Þjóðviljinn - 05.01.1990, Page 9
Hallgrímur Helgason og Helgi Þorgils Friðjónsson með portrettmyndimar sem þeir hafa gert hvor af öðrum.
fefti-
Ljósm. Kristinn
Höfuðlausnir
Helgi Þorgils og Hallgrímur Helgason tefla höfðum sínum fram í
anddyri Kjarvalsstaða
All sérstæð sýning verður opn-
uð í anddyri vestursalar Kjar-
valsstaða um helgina. Það er
samsýning þeirra Helga Þ.
Friðjónssonarog Hallgríms
Helgasonar á portrettmyndum
sem þeir hafa gert af sjálfum sér,
hvoröðrum, eiginkonum, kunn-
ingjum og vinum.
Þetta er sýning sem hefur verið
ein fjögur ár í bígerð, en mynd-
imar em frá ámnum 1986 og 1989
auk tveggja mynda frá nýju ári.
Þótt þeir félagar eigi það sam-
eiginlegt að hafa gaman af því að
mála portrett, þá em aðferðir
þeirra frábmgðnar.
Hallgrímur, sem búsettur er í
New York og kunnur af pistlum
sem hann birti reglulega í helgar-
blaði Þjóðviljans fyrir rúmu ári,
málar í fínlega sleiktum dráttum,
gjama þannig að eins og hula
leggist yfir myndina og gefi henni
dularfullt og fjarlægt yfirbragð,
sem stundum verður allt að því
ögrandi. Hallgrímur segist alltaf
hafa haft gaman af því að teikna
portrettmyndir, þótt hann hafi
gert minna af því að færa þær út í
málverki. Hann segist aldrei nota
fyrirsætu, enda sé honum fyrir-
munað að vinna eftir náttúmnnar
fyrirmynd. Þess í stað styðjist
hann við ljósmynd og minningu
um þann karakter sem hann er að
mála.
Helgi gengur hins vegar beinna
til verks. Myndir hans era opnar
og blátt áfram hreinskilnar.
Hann er fyrirmyndinni trúr, enda
segist hann alltaf mála jrortrett
eftir fyrirsætu. Úr myndum hans
má lesa ekki bara karakterinn
sem málaður er, heldur líka
bamslega undran málarans yfir
fyrirbæram náttúrannar, hvort
sem þau birtast í hausum vina og
kunningja eða öðra.
Það er skemmtileg og lær-
dómsrík samanburðarfræði að
sjá hve ólíkum augum þessir mál-
arar sjá hvor annan, og era sjálfs-
myndir þeirra og portrett sem
þeir hafa gert hvor af öðram og
hvor með sínum hætti, í góðu
samræmi við karakterana. Það er
svo áhorfandans að sjá sjálfan sig
í þessum sálarspeglum, en þannig
verða höfuðlausnir. Og hafa þá
allir frelsað sinn haus, hver með
sínum hætti.
-olg
Föstudagur 5. janúar 1990|NÝTT HELGARBLAÐ - SfÐA 9