Þjóðviljinn - 17.08.1990, Blaðsíða 7
gullkálfi
Hluta þessarar
byggingarvarskipt
ámilli Reginsog
Sameinaðraverk-
taka sem úttekt
þeirraúrAðalverk-
tökum. Mynd: Jim
Smart.
Hrófla
r
Islenskir aðalverktakar hafa frá
upphafi verið umdeilt fyrir-
tæki. Andstæðingar veru Banda-
ríkjahers hér á landi hafa kennt
fyrirtækið við hernámsgróða og
leyndin sem alla jafna hefur hvflt
yfir rekstrinum hefur ekki orðið
til þess að bæta ímyndina. Utan-
ríkisráðherra kynnti í vikunni
samkomulag um breytingar á
eignarhaldi Aðalverktaka og
viljayfirlýsingu eigenda um að
fyrirtækinu verði breytt í al-
menningshlutafélag innan fpm
ára. Við þetta tækifæri sagði Jón
Baldvin Hannibalsson það lengi
hafa sætt gagnrýni, að Aðalverk-
takar hefðu einkaleyfi á öllum
framkvæmdum fyrir herinn og
jafnvel notið til þess pólitískrar
velvildar. Þarna vísar utanríkis-
ráðherra til þess að Samband Is-
lenskra samvinnufélaga og ein-
stakir Sjálfstæðismenn í gegnum
Sameinaða verktaka, hafa haft
gífurlcgar tekjur af framkvæmd-
um fyrir herinn.
Miljörðum
deilt út
Breytingarnar á Aðalverk-
tökum fela í sér breytta eignar-
hlutdeild vegna mismunandi út-
tekta fjármuna og fjárfestinga
eignarhaldsaðilanna úr fyrirtæk-
inu. í tilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu segir að á undan-
förnum árum og áratugum hafi
arður af rekstri safnast upp innan
fyrirtækisins, án þess að greiðslur
til eigenda færu fram. Af þessum
sökum séu eignir verulega um-
fram það sem starfsemin krefst.
Og víst er að miklir fjármunir
hafa safnast upp innan Aðalverk-
taka. Fyrir úttektir hluthafanna
var eigið fé fyrirtækisins 3,4 milj-
arðar króna og þrátt fyrir miklar
úttektir er eigið fé enn 1,48 milj-
arðar króna. Að fasteignum,
vinnuvélum, tækjum og öðrum
eignum meðtöldum, voru
heildareignir Aðalverktaka 5,3
miljarðar, en verða eftir úttekt-
irnar 2,9 miljarðar.
Utanríkisráðherra segir engin
kaup og enga sölu hafa átt sér
stað við eignarhaldsbreytinguna.
Regin hf., dótturfyrirtæki SÍS,
tekur út úr fyrirtækinu rúmar 670
miljónir, Sameinaðir verktakar
taka 1,34 miljarða og ríkisjóður
tekur út 400 miljónir. Við þetta
hækkar hlutur ríkisins úr 25% í
52%, hlutur Regins lækkar úr
25% í 16% og hlutur Sameinaðra
verktaka lækkar úr 50% í 32%.
Utanríkisráðherra segir þau
fimm ár sem Aðalverktökum er
áfram gefið einkaleyfi á fram-
kvæmdum fyrir herinn, vera
hugsuð sem trygging fyrir rekstri
fyrirtækisins á meðan skipulagsb-
reytingarnar fara fram, og til að
tryggja að almenningur sjái sér
hag í hlutáfjárkaupum að skipul-
agsbreytingunum loknum. Meiri- ’
hluti ríkissjóðs á síðan að tryggja
að viljayfirlýsingunni um að
breyta fyrirtækinu í almenningsh-
lutafélag verði framfylgt. En for-
mlegir samningar þar að lútandi
liggja ekki fyrir.
Það er ljóst að úttektin úr Að-
alverktökum kemur sér vel fyrir
SÍS, sem berst í bökkum fjár-
hagslega og margir segja að eigi
ekki framtíð fyrir sér. Énda hafa
forráðamenn Sambandsins sagt
að fjármagnið verði notað til að
létta á skuldum SÍS. Sömuleiðis
segir fjármálaráðherra að þær
400 miljónir sem ríkið tekur út úr
Aðalverktökum, fari í að lækka
hallann á ríkissjóði.
En það eru ekki allir hressir
með breytingamar á Aðalverk-
tökum. Formaður Sjálfstæðis-
flokksins kallar þær „þjóðnýt-
ingu“ og segir að nær hefði verið
að ríkið stofnaði hlutafélag utan-
um eignarhlut sinn og byði al-
menningi síðan hlutabréf á al-
mennum markaði. Með þessari
aðferð Þorsteins væri ekki tryggt
að fjársterkir aðlilar, jafnvel þeir
sem varðir hafa verið í gegnum
árin af Sjálfstæðisflokknum og
Framsóknarflokknum, keyptu
ekki stærri hlut en þeir áttu og
gætu síðan grætt sem aldrei fyrr á
framkvæmdum fyrir Bandaríkja-
her.
Samtrygging um
gróðakvörn
Það má líka spyrja sig hvort
ráðstafanirnar með Aðalverk-
taka gangi út frá því að herinn
verði hér um alla eilífð. Ólafur
Ragnar Grímsson formaður Al-
þýðubandalagsins er ekki þeirrar
skoðunar. Hann sagði Alþýðu-
bandalagið lengi hafa gagnrýnt
það kerfi sem sett hefði verið upp
af samtryggingaröflum Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks.
Með því hefði verið sett upp
gróðakvörn fyrir annars vegar
ýmsar fjölskyldur sem væru hluti
af valdakerfi Sjálfstæðisflokksins
og hins vegar fyrir dótturfyrirtæki
SIS.
„Þessi öfl töluðu hátt og mikið
um nauðsyn á vörnum landsins
en virtust hafa mestan áhuga á að
tryggja sér miljarða hagnað af
framkvæmdum vegna þessara
sömu varna“, sagði Olafur Ragn-
ar. Samkomulagið sem gert hefði
verið væri skref í rétta átt, en að-
eins skref. Meirihlutavald yfir
gróðamaskínunni væri tekið úr
höndum fjölskyldnanna í Sjálf-
stæðisflokknum og dótturfyrir-
tækis SÍS. Upphæðirnar sem
þarna væri um að ræða sýndu
hvers konar eignamyndun og
gróði hefði tengst bandaríska
hernum.
Formaður Alþýðubandalags-
ins segist hins vegar þeirrar skoð-
unar, að á næstu fimm árum muni
afvopnunarþróunin í heiminum
gerbreyta stöðu bandaríska hers-
ins. Nauðsyn þess að minnka
halla ríkissjóðs í Bandaríkjunum,
sem fyrst og fremst sé til kominn
vegna hernaðarútgjalda, muni
í BRENNIDEPLI
Að fasteignum, vinnuvél-
um, tœkjum og öðrum
eignum meðtöldum,
voru heildareignir ís-
lenskra aðalverktaka 5,3
miljarðar króna, en
verða eftir úttektirnar2,9
miljarðar
einnig hjálpa þar til. „Stóra verk-
efnið á næstu árum er þess vegna
að hefja þegar undirbúning á því
hvað gert verður við þau miklu
mannvirki, húseignir og annað
sem er í herstöðvum á fslandi,
þegar þær verða lagðar niður, og
hvernig gróðamaskínunni sem
tengst hefur svo kölluðum vörn-
um, verður komið út úr heimin-
um,“ sagði Ólafur Ragnar.
Samhliða þessu þarf að leggja
traustan grunn að atvinnulífinu á
Suðurnesjum, sem því miður hef-
ur alltof lengi liðið fyrir nálægði-
na við herinn, að sögn Ólafs
Ragnars. Enda hafi gróðinn af
hernum ekki komið Suðurnesja-
mönnum til góða. „Þetta eru fyrst
og fremst seðlar sem gefnir hafa
verið á jötuna í Sjálfstæðis-
flokknum og verða notaðir í
björgunarleiðangur fyrir Sam-
bandið,“ sagði formaður Al-
þýðubandalagsins.
Ólafur Ragnar sagði stundum
erfitt að skilja Þorstein Pálsson,
þegar hann var spurður álits á
ummælum hans um „þjóðnýt-
ingu“. Það væri rétt að meirihlut-
avaldið yfir gróðamaskínu vald-
afjölskyldnanna í Sjálfstæðis-
flokknum væri sett í hendur
ríkisstjórnar á hverjum tíma.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
vildi eðlilega að valdafjölskyld-
urnar í hans eigin flokki gætu
haldið áfram að mala gull, enda
væri fróðlegt ef Þorsteinn svaraði
því hve stór hluti þessa fjármagns
hefði farið til Sjálfstæðisflokksins
með einum eða öðrum hætti á
undanförnum áratugum.
Nærst á hernað-
arumsvifum
Þórhildur Þorleifsdóttir þing-
maður Kvennalistans segir
Kvennalistakonur ekki líta á
breytingarnar á Aðalverktökum
jákvæðum augum. Aðalverk-
takar séu fyrst og fremst fyrirtæki
sem nærist á framkvæmdum fyrir
herinn. Eftir því sem umsvif hers-
ins séu meiri, græði fyrirtækið
meira. Það sé því ekki til bóta að
ríkisvaldið þvæli sér þar inn í,
ekki hvað síst þegar þess er gætt
að í ríkisstjórninni sitji flokkar
sem annað hvort hafi lýst yfir
beinni andstöðu við herinn eða
því, að æskilegt væri að losna við
hann. Staðan hljóti að verða erf-
iðari þegar ríkisvaldið er farið að
hafa hagnað af fyrirtækinu og akk
af því að það lifi.
„Það er ljóst að þarna er verið
að rétta Sambandinu hjálpar-
hönd og ég get vel séð nauðsyn
þess að það fyrirtæki standi nokk-
urn veginn þar til lausn hefur
fengist á því máli, vegna þess að
SÍS teygir anga sína svo víða,“
sagði Þórhildur. Margir hefðu at-
vinnu sína af SÍS og því ekkert
grín ef það færi illa í einni svipan.
Þetta réttlætti þó ekki að ríkis-
valdið gerðist aðili að hernaðar-
umsvifum. Forsætisráðherra léki
til að mynda mikinn friðarpostula
í útlöndum og því furðulegt ef
hann teldi eðlilegt að tengja ríkis-
stjórnina fyrirtæki eins og Aðal-
verktökum.
Að mati Þórhildar er síðan enn
verra að breyta fyrirtækinu í al-
menningshlutafélag. Því fleiri
sem ættu hagsmuna að gæta um
að halda hernum, þeim mun erf-
iðara væri að losna við hann. Það
væri alveg nóg að atvinnulíf á
Suðurnesjum byggði svo mikið á
umsvifum hersins, svo ekki væri
verið að þvæla fólki um allt land
þar inn. „Þar að auki skýtur það
skökku við, að á tímum þíðu og
þegar verið er að tala um stór-
felldan niðurskurð á herafla í
Evrópu, sem við skulum vona að
gildi um ísland, sé það gimilegur
kostur fyrir fólk að gerast aðili að
Aðalverktökum,“ sagði Þórhild-
ur.
Fyrra ástand
skárra
Að mati Þórhildar er þrátt fyrir
allt æskilegra að aðilar eins og
Sambandið og jafnvel hluti „fjöl-
skyldnanna fimmtán," hafi hag af
Aðalvertökum, eins og sakir
standa, frekar en að ríkið og al-
menningur blandi sér þar inn í.
Þetta vegi upp á móti því að
hagsmunirnir teygi anga sína
víðar í þjóðfélaginu. Það hljóti að
vera auðveldara að hrifsa þetta úr
klóm fyrirtækja og nokkurra fjöl-
skyldna heldur en frá ríkisvaldinu
og ef til vill stórum hluta þjóðar-
innar. „Það að gengið er í
breytingar á eignarhluta og stjórn
fyrirtækis, segir eitthvað um það
að menn ætli að hafa það áfram.
Menn eru ekki að ganga í svona
miklar breytingar ef eitthvað
annað stendur til,“ sagði Þórhild-
ur. Þannig að með þessu væri enn
eitt prinsippmál Alþýðubanda-
lagsins rokið út í veður og vind.
Ef alvara lægi að baki þeirri
skoðun að herinn væri óæski-
legur, væri ekki farið út í stór-
breytingar á fyrirtækinu.
Breytingarnar á eignarhlut
Aðalverktaka snerta hag annarra
verktaka í landinu. Gunnar Birg-
isson formaður Verktakasam-
bands íslands, sagði að gengi það
eftir að Aðalverktökum yrði
breytt í almennigshlutafélag,
hefði hann ekkert út á það að
setja. Hann væri þó hræddur um
að svo færi ekki og uppi standi
ríkisrekið verktakafyrirtæki með
einokunaraðstöðu á framkvæmd-
um fyrir herinn. Hins vegar sagði
Gunnar það skref í rétta átt að
ríkið eignaðist meirihluta í Aðal-
verktökum sem undanfara þess
að breyta fyrirtækinu í almenn-
ingshlutafélag. Það væri í hæsta
máta óeðlilegt að fáir aðilar
fengju einkaleyfi á framkvæmd-
um fyrir herinn í krafti eignarað-
ildar.
„Ég sé ekki neitt sem mælir
með því að fyrirtækinu skuli feng-
in einokunaraðstaða til næstu
fimm ára,“ sagði Gunnar. Það
hefði átt að nægja að tryggja
fyrirtækinu þá stöðu í eitt ár.
Verktakasambandið hefði haft
þá stefnu að Aðalverktakar væru
sameign ríkis og sveitarfélaga á
Suðurnesjum. Fyrirtækið sæi síð-
an um samninga en byði verkin
síðan út til annarra verktakafyrir-
tækja, annað hvort með forvali
eða útboði.
-hmp
Föstudagur 17. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA :7