Þjóðviljinn - 30.03.1990, Blaðsíða 25
KVIKMYNDIR
Hinn ungi Christy Brown (Hugh O’Connor) fær hér fyrsta bjórsopann
hjá föður sínum (Ray McAnally) fyrir að nota vinstri fótinn í fyrsta skipti
til að skrifa með.
Vinstri fótur
Vinstri fóturinn (My ieft foot)
Leikstjóri: Jim Sheridan
Handrit: Jim Sheridan og Shane
Connaughton
Framleiðandi: Noel Pearson
Aðalleikarar: Daniel Day Lewis,
Brenda Fricker, Ray McAnally og
Hugh O’Connor
Háskólabíó vígir einn af nýju
sölunum með sannsögulegri
mynd um írska málarann og rit-
höfundinn Christy Brown.
Myndin, My left foot eða Vinstri
fóturinn sem gerð er eftir sjálfs-
ævisgöu Christy, vann tvenn
Óskarsverðlaun síðastliðinn
mánudag. Daniel Day Lewis
fékk Óskar fyrir bestan leik í að-
alhlutverki og Brenda Fricker
sem besta leikkona í aukahlu-
tverki. Þó að Óskarsverðlaunin
séu ekki alltaf sem bestur mælik-
varði á gæði myndar, þá er óhætt
að segja að í ár var einstaklega vel
valið. Vinstri fóturinn átti svo
sannarlega verðlaunin skilið og
þótt fleiri hefðu verið.
Vinstri fóturinn fjallar í stuttu
máli um ævi Christy Brown, frá
fæðingu hans í Dublin 1932 og
þar til hann hittir tilvonandi konu
sína, Mary Carr, 1959.
Christy fæðist taugalamaður,
hann getur ekki talað og ræður
ekki við hreyfingar neins lík-
amshluta nema vinstri fótarins.
Læknar segja foreldrum hans að
hann verði fáviti alla sína ævi, en
þau neita samt að setja hann á
hæli: „Fyrr í kistuna en á hæli“
segir faðirinn fullur af fjölskyldu-
stolti. Svo að Christy elst upp í
fátækri, fjölmennri og einstak-
lega samheldinni fjölskyldu sem
frú Brown stýrir með járnhendi í
silkihanska. Það er móðurinni að
þakka og ást hennar á bækluðum
syni sínum að systkini hans og
faðir koma fram við hann eins og
fullgildan fjölskyldumeðlim en
ekki fávita. Og það er náttúrlega
þessari ómótstæðilegu fjölskyldu
að þakka að Christy sigrast á fötl-
un sinni og tekst að gera sig
skiljanlegan. Þaðan liggur
skrykkjóttur vegur upp á við til
frægðar og frama.
Það væri ákaflega auðvelt að
gera dæmigerða grátmynd eftir
þessari sögu. Sigur Christy á fötl-
un sinni býður upp á fjölmargar
átakanlegar nærmyndir. En
myndin jaðrar aldrei nokkurn
tímann við að vera væmin. f stað
þess er hún fyndin og hlý og af-
skaplega áhrifamikil.
Daniel Day Lewis er eins og
kamelljón, skiptir um lit í hverju
hlutverki, (nægir að minna á
uppstoppaða aristókratann í
Herbergi með útsýni og kvenna-
manninn ómótstæðilega í Óbæri-
legum léttleika tilverunnar), og í
hlutverki Christy sýnir hann á sér
enn eina hlið. í vinstri fætinum
tekst Lewis ekki aðeins að sýna
manninn á bak við fötlunina,
heldur tekst honum að gera hann
blátt áfram sexí, sem manni
finnst að hljóti að vera ómögu-
legt. Enda fellur Mary Carr fyrir
honum um leið og hún hittir
hann, ekki af meðaumkun heldur
vegna þess að hann er greinilega
ástríðufullur og gáfaður maður
og þetta getur hann bara sýnt
með vinstri fætinum, sem fær
mann til að velta því fyrir sér
hvort allt hitt sé aðeins hjóm!!
Leikaraval hefur á heildina
litið tekist með afbrigðum vel og
undir leikstjórn Sheridans verða
allir óaðfinnanlegir, þó eiga þau
sérstakt lof skilið Hugh O’Conn-
or sem leikur Christy ungan og
Brenda Frickan sem leikur móð-
ur hans. Allt í allt er ekki hægt
annað en að hrópa þrefalt húrra
fyrir Vinstri fætinum og láta þar
við sitja.
Þó verð ég að finna að einu í
sambandi við hvernig sýningu
myndarinnar er háttað. Háskóla-
bíó klippir að sjálfsögðu myndir í
tvennt með hléi eins og önnur
kvikmyndahús á íslandi, enda er
löngu sannað að landinn verður
að fá popp og kók á klukkutíma
fresti, svo að ég er ekkert að ergja
mig yfir því. Hinsvegar ætla ég a
ergja mig yfir hvar klippt er í
sundur. Hléið kemur í hádramat-
ísku atriði, eiginlega í eina skiptið
sem Christy gerir uppreisn gegn
fötlun sinni. Það er mikill tilfinn-
ingahiti í þessu atriði og klipping-
in dregur úr áhrifunum.
FLÍSAR
Ný sending
af glœsilegum flísum
á gólf og veggi.
Mikið úrval
ATH: Eigum afganga á niÖursettu verði frá því
Stórhöfða 17 við Gullinbrú - sími 67 48 44
Kómískur kvendjöfull
Ævi og ástir kvendjöfuls (She-Dcvil)
Leikstjóri: Susan Seidelman
Framleiðandi: Susan Seidelman og
Jonathan Brett
Handrit: Barry Strugatz og Mark R.
Burns
Aðalleikarar: Meryl Streep, Rose-
anne Barr og Ed Begley Jr.
Margir hafa eflaust lesið bók
Fay Weldon um ævi og ástir
kvendjöfuls og enn fleiri muna
eftir bresku sjónvarpsþáttunum
sem gerðir voru eftir bókinni og
ríkissjónvarpið sýndi hér fyrir
u.þ.b. tveimur árum. Nú er kom-
in amerísk útgáfa í leikstjórn Sus-
an Seidelman (Desperately seek-
ing Susan) sem á lítið skylt við
fyrrnefnda bók.
Fyrir þá sem hvorki kannast
við bók né þætti er þetta ágætis
afþreying, en þeir sem hafa ann-
aðhvort lesið eða séð fyrri útgáfu
verða líklega fyrir vonbrigðum.
Hefnigjarni kvendjöfullinn er
SIF GUNNARSDÓTTIR
SKRIFAR UM KVIKMYNDIR
orðinn hálfgerður trúður, alls
ekkert ægileg, myndin endar vel
á amreríska „happy end“ vísu,
kvendjöfullinn fyrirgefur öllum
allkt og segir að lokum afskap-
lega umburðarlynd að fólk geti
breyst.
Öðruvísi mér áður brá.
í örstuttu máli er þetta mynd
um konu, Ruth, sem leikin er af
Roseanne Barr, sem hefnir sín á
kvensömum manni sínum, Bob -
Ed Bogley, og ástkonu hans
Ruth (Roseanne Barr) Bob (Ed Begley, Jr.) og Mary (Meryl Streep
hittast í fyrsta skipti.
skáldkonunni Mary Fisher sem
Meryl Streep leikur snilldarlega,
með því að gera ævintýralegt líf
þeirra helvíti líkast. Hún sendir á
þau frek börn og drykkfellda
móður, og að lokum setur hún
eiginmanninn í fangelsi fyrir
svindl. Þar með er draumurinn
búinn og myndin sömuleiðis.
Roseanne Barr er í þessari
mynd að þreyta frumraun sína á
hvíta tjaldinu, en hún skemmtir
okkur á mánudagskvöldum í
sjónvarpinu ásamt fjölskyldu
sinni, og í hreinskilni sagt held ég
að hún ætti að láta sjónvarpið
nægja, hún hefur að minnsta
kosti ekki nægilega breidd til að
koma kvendjöflinum til skila. Ed
Begley kemst skammlaust frá
sínu hlutverki sem lyginn
kvennabósi en senuþjófurinn er
tvímælalaust Meryl Streep sem
leikur hér gamanhíutverk í fyrsta
skipti og vonandi ekki síðasta.
Hún er geysilega fjölhæf leik-
kona en það þarf meira en hana
til að lyfta kvendjöflinum upp úr
meðalmennskunni.
Laugarásbíó
Ekið með Daisy ★★★★
Nú er þessi mynd búin aö raöa á sig Ósk-
arsverðlaunum og ekki að ástæðulausu.
Jessica Tandy og Morgan Freeman leika
af innlifun eftir stórskemmtilegu handriti.
Eigum við að segja hugljúf mynd sem eng-
inn ætti að missa af? / Sif.
Auglýsing frá
Orlofssjóði VR
ORLOFSHUS VR
Dvalarleyfi
Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1990. Umsóknir á þar til gerðum
eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 9. hæð í síðasta iagi 20. apríl 1990.
Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum:
Ölfusborgum
Húsafelli í Borgarfirði
Svignaskarði í Borgarfirði
lllugastöðum í Fnjóskadal
Vatnsfirði, Barðaströnd
Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu
íbúðir á Akureyri
Flúðum
Miöhúsum, Biskupstungum
Aöeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeirsem ekki hafa dvaliðsl. 5ár í orlofshúsum átíma-
bilinu 28. maí til 17. september sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir
18. maí n.k. fellur úthlutun úr gildi. Dregið verður milli umsækjenda ef fleiri umsóknir berast en hægt
er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 5. maí n.k. kl. 14 og hafa umsækj-
endur rétt til að vera viðstaddir.
Sérstök athygli er vakin á því að umsókinir verða að berast skrifstofu VR
í síðasta lagi föstudaginn 20. apríl n.k.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 9. hæð. Ekki verðurtekið á móti
umsóknum símleiðis.