Þjóðviljinn - 17.08.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 17.08.1990, Blaðsíða 18
Gausdal Af sigurgöngu Hannesar Hlífars í Einhverntímann hefði þótt saga til næsta bæjar að 18 ára íslenskur piltur hefði unnið áfanga að alþjóðlegum stórmeistaratitli. Hannes Hlífar Stef- ánsson. mesta efni sem komið hefur fram í íslensku skáklífi hin síðari ár, vann þetta afrek á Opna alþjóðlega mótinu í Gausdal sem lauk um síð- ustu helgi. Hannes varð einn efstur, hlaut 71/2 vinning úr 9 skákum og varð ’/2 vinningi á undan Grikkjanum Kotronias. Ekki er ýkja langt síðan skákmenn sem náð höfðu stór- meistaratign innan tvítugs voru telj- andi á fingrum annarrar handar. Bor- is Spasskij og Anatoly Karpov voru báðir 19 ára en yngsti stórmeistari allra tíma er Bobby Fischer sem var aðeins 15 ára er hann öðlaðist þessa nafnbót eftir millisvæðamótið í Port- oroz 1958. Nú eru breyttir tímar. Þeir verða sífellt yngri sem hefja þátttöku í alvarlegum skákkeppnum og nú er svo komið að þótt menn leggi nótt við dag kemst enginn yfir allar þær upp- lýsingar sem fyrir hendi eru tölvu- tækar eða í öðru formi. Kúnstin er því að vinsa úr það sem skiptir máli. Hannes Hlífar vakti þjóðarathygli aðeins 14 ára gamall er hann varð heimsmeistari sveina í Austurríki 1987. Par voru meðal þátttakenda ungir menn eins og Gata Kamsky og Englendingurinn Michael Adams en báðir hafa þeir rokið langt yfir Hann- es á stigum. Sumum fannst hægja á framförum Hannesar eftir þetta mót, jafnvel þótt hann hafi næsta auðveld- lega áunnið sér alþjóðlegan meistar- atitil. Tvö síðustu árin sem hann hef- ur helgað sig skákinni hefur árangur hann verið upp og ofan. Hann sigraði glæsilega á haustmóti TR 1988 með 10 vinninga af 11 mögulega, náði ágæ- tum árangri á úrtökumóti GMA í Moskvu á síðasta ári og hefur staðið sig vel í Evrópukeppni taflfélaga en inn á milli hafa komið slæm mót og stigatala hans lækkaði talsvert frá því hann komst upp í 2480 Elo-stig á júlí- listanum 1989. Mótið í Gausdal er fjórða mót Hannesar í sumar og ár- angur hans í þrem þeim fyrstu bætti í engu við orðstír hans, a.m.k. voru þau engin fyrirboði þess sem koma skyldi. Fyrsta umferðin á Opna alþjóðlega mótinu í Gausdal sem skartaði 6 stór- meisturum og 21 alþjóðlegum meistara kom Hannesi eiginlega í gang þótt ótrúlegt kunni að virðast. Hann tapaði fyrir stigalágum Svía en mörg eru dæmi þess að slíkt kveiki í mönnum. Norska skákstjarnan Simen Agdestein er a.m.k. frægur fyrir það háttalag og Hannes gerði sér lítið fyrir og vann sjö skákir í röð! Ég fór yfir þessar skákir með honum og þær bera öll merki skákmanns í bana- stuði. Þó voru andstæðingar hans engir aukvisar, ef frá eru skildir tveir stigalausir skákmenn, margir hertir í skákmótum A-Evrópu s.s. Búlgarinn Inkiov og Sovétmennirnir Kovalev og Juratsjev, einnig langsterkasti skák- maður Grikkja, Kotronias. Fyrir síð- ustu umferð þegar Hannes hafði lagt Grikkjann að velli var hann skyndi- lega einn efstur og þurfti jafntefli til að tryggja sér einn efsta sætið. Jafnteflið var að öðru leyti miklvægt því samkvæmt strangasta skilningi er smá glufa í áfanga Hannesar. Reglur titlanefndar FIDE kveða á um að hann megi aðeins tefla við einn titil- lausan keppanda en í ljósi þess að Hannes náði jafntefli í þessari skák og var því 'h vinningi ofar kröfunni er varla mikil hætta á að fettur verði fingur út í slík smáatriði. Meðalstigat- ala andstæðinga hans var 2405 Elo- stig. Skákin við sovéska stórmeistarann og fyrrum heimsmeistara unglinga, Valeri Chekov, var hart tefld en Hannes lenti í miklum þrengingum eftir ónákvæma byrjunartafl- mennsku. Á viðkvæmu augnabliki setti hann allt í bál og brand með svo óvæntri mannsfórn að Chekov hrein- lega hrökk upp úr sætinu. Þessi fórn stóðst kannski ekki hörðustu gagnrýni en sló Chekov algerlega út af laginu og eftir nokkra leiki var komin upp steindauð jafnteflisstaða og sigur Hannesar á mótinu var í höfn. Lokaniðurstaðan: 1. Hannes Hlífar Stefánsson IVi v. 2. Kotronias 7 v. 3.-6. Chekov, Koval- ov og Juratsjev frá Sovétríkjunum og Ernst Svíþjóð 6V2 v. Keppendur voru rösklega 80. Hvað svo ungi maður? Næstu verk- efni Hannesar er þátttaka á Skák- þingi íslands sem hefst á Höfn í Helgi Ólafsson Hornafirði í lok þessa mánaðar. Und- anúrslit Evrópukeppni taflfélaga fer fram hér á landi í næsta mánuði en þar mætir sveit TR v-þýsku sveitinni So- lingen. í nóvember er svo ólympíu- mótið í Júgóslavíu. Lítum á eina skák Hannesar frá mótinu í Gausdal. Þar sigrar hann Sovétmanninn Kovalev eftir langa og stranga baráttu: 6. umferð: Kovalev - Hannes Hlífar Spænskur leikur X. e4 e5 2. RD Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. a4 Bf8 12. Rbd2 h6 13. d5 Re7 Flestir aðrir riddaraleikir koma til greina en Hannes var undir áhrifum frá taflmennsku Karpovs í sjöundu einvígisskákinni við Timman sem tefld var fyrr á þessu ári.) 14. Rh2 c6 15. dxc6 Bxc6 16. Rg4 Rxg4 17. Dxg4 d5 18. RD! (Óþægilegur leikur sem setur mikla pressu á stöðu svarts.) 18. ... bxa4 19. Bxa4 dxe4 20. Bxc6?? (Hvítur hefur sennilega búist við 20. ... Rxc6 21. dxe4 með þægilegri stöðu en hér var betra að leika 20. Rxe5 sem Hannes hugðist svara með 20. ... Bxa4 21. Hxa4 Dc7 með hugmynd- inni 22. dxe4 Rg6 23. f4 Bd6 með tvísýnni stöðu.) a b c d e f g h 20. ... f5!! (Þessi öflugi millileikur snýr algerlega við gangi mála. Kovalev tapar peði en er ekki af baki dottinn og finnui skemmtilega leið til að halda taflinu gangandi.) 21. Dg3 Rxc6 22. Dg6 Dd7 23. Rh2 Re7 (Hannes var óánægður með þennan leik og taldi 23. ... De6 betra.) 24. Dh5 Dc6 25. f3 exf3 26. RxD Dg6 27. g4! (Óvæntur leikur sem sýnir að Koval- ev hefur ekki gefist upp þrátt fyrii mistökin í 20. leik.) 27. ... Dxh5 28. gxh5 Rc6 29. Rh4 f4 30. Ha4 Kf7 31. Rf3 He6 32. Hae4? (Hvítur hefur náð að skorða mið- borðspeð svarts en eftir þennan leik nær hann ekki að bæta stöðu sína frekar. Auk þess þarf hann að verja veikleikana á kóngsvængnum. Hann missirhérafágætufæri: 32. Hc4! með hugmyndinni 33. Hxc6. Eftir 32. ... Kf6 getur hvítur leikið 33. Bxf4!) 32. ... Hae8 33. Kf2 Bd6 34. Rd2 g6! 35. hxg6 Hxg6 36. Hc4 Bb8 37. Re4 Hd8 38. Ke2 Re7 39. Hb4 Hg2+ 40. KD Hh2! (Svartur hefur náð að smeygja mönnum sínum inn á kónginn jafn- framt því sem hann hefur náð að halda öllu í skefjum á miðborðinu. Lokaatlagan getur ekki verið langt undan.) 41. Rf2 Bd6 42. Hb7 Hg8 43. Re4 Hxh3+ 44. Kf2 Hh2+ 45. Kf3 Bb8 46. b3 Hh3+ 47. Kf2 D 48. Ke3 Ke6 49. Hb6+ Kd7 50. Rf6+ (Eftir þennan leik er öllu lokið. Betra var 50. Hb7+. Sennilega hefur Ko- valev ekki tekið 52. leik Hannesar með í reikninginn.) 50. ... Kc7 51. Rxg8 Rd5+ 52. Kf2 Ba7! 53. Be3 Rxe3 54. Kxe3 Bxb6+ 55. Kd2 Hh2+ 56. Kd3 e4+! 57. Hxe4 f2 58. He7+ Kd6 59. Hf7 Hhl - og hvítur gafst upp því 60. Ke2 er svarað með 60. ... Hel+ og 61. ... fl(D). Fátt um óvænt úrslit Þrír leikir voru á dagskrá Bikar- keppni Bridgesambandsins um síð- ustu helgi. Sveit Samvinnuferða/- Landsýnar sigraði sveit Grettis Frí- mannssonar, eftir að þeir síðarnefndu höfðu leitt leikinn fram undir síðustu lotu. Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar Siglufirði sigraði sveit Sveins R. Eiríkssonar Reykjavík með 5 punkt- um, eftir afar jafnan leik. Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar sigraði síðan sveit Guðlaugs Sveinssonar Reykjavík, nokkuð örugglega. 6 sveitir eru þarmeð komnar í 3. umferð og aðeins er þá ólokið leikjum Karls Karlssonar Sandgerði gegn sveit Forskots Reykjavík, og S. Armanns Magnússonar Reykjavík gegn Verðbréfamarkaði Islands- banka. Óvíst er hvenær þeir leikir geta farið fram. Bridgefélag Akureyrar gengst fyrir Opnu móti (tvímenning) í barómeter næsta laugardag, 25. ágúst. Spilað verður í Alþýðuhúsinu og hefst spila- mennska kl. 10 árdegis. Góð laun eru í boði. Stefnt er að þátttöku 26-32 para. Skráning er hjá Frímanni Frím- annssyni eða Gunnari Berg. Næsta Evrópumót í sveitakeppni verður á írlandi 1991. Er búist við að metþátttaka verði í því móti. Mánudaginn 13. ágúst sl. var útför Þorsteins Þorsteinssonar. Þorsteinn var mikill spilamaður, hin síðari ár hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Hann átti sæti í Evrópulandsliðinu sem keppti í Austurríki 1958. Þor- steinn varð íslandsmeistari í sveita- keppni 1951. Umsjónarmaður vottar fjölskyldu Þorsteins innilegustu sam- úð sína. Uppi eru hugmyndir um að fyrir- tækið Sigurplast í Reykjavík efni til tvímenningsmóts í næsta mánuði. Ætlunin er að bjóða kcppendum frá hinum ýmsu fyrirtækjum. Nánar síð- ar. Á fundi Bridgesambandsins 23. júlí sl., var rætt um hinarýmsu leiðir til að láta enda ná saman í rekstri sam- bandsins. Meðal hugmynda sem færðar voru í fundargerð (ætla má að „verri“ hugmyndir hljóti ekki náð fundarritara) má nefna; Meistarar hvers félags spili saman í einu lands- móti; nota forgjöf í samræmi við stig í því sambandi. Stighæstu spilarar landsins spili við áhugamenn (?). (Ég hélt nú að meginþorri þeirra væri í áhugamennsku, eða hvaða?) Kcppni milli efri og neðri deildar Alþingis ís- lands (sem tíðkast í Bretlandi með lítillega breyttri útfærslu). Ólafur Lárusson Cavendish-fyrirkomulag á móti inn- anlands. Sem felst í „uppboði" á pörum fyrir mót. Sú upphæð sem þannig safnast rennur síðan í verð- laun, til spilaranna og „eigenda" þeirra, og ræðst vinningsupphæð af úrslitum mótsins. Einnig var rætt um að koma upp „Bakhjarlamóti“ í tengslum við þann lið að stigaháir spilarar etji kappi við stigalægri (stigalausa) keppendur. Samþykkt var að Helgi Jóhannsson, Guðmund- ur Sv. Hermannsson og Magnús Ól- afsson taki að sér undirbúning ofan- greindra liða. Sem innlegg í þessa umræðu má rifja upp fyrri minnispunkta sem undirritaður hefur sett fram í blaða- greinum síðustu misseri: 1. Nýjungar í mótahaldi. Þar má nefna; Landsmót félaganna og þar á ég við á breiðum grundvelli, ekki ein- ungis meistarar hvers félags. Fyrsta árið mætti spila í Opnum flokki, en eftir þá spilamennsku yrði félögunum raðað í 4 deildir. Ný féiög fara sjálf- krafa í 4. deild. Með þessu vinnst; Hugsanleg fjölgun félaga innan BSÍ. Stórbætt samskipti innanlands og síð- ast en ekki síst miklir tekjumögu- leikar. Öldungamót í tvímenning (því ekki?). íslandsmót í sveitakeppni í blönduðum flokki (því ekki?). Jafn- hliða tvímenningsmót á Bridgehátíð (spilað í kennslustofunum). 3 efstu pörin ávinna sér rétt til þátttöku í að- alkeppni að ári. Miklir tekjumögu- leikar án mikillar fyrirhafnar. Skipu- lögð sumarkeppni um land allt á veg- um BSÍ. Bæjarkeppni á vegum BSf (með stuðningi viðkomandi bæjar- yfirvalda). Ætla mætti að þátttaka yrði jákvæð í slíkum samskiptum. Einmenningsmót. 2. Stofnun Hugíþróttasambands ís- lands. Virkja þá aðila sem teljast til þess hóps, t.d. aukin samvinna bridge- og skákmanna um land allt. 3. Öflugri opinber stuðningur. Ná samningum við fjársterk fyrirtæk sem sjá sér hag í stuðningi við afmark- aða starfsemi sambandsins. Þar má nefna landsliðsmál, unglingamál, eflingu félagslegra tengsla á lands- vísu, auglýsingar um landsins gagn og nauðsynjar, ferðamál o.fl. 4. Nýting á húsnæði Bridgesam- bandsins. Má ekki athuga hvort Há- skóli íslands eða viðlíka stofnun, hafi ekki þörf fyrir húsnæði á borð við það sem býðst í Sigtúni 9, á virkum dögum frá kl. 8 að morgni til kl. 17. Þarna bjóðast 9 stundir á dag eða samtals 45 stundir á viku. Fleiri mætti eflaust nefna sem inn- legg í umræðu stjórnar Bridgesam- bandsins um leiðir til tekjuöflunar og nýjungar í mótahaldi. Er allt kemur til alls, er aðeins um að ræða vilja og djörfung. Flestir bridgespilarar kannast við þá tilfinningu sem grípur þá við græna borðið, þegar úrlausnin er margþætt. Með orðinu margþætt, er átt við að sagnhafi sameinar tvo eða fleiri kosti í einn, ef han aðeins „tímasetur" úr- spilið rétt. Lítum á einfalt dæmi: S: D854 H: ÁD54 T: 82 L: Á73 H:K963 H:G1087 T: 743 T: Á10965 L: DG104 L: K95 S: ÁG10976 H: 2 T: KDG L: 862 Suður er sagnhafi f 4 spöðum og útspil Vesturs er laufadrottning. I þessu tilviki er rétt að fara upp með ásinn og spila spaðadömu úr blindum. Lítið frá Austri og sagnhafi stingur upp ás. í þeirri stöðu er hjarta spilað, lítið frá Vestri og drottning látin úr blindum. Eins og sjá má, gengur þessi íferð því sagnhafi hendir laufi niður í hjartaás. Ekki er þó mælt með þessari spilaíferð í tvímenning, vegna hættunnar á því að fara tvo nið- ur, ef hjartakóngur liggur ekki. Það sem mælir með ofangreindri spilaíferð er; a) Svokölluð „öryggis- spilamennska", þegar þú átt þess kost að sameina tvær eða fleiri spilaíferðir í eina. b) Spilamennsku sem lýst er hér að ofan má einnig nefna: aðferð sem felur í sér enn fleiri aðferðir, að því markmiði sem stefnt er að (að vinna samninginn) og um leið er venjulega betri aðferð en sú eina sem reynd er, jafnvel þótt hin síðari (eina leiðin) gæti verið betri, prósentulega séð. Sú leið sem stendur og fellur með einni aðferð, er oftast vafasöm er til lengdar lætur. Mýmörg dæmi svipuð ofangreindu mætti setja á blað. Því miður fyrir bridgeíþróttina (fagurfræðina) reyn- ist ekki „rétta“ leiðin alltaf sú hald- besta, er á reynir. En það sakar ekki að hafa augun opin og halda vöku sinni við borðið. 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.