður skotinn
í dóttur sinni, eða þannig!
Magnús ★★★
Lang besta kvikmynd Þráins til þessa og
jafnframt í hópi betri kvikmynda sem gerð-
ar hafa verið hér á landi. Þráinn hefur náð
auknum þroska sem listamaður og byggir
mynd sina vel upp til að byrja með en ým-
issa brotalama fer að gæta þegar leysa á
úr vandamálum höfuðpersóna. Oft yndis-
legur gálgahúmor og Magnús er
sannkölluð skemmtimynd fyrir alla aldurs-
hópa.
26 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 13. október 1989