Þjóðviljinn - 05.01.1990, Síða 9

Þjóðviljinn - 05.01.1990, Síða 9
Hallgrímur Helgason og Helgi Þorgils Friðjónsson með portrettmyndimar sem þeir hafa gert hvor af öðrum. fefti- Ljósm. Kristinn Höfuðlausnir Helgi Þorgils og Hallgrímur Helgason tefla höfðum sínum fram í anddyri Kjarvalsstaða All sérstæð sýning verður opn- uð í anddyri vestursalar Kjar- valsstaða um helgina. Það er samsýning þeirra Helga Þ. Friðjónssonarog Hallgríms Helgasonar á portrettmyndum sem þeir hafa gert af sjálfum sér, hvoröðrum, eiginkonum, kunn- ingjum og vinum. Þetta er sýning sem hefur verið ein fjögur ár í bígerð, en mynd- imar em frá ámnum 1986 og 1989 auk tveggja mynda frá nýju ári. Þótt þeir félagar eigi það sam- eiginlegt að hafa gaman af því að mála portrett, þá em aðferðir þeirra frábmgðnar. Hallgrímur, sem búsettur er í New York og kunnur af pistlum sem hann birti reglulega í helgar- blaði Þjóðviljans fyrir rúmu ári, málar í fínlega sleiktum dráttum, gjama þannig að eins og hula leggist yfir myndina og gefi henni dularfullt og fjarlægt yfirbragð, sem stundum verður allt að því ögrandi. Hallgrímur segist alltaf hafa haft gaman af því að teikna portrettmyndir, þótt hann hafi gert minna af því að færa þær út í málverki. Hann segist aldrei nota fyrirsætu, enda sé honum fyrir- munað að vinna eftir náttúmnnar fyrirmynd. Þess í stað styðjist hann við ljósmynd og minningu um þann karakter sem hann er að mála. Helgi gengur hins vegar beinna til verks. Myndir hans era opnar og blátt áfram hreinskilnar. Hann er fyrirmyndinni trúr, enda segist hann alltaf mála jrortrett eftir fyrirsætu. Úr myndum hans má lesa ekki bara karakterinn sem málaður er, heldur líka bamslega undran málarans yfir fyrirbæram náttúrannar, hvort sem þau birtast í hausum vina og kunningja eða öðra. Það er skemmtileg og lær- dómsrík samanburðarfræði að sjá hve ólíkum augum þessir mál- arar sjá hvor annan, og era sjálfs- myndir þeirra og portrett sem þeir hafa gert hvor af öðram og hvor með sínum hætti, í góðu samræmi við karakterana. Það er svo áhorfandans að sjá sjálfan sig í þessum sálarspeglum, en þannig verða höfuðlausnir. Og hafa þá allir frelsað sinn haus, hver með sínum hætti. -olg Föstudagur 5. janúar 1990|NÝTT HELGARBLAÐ - SfÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.