Þjóðviljinn - 06.07.1990, Page 6
Heiðursborgarí
í Rostock
Adoif Hitler var á miðvikudag
sviptur sérréttindum, sem hann í
bálfa öid eöa lengur hefur nptiö
sem heiðursborgari í Rostock, nú
norðarlega í Austur-Þýskalandi.
Borgarstjórn Rostock fann nafn
hans og fleiri háttsettra nasista á
skrá yfir heiðursborgara staðar-
ins er flett var í skránni í þeim
tilgangi að strika yfir nöfn hátt-
settra manna í kommúnistaflokki
landsins, sem sæmdir höfðu verið
heiðursborgaratitli á valdatíð
þess flokks. Ákvað borgarstjórn-
in þá að nöfn Hitlers og hans
manna yrðu einnig strikuð út af
skránni.
Aðstoðaöi
við sjáifsvíg
David Lewis, 38 ára gamall sál-
fræðingur í Vancouver í Bresku
Kólumbíu, Kanada, gaf til kynna
í fyrradag að hann hefði aðstoðað
átta manneskjur, veikar af eyðni,
við að svipta sig lífi. Fyrir aðstoð
við sjálfsvíg er í Kanada hægt að
dæma menn til allt að 14 ára fang-
elsisvistar, en Lewis, sem sjálfur
er fársjúkur af eyðni, telur sig
eiga í lengsta lagi tvö ár ólifuð.
Aðstoð sú, sem hann veitti, var í
því fólgin að skilja eftir hjá sjúkl-
ingunum stóra skammta af sterk-
um lyfjum. Lewis, sem er for-
maður félags eyðnisjúklinga í
Vancouver, segist vera þeirrar
skoðunar að lögleiða beri líknar-
dráp í Norður-Ameríku.
Renoir-mynd
stolið
Málverki eftir franska listmál-
arann Renoir var stolið um há-
bjartan dag og í návíst safnvarða
og margs annars fólks á safninu
Louvre í París í fyrradag. Er svo
að sjá að þjófurinn hafi skorið
málverkið úr rammanum með
rakhnif. Það heitir La Femme
Assise (Sitjandi kona) og er
metið á sem svarar 48 milj.
króna.
Mútur og góð
mæting
Olivier Stirn, ferðamálaráð-
herra Frakklands, sagði af sér því
embætti í vikunni eftir að tals-
menn stjórnarandstöðuflokka
höfðu sakað hann um að hafa
mútað atvinnulausum unglingum
til þess að mæta á námstefnu, sem
ráðuneyti hans gekkst fyrir. Var
það talið ráðherra til vegsauka að
mætingin var góð. Að sögn borg-
aði hann ungiingunum 300 franka
(um 3000 kr.) hverjum.
Serbar leysa upp
Kosovoþing
Þing Serbíu lýsti því yfir í gær
að þing sjálfstjómarhéraðsins
Kosovo skyldi leyst upp. Áður
höfðu serbnesk stjómvöld lýst ó-
löglega samþykkt Kosovoþings,
þess efnis að héraðið segði skilið
við Serbíu. Sú samþykkt Kosovo-
þings var gerð á mánudag.
Mannræningjar
gramir íransstjórn
Kastast hefur í kekki með ís-
lamska Jihad, sjítaflokki þeim í
Líbanon er sagður er hafa flesta
vestrænu gíslanna þar í haldi, og
stjórn írans. Tveir gíslanna,
Bandaríkjamennirnir Robert
Polhill og Frank Reed, vora látn-
ir lausir í aprfl s.l., að sögn eink-
um vegna þrýstings frá Iran og
Sýrlandi. Stjórn fyrmefnda ríkis-
ins vildi með því milda hug vest-
urlandaríkja í sinn garð, en Ji-
hadmönnum gramdist sá þrýst-
ingur er íranskir verndarar þeirra
beittu þá. 15 vesturlandamenn
eru enn fangar mannræningja í
Líbanon, þar af sex Bandaríkja-
menn, þrír Bretar, tveir Vestur-
Þjóðverjar, tveir Svisslendingar,
einn íri og einn ítali.
Troðningur í Mekka
Vegna bættra samgangna og efnahags hefurfjöldi Mekkapílagríma
margfaldast síðustu ár. Því fylgir aukin hætta á slysum og átökum
Fimm meginatriði guðsdýrkun-
ar í íslam eru trúarjatning,
bænin sem iðkuð skal fimm sinn-
um á dag á vissum tímum, fram-
lag til fátækra og sjúkra, fasta,
iðkuð í mánuði nefndum á ara-
bísku ramadan, á persnesku og
tyrknesku ramazan og pflagríms-
för til Mekka (haj, hadj, hadjdj).
Þessi atriði eru gjarnan kölluð
grunnstoðir íslams fimm.
Þessa dagana er síðastnefnda
stoðin ofarlega á baugi í
heimsfréttunum vegna hörmu-
legs slyss í grennd við Mekka á
mánudag, er yfir 1400 pflagrímar,
margir þeirra Indónesar og Tyrk-
ir, köfnuðu eða tróðust undir til
bana í göngum undir aðalvegi, er
þeir voru á leið milli tveggja
helgra staða á þeim slóðum.
Tvær miljónir
1987
Pflagrímsferðir til Mekka,
helgustu borgar íslams, eiga sér
stað einu sinni á ári, í síðasta
mánuði íslamsárs. Ætlast er til
þess að hver múslími fari slíka för
að minnsta kosti einu sinni á
ævinni, og með stórbatnandi
samgöngum og batnandi efnahag
talsverðs hluta múslíma (olía
o.fl.) hefur margfalt fleira fólki á
undanförnum áratugum gefist
kostur á að gegna þeirri trúar-
skyldu en áður var. Á 19. öld
vora pflagrímarnir aldrei fleiri en
160.000 árlega, 1970 voru þeir
um 375.000 og 1987 um tvær milj-
ónir.
Hin eiginlega guðsdýrkun sam-
fara pílagrímsförinni hefst er pfl-
agrímurinn klæðist sérstökum
búningi, sem hann verður að gera
áður en hann fer inn í Mekka. Sá
búningur er á arabísku, tungu ís-
lams, nefndur ihram, sem þýðir
að með því að hafa skrýðst bún-
ingnum er pflagrímurinn helgað-
ur, laus við veraldlegan hvers-
dagsleika. í helgunarástandi
þessu verður hann að gæta þess
að hafa vissar reglur í heiðri.
Hann má þannig f því hvorki raka
sig né skerða hár sitt, ekki klippa
neglur, ekki bera á sig ilmefni eða
núa olíu í hár sér, ekki hafa sam-
farir eða verða dýrum að bana,
né heldur fella tré eða yfirleitt
slíta upp nokkrar jurtir. Viss frá-
vik koma til greina.
Abraham alls-
staðar nálægur
Einn þekktasti liður helgi-
haldsins, sem fer fram jafnframt
nánast stöðugum bænalestri, er
helgihlaupið kringum Kaaba,
moskuna fornu í Mekka sem er
heilugust af öllu helgu þar í borg
og þar með í heiminum öllum,
samkvæmt trú múslíma. í austur-
horni musteris þessa er inn-
múraður svartur steinn, helgast-
ur af öllu helgu í guðshúsinu.
Vaninn er að hver pflagrímur
renni helgihlaupið þrisvar, með-
an hann dvelst í Mekka. Það ger-
ist með þeim hætti að pflagrímur-
inn fer sjö sinnum andsælis kring-
um Kaaba.
Abraham, sem arabar kalla
íbrahim og telja líkt og frændur
þeirra gyðingar forföður sinn, er
allsstaðar nálægur í Mekka. í
Kóraninum stendur skrifað að
hann hafi með aðstoð sonar síns
ísmaels byggt Kaaba, elsta sanna
helgidóminn í heimi. Múslímar
trúa því einnig að Abraham sé
höfundur allra þeirra helgisiða,
er pflagrímar iðka í Mekka.
íranir (á jarðskjálftasvæðinu í norðvesturhluta lands síns) biðjast fyrir í áttina til Mekka - nú fá þeir ekki að
fara þangað sem pílagrímar.
Eins og margt annað úr gyðing-
dómi og kristni er biblíusagan um
Abraham og Hagar, ambáttina
sem hann gat ísmael við og rak
síðan ásamt með barninu út á
eyðimörk, með í íslam, með
þeirri breytingu að vegur ísmaels
er aukinn og hann tekinn að
nokkra við hlutverki því er ísak
hálfbróðir hans hefur í Biblíunni.
ísmael er þannig forfaðir araba,
hliðstætt því að gyðingar eru
komnir af ísak. í íslam er það
ísmael, sem Abraham ætlar að
fórna að boði Drottins, en ekki
ísak eins og með gyðingum og
kristnum mönnum.
Hámark
helgihalds
Mikilvægur liður í hátíðahöld-
um þeim, er hér um ræðir, er að
vitjað er helgrar lindar, Zamzam,
skammt frá Kaaba. Sú lind á að
hafa sprottið upp þar í auðninni
er Hagar reikaði þar um með
drenginn sinn, að bana kominn af
þorsta. Lind þessi helg er einnig í
þættinum um Hagar og ísmael í
Gamla testamentinu, en þar er
hún staðsett þar sem nú er ísra-
elsríki sunnanvert.
Pflagrímarnir renna kringum
Kaaba og vitja Zamzamlindar
hver fyrir sig, en í vissum atriðum
helgihaldsins taka allir þátt sam-
eiginlega. Þau hefjast með því að
níunda dag pflagrímamánaðarins
leggja allir pflagrímarnir leið sína
til Arafat, sem er flöt rúma 20 km
austur af Mekka. Á flötinni safn-
ast allir fyrir og dveljast þar frá
hádegi til sólarlags. Við flötina er
klettahæð, kölluð Miskunn-
semdarfell, og þaðan er prédikað
yfir söfnuðinum. Þá nær helgi-
hald pflagrímatíðarinnar há-
marki.
Þetta er í fyrsta lagi gert í minn-
ingu síðustu pflagrímsfarar Mú-
hameðs spámanns til Mekka, en
þá prédikaði hann yfir fylgis-
mönnum sínum, sitjandi á úlfalda
uppi á Miskunnsemdarfelli. í
öðru lagi er hermt að þarna hafi
Adam og Eva hist, eftir að þeim
var vikið úr paradís.
Grýting Satans
Margir pflagrímar hafa lýst trú-
arreynslu þeirri, er varð hlut-
skipti þeirra á Arafatflöt. Einn
þeirra sagði: „Bræðralagið hefur
náð hámarki, en reynslan stór-
fenglega er persónuleg. Ég er þar
með drottni mínum, þetta era
helgustu stundir lífs míns ...“
Eitthvað á þessa lund hefur
væntanlega orðið reynsla þeirra
pflagríma, sem á sunnudag voru á
Arafatflöt. Nóttina eftir gistu
þeir samkvæmt venju á stað, sem
Muzdalifa heitir, og héldu um
morguninn áfram áleiðis til
Mekka. Á þeirri leið er reglan að
komið sé við á stað sem heitir
Mina. Þar era þrír ferkantaðir
múrstöplar og hendir hver pfla-
grímur sjö steinum í einn þeirra.
Þetta er kallað að grýta Satan.
Þessi helgisiður er í heiðri hafður
í minningu þess, er Abraham var
í þann veginn að fórna ísmael
Guði. Samkvæmt íslamskenn-
ingu kom þá Satan á vettvang og
reyndi að telja Abraham á að
óhlýðnast þessu boði Guðs, en
Abraham brást reiður við og
hrakti Satan á brott með grjót-
kasti. Þessi liður helgihaldsins
táknar að því illa sé á brott vísað
og að hinn trúaði berjist gegn
freistingunum í fullri hlýðni við
Allah.
Eiga paradísar-
vist vísa
En að þessu sinni komust ekki
allir pílagrímatma svo langt. í
leiðinni frá Arafat til Mina eru nú
göng. undir aðalveg, um 600
metra löng. Samkvæmt Reuters-
frétt hafði hálf önnur miljón pfl-
agríma lagt leið sína til Árafat í
þetta sinn, og væntanlega hafa
þeir verið álíka margir á leiðinni
til baka. Fréttir frá Mekka
hermdu að um 50.000 manns
hefðu verið í göngunum, þegar
ofsahræðsla greip fólkið þar af
einhverjum ástæðum með þeim
afleiðingum að fjölmargir biðu
bana. Aðstandendum þeirra sem
fórast er það að líkindum huggun
að í íslam er því trúað, að þeir
sem látast í pflagrímsför til
Mekka eigi vísa vist í paradís.
Slys þetta má efalaust skrifa á
reikning gífurlegra þrengsla við
helgihaldið, sem miljónir manna
hafa tekið þátt í síðustu ár. Ýmis-
legt annað miður æskilegt getur
skeð, þegar saman er komin slík
mannmergð víðsvegar að úr
heimi. Áður var algengt að far-
sóttir kæmu upp í Mekka á pfla-
grímatíð, en læknavísindin hafa
nú mikið til hrint þeim háska frá.
1987, þegar um tvær miljónir
manna, fleiri en nokkra sinni fyrr
eða síðar, fóra pflagrímsför til
Mekka, kom þar til heiftarlegra
óeirða og vora um 400 manns,
flest íranir, drepnir í þeim. Við
það versnaði mjög í samskiptum
lrans og Saúdi-Arbíu, sem vora
ekki of miklir vinir fyrir.
Kvótakerfi
Ótti við að svoleiðis endurtæki
sig kom ráðamönnum Saúdi-
Arabíu til að innleiða kvótakerfi,
þannig að síðan fær ekki nema
tiltekinn fjöldi pflagríma frá
hverju landi að koma til Mekka
árlega. Mun sú ráðstöfun hafa
verið gerð einkum til að koma í
veg fyrir mjög mikið aðstreymi
írana, en klerkarnir sem þar ráða
keppa við furstana af Saúdætt um
forastu í íslam. íran mótmælti og
tók fyrir pílagrímsferðir síns fólks
til Mekka. Kvótakerfið takmark-
ar aðsóknina þó ekki mikið, enda
eru pflagrímsferðir þessar Saúdi-
Arabíu til mikillar vegsemdar og
auk þess hefur hún af þeim gríð-
armiklar tekjur.
S.l. ár beið pakistanskur pfla-
grímur bana í Mekka og 16 særð-
ust af völdum sprengju. Saúdiar-
abísk yfirvöld létu þá hálshöggva
16 sjíta frá Kúvæt, þar af tíu ír-
anskrar ættar, sem dómstóll fann
seka um að hafa komið sprengj-
unni fyrir.
Dagur
Þorleífsson
Alsírskar kvenréttindakonur
Bannað verði að kjósa tvisvar
stafstrúarmanna, vann yfirburða-
sigur í kosningunum.
Alsírsku kvenréttindakonurn-
ar segjast ætla að berjast ó-
trauðar fyrir umræddum
breytingum á kosningalögum, í
von um að þær verði gerðar áður
en þingkosningar fara fram. FIS
krefst þess að kosið verði til þings
sem fyrst, en Þjóðfrelsisfylking-
in, ríkisflokkur landsins frá því að
það varð sjálfstætt 1962, hefur
hingað til hafnað þeirri kröfu.
Kvenréttindakonur segjast
þegar hafa orðið varar við viss
uggvænleg framkvæði af hálfu
bókstafstrúarmanna, t.d. séu
þeir sumsstaðar farnir að leggja
að konum að leita ekki til annarra
lækna en þeirra sem eru kven-
kyns.
Kvenréttindakonur í Alsír, sem
ekki varð um sel við sigur ís-
lamskra bókstafstrúarmanna í
borgar- og sveitarstjórnakosning-
unum þarlendis nýverið, beita sér
nú ákaft fyrir því að ríkisstjórnin
breyti kosningalögum, á þann veg
að eiginmenn geti héreftir ekki
kosið tvisvar í einu og sömu kosn-
ingunum, þ.e. greitt atkvæði
fyrir eiginkonur sínar einnig.
Talskonur kvenréttindasam-
takanna halda því fram, að í
kosningunum á dögunum hafi
fjölmargir eiginmenn kosið fyrir
hönd eiginkvenna sinna, og til
þess að fá það hafi þeir ekki þurft
annað en sýna persónuskilríki
þeirra. Telja kvenréttindasam-
tökin að þetta hafi átt drjúgan
þátt í því að FIS, flokkur bók-
6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 6. júlí 1990