Þjóðviljinn - 06.07.1990, Qupperneq 23

Þjóðviljinn - 06.07.1990, Qupperneq 23
Listahátíð næturlífsins frá Pakkhúsinu Pakkhús Postulanna er fjöl- listahópur sem staðið hefur fyrir kynningum hér á landi á því sem er nýjast að gerast í bresku tón- listarlíf, með því að flytja til lands- ins heilu næturklúbbana, plötu- snúða og hljómsveitir eins og A Guy Called Gerald og lf?. Að- alsprauta Pakkhússins, kannski postulinn sjálfur, Þorsteinn Högni kom einnig með puttana nálægt komu Happy Mondays hingað í vetur. Þær uppákomur sem voru í Tunglinu á sama tíma og Happy Mondays í Menntaskólanum við Hamrahlíð, vöktu töluverða at- hygli i bresku tónlistarpressunni og tímaritið The Face birti vand- aða úttekt á þessari helgi í einu tölublaða sinna. Pakkhús Postulanna er ekki dautt úr öllum æðum, því dagana 19.-22. júlí stendur fjöllistahóp- urinn fyrir „Listahátíð næturlífs- ins“ í Reykjavík. Vel heppnaðri Listahátíð er nýlokið en hún fór mest fram á daginn og fyrripart kvölds. Pað er því 1 j úf viðbót fyrir næturhrafnana að fá í beinu fram- haldi Listahátíð næturlífsins. Þorsteinn Högni er með ein- hverjar hótanir um að þessi hátíð verði síðasti gemingur Pakkhúss- ins, en við trúum því rétt mátu- lega. Listahátíð næturlífsins hefur alla burði til að verða hápunktur fjölskrúðugrar starfsemi Pakk- hússins. Mesti viðburður þessar- ar hátíðar verður að teljast endurkoma hinnar frábæru hljómsveitar, The Band Of Holy Joy, til landsins. En hamingju- bandið mun vera með tónleika á Hótel Borg þann 19. júní. Hljóm- sveitin kom hingað upp á Klak- ann í febrúar í fyrra, þegar hann stóð virkilega undir nafni og tók á móti breska hamingjubandinu með fannfergi og kulda. Tón- leikar hljómsveitarinnar í Tungl- inu eru með allra bestu tón- leikum sem haldnir hafa verið hér á landi og það er ánægjulegt að The Band Of Holy Joy vilji koma hingað aftur til að spila í húsi sem tekur innan við þúsund manns. Tónlist hamingjubandsins nýtur sín líka miklu betur í mikilli ná- lægð við áheyrendur. Þeir fjölmörgu sem sóttu tón- leika Les Negresses Vertes á Hótel íslandi ættu ekki að láta þessa tónleika fram hjá sér fara. Grænu blökkukonurnar eru ólík- ar hamingjubandinu tónlistar- lega séð, en andinn er svipaður. Umfjöllunarefni texta þessara hljómsveita er líka mjög líkt, þar sem fjallað er um „taparann“ en undir mjög hressilegri tónlist. Dragspilið er einnig áberandi hjá báðum hljómsveitunum. En það verður miklu meira á dagskrá Listahátíðar næturlífsins en The Band Of Holy Joy. Breski næturklúbburinn The Brain Club stendur eina ferðina enn fyrir hópferð til íslands og er búist við að um 150 manns komi í þeirri ferð, að meðtöldum tónlistar- mönnum og öðrum lista- mönnum. Þessi hópferð hefur fengið enn meiri athygli en fyrri ferðin. The Brain Club mun hafa Vesturrokk aö austan í seinni tið hafa ekki margar hljómsveitir verið áberandi af lands- byggðinni. Fáar hljómsveitir landsbyggðarinnar hafa gefið út plötu á liðnum árum og þær hafa ekki vakið ýkja mikla athygli. Frægust þessara hljómsveita er Grafík, sem teljast verður frá ísafirði, þó hún sé löngu flutt til höfuðborgarinnar. Grafík nýtur líka nokkurrar sérstöðu í íslenskri rokksögu fyrir sér- stæðar plötur sem skipað hafa hljómsveitina í fremstu röð íslenskra hljómsveita. Önnur hljómsveit landsbyggð- arinnar, Sú Ellen frá Neskaup- stað, hefur haldið lífi í nokkur ár og hefur nú nýlega sent frá sér plötuna „í örmum nætur“. Sú Ellen á ekkert sameiginlegt með Grafík annað en að eiga uppruna sinn utan Reykjavíkur. Austfirð- ingarnir færa ekki nýja vídd inn í íslenskt rokk eins og Grafík gerði, en það þýðir ekki að Sú Ellen eigi ekki erindi. Hljóm- sveitin fer troðnar slóðir og semur lög í ætt við vestanrokk og gerir það skammarlaust. Sú framsækna gróska sem átt hefur sér stað með hljómsveitum eins og Risaeðlunni, Langa Sela og skuggunum, Júpíters og nokkrum öðrum, hefur ekki skilað sér á landsbyggðina. Alla vega hafa þannig hljómsveitir ekki látið á sér bera í Reykjavík. En hefðbundið rokk stendur alltaf fyrir sínu ef það er vel gert og eins og áður segir skilar Sú Ellen efni sínu vel frá sér. Það má líka segja að Sú Ellen gangi í hóp örfárra hljómsveita sem kalla má útverði hefðbundins rokks, sem hefur verið lítið áberandi fyrir frumleikaæðinu í þeim grúppum sem mest ber á þessi misserin. Það fer lítið sem ekkert fyrir þeim sérislenska tóni sem sumir hafa kallað „Gylfa Ægisson- ar-effektinn“ á „í örmum nætur“. En þessi tónn hefur einkennt margar íslenskar plötur, líka þær sem gerðar hafa verið af reykvískum hljómsveitum. Ef textar Sú Ellenar væru á ensku, gæti hljómsveitin allt eins átt ríkisfang í Bandaríkjunum. Lögin á „í örmum nætur" er frekar keimlík, enda semja þeir Ingvar Jónsson hljómborðs- leikari og Steinar Gunnarsson bassaleikari og söngvari svo gott sem allt efnið. Steinar virðist mér standa upp úr hópi félaga sinna sem kröftugur og á köflum mjög skemmtilegur bassaleikari. Bass- aleikurinn fær að njóta sín fram- arlega og er blessunarlega ekki of dimmur. Það falla sumar hljóm- sveitir sem spila rokk í anda Sú Ellenar, í þá gryfju að hafa bass- ann of dimman eða feitan. Hvell- ur bassi finnst mér henta slíkri tónlist betur. Annars heyrist mér þeir í Sú Ellen vera nokkuð jafnvígir hljóðfæraleikarar og vinna vel úr lögunum. Það er hvergi yfirkeyrt. Þetta kemur mjög vel fram í f Heimir Már Pétursson Hljómsveitin Sú Ellen. smekklega fluttu síðasta lagi plötunnar. Það lag, sem heitir „Pat“, er eingöngu spilað. En að mínum dómi hafa sárlega fáar ís- lenskar hljómsveitir lagt sig niður við að leika tónlist án söngs. Slík lög bjóða upp á aðra hluti en sungin lög og þar fá einstök hljóðfæri að njóta sín betur. Af sungnum lögum á plötunni er titillag hennar líklegast til vin- sælda. Þetta er hressilegt lag sem plumar sig örugglega vel á dans- leikjum hljómsveitarinnar. Mér finnst hins vegar meira spunnið í annað lag plötunnar, „Lúser- inn“, eða „Taparann“. Þar finnst mér hljómsveitin ná vel saman og Jóhann G. Árnason trommu- leikari á einn sinn besta sprett í þessu lagi, ásamt bassanum Ing- vari. í heildina séð, aðallega vegna þess hvað lögin eru lík, hefði mátt styðja Guðmund söngvara mun meira með rödd- um en Sú Ellen gerir. Guðmund- ur er ágætur söngvari en myndi njóta sín betur með bakröddum. Textar Sú Ellenar skipta sjálf- sagt minna máli hjá meðlimum hennar en lögin, eins og hjá svo mörgum. Þeir eru þó aldrei aula- legir eða klaufskir, sem er meira én hægt er að segja um kúfinn af því sem hljómsveitum ogeinstak- lingum dettur í hug að bjóða upp á. Sú Ellen má vel við una með „í örmum nætur“. -hmp aðsetur á Hótel Borg og standa þar fyrir alls kyns uppákomum frá föstudeginum 20. júlí til sunnudags. í Hollywood verða síðan tón- leikar bæði föstudags og laugar- dagskvöld með hljómsveitinni Beats International, sem nýtur vaxandi virðingar og vinsælda í Bretlandi. Hljómsveitin hefur átt sex lög á topp tuttugu listanum, þrátt fyrir stutta ævi og aðeins nokkrar smáskífur og eina breið- skífu. Beats International flytur alþjóðlega kokteil tónlist. Þar gætir samt mikilla áhrifa house og hip hop, en það hefur verið fágað af því mesti ungæðingshátturinn og í staðinn koma öguð vinnu- brögð. Beats International er eigin- lega meira hugarfóstur Norman Cook, fyrrum bassaleikara indí sveitarinnar Housemartins, en hljómsveit í hefðbundnum skiln- ingi. Hinir og þessir hafa spilað með sveitinni það ár sem liðið er frá stofnun hennar, meðal annars tuttugu manna suður-afrísk sveit sem heitir The Real Sound Of Africa. Af öðrum má nefna sósí- alistann Billy Bragg og Captain Sensible sem var í The Damned og The Real Sound Of Africa. i Tónlist Beat Intemational flokkast undir svo kallaða dans- tónlist. Nokkur rígur er á milli spámanna þessarar tónlistar og þeirra sem flytja indí-tónlist í ætt við einmitt Housmartins og nú síðast Inspiral Carpets, Happy Mondays og Stone Roses. Norm- an Cook fékk því á sig nokkrar ákúrur fyrir að svissa um tónlist- arsvið. Hann hafði áður getið sér gott orð sem plötusnúður þeirrar tegundar sem spilar á plötuspilar- ana eins og hljóðfæri með hjálp „samplera“. En þar eiga hip hop- ið og house tónlistin einmitt ræt- ur sínar. Cook lætur alia gagnrýni sem vind um eyru þjóta og svarar henni háðulega í titillagi iýrstu breiðskífu Beat International, „Let Them Eat Bingo“. Ég er í hópi þeirra sem hafa verið skeptískir út í hip hop og house. En sá bræðingur sem kemur fram með danstólistinni hefur heillandi tón fram að færa. „Let Them Eat Bingi“ er síðan allra besta danstónlist sem ég hef heyrt. Lögin á henni eru óvenju melódísk miðað við þessa tónlist- artegund og mörg hver þræl skemmtileg. Þar má nefna titil- lagið ásamt „Burned Blues", „Before I Grove Too 01d“, „Wont Talk About It“ og fleiri og fleiri. Platan er sannkallaður alþjóða gæðahrærigrautur, þar sem á henni ægir saman afrískum tón- um og vestrænum stórborgartón- um í bland við hreinan djass, allt í sama laginu. Þarna má til að mynda heyra „samplun“ á gömlum Clash lögum. Það er vel gert að ná að blanda þessu öllu sannfærandi saman þannig að það verði skemmtilegt. Breska sjónvarpsstöðin BBC2 kemur hingað með átta manna tökulið í þeim tilgangi að taka upp heimildarþátt um Listahátíð næturlífsins í borginni norður undir heimskautsbaug. Þátturinn verður hluti að samstarfsverkefni sjö evrópskra sjónvarpsstöðva, sem eru með flokkaröð um menningu og listir sem heitir Ext- ra. Þátturinn verður sendur út til 20 landa, meðal annarra Sovétr- íkjanna, Kanada og íslands og er áætlað að um 30 milljónir manna komi til með að sjá þáttinn. Einn- ig er von á fulltrúum annarra fjöl- miðla, til dæmis Melody Maker. -hmp Föstudagur 6. júlí 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.