Þjóðviljinn - 29.06.1990, Síða 4

Þjóðviljinn - 29.06.1990, Síða 4
Steingrímur J. Sigfusson er á beininu_ Ég heföi kosiö að BHMR-málið heföi boriö aö meö öörum hætti Um þessar mundir viröast öll spjót standa á Alþýöubandalaginu hvort heldur er innan flokks eóa í ríkisstjórn: flokkadrættir hafa veriö áberandi meðal flokksmanna og ýmis erfiö mál hafa mætt á ráöherrum Alþýöu- bandalagsins undanfariö og má þar nefna Mógilsármáliö s.n. og þá á- kvöröun ríkisstjórnarinnar aö fresta einhliöa launaleiöréttingu til handa BHMR-félögum. Á miöstjórnarfundi Alþýöubandalagsins sem hefst í dag má reikna meö aö tekist veröi hraustlega á um þessi mál og önnur innan- mein sem hrjáö hafa flokkinn upp á síðkastið. Þaö er því ekki aö ófyrirsynju aö Steingrímur J. Sigfússon, varaformaöur Alþýöubandalags- ins og formaöur mióstjórnar er á beininu í dag. Mynd: Ari. Eitt þeirra mála sem orðið er að ásteytingarsteini meðal flokksfélaga er hvort kalla beri saman landsfund Alþýðu- bandalagsins í upphafí næsta árs. Þegar hafa nokkur kjör- dæmisráð lýst sig andvíg þess- ari hugmynd. Steingrímur þú hefur aftur á móti lýst því yfir að flokkurinn kunni að koma sterkari en eiia út úr slíkum fundarhöldum skömmu fyrir kosningar. Hvernig rökstyður þú þessa skoðun þína? Eg hef yfirleitt verið að svara spumingum sem fram hafa verið bomar í kjölfar þess að Alþýðu- bandalagsfélög hafa verið að krefjast landsfundar. Eg tel eðli- legt að sú ósk og þær hugmyndir séu ræddar í stofnunum flokksins. Ég minni á það að stærsta flokks- félagið, félagið í Reykjavík og Æskulýðsfylking Alþýðubanda- Iagsins hér á svæðinu, hafa á- lyktað í þessa vem og sömu radd- ir hafa heyrst frá stöðum úti á landi. Það er því ljóst að um þetta eru skiptar skoðanir í flokknum og það er eðlilegt. Þetta er því mál sem við þurfum að ræða og leiða til Iykta. Það er einmitt það sem verður gert á næstunni og við það er engu að bæta. Hvað mig persónulega áhrær- ir get ég séð ýmsa kosti og einnig ýmsa galla því samfara að halda landsfund í upphafi kosningabar- áttunnar. Það er ansi hætt við því að ágreiningur um menn og mál- efni í flokknum geti verkað veikt í þeirri kosningabaráttu sem í hönd fer. Það er því eðlilegt að menn velti því fyrir sér hvort það gæti ekki styrkt flokkinn að ganga frá kosningastefnuskrá á landsfundi og framboðsmálum þannig að það væri alveg skýrt hvaða Iinu flokkurinn vill fylgja í þeim efn- um. Það hafa verið uppi hug- myndir um að smala saman til sameiginlegs framboðs á vinstri kantinum eins og reynt var á nokkrum stöðum í sveitarstjóm- arkosningunum. Ég held að það sé afar óheppilegt að slík mál séu að velkjast fyrir mönnum þar til kosningabarátlan hcfst. Það má vel færa fyrir því rök að við gæt- um styrkt okkur með því að koma þessum hlutum á hreint þannig að andstæðingar okkar geti ekki spil- að á það í kosningabaráttunni að Alþýðubandalagið sé ósamstætt. Síðan em önnur sjónarmið sem mæla gegn þessu. Ymsir flokksmenn óttast að ef átök verða í aðdraganda eða á slíkum fundi, sem því miður er ekki hægt að útiloka eins og málin hafa æxl- ast að undanfomu, þá geti það verið slæmt íyrir flokkinn svo skömmu íyrir kosningar. í þjóðviljanum fyrir skömmu lýstir þú því yfir að BHMR-deilan væri sérlega erf- itt mál fyrir ykkur Alþýðu- bandalagsráðherrana og grundvallaratriði væri að stað- ið væri við gerða samninga. Hvernig á að skilja þessi um- mæli þín? Það er engu líkara en þér hafí verið ókunnugt um að launaleiðréttingunni yrði slegið á frest eða kynnti fjármálaráð- herra samráðherrum sínum ekki málið, frekar en að ekki var rætt við þingflokkinn? Varðandi það síðasta er það því miður rétt að það var ekki að- staða til þess að hafa um þetta samráð við þingflokkinn eins og eðlilegt og æskilegt hefði verið. En varðandi þau ummæli sem ég hef lálið frá mér fara þá var ég einfaldlega að lýsa almennri af- stöðu minni til þessara hluta. AI- þýðubandalagið sem verkalýðs- flokkur hefur frá upphafi haft sér- stöðu og staðið miklu ákveðnara verkalýðsmegin en aðrir flokkar. Nú ber að taka það skýrt fram að ríkisstjómin telur sig ckki vera að bijóta þennan samning, heldur að fresta framkvæmd ákveðinna at- riða á grundvelli fyrirvaraákvæð- is sern er í samningunum. Vegna þess að menn eru ekki á eitt sáttir um það hvort samningurinn heimili þessa frestun eins og að henni var staðið þá liggur í hlutar- ins eðli að málið verður við- kvæmt fyrir Alþýðubandalagið. En cr það ekki í hæsta máta óeðlilegt að ríkisstjórnin skuli standa þannig að málum gagn- vart samningsaðila — það er ekki rætt við hann og þetta er einhliða ákvörðun sem tekin er án þess að viðræður hafi átt sér stað? Ég get ekki annað en viður- kennt að þctta mál ber ekki að öllu leyti að svo sem æskilegast hefði verið. En ég vil minna á að fyrir því eru ákveðnar ástæður. Það var sett á laggirnar starf til að reyna að gera samanburð á launa- kjörum BHMR-manna og ann- arra. Með vísan til þess að því starfi var ekki lokið þá voru við- ræður ekki hafnar. Menn voru að vonast til að fá niðurstöðumar í hendur áður en af því yrði. Vænt- anlega er það helsta vöm ríkisins fyrir því að ekki var búið að ræða við samningsaðila. Auðvitað vildi maður sjá þetta mál lcitt til lykta með einum eða öðmm hætti svo að báðir aðilar gætu verið sæmi- lega sáttir við lausn mála. Það væri að sjálfsögðu æskilegasta lausnin frá beggja hálfu. En er í raun og veru hægt að taka mark á Alþýðubandalag- inu sem verkalýðsflokki og málsvara launafólks á eftir það sem á undan er gengið? Jú, það álít ég. Verkalýðs- flokkur á að hafa sína stefnu í launa- og kjaramálum. Það var í upphafi höfuðverkefni þessarar ríkisstjómar að ná tökum á þeirri upplausn í efnahagsmálum sem hér ríkti í kjölfarið á hruni ríkis- stjómar Þorsteins Pálssonar. I því sambandi hefur sú þjóðarsátt í kjaramálum sem gerð var í samn- ingum í vetur verið afar mikil- væg. Hún varð möguleg vegna þeirra aðgerða sem ríkisstjómin hafði gripið til, og vegna þess hvemig jarðvegurinn hafði verið undirbúinn frá haustmánuðum 1988. Menn settu sér afar ströng markmið í efnahagsmálum. Þann- ig getur farið að menn verði að velja á milli slíkra markmiða og einhverra kjaramarkmiða hópa eða stétta. Það er jú nokkuð ljóst að hækkunin sem BHMR-fólk fengi myndi í kjölfarið ganga yfir allan vinnumarkaðinn og þar með yrði ekki sú leiðrétting eða jöfnun sem stefnt var að með samningn- um. BHMR-fólkið yrði einfald- lega áfram á sama stað. Ég held að það þýði ekki endilega að Alþýðubandalagið sé orðið ómarktækt sem verkalýðs- flokkur þó að við gefum þessum efnahagsmarkmiðum mikinn for- gang. En auðvitað vildum við helst ná fram hvorutveggju. Menn mega ekki glcyma því að náist þessi efnahagsmarkmið er það einnig mjög mikilvægt kjaraatriði. Ég vil minna á það að hinn almenni launamaður og bændur hafa lagt á sig fómir til þess aó þessum markmiðum mætti ná og samið hefur vcrið við stóra hópa launafólks með þctta í huga. Okkur er því vitanlega mjög mikið í mun að þessar fóm- ir verði ekki til einskis. Þetta er það sem við emm að reyna að segja og höfðum til skilnings BHMR-manna á. Þess vegna kem ég að því aftur að lang æskilegast er ef hægt væri að ná samkomu- lagi við þá einnig, því við eigum öll sameiginlegra hagsmuna að gæta. Það em auðvitað stór tíð- indi og einmitt stórkostlegt fyrir launafólkið í Iandinu ef okkur tekst að ráða niðurlögum óða- verðbólgunnar og koma henni á sambærilegt stig og ríkir í ná- grannalöndunum. Víkjum að öðru. Það hefur vakið athygli að þú og Svavar Gestsson virðist hafa verið í nokkurri andstööu við samráð- herra ykkar og ekki síður sam- ráðherra og flokksbróður Ólaf Ragnar Grímsson hvað varðar mikilvæga málaflokka eins og álmálið, EB/EFTA-málið og nú síðast í deilunni við BHMR. Ágreiningur ykkar í millum hefur einnig komið fram á vett- vangi flokksins og nægir þar að nefna óánægju ykkar með af- stöðuleysi flokksformannsins til framboðsmála Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík. Eruð þið Svavar bæði i stjórn og stjórnarandstöðu? Ég verð að mótmæla þessu mjög harðlega. Ég tel að við Svavar Gestsson höfúm ekki ver- ið síðri liðsmenn þessarar ríkis- stjómar en aðrir. Ég fúllyrði að þrátt fýrir deilur innan Álþýðu- bandalagsins og á köflum ólíka afstöðu okkar ráðherranna til ein- stakra mála eins og gengur, þá höfum við verið menn til þess að fara með það. Ég held að það sé ekki um það deilt að Alþýðu- bandalagið hefúr verið mjög heilt í þessu stjómarsamstarfi. Ég bendi á að skoðanakannanir hafa sýnt að stuðningur við ríkisstjóm- ina er einna mestur meðal kjós- enda Alþýðubandalagsins. Það segir sína sögu. Ágreiningur hlýtur alltaf að koma upp í lýðræðislegum stjóm- málafiokkum og í öllu stjóm- málastarfi. Það sem skiptir hins vegar máli er hvort menn kunna að fara með þann ágreining og kunni að leysa hann og/eða að búa við hann að svo miklu leyti sem slíkt hlýtur að verða. Það vil ég meina að okkur hafi tekist. Ég minni á að þær ríkisstjómir sem við höfum átt sæti í síðan 1988 hafa gefið af sér gerólíka mynd og í reynd sýnt með verkum sín- um allt aðra og betri samstöðu milli manna heldur en sú næsta þar á undan sem varð jú fræg af illindum og ólátum. Og þurffi þá ekki Alþýðubandalagið til. Á miðstjórnarfundi flokks- ins sem hefst í dag má búast við að kosningaúrslitin í vor og deilan við BHMR verði ofar- lega á baugi. Á formaður mið- stjórnar von á stormasömum fundi? Nei. Ég vil taka það skýrt fram að þetta er reglulegur fundur miðstjómar og einn af þremur sem lög fiokksins gera ráð lyrir að haldnir séu þau árin scm ekki er gert ráð fyrir landsfundi. Það var ákveðið strax í janúar að það yrði fundur á vormánuðum eða snemma sumars. Þessi fundur er því ekki haldinn í tengslum við kosningaúrslitin eins og sumir virðast halda. Á þessum fundi verður eins og venja er rædd mál- efnastaða fiokksins og störf okkar í ríkisstjóm. Það þótti að sjálf- sögðu eðlilegt að úrslit sveitar- stjómarkosninganna yrðu einnig á dagskrá þar sem fundurinn er haldinn skömmu eflir kosningar. Ég á ekkert frekar von á að á þessum fúndi verði teknar stórar ákvarðanir. Ég vonast hins vegar til þess að á fundinum verði hreinskiptnar og málefnalegar umræður um þessi stóru mál sem uppi eru. Nýverið réðir þú til starfa í landbúnaðarráðuneytinu Gunnlaug Júlíusson, hagfræð- ing, sem er í ársleyfi frá Stéttar- sambandi bænda, tii verkefna í tengslum við gerð nýs búvöru- samnings. Er það forsvaranlegt að aðili svo nátengdur öðrum þeim aðila sem stendur að gerð samningsins skuli vera fenginn til þessa starfa? Ég hef orðið þess var að margir telja sig finna mat í þessu. Ég bar fram þá ósk í fyrra við fjár- lagagerðina að fá liðsstyrk inn í ráðuneytið á sviði verðlagningar búvöruframleiðslu, rekstrarkostn- aðar í landbúnaði og hinum ýmsu hagrænu þáttum landbúnaðar. Það varð svo úr þegar ég hafði farið yfir það hvar slíka menn væri að finna og hveijir þeir væru að sá sem stóð upp úr að mínu mati hvað þekkingu og reynslu á þessu sviði varðar var Gunnlaug- ur Júlíusson. Það að hann hafði starfað á vegum Stétlarsambands bænda gerði hann ekki óhæfan til að starfa fýrir nýjan húsbónda og nýta reynslu sína á nýjum vinnu- stað. Það varð úr að hann féllst á að koma yfir í landbúnaðarráðuneyt- ið. Hér sinnir hann mörgum og fjölbreytilegum verkum, þar sem eitt af mörgu er að vera til aðstoð- ar í ráðuneytinu hvað varðar hina hagrænu þætti sem tengjast gerð nýs búvörusamnings. Hann er að- eins einn af mörgum sem kemur inn í þessa vinnu með einum eða öðrum hætti. Að ætla að fara að gera hann að einhvetjum aðal- samningamanni ríkisins og að hann sitji þá báðum megin við borðið er út í hött. Steingrímur, að lokum. Stefnir þú að því að verða for- maður flokksins? Nei, ég hef nú aldrei stefnt að neinum slíkum embættum í fiokknum og ég stefndi til dæmis ekki að þingmennsku á sínum tíma. Það að stefna að stöðum eða vegtyllum í þessum efnum eins og slíkt séu aðalatriði í stjóm- málastarfi tel ég rangt og hættu- Iegt ef menn eru í stjómmálum með þvílíku hugarfari. Þátttaka í stjómmálum er félagslegt verk- efni en ekki spuming um einstak- lingsframtak. -rk 4 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 29. júní 1990

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.