Þjóðviljinn - 17.08.1990, Side 12
Dýralækningar
Eflaust hafa flestir dýraeigendur einhvern tíma komiö meö gæludýr-
in sín á Dýraspítalann í Víðidal. Komið þangað með fótbrotinn hund,
kött með kattafár eða hamstur með tognaðan fót. Á Dýraspítalanum,
sem er sjálfseignarstofnun, starfa fjórir dýralæknar. Einn þeirra er
Þorvaldur Þórðarson. Hann hefur starfað sem dýralæknir frá 1982, en
þá útskrifaðist hann frá Edinborg. Fyrstu tvö árin á eftir starfaði Þor-
valdur í Skotlandi, en kom síðan heim og hefur starfað á Stór-
Reykjavíkursvæðinu síðan.
- Hvers vegna fórstu að læra
dýralœkningar?
- Ja, ætli það hafi ekki verið
einhver áhugi á dýrum. Ég var í
sveit sem krakki og unglingur og
hef sennilega smitast þar og feng-
ið ólæknandi áhuga. Ég hef mik-
inn áhuga á dýrum, að umgangast
þau, hjúkra þeim og lækna.
- Hvernig er þetta starf, er það
erfitt?
- Já, þetta er ansi erfitt. Það
getur verið slítandi og þrúgandi á
köflum. Auðvitað er gaman þeg-
ar vel gengur, en leiðinlegt er illa
gengur.
Menn venjast
því ekki aö
deyða dýr
- Venjast dýralæknir því að'
þurfa að deyða dýr, eða er
kannski aldrei hægt að venjast
því?
- Það má kannski segja að
maður sætti sig í rauninni aldrei
við að þurfa að deyða dýr. En það
er hægt að brynja sig gegn því og
maður myndar þykkan skráp.
Það er náttúrlega helst hægt að
sætta sig við það þegar maður er
að lina þjáningar. En að svæfa
dýr bara vegna þess að eigandinn
getur ekki lengur haft það, og
getur ekki komið því fyrir er erf-
itt. Stundum eru erfiðleikar á
heimilum eða þá að eigandinn
nennir hreinlega ekki lengur að
hafa dýrið, nennir ekki að hugsa
um það og vill ekki hafa það
lengur. Þá finnst mér mjög erfitt
að þurfa að deyða dýr.
- Hvaða dýr er mest komið með
hingað?
- Þessi spítali er fyrst og fremst
smádýraspítali. Hundar og kettir
eru algengustu sjúklingarnir, en
svo er komið með páfagauka,
hamstra, mýs, naggrísi og þess
háttar. Jafnframt því erum við í
samstarfi með héraðsdýralæknin-
um í Kjósarumdæmi og störfum á
þvf svæði. Einnig förum við
mikið í hesthúsin hér í kring, á
bæi í nágrenni Reykjavíkur og í
Kráarstemmning 1. hæð
O
Söngur — grín — gleði — dans.
Opnað kl. 22.00.
Pripps-gleðistund frá kl. 23.00—24.00
(fríar veitingar til miðnættis).
Ósvikin kráarstemmning með Einari Jónssyni
og Ann Andreasen. Pau ganga milli borða
með söng og hljóðfæraslætti.
Frítt inn allt kvöldiö.
Hinn Ijúfi Bylgjumaður Haraldur Gíslason
mætir á svæðið.
Konungleg skemmtun á annarri hæöinni
Opnað kl. 23.00.
Hljómsveit André Bachmann ásamt hinni
stórgóðu söngkonu Asdísi Fjólu,
sem sló svo sannarlega í gegn i
„Á tali hjá Hemma Gunn".
Rock & roll og poppmeistarinn Þorsteinn
Eggertsson skemmtir.
Miðaverð aðeins kr. 750 eftir kl. 24.00.
Fritt inn til miðnættis.
Konungleg skemmtun á konunglegum
stað.
RF.STAIJRANT
ÞORSNCAFE
BRAUTARHOI.TT 20
Símar 23333-23334
fiskeldisstöðvar. Til viðbótar
erum við með dálitla aðstöðu hér
í hesthúsunum sem við köllum
hestaspítala. Þar getum við gert
algengustu aðgerðir á hestum.
Þetta getur verið töluvert
mikið starf og ansi erilsamt. Við
tökum neyðarvaktir og bakvaktir
alla daga, allan ársins hring. Við
erum með símsvara hérna sem
vísar á þann sem er á bakvakt á
kvöldin og um helgar.
Algengustu
sjúkdómar katta
- Eru sjúkdómarnir eins marg-
víslegir og dýrin eru, eða eru ein-
hverjir sérstakir sjúkdómar sem
herja á dýr?
- Hjá köttum er mjög mikið
um alls konar slys, t.d. beinbrot,
skurði og bitsár eftir aðra ketti.
Hegðunarmynstur katta er þann-
ig að þeir helga sér ákveðin
svæði, eiga sitt umráðasvæði sem
þeir verja með kjafti og klóm.
Það er þá oft mikið um slagsmál á
jaðri þessara svæða. Eins þegar
fresskettir eru að slást út af
breima læðu. Þetta er hörð og
grimm veröld hjá köttunum og
þeir bíta hver annan oft illa. Og
það er mjög algengt að það komi
sýking í slík sár og myndist
heiftarleg graftarkýli.
Af smitandi sjúkdómum er
helst að nefna niðurgang og upp-
köst. Slíkt getur verið smitandi,
en einnig tengst fóðri eða því sem
kettir láta ofan í sig. Síðan er
mjög slæmur vírussjúkdómur
sem heitir kattafár sem er bráð-
smitandi og fer mjög illa með
ketti. Það er til bólusetning gegn
kattafári og hefur veitt töluvert
góða vörn. Þá eru tvær bólusetn-
mgar með mánaðar millibili og
síðan er bólusett árlega. Sem bet-
ur fer hefur það færst mjög í
aukana að fólk láti bólusetja kett-
ina sína og að mínum dómi er það
vel þess virði. Kattafár er mjög
slæmur sjúkdómur og fer mjög
illa með kettina. Af óbólusettum
köttum deyja 40-50% af kattafári
ef það gýs upp.
- Er kattafár sjúkdómur sem er
viðvarandi allt árið eða gýs hann
upp öðru hvoru?
- Kattafár er í gangi allan ársins
hring, en fer örlítið í sveiflum.
Sjúkdómurinn virðist aldrei
hverfa alveg, en það er eflaust
árstíðabundið hversu mikið er
um hann. Eins fer það eftir því
hversu mikið kettir eru á ferð-
inni. Eftir því sem kettir eru
meira á ferðinni, því meiri mögu-
leiki er á útbreiðslu. Sjúkdómur-
inn smitast oftast frá ketti til katt-
ar, en hann getur líka smitast
með munnvatni, þvagi eða saur.
Kettir geta
verið hefni-
gjarnir
- Hvað með andlega sjúk-
dóma, geta kettir orðið þung-
lyndir?
- Það er kannski ekki hægt að
tala um geðsjúkdóma, en við
tölum um hegðunarbreytingar.
Það eru til dæmi um að kettir
breyti um hegðan og það er
reyndar mjög algengt. Ef það er
eitthvað sem þeim mislíkar,
kannski ef þeim er ekki gert til
hæfis á heimili þá geta þeir verið
ansi önugir, erfiðir og leiðinlegir.
Þeir geta jafnvel farið út í það að
hefna sín á fólki með því að pissa
inni og gera stykkin sín út um allt.
Jafnvel í handklæði og hreinan
þvott.
Kettir eru mjög næmir, sér-
staklega ef einhverjar breytingar
verða. Til dæmis ef dauðsföll
verða í fjölskyldu, ef það koma á
heimilið nýir aðilar, fæðast börn
og ef flutningar standa yfir.
Köttum finnst mjög erfitt að
flytja í aðra íbúð og í annað
hverfi, það fer oft illa í þá. Þá
þurfa þeir að byrja að festa sig í
því hverfi og festa sér sitt umráð-
Þessi köttur kom á dýraspítalann og við rannsókn reyndist hann illa
fótbrotinn. Þorvaldur telur þó góðar líkur á að hægt sé að gera hann
góðan á ný. Mynd: Kristinn.
asvæði sem er töluverð vinna
fyrir þá.
Við höfum líka dæmi þess að
kettir verði veikir andlega. Það er
þá oft í sambandi við aðra sjúk-
dóma, til dæmis heilahimnubólgu
eða mænusjúkdóma. Þá getur
orðið mikil breyting á kettinum.
Hið ljúfasta dýr getur skyndilega
orðið mjög grimmt og pirrað. En
ef köttur er frá upphafi erfiður,
brenglaður og taugaveiklaður, þá
endist fólk ekki til að hafa hann.
Slíkir kettir grisjast þá út.
- Geta kettir orðið afbrýði-
samir?
- Já, þeir geta orðið það. Sér-
staklega ef það kemur barn á
heimilið eða nýr aðili. Ef köttur
er vanur einum aðila og síðan
kemur kannski ástvinur inn í
dæmið, getur kötturinn orðið
mjög afbrýðisamur. En í lang-
flestum tilfellum lagast það og
kötturinn venst hinum tiltölulega
fljótt.
Ekki taka
kettling yngri
en 8 vikna
- Ef fólk œtlar að fá sér kött, á
hvaða aldri á hann að vera?
- Það á alls ekki að taka kött frá
móður fyrr en hann er orðinn 8-9
vikna gamall. Kettlingur þarf að
fá að vera hjá móðurinni þangað
til. Bæði þarf hann á móðurást og
móðurmjólk að halda. Ef kett-
lingur er tekinn fyrr getur það
haft þær afleiðingar að meltingin
brenglist hjá honum. Hann fær
þá niðurgang og þolir ekki þann
mat sem hann fær, því hann er
ennþá verulega háður móð-
urmjólkinni þótt hann sé farinn
að borða annan mat með. Eins
geta of ungir kettlingar orðið
spenntir og erfiðir. Þótt kett-
lingur sé ekki tekinn fyrr en 8-9
vikna, nota ég oft þá samlíkingu
að fólk sé í raun með pelabarn í
höndunum.
Eins getur verið erfitt að taka
kött sem er orðinn hálffullorð-
inn, til dæmis 1 árs. Það getur
gengið verulega vel ef fólk stend-
ur rétt að því og veitir kettinum
hlýju og umhyggju. Sérstaklega
ef kötturinn hefur verið vel alinn.
Ófrjósemis-
aðgerð
- Margir hafa verið í vand-
ræðum með læðursem eru orðnar
kynþroska og vita ekki hvortþeir
eiga að láta taka þær úr sambandi
eða láta þœr á pilluna. Hvað er
best að gera?
- Það virðist vera að fólk hafi
fengið einhverjar hugmyndir um
að læður þyrftu að eignast kett-
linga einu sinni áður en þær væru
teknar úr sambandi. Annars yrðu
þær leiðinlegar. Ég get ekki
merkt þetta og vil þess vegna
meina að það sé óhætt að taka
læður úr sambandi án þess að þær
hafi átt kettlinga. Hvort fólk vill
láta læður á pilluna eða taka þær
úr sambandi er auðvitað háð því
hvað fólk ætlar sér. Það skiptir
ekki máli hvað köttinn varðar, en
ef fólk ætlar sér einhvern tíma að
ala undan læðunni kettlinga á það
að láta hana á pilluna. Að öðrum
kosti er ráðlegt að taka hana úr
sambandi, sem er líka mun þægi-
legra. Þá þarf ekki að muna eftir
pillunni einu sinni í viku og engar
áhyggjur að hafa.
Oftast verða læður kynþroska
um 6 mánaða aldur og byrja að
breima. Það er óhætt að taka þær
úr sambandi þá og það virðist
ekki hafa verulega mikil áhrif á
þær, en alls ekki fyrr.
Sjúkdómar hunda
svipaðir sjúk-
dómum katta
- Hvað með hunda, eru þeirra
sjúkdómar öðruvísi en kattasjúk-
dómar?
- Nei, það eru mjög svipaðir
sjúkdómar að öðru leyti en því að
bitsár eru ekki eins. Hundar eru
náttúrlega bitnir en það virðist
ekki koma eins út og það er meira
um að þeir séu rifnir og tættir
heldur en að það komi sýking í þá
eða myndist graftarkýli.
Alls konar umferðarslys,
beinbrot og þess háttar eru mjög
algeng hjá hundum og eins eru
uppköst og niðurgangur vanda-
mál. Þessi dýr eru með nefið ofan
í öllu og láta ýmislegt ofan í sig.
Ýmiskonar hormónasjúkdómar
geta hrjáð hunda og krabbamein
er til dæmis ekki óalgengt. Smit-
sjúkdómar eru líka til í hundum
og ýmsar bakteríusýkingar. Það
er smitandi lifrarbólga til á ís-
landi og ýmsir aðrir kvillar. Það
er engin bólusetning til við sjúk-
dómum hunda eins og katta.
Mjög mikilvægt atriði í sam-
bandi við hunda er hunda-
hreinsun. Það þarf að hreinsa þá
af bandormum og koma í veg
fyrir sullinn sem var algengur hér
á árum áður. Eins eru ýmsir
tannkvillar og tannsteinn er al-
gengur og hundar fá sýkingu í
góminn.
Ef fólk ætlar að fá sér hvolp er
alveg sama með hann eins og
kettling. Það má ekki taka hvolpa
fyrr en þeir eru orðnir 8-9 vikna.
Hundar eru hins vegar ekki eins
hefnigjarnir og kettir og finna
heldur ekki eins fyrir flutningum
og slíku.
- Átt þú dýr sjálfur?
- Já, ég á írskan setterhund. Sú
tegund er reyndar veiðihundar,
en ég fer ekkert með hann á
veiðar. Hann er aðallega félagi
minn. ns.
12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. ágúst 1990