Þjóðviljinn - 17.08.1990, Blaðsíða 25
Veitingastaðurinn 22, Inga Sólveig:
Ijósmyndasýningin “Hnignun". Opið
virka daga kl. 11:00-01:00 og um
helgarkl. 18:00-03:00.
Árbæjarsafn, opið alla daga nema
mákl. 10-18. PrentminjasýningíMið-
húsi, kaffi í Dillonshúsi, Krambúð, og
stríðsárasýningin: „Og svo kom
blessað stríðið.
Ferstikluskáli Hvalfirði, Rúna Gísla-
dóttir sýnir vatnslita-, akryl-, og klippi-
myndir. Opið fram til kl. 23 dag hvern.
Gallerí 8, Austurstræti 8, sýnd og
seld verk e/ um 60 listamenn, olíu-,
vatnslita- og grafíkmyndir, teikningar,
keramík, glerverk, vefnaður, silfur-
skartgripir og bækur um íslenska
myndlist. Opið virka daga og lau kl.
10-18og su 14-18.
Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Síðu-
múla 32, grafík, vatnslita-, pastel- og
olíumyndir, keramikverk og módel-
skartgripir, opiðlau10-14.
Gallerí Nýhöfn, Eyjólfur Einarsson
opnar málverkasýningu í dag kl. 17-
19 í tilefni af 50 ára afmæli sínu. Opin
virka daga nema má kl. 10-18 og um
helgarkl. 14-18, til 5.9.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
9: Halldóra Emilsdóttir sýnir myndir
unnar með gvasslitum á pappír. Sýn-
ingin er opin á verslunartíma kl. 9-18
og stendurtil31.8.
Hafnarborg, nýr sýningarsalur;
Sverrissalur: sýning á verkum úr
listaverkasafni hjónanna Sverris
Magnússonarog IngibjargarSigur-
jónsdóttur, sem þau gáfu safninu.
Opið alla daga nema þri kl. 14-19, til
27.8. Sjá einnig tónleika.
Kjarvalsstaðir, árleg sumarsýning á
verkum Kjarvals, nú undir yfirskrift-
inni Land og fólk. Vestursalur: Nína
Gautadóttir, málverk. Opið daglega
frákl. 11-18. Ath. síðastasýningar-
helgi.
Listasafn Einars Jónssonar opið
alla daga nema má 13.30-16, hög-
gmyndagarðurinn alla daga 11-17.
Listasafn Háskóla íslands, Odda.
Sýning á öllum hæðum á verkum í
eigu safnsins. Opið daglega kl.
14:00-18:00. Aðgangurókeypis.
Listasafn íslands, sumarsýning á
íslenskum verkum í eigu safnsins.
Opiðdaglegakl. 12-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
sýn. á andlitsmyndum Sigurjóns.
Opið lau og su kl. 14-18, má, þri, mi
og fi kl. 20-22. Tónleikar á þriðju-
dagskvöldum kl.20:30.
Menntamálaráðuneytið, Húbert Nói
og Þorvaldur Þorsteinsson. Útþenn-
an mánuð.
Minjasafn Akureyrar, Landnám í
Eyjafirði, heiti sýningar á fornminjum.
Opið daglega kl. 13:30-17, til 15.9.1
Laxdalshúsi Ijósmyndasýningin Ak-
ureyri.opiðdaglegakl. 15-17.
Minjasafn Rafmagnsveitunnar,
húsi safnsins v/ Rafstöðvarveq, su
14-16.
Norræna húsið, kjallari: Snorri Arin-
bjarnar, málverk. Opin 14-19 dag-
lega, til 26.8.
Slúnkaríki, ísafirði: Páll Sólnesopn-
ar málverkasýningu á morgun lau kl.
16. Sýningin er opin fi-su kl. 16-18, til
2.9.
Smíðagalleríið Mjóstræti 2b og
Pizzaofninn Gerðubergi: Þorsteinn
Unnsteinsson opnar sýningu á báð-
um stöðum í dag. Olíupastel og akrýl-
myndir. Smíðagalleríið opið má-fö kl.
11-18og lau kl. 11-15, Pizzaofninn
alladagakl. 11:30-23:30, til 19.9.
Þjóðminjasafnið, opið 15.5.-15.9.
alla daga nema má kl. 11 -16. Boga-
salur: Frá Englum og Keltum.
Þrastalundur, Aðalbjörg Jónsdóttir
sýnir olíuverk, pastel- og vatnslita-
myndir auk handprjónaðra kjóla úr
fsl. ull. Opið kl. 9-22.30 alla daga, til
26.8.
Sigurður Halldórsson á selló og Daníel Þorsteinsson á píanó leika
á Bolungarvík og l'safirði um helgina.
Nýlistasafnið Vatnsstíg 3b, þrjár
sýningar: Forsalur/gryfja: Sigrún Ól-
afsdóttirsýnirskúlþtúra. Miðhæð: Ní-
els Hafstein. SÚM-salur: Ásta Ólafs-
dóttir, (varValgarðsson, RúnaÁ.
Þorkelsdóttirog ÞórVigfússon. Opið
kl. 14-18. Sýningum lýkur á su.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, sumarsýning á olíu-
myndum og vatnslitamyndum. Opið
alla daga nema má kl. 13:30-16.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið alla daga nema má kl. 14-
18.
Skálholtsskóli, Gunnar Örn Gunn-
arsson, sýningin Sumar í Skálholti,
opin júlí-ágúst kl. 13-17.
TÓNLISTIN
SumartónleikaríSkálholtskirkju:
Lau kl. 15 tónverkfyrirflautu og fylgi-
rödd. Kl. 17 tónverkfyrirflautu, orgel
og hnéfiðlu: Manuela Wiesler flauta,
Inga Rósa Ingólfsdóttir selló og Hörð-
urÁskelssonorgel.Su:kl. 15úrvalúr
efnisskrá lau, sömu flytjendur.
Norræna húsið, Corda Vocalis,
kammerkór f rá Árhúsum í kvöld kl.
20:30. Norski visnasöngvarinn Geir
Lystrup syngur ásamt Nye Godtfolk
ásu kl. 16.
Sigurður Halldórsson selló og Dan-
íel Þorsteinsson píanó flytja kafla úr
verkum e/Beethoven, Brahms, Bocc-
herini, Fauré o.fl. í Félagsheimili Bol-
Hvað á að gera um helgina?
Sigurður A. Magnússon
rithöfundur
Ég ætla að eyða hluta af laugardeginum í að tölvusetja bók sem ég er
nýbúinn að þýða. Svoerfasturliðurhjáméraðheimsækja málverka-
sýningar. Nú.svo er ég að vona að unnusta mín bjóði mér í bíltúr út í
náttúruna einhvern tímann um helgina.
ungaivíkur á lau kl. 16 og í sal Frímúr-
ara á ísafirði á su kl. 16.
Heiti potturinn, Duus-húsi: Kvintett
Árna Scheving su kl. 21:30. Efnisval
kvintettsins spannar yfir tímabilið
1935-1985.
Halli Cauthery fiðluleikari og Nína
Margrét Grímsdóttir píanóleikari
leika á síðdegistónleikum í Hafnar-
borgásu kl. 16:30. Á efnisskrá eru
verk e/Massenet, Árna Björnsson,
Max Bruch og Manuel de Falla.
LEIKLISTIN-
_____________
Ferðaleikhúsið, Tjarnarbíói Tjarn-
argötu 10E, Light Nights, í kvöld, lau
og su kl. 21.
HITT OG ÞETTA
Hana-nú í Kópavogi, samvera og
súrefni á morgun lau, lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl.10. Komum sam-
an upp úr hálftíu og drekkum molak-
affi. Púttvöllurinn á Rútstúni öllum op-
inn.
Félag eldri borgara, Göngu-Hrólfar:
Farin verður ferð á Reykjanes og í
Selvog á morgun lau kl. 13 frá Nóat-
úni 17. Verð m/mat kr. 1500.
Útivist, helgarferðir 17.-19.8:
Þórsmörk-Básar, Fimmvörðuháls-
Básar, brottför í báðar ferðir í kvöld kl.
20 frá BSÍ-bensínsölu. Su kl.08
Þórsmörk-Básar dagsferð. Afmælis-
ganga á Keili kl. 13.
Ari Trausti
Guðmundsson
Sífreri
Alþýðubílamir Moskovitsj og
Pobcda gengu undir ýmsum
skondnum (pínulítió niðrandi)
nöfnum eins og Síberíumústáng
eða túndrudrossía. Og víst er
túndra í Síberíu og reyndar víðar
um heim, svo sem í norðurhluta
Kanada. Skilgreining á túndru er
byggð á gróðurfari og lágum árs-
meðalhita sem skapar mýrlend
flatlendissvæði vaxin harðgerð-
um gróðri og kjarri eða stöku trjá-
lundum (birki, harðger barrtré) en
þar sem jarðklaki nær ekki að
þiðna allur. Sé land mjög skógi-
vaxið en samt með jarðklaka á
sumrin kallast það taiga.
Frá yfirborði jarðar niður að
klakalagi túndru og taigu em oft-
ast 0,5 til 2-3 metrar og jarðvegur
er víða blautur. En klakalagið get-
ur ýmist verið þunnt eða afar
þykkt (og þá mjög gamalt). Sést
hafa tölur upp í 800 - 1000 metra
norðarlega í Síberíu. íslenska
heitið á hinum ævarandi klaka er
sífreri en túndrumar kallast freð-
mýrar. Ekkert íslenskt heiti er á
taigunni.
A Islandi em til sífrerasvæði
þótt ekki séu þau stór eða áber-
andi, og þau eftirtektarverðustu
em freðmýrar (túndrur). Hæð
lands í kringum Hofsjökul er 500-
600 metrar og einnig víða norðan
Vatnajökuls og þar em nokkrar
frcðmýrar, t.d. í Kringilsárrana
norðan Vatnajökuls, Orravatns-
rústir norðan Hofsjökuls og
þekktustu freðmýramar: I Þjórs-
árvemm sunnan Hofsjökuls. A
Vatnajökulssvæðinu em sífrera-
svæðin hreindýraslóðir, enda lágt
hitastig og fremur lítil úrkoma á
óskalista þeirra skepna. Sunnan
Hofsjökuls en norðvcstan Þjórsár
er hins vegar kjörlendi heiðagæs-
arinnar og mynda Tjamarver,
Oddkelsver, lllaver, Þúfuver o.fl.
svokölluð ver sérkennilegt gróð-
urlendi með Ijölbreyttu plöntu-,
fugla- og dýralífi. Þama í Þjórsár-
verum em allt að því 40.000
heiðagæsir (ungar og fullorðnir
fuglar) síðsumars og breskir vís-
indamenn töldu þar rúmlega
10.000 gæsahreiður árið 1970.
Munu verin vera helsti varpstaður
heiðagæsastofnsins (reyndar tví-
skiptur og telur e.t.v. 120.000
fugla) og því einstök af mörgum
ástæðum.
1 Þjórsárvemm og reyndar
öðmm slíkum túndmsvæðum
einkennist land af mýrarsundum,
smápollum, lágum breiðvöxnum
bungum og smálækjum. Gróður-
far er mótað af þessari skiptingu:
starir, fifa, lyng og blómjurtir
hafa þar sitt kjörlendi. Mýramar
kallast flár en bungumar rústir.
Flámar standa uppi vegna jarð-
klakans en rústimar cm í raun
stórvaxnar þúfur sem myndast
vegna þess að klakalinsur þenja
jarðveg og margþætt ferli frosts,
þíðu og jarðvegsflutninga verður
til þess að „æxli” kemur fram í
jarðveginum. Erlendis em rústir
mjög stórar og háar víða en hér
em þær fáeinir metrar á hæð og
um 50 metra langar þær stærstu. I
Þjórsárvemm sækir gæsin í rúst-
imar sem hreiðurstæði. Sumar
rústir fijóta á vatnsósa undirlagi
en aðrar em ,jarðfastar.”
Fyrir einum til tveimur ára-
tugum stóð nokkur styr um Þjórs-
árver vegna hugsanlegra virkjana
á vatnasvæði Þjórsár. Menn urðu
sammála um að hlífa vemnum og
síðar þegar Kvíslaveita var hönn-
uð sem vatnsmiðlun til að tryggja
Þjórsárvirkjunum dagsins nægi-
legt vatn, var þess gætt að skaða
ekki verin og vonandi hefur það
tekist. Öðm máli gegnir um hugs-
anlega stiflu í Þjórsá undan Am-
arfelli (síðasti áfangi Kvíslaveitu)
því alls óvíst er hvort af henni
hlytist skaði eða ekki. Áhættu má
ekki taka nú á tímum umhverfis-
vemdar hvað Þjórsárver varðar
og hljóta menn því að finna leiðir
til að reka orkuver á Tungnaár-
Þjórsár svæðinu án umræddrar
stíflu. Verin jafnt sem aðrar freð-
mýrar og upplönd hreindýra þarf
að vemda sem mest og haga
virkjunum og vegagerð í sam-
ræmi við stöðu umhverfismála í
heiminum en ekki aðeins í sam-
ræmi við ódýrasta mannvirkja-
kost hverju sinni.
Föstudagur 17. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25