Þjóðviljinn - 17.08.1990, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 17.08.1990, Blaðsíða 20
1— T~ 3 7 3 (p 7- \/ o )l 11 \i /i 2 V /V jiT (o 5 ll ‘e \ lc /8 T 14 W~ llö V 13 U~ T2 23 it Vb T isr 3 w~ 1 s TT II f b is t/ 1 b JT~ )S V b $ n * c i4 zi b S IZ W~ 25* TJr v~ s?; 16' 2 T 2? /Ð 23 V 11 2 0 15 )!? // T T ID 30 lb~ Z 18 3 T~ w~ 5’ 1 s b 7- <P 31 V 2 & 0 is t S? 1S ) / . 23 )b " 21 16 b n V W~~ 18 10 23 1 ii lö Z8 l V- T~ IS W~ V N iT~ b V ( T TI (e >b 21 13 )£ TiT 2? is 'V 11 L> io n )8 2? ii V V2 a lö T~ TSh V' 23 AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆC l Krossgáta nr. 109 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kvenmanns- nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 37, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 108“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaun verða send til vinningshafa. J ( Sjómeni ig sauðahændu II 9 /s 23 3d 10 2 3 25 6 Lausnarorð á krossgátu nr. 104 var Bóthildur. Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Bolla A. Ólafssonar, Kirkjuteigi 17, 105 Reykjavík. Hann fær senda bókina „Kassandra" eftir Christu Wolf í þýðingu Jórunnar Sigurðardóttur. Verðlaun fyrir krossgátu nr. eru bókin „Sjómenn og sai bændur" eftirTryggva Emilsí Mál og menning gaf út 1988 109 jða- son. Þórdís Bachmann Raunir bíl- kaupanda Pistlahöfundur ætlaði að frcista þess á dögunum að kaupa notaðan bíl á viðráðanlegu verði og fór því að athuga smáauglýs- ingar eins dagblaðsins í Reykja- vík. Hring var slegið utan um þær auglýsingar sem til greina komu og hringt á tilsettum tíma, sem er yfirleitt eftir klukkan sex á daginn. Bílasérfræðingur var hafður með í ráðum svo kötturinn yrði ekki keyptur í sekknum og vopnuð ávísanahefii var nú haldið af stað í innkaupaleið- angur. Fyrsti bíllinn sem skoð- aður var kom ekki til álita en bíll númer tvö gerði það hins vegar. Eftir að hinn hefðbundni hring- ur hafði verið ekinn gerði ég seljanda tilboð um staðgreiðslu en þá bar svo við að í hann hafði hringt maður sem borið hafði sig sérlega aumlega og seljandi því lofað að taka bílinn frá þar til maðurinn næði að koma á staðinn með strætisvagni vestan úr bæ. Þegar hann svo mætti á staðinn tjáði seljandi mér að hann ætti siðferðilegan for- kaupsrétt að bílnum, svo kaupin voru þar með úr sögunni. Næsta dag birtist önnur fýsi- leg auglýsing um bil á viðráðan- legu verði svo ég ákvað að reyna að bera mig aumlega og biðja seljanda að taka bílinn frá þar til bílasérfræðingurinn kæmist til að líta á gripinn. Þessi seljandi hafði aldrei heyrt aðra eins vitleysu og sagðist vera að selja bíl og sá sem væri fyrstur á staðinn ætti fyrsta rétt; hann gæfi ekki fólki númer í símann. Þegar ég hringdi í hann aftur klukkutíma síðar, albúin að mæta með bílasérfræðinginn, var bíllinn þegar seldur. Það kvöld var þó notað til að líta á þijá aðra bíla sem hugsan- lega komu til greina en því mið- ur reyndist enginn þeirra stand- ast kröfur bílasérfræðingsins. Svo ökutúrinn á lánsbílnum færi nú ekki alveg til ónýtis komum við síðan við á íjórum bílasölum á miðbæjarsvæðinu. Það sem var athyglisverðast við þá skoð- unarferð var, að bílamir sem þar var verið að selja (á viðráðan- legu verði) voru af sömu teg- undum og sömu módel og þeir bílar sem auglýstir höfðu verið í smáauglýsingunum. Hins vegar var það verð sem upp var sett á bílasöiunum tvö- falt og upp í þrefalt hærra en okkur höfðu boðist smáauglýs- ingabílamir á. Einn tíu ára gam- all Audi á 150 þúsund var kom- inn á það stig að jámið undir aft- urstuðaranum molnaði eins og steinmnnin mold milli hand- anna á mér. Sumir bílanna höfðu greini- lega verið teknir í gegn fyrir sölu og á nokkmm þeirra var málningin ekki þomuð, svo silf- urliturinn á hjólkoppunum smit- aði af á fingurgómana. Eg á enn engan bíl en orð bílasérfræðingsins enduróma í huga mér: „Fólk er einungis að selja þessa bíla til þess að losna við þá því þeir gera ekki annað en að baka eigendum sínum stöðug útgjöld og hugarangur.” Elísabet Berta Bjarnadóttir Að fá ættingja heim í frfínu I hvaða mismunandi hlutverkum em systkinin f þinni Qölskyldu? Nú er sumri tekið að halla, farfuglamir að leggja síðustu vængjatökin yfir bamauppeldið áður en flugferðin mikla hcfst. En það em ýmsir aðrir en blessaðir farfuglamir sem láta einungis sjá sig hér norður í eyju um hábjarg- ræðistímann einhversstaðar í námunda við gamla hreiðrið sitt. íslendingar búsettir erlendis em meðal þeirra ferðamanna sem kærkomnastir em á sumrin. En oft fylgja því aðrar tilfinningar en feginleikinn að hitta ættingja sem búsettir em erlendis. Söknuöur Hjá foreldrum og systkinum vaknar ef til vill upp mikill sökn- uður yfir því, að þessi meðlimur stórfjölskyldunnar skuli vera svona langdvölum annarsstaðar. Minningamar um það sem var koma upp á yfirborðið. Fjöl- skylduaibúmin frá menntaskóla- ámnum eða þegar hún Bára var lítil með borða í hári em dregin uppá dúk með pönnukökunum. Amma og afi myndu vilja hafa bamabömin meira hjá sér eða þá að þau em með áhyggjur af því að eilífðarstúdentinn þeirra festi ekki ráð sitt, en fari bara á íslenskt fyllirí og kvennafar hér heima í fríinu. Allskyns hugsanir em á sveimi um hvemig væri að eiga alveg samheldna og nálæga stór- fjölskyldu, sem ætti oft saman góðar stundir, ef það væri ekki svona langt á milli. Svo hugsar eldra fólkið svo- lítið um það áður en kvatt er, hvort allir verði nú við góða heilsu og hittist næst í jafn góðu formi og núna, eða hvort ein- hvcrjir verði farnir annað. Þá verður núið dýrmætara. Systkina- samkeppnin En hvers vegna er Bára búsett erlendis? Fáránleg spuming kynnu ýmsir að segja. Maðurinn í þessari líka góðu vinnu og eins og kjörin em nú orðin fyrir vel- menntað fólk hér heima. Hún hef- ur það svo gott þama. Það er margt til í þessu. En það er citt fyrirbæri sem til er í öllum íjöl- skyldum og hópum sem ekki er mikið fjallað um hér á landi. Mætti segja mér að það ríkti eins konar þjóðarsátt um að tala ekki mikið um það, nema þá á lokuð- um skrifstofum hjá sérfræðingum í fjölskyldufræðum, þar sem þagnarskyldan er regla númer eitt. Þetta fyrirbæri er systkina- samkeppnin. Hvað gerir það fyrir þína ijölskyldu að Bára skuli vera búsett erlendis? Það em ef til vill ekki allar tilfinningar sem upp koma í tengslum við heimsóknir hennar hingað upp jafn auðveld- ar. Ef til vill þykir sumum syst- kinunum nóg um alla þá peninga sem foreldramir sendu út mcðan Bámmaður var í náminu en hin systkinin unnu hvert fyrir sér hér heima. Það em til vondar tilfinningar eins og afbrýðisemi sem fólk Ieyfir sér allt of lítið að viður- kenna að það beri í brjósti. Hver hefur eiginlega komið því inn hjá fólki að það sé svo ljótt að vera afbrýðisamur? Hvað er svona Ijótt við það að vera afbrýðisam- ur? Afbrýðisemin hefur oft og tíðum vemdað fólk frá missi, gert það meðvitað um hvað og hverja það vill ekki missa eða hvað það langar í og þannig hjálpað til við þróun. Það er svo aftur lengra mál að velta því fyrir sér hvar mörkin milli heilbrigðrar afbrýðisemi og sjúklegrar liggja. Sumir kunna sér hóf og em ánægðir með það sem þeir ávinna sér með góðu móti. Aðrir virðast aldrei fá nóg, hvorki af veraldlegum gæðum, ást né að- dáun. Hvers vegna komst Bára út til mennta en ekki Gunna? Gunna var líka með góðar einkunnir í skóla. Hvað finnst Gunnu um það að hún sitji með hitann og þung- ann af umönnun foreldranna á efri ámm á meðan Bára kemur hingað bara í veislur? Hvernig gengur systkinahópnum að ræða þessi mál opinskátt, t.d. að deila með sér umönnuninni og að Bára geti lagt silt af mörkum ef til vill á annan hátt? Það gæti verið, ef henni væri bent á þetta, að hún byði foreldmnum oftar út til sín, eða bömum hinna systkinanna til að leggja sitt af mörkum. Alltof ofl finnst okkur sjálfsagt að hlut- imir séu eins og þeir hafa lengst af verið. Það getur einfaldlega verið óhentugt. Gæti Gunna átt eftir að fara í nám, ef hún fengi léttara hlutverk í stórfjölskyld- unni? 20 SfÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.