Þjóðviljinn - 11.01.1991, Side 8

Þjóðviljinn - 11.01.1991, Side 8
Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki hf. Framkvaemdastjóri: Hallur Páll Jónsson Ritstjórar; Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Karlsson Fréttastjóri: Siguröur Á. Friðþjófsson Augiýslngastjóri: Stelnar Harðarson Afgreiösla: » 68 13 33 Auglýslngadeild: * 68 13 10 - 68 13 31 Simfax: 68 19 35 Verð: 150 krónur I lausasölu Setning og umbrot: Prentsmlöja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Aðsetur: Síðumúla 37,108 Reykjavík Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Yfirstétt DV giskar á það í fréttaljósi sínu í gær, að íslenska þjóðin hafi eytt á síðasta ári um 4,4 miljörðum króna í happdrætti af ýmsu tagi. Um 2,1 miljarða fengu vinningshafar greidda til baka í vinningum, svo „skattheimta" happ- drættanna nemur samkvæmt þessum útreikn- ingum 2,3 miljörðum króna. Það er ekki út í hött að skilgreina hluta af tekjum happdrætt- anna sem skatta. Megnið af þessu fé rennurtil ýmiss konar menningar- og hjálparstarfsemi í þjóðfélaginu, sem opinberiraðilarmundu ann- ars kosta af ríkisfé að minnsta kosti að ein- hverju ef ekki öllu leyti. En hverjir spila í happdrættum og losa ríkið undan hluta af kostnaðinum við ýmis þau þjóðþrifa- og nauðsynjamál sem veðmálaféð rennur til? Könnun fyrir nokkrum misserum gaf til kynna, að það séu einkum hinir efna- minni í þjóðfélaginu, sem lifa í voninni um stóra vinninga, eyða umtalsverðu fé í happ- drættin og leggja stundum sinn ekkjueyri af mörkum í trausti þess að kraftaverkið hljóti einhvern daginn að gerast og fjárhagsáhyggj- urnar að hverfa. Sé þessi niðurstaða rétt, að fátæka fólkið í landinu standi í raun í mörgum tilvikum undir meiri skattheimtu en þeirsem betri hafa kjörin, er enn meiri ástæða til að knýja á um húsla- leigubætur, hátekjuskatta og skatta af fjár- magnstekjum, eins og tíökast með þeim þjóð- um sem við helst berum okkur saman við. Ef til vill má jafnvel geta sér þess til, að bágur fjárhagur ýmissa fjölskyldna stafi ein- mitt að hluta til af ýmiss konar samhjálp sem fólk hefur ekki talið eftir sér að veita öðrum fjölskyldum, einstaklingum eða samtökum, oft í kyrrþey. Og flestir þekkja dæmi um fólk sem ver tíma sínum í ólaunuð sjálfboðaliðastörf fyrir samtök eða náungann, meðan aðrir keppast við að nýta frítíma sinn sem best til tekjuöflunar. Hér er um að ræða fyrirbæri í samfélaginu sem örðugt er að kanna með nokkurri full- vissu, en vissulega væri þó mikill fengur að því ef einhverjir rannsóknaraðilar gerðu tilraun til frumgreiningar á þessum þáttum efnahags- lífins og afstöðu manna til líknar- og menning- arstarfa. Ekki skal með nokkru móti bera brigður á ágætan hug og árangur þeirra sem stuðla að velferðarmálum með happdrættis- rekstri og sjálfboðaliðavinnu. Mörg rök má færa fýrir því að frjáls samtök einstaklinga geti komið hlutum öruggar og hraðar til leiðar og fundið betur hvernig hjarta almennings slær og hvert velvild hans stefnir, heldur en opin- bert embættisskerfi. Hins vegar er það um- hugsunarefni, hvort mál eins og kaup á björg- unarþyrlum, rekstur háskóla, rekstur sjúkrabif- reiða og svo framvegis eigi að vera ijárhags- lega komin undir því hvernig einhverjum happdrættum vegnar í samkeppni við lottó og getraunir. Bent hefur verið á að eitt nýtt einkenni ís- lenska samfélagsins undanfarin ár geti verið vísir að nýrri stéttaskiptingu eftir uppeldi og menntun, þar sem hinir efnameiri og betur settu muni í sívaxandi mæli eiga þess kost að koma börnum sínum í einkaskóla og á einka- dagheimili. Ekki er þar með sagt að þroski og menntun á slíkum stöðum sé óhjákvæmilega meiri eða betri heldur en í stofnunum ríkis og bæjarfélaga, heldur jafnvel að samkennd og umhverfi ákveðinnar yfirstéttar, hvort sem hún er efnahagsleg eða félagsleg, streymi í ákveðnari áttir en hingað til. í þessu sambandi er unnt að benda á þá umræðu sem skapast hefur vegna reksturs Evrópuskólanna þriggja á vegum EB. Þar hef- ur nú um þriggja áratuga skeið verið alin upp evrópsk yfirstétt, börn starfsmanna Evrópu- bandalagsins, sem njóta yfirburða aðstöðu til þekkingaröflunar og reynslu. Nemendur geta notið þessara tvímælalausu forréttinda allt frá dagvistarskeiði til 18 ára aldurs og er ekki far- ið í launkofa með það að tilgangurinn sé að ala upp yfirburðafólk. Langir biðlistar frá sendiráðsfjölskyldum og fólki úr viðskiptalíf- inu, sem stundum hafa komið börnum sínum í þessar stofnanir, sýna hve þær eru taldar mik- ilvægar í ákveðnum stéttum. óht / / 0-ALIT 8 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 11. janúar 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.