Þjóðviljinn - 13.10.1989, Page 28
Þjóðviljinn
Laugar-
dagsútgáfa
aftur
Þjóðviljinn mun framvegis
koma aftur út á laugardögum, en
vegna fjárhagsörðugleika var
ákveðið að leggja niður laugar-
dagsútgáfuna sl. vor tímabundið.
Síðasta reglulega laugardagsblað
Þjóðviljans kom út 1. apríl.
í blaðinu á morgun mun kenna
ýmissa grasa, m.a. má nefna
grein um Hussein Jórdaníukóng ,
ítarlega úttekt á þingi Verka-
mannasambandsins, viðtöl og fl.
auk þess sem haldið verður áfram
að rýna í perlur kýijcmyndahátíð-
arinnar.
Lesendur Þjóðviljans geta því
framvegis hlakkað til þess að
vakna á laugardagsmorgnum.
-Sáf
SKÁK
Jusupov
jafnaði
metin
Þeir Artur Jusupov og Anatoly
Karpov tefldu í gærkvöldi sína
fimmtu skák í áskorendakeppn-
inni. Jusupov vann skákina í að-
eins 37 leikjum og hefur því jafn-
að metin, 2Vi: 2VL Sjöundu ein-
vígisskák Speelmans og Timmans
var frestað að beiðni Speelmans.
Staðan þar er 3*/2 : 2'/2, Timman í
vil.
London, 5. einvígisskák:
Jusupov - Karpov
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rfó
2. Rf3 e6
3. Bg5 c5
4. e3 b6
5. d5 exd5
6. Rc3 Be7
7. Rxd5 Bb7
8. Bxf6 Bxf6
9. c3 0-0
10. Bc4 a6
11. 0-0 b5
12. Bb3 (16
13. Dd2 Rd7
14. Hfdl Bxd5
15. Bxd5 Hb8
16. Dc2 Rb6
17. Hd2 g6
18. Hadl Dc7
19. De4 Kg7
20. h4 De7
21. Df4 Be5
22. Rxe5 dxe5
23. Dg3 Hbd8
24. h5 Hd7
25. b3 Hfd8
26. e4 g5
27. De3 h6
28. c4 Hc7
29. Hd3 Rd7
30. Bxf7 Kxf7
31. Dd2 Ke8
32. Da5 bxc4
33. bxc4 Hcc8
34. Da4 Hc7
35. Dxa6 Hb8
36. Dg6+ Kf8
37. Hf3+
- og Karpov gafst upp.
Bragðarefir í
Skoliagróf
Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra hefur
skipað nefnd sem á að kljást
við vanda loðdýrabænda.
Nefndina skipa þrír fagmenn,
þeir Magnús B. Jónsson frá
Hvanneyri, sem er formaður
nefndarinnar, Guðmundur
Guðmundsson frá Byggða-
stofnun og Eyjólfur Sverris-
son frá Þjóðhagsstofnun. Þá
sitja fjórir stjórnarþingmenn í
nefndinni, þeir Skúli Alex-
andersson, Sighvatur
Blöndal, Guðni Ágústsson
og Ásgeir Hannes Eiríks-
son. Nefndin hélt sinn fyrsta
fund í gær og var hann hald-
inn í þingflokksherbergi Al-
þýðubandalagsins. Nefndin
komst að einni niðurstöðu á
fundinum: að kalla fundar-
staðinn Skollagróf og nefnd-
ina sjálfa Bragðarefi. ■
Ný búgrein
Til skamms tíma hafa verið
stundaðar hinar ýmsu auka-
búgreinar í landbúnaði með
misjöfnum árangri eins og
gefur að skilja. En nú virðist
sem ný búgrein sé að hasla
sér völl sem er rekstur þrota-
búa og eftir öllum sólarmerkj-
um að dæma lítur út fyrir að
sá rekstur gangi allvel. Þær
fréttir berast að norðan að þar
sem áður var rekið eitt
stærsta minkabú landsins sé
nú hafinn rekstur þrotabús.
Ekki fylgir sögunni nánari skil-
greining á starfsemi fyrirtæk-
isins, en þeim sem hafa hug á
að hasla sér völl á sviði at-
vinnurekstrar er hér meö bent
á þessa nýjung.B
Guðmundur Ágústsson
þingflokksformaður Borgara-
flokksins hefur oft verið
nefndur Guðmundur týndi,
vegna þess að ekki hefur bor-
ið mikið á honum á Alþingi.
Svo bar til við nefndakosn-
ingu á Alþingi í gær að ríkis-
stjórnarflokkarnir höfðu sam-
einast um að kjósa Guðna
Ágústsson frá Brúnastöð-
um, þingmann Framsóknar-
flokksins, í eina nefnd. Einn
stjórnarþingmaðurinn virðist
þó hafa misskilið þetta og
hafa haldið að þar væri átt við
Guðmund Ágústsson. Skilaði
hann því inn seðli með nafni
Guðmundar. Þegarforseti las
upp nafn Guðmundar Ágústs-
sonar í stað Guðna gall við í
Halldóri Blöndal: „Hvaða
Guðmund Ágústsson er átt
við. Er þessi seðill ekki
ógildur?“B
Guðmundur týndi
fundinn
GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK
NYIR VEXTIR
MBTBÓK
nafnvextir 22% - ársávöxtun 23,2%
verðtryggð kjör:
5% vextir umfram verðbólgu
GULLBÓK
nafnvextir 20% - ársávöxtun 21%
* Innstæða Gullbókar er alltaf
laus til útborgunar.
* Vaxtaleiðrétting reiknast aðeins
af úttekinni Qárhæð en hefur
ekki áhrif á vexti þeirrar
innstæðu sem eftir stendur.
* Metbók er 18 mánaða sparibók.
Hver innborgun er aðeins
bundin í 18 mánuði.
* Eftir það er hún ávallt laus til
útborgunar en heldur engu að
síður óskertum vaxtakjörum.
* Ekkert úttektargjald.
Við önnumst innlausn og sölu spariskírteina ríkissjóðs
BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI - RÍKISBANKI
GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK GULLBÓK METBÓK
Munið byggingarhappdrætti Þjóðviljans