Þjóðviljinn - 05.01.1990, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 05.01.1990, Qupperneq 18
Þetta er bara myrkur Garðar Baldvinsson skrifar um bókmenntir Sigfús Bjartmarsson: Án fjaðra 98 Ws Mál og menning 1989 Kápa: Ragna Sigurðardóttir Ljóðabókin Án fjaðra er þriðja bók Sigfúsar Bjartmars- sonar en sú fyrsta, Út um lens- portið, kom út fyrir tíu árum 1979. Önnur bók hans, Hlýja skugganna, kom síðan út árið 1985. Án fjaðra á það sameigin- legt með Hlýju skugganna að í henni eru löng ljóð og umfjöllun- arefnið oft ferðalag um framandi lendur svo að einstaklingurinn, maðurinn birtist okkur sem út- lendingur og skerpir þannig sýn okkar á stöðu hans í heiminum. Án fjaðra er löng og efnismikil ljóðabók, tæplega 100 bls., og skiptist í sjö hluta. í henni eru sex ljóðabálkar en annars eru ljóðin flest full blaðsíða að lengd. Þótt hæpið sé að segja að ljóðin fjalli öll um eitt tiltekið efni með ein- um eða öðrum hætti þá eiga þau flest það sammerkt að vera háð sundrungunni, þeirri sundrun manns og heims og trúarkerfa sem nútíminn stendur frammi fyrir. Það mætti jafnvel segja að bókin lýsi því hve maðurinn hefur fjarlægst upphaf sitt sem nú sé honum horfið fyrir fullt og allt. í upphafningu ásýndar sinnar hef- ur maðurinn glatað sjálfum sér, en í fremsta ljóði bókarinnar sem stendur fyrir utan og myndar ein- kunnarorð hennar má sjá ávæn- ing slíkra hugrenninga: hann er búinn að týna því þessu merkjanlega fráviki frá þekktri reynslu þessari sjálfstœðu aðkenningu að hreinum svip (5) Sundruhin á sér margar birt- ingarmyndir í þessum ljóðum. Ein varðar tengsl orða og veru- leika, en tengt henni er samband h'fs og sögu. Hvorttveggja er ná- tengt því hlutverki sem ásýndin leikur í menningu okkar sem hef- ur gert ljósið að tákni sannleika og sælu en snýst hjá Sigfúsi gjaman upp í andstæðu sína: nœrri altæk lygi lýsingin hér allt og ekkert sem sýnist. . . (52) Þessi hending er úr bálkinum „Stefnumót" sem lýsir ferð manns um og yfír borg. Á leiðinni er svo margt að sjá og hugleiða að ferðin verður einhvem veginn út- undan í ljóðinu. Hin ýmsu sjón- arhom verða einsog veggur milli mannsins og heimsins (þess sem fyrir augu ber) á svipaðan hátt og sögur. Mælandi ljóðsins rifjar upp goðsögur um gangvirki heimsins og stöðu mannsins í því en þær hafa öðlast eigið líf eða sjálfstæðan vemleika og koma í veg fyrir þann skilning sem þær áttu að veita. Sagan er hér jafn- gildi ásýndarinnar, blekkingar- hula sem getur verið uppspretta sköpunar, þ.e. list. Orðin em einföld en samhengi þeirra flókið samspil á mörkum venjulegs skilnings, jafnvel ofvaxið honum. Dæmi um slíkt gæti verið 6. ljóð í fyrmefndum bálki: nokkuð / jafn dautt / og marmari í myrkri þessi var góður / finnst honum betri í endursögn / í umlifun / aftur um árin - eyðilegra / en maður undan minni - nei / enga vitleysu hún er afbragð / þessi líka aðför / að afturförinni og tungl / dorgar gulum lokk / dansmeyjar í lognöldu og dregur höfuð í sarp (58) Borgin leikur stórt hlutverk í þessari ljóðabók sem fyrr segir og er þá ekki síst umgjörð um firr- inguna, eins konar leiktjöld eða hreinlega svið. Lífinu er hér líka oft líkt við sögu en einnig við kvikmynd eða leikrit þótt „það finnist ekkert handrit/ þegar þráðurinn er flæktur“ (29). Borg- in er á vissan hátt markmið aftur- fararinnar, lokapunktur þess syndafalls sem hófst við tilkomu Cro-Magnon mannsins (fyrir ca 30.000 ámm) „þegar neandertha- lis / þótti öllu því eytt / sem grandað yrði / ... þakti tákn sín / af ástúð / ... og tók stefnu út og vestur fjöll“ (17). Enda má vel sjá út úr bókinni vísi að mannkyns- sögu með aðaláherslu á það sem miður hefur farið á vegferð mannsins. Horfín er nú sú tíð þegar maður var manns gaman en „í auðum götum / er ákjósan- legt / athvarf og fylgsni / án marka // umbun / í hverju spori“ (78). Athvarfið á ekkert skylt við ná- lægð eða hlýju annarrar mann- eskju, heldur einmitt afhjúpar það einangmn manns ins, sbr. 16. ljóð í bálkinum „Fylgjur": - og einn / speglar öðrum / og speglar svo mér -samkenndin / íþyngir öllum (88) Svo sem sjá má er hér á ferð- inni myndríkur skáldskapur í öguðu formi; ljóðin em ekki auðlesin heldur margræð og stundum torræð. Erindi þeirra er brýnt og þó skyldara vamaðar- orðum en boðun, miðlað á knöppu máli með galdri hljóms Sigfús Bjartmarsson og mynda fremur en rökréttri merkingu, enda efast um að merking sé yfírhöfuð til og gefið í skyn að tjáning sé aðeins „helvítis haugrof/ muldur rista / í merking- ardauðann“ (61). Sá dauði er vaki listarinnar á þessum síðum: þetta er bara myrkur hjarta þess tifandi og blástrekkist um þök háhýs- anna - fjölþreifið sítt og blautt (47) Byggingameistari Ríkisútvarpið - Leiklistardeild SÓLNESS BYGGINGAMEISTARI eftir Henrik Ibsen Þýðandi: Ámi Guðnason Leikstjóri: Jón Viðar Jónsson Leikendur: Erlingur Gtslason, Kristbjörg Kjeld, Róbert Amfinns- son, Steindór Hjörieifsson, Jakob Þór Einarsson, Sigrún Edda Bjömsdóttir, GuðrúnS. Gisladóttir ogfleiri. Hjjóðritun: Friðrik Stefúnsson og Georg Magnússon Jólaleikrit Gufunnar var flutt rétt fyrir áramótin, síðasta laug- ardag ársins síðla eftirmiðdags, glæsilegur endapunktur á leikár- inu 1989. Yfirmaður leiklistar- deildarinnar sá ástæðu til þess að leikstýra leiknum sjálfur og fórst það ljómandi vel úr hendi, þótt ekki sé sú skipan mála til fyrir- myndar að forstöðumenn deilda ríkisstofnana úthluti sjálfum sér bestu bitunum, og skiptir þá engu þótt vel hafi til tekist með leik- stjórn Jóns og flutninginn allan á verkinu. Er reyndar full ástæða til að skoða hvemig verkefnun- um hefur verið deilt á leikstjóra í landinu hjá Ríkisútvarpinu á liðnum árum. Leikurinn um Sólness hefur einu sinni verið fluttur hér á sviði. Þetta drungalega leikrit, um gáf- ur og tækifæri, metnað og listræn- ar kröfur, hefur löngum verið tal- ið táknrænt uppgjör skáldsins við PÁLL BALDVIN BALDVINSSON líf og list. Sínum augum lítur hver á silfrið. Hafi menn áhuga á slík- um lestri og kunni svo góð skil á ævi skáldsins, má koma þesshátt- ar lestrarmáta heim og saman. Venjulegum áheyranda er slíkt fjarri. Fyrir honum er dramað fýrst og fremst uppgjör eigingimi og valda, persónugerðin sem tal- aði úr munni Erlings Gíslasonar var slík. Harðstjóri stýrði öllum kringum sig undir þungum aga, braut allt undir sig. Sagan rekur hvemig óbilgimi, sjálfsblinda og takmarkalítil kröfuharka á þröngri framabraut nærist á fóm- um fjölskyldu, starfsþreki og lífi annarra, hæfileikum og sæmd. Verkið er þannig grimmdarleg kmfning á hinum kapítalíska framkvæmdamanni, „mikil- menninu“ sem slæst við almættið í þeirri undarlegu upplifun að það sjálft sé lítill guð og hafi í fullu tré við allt og alla. Æskan birtist Sólness veit sem er að líkt og hann mddi burt gömlum keppi- nautum, þá birtast honum nýir, ungir menn sem hafa hæfileika og ryðja honum frá. Hann sér tor- tímanda sinn í unga teiknaranum á stofu sinni. En þá birtist ung stúlka sem hann hefur gert sér dælt við fyrir löngu, komin til að heimta sitt og knýr hann til upp- gjörs. Mér hefur reyndar alltaf þótt þáttur hennar í uppgjörinu sem hún hrindir af stað óhugnan- lega sjúklegur. Innan þess smá- borgaralega hegðunarramma sem allar persónur akta í, er Hilda brjáluð, draumar hennar og kröfur galnar. Hún hefur líka gist eitt af þeim hressingarhælum sem kona Sólness hefur sótt. Slík hæli vom ekki einungis mönnum til líkamlegrar heilsubótar heldur líka andlegrar. Þau Sólness og Hilda ná lflca aldrei betur saman en í öfgakenndum og bældum ómm sínum sem að lokum tor- tíma honum svo hún stendur ein eftir og hrópar honum dýrð þar sem hann liggur maskaður á mal- arbing. En þess háttar lestur er minn. Guðrún Snæfríður var aldrei þessu vant afar stillileg í hlutverki af þessu tagi. Búast mátti við sefameiri leik af hennar hálfu. Er það til marks um styrk tök leikstjórans eða er leikkonan að losna úr viðjum þeirrar taugaspenntu týpu sem leik- stjómm hennar hefur þótt svo við hæfi að halda henni í? Bestu kostir Reyndar var sama hvar gripið var niður í leikinn. Allir vom jafnir, skiluðu vel unnum hlut. Víst verð ég að lýsa þeirri skoðun að sú mædda Álína sem Krist- björg lék gaf persónunni ekki þá vídd sem vonir stóðu til. En líkast til er það leikkonum erfitt að finna Álínu fjölbreyttari tón en einn. Það var hinsvegar nógs að njóta í afburðatúlkun Erlings Gíslasonar í hlutverki Hallvarðs Sólness. Hann fór á kostum í hlutverkinu, eins og svo oft er sagt um leikara, rétt eins og þeir séu veltamin hross. Erlingi em hinsvegar ásköpuð þau örlög að hann er afburða skýr listamaður, með ótrúlegt vald á tjáningu sinni í máli. Þetta hlutverk var loka- punkturinn á góðu ári hjá hon- um. Þótt hann hafi ekki verið nema nokkmm sinnum í framlín- unni, oftar bakvörður, hefur hann skilað fínum árangri og sannað betur en oft áður að hann er á toppnum. Bara leikhús- stjórar landsins láti ekki slíka hæfileika vannýtta. Jóni Viðari má óska til lukku með fi'nan ár- angur með þessu ágæta fólki. pbb Meira um heilsurækt Hörður Bergmann skrifar um bækur Útbrunninn? Eftir Barbro Bronsberg og Ninu Vest- lund. Þýðandi Óiafur G. Kristjánsson. 170 bls. Mál og menning 1989. Þeir sem hugsa um heilsu sína og vilja reyna að leysa ýmis vand- ræði í lífi sínu með aðstoð þýddra handbóka eiga nú orðið margra kosta völ. Bókarheitið „Ut- bmnninn?” bendir réttilega til þess að hér er komin bók sem einkum er ætlað að hjálpa þeim sem em að „brenna út”, eyða lífs- orkunni og ógna heilsu sinni með of þungu álagi, vonlausu og ómarkvissu hjakki í sama fari, úrræðaleysi, áhyggjum og fleira í þeim dúr. í tíu köflum er fjallað um það sem höfundarnir telja að ein- kenni þá sem þeir beina máli sínu til - en á undan og eftir koma kaflar um streitu, að læra að segja nei og hollar venjur. Vandamál- unum er lýst með almennum orð- um og þau skýrð nánar með per- sónubundnum dæmisögum úr daglega lífinu að hætti banda- rískra höfunda á þessu sviði. Áhersla er lögð á góð ráð handa þeim sem þarf að gh'ma við þann vanda sem verið er að fjalla um. Eins og títt er um heilsuráð, sem sjást á prenti um þessar mundir, eru flest þeirra gamal- kunn. Manni finnst satt að segja að á þessu sviði sé alltaf verið að segja það sama með dálitlum áherslumun en sjaldan greint frá nýjum tíðindum eða leiðum. Þessi bók er samin af félagsráð- gjöfum sem vantaði námsefni fyrir námskeið sín. Mér virðist sá uppruni efnisins valda því að e.t.v. reynist ekki svo auðvelt sem skyldi að nýta ráðin einn á báti. önnur og markvissari fram- setning og meira tillit til aðstæðna hér á landi hefði orðið gagnlegra fyrir þá sem vilja stunda umbúða- lausa heilsurækt; að gera annað en kaupa sér námskeið og tíma í sérstökum heilsuræktarhöllum. í bók sem þessari er streita vitaskuld mjög til umræðu. Eins og oft áður virðist erfitt að af- marka það fyrirbæri og skýra það skilmerkilega. Eða hvað finnst mönnum um þetta?: „Streita kemur ekki bara fram þegar ein- staklingurinn telur lífi sínu ógn- að. Hún er alltaf fyrir hendi innra með honum í einhverjum mæli. Annars væri hann dauður. Við svengd eykst streitan. Þá hefur þörfum líkamans ekki verið fullnægt og eitthvað verður að gera í málinu. Að áti loknu minnkar streitan. En hún eykst einnig þegar fólk er andlega ófullnægt - eins og þegar kröfur samstarfsmanna eða vina eru of strangar...” Mér finnst undarlegt að tengja ófullnægju við kröfur vina og samstarfsmanna og grunar að eitthvað hafi skolast hér til í þýð- ingunni. Hún er annars þokkaleg eins og dæmið ber með sér, en verður stirð og skrítin á köflum. Eg bendi á orðasambönd eins og „við svengd” og „áð áti loknu”. Enn lakara þykir mér þó þegar talað er um „að vinna með stað- hæfingar”, „gera staðhæfingar”, „gera slökun” og fleira af því tagi. Þýðandinn hugsar ekki alltaf á ís- lensku. \ 18 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 5. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.