Þjóðviljinn - 11.01.1991, Síða 25

Þjóðviljinn - 11.01.1991, Síða 25
Næturgalinn á táknmáli Þjóðleikhúsið brautryðjandi í þjónustu við heymarlausa Á laugardaginn, 12. jan., verður á Litla sviði Þjóðleikhúss- ins við Lindargötu sýning fyrir Félag heymarlausra á leikritinu Næturgalanum. Þetta er í annað sinn sem sýningin verður leikin fyrir heymarlausa og túlkuð um leið á táknmáli, en Næturgalinn var fluttur á þennan hátt fyrir nemendur Heymleysingjaskólans fyrir skömmu. Ekki er vitað til þess að leik- sýning hafi áður verið túlkuð á þennan hátt hérlendis. Heymar- lausir nutu sýningarinnar mjög vel og hefúr Þjóðleikhúsið í hyggju að halda þessari starfsemi áffam þar sem því verður við komið. Sýningin á laugardaginn verður sú 112. á Næturgalanum, en verkið hefúr nú verið sýnt í grunnskólum Reykjavíkur, Kópa- vogs, Garðabæjar, Seltjamamess, Mosfellsbæjar og Akraness. I næstu viku flýgur Næturgalinn til Austurlands, þar sem leikið verð- ur fyrir nemendur 20 skóla í Aust- urlandskjördæmi. ÓHT Auglýsing um fasteignagjöld Lokið er álagningu fasteignagjalda í Reykjavík árið 1991 og verða álagningarseðlar sendir út næstu daga ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjaldanna. Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, 1. mars og 15. apríl. Gjöld eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík, en einn- ig er hægt að greiða gíróseðlana í næsta banka, spari- sjóði eða pósthúsi. Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, sími 18000. Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári hafa fengið hlutfallslega lækkun fyrir árið 1991. Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl gjald- enda þegar þau liggja fyrir, væntanlega í mars- eða apríl- mánuði, og úrskurða endanlega um breytingar á fast- eignaskattinum, m.a. hjá þeim sem ekki hafa þegar feng- ið lækkun, en eiga rétt á henni samkvæmt þeim reglum sem borgarstjórn setur sbr. 4. mgr. 5. gr. I. nr. 90/1990 um tekjustofna sveitarfélaga. Verður viðkomandi tilkynnt um niðurstöðu, ef um breytingu verður að ræða. Borgarstjórinn í Reykjavík, 8. janúar 1991. INNRITUN I PROFADEILD (öldungadeild) GRUNNSKÓLASTIG: AÐFARANÁM - ígildi 8. og 9. bekkjar grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa lokið þessum áfanga eða vilja rifja upp. FORNÁM - ígildi 10. bekkjar grunnskóla. Foráfangi fram- haldsskólastigs. Kennslugreinar: íslenska, danska, enska og stærðfræði. FRAMHALDSSKÓLASTIG. SJÚKRALIÐABRAUT - forskóli sjúkraliða. VIÐSKIPTABRAUT - 2 vetra nám sem lýkur með versl- unarprófi. MENNTASKJARNI - þrír áfangar kjarnagreina, íslenska, danska, enska, stærðfræði. Auk þess þýska, félagsfræði, efnafræði, eðlisfræði o.fl. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla. Skólagjald miðast við kennslustundafjölda og greiðist fyr- irfram í upphafi annar eða mánaðarlega. Kennsla hefst 21. janúar nk. INNRITUN fer fram í MIÐBLÆJARSKÓLANUM, Frí- kirkjuvegi 1, dagana 14. og 15. janúar kl. 17-20. Nánari fyrispurnum svarað í síma 12992 oog 14106. Skrifstofa Námsflokkanna er opin virka daga kl. 10-18. ÁRSÁVÖXTUN Á KJÖRBÓK ÁRID 1990 VAR 11,13-13,25%- ÞAD ÞÝÐIR ALLT AD 5,7% RAUNÁVÖXTUN Á UPPÁHALDSBÓK SPARIFJÁREIGENDA Kjörbók Landsbankans var á árinu 1990 sami góði sparnaðarkosturinn og áður-jafnt fyrir einstaklinga sem fyrirtæki. Grunnvextirá Kjörbók eru nú 9%. Standi hlutí innstæðunnar óhreyfður hækka vextirnir afturvirkt: í 10,4% eftir 16 mánuði og í 11% eftir 24 mánuði. Þá er innstæða á Kjörbók óbundin og að auki með verðtryggingu á þann hluta hennar sem stendur óhreyfður yfir heilt verðtryggingartímabil, en þau eru frá 1. jan.-30. júní og frá 1. júlí til 31. desember. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.