Þjóðviljinn - 12.04.1991, Side 4

Þjóðviljinn - 12.04.1991, Side 4
Færri fengu sæti en vildu, en þegar sætin þrýtur er gott að hvlla í fang- inu á mömmu. „Það verður líf í lönó“ Guðrún Helgadóttir bauð gesti velkomna og sagði að (Iðnó yrði glatt á hjalla alla helgina og alveg fram að kosningum. Hnyttnar sögur heyrðust meðan menn fengu sér kaffi ( bollana. Myndir: Kristinn. Margt um manninn þegar Alþýðubandalag Reykjavíkur opnaði kosningamiðstöð sína ílðnó Það var glatt á hjalla, þegar Alþýðubandalagið í Reykjavík opnaði kosningamiðstöð sína í Iðnó í gær. Fjöldi fólks var á staðnum, þegar Lúðrasveit verkalýðsins hóf að leika fyrir gesti. Meðan lúðramir hljómuðu gekk fólk um, talaði við kunnuga og verslaði happadrættismiða sem seldir em á staðnum til fjáröflunar. Eftir að hafa hlýtt á lúðra- þytinn dágóða stund bauð Guðrún Helgadóttir fólk vel- komið. Sagði hún það fagnað- arefni að Alþýðubandalagið hefði yfir að ráða svo glæsi- legu húsi sem Iðnó væn, það gæfi því auga leið að margt skemmtilegt yrði haft þar fyrir stafni ffam að kosningum. Ekki bara í pólitíkinni, heldur verður ýmislegt haft hér til skemmtunar fyrir utan hana, sagði Guðrún. Meðan gestir nutu ljúfira veitinga, flutti ungur leikari, Jakob Þór Einarsson ljóð eftir nokkur af okkar þekktustu skálduni. Bjartmar Guðlaugs- son lagði sitt af mörkum til þessarar stundar og flutti fjör- ug lög eftir sjálfan sig við mik- inn fögnuð áheyranda. Opnunarhátíðin tókst mjög vel í alla staði og er greinilega góður vísir að því sem verður á dagskránni í Iðnó næstu daga. Það er óhætt að mæla með þvi við kjósendur, jafnt unga sem aldna að kíkja í heimsókn til Alþýðubandalagsins og þiggja kaffi, því eins og Svav- ar Gestsson sagði í lokin „Það verður líf í Iðnó, alla daga, all- an daginn ffam að kosning- um.“ -sþ & • • / / , FJOLSKYLDU HATIÐ ^ IALAFOSSKVOSINNI • Grill • Lúðrasveit • Vísnasöngur • Gísli Snorrason frambjóðandi á G-listanum ávarpar gesti • Útileikhús: Ýmsir leikhópar koma • "Karnival": Leikarar farða krakkana • Rokkhljómsveit og fleiri tónlistaratriði • Hestar: Börnin geta komist á hestbak • Brúðuleikhús: Sögusvuntan kemur í heimsókn með tröllastelpuna leiðindaskjóðu Blústónleikar um kvöldið í Þrúðvangi: K.K.-bandið og fleiri tónlistarmenn frá klukkan 21:00 / -------------------------------- ALÞYÐUBANDALAGIÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.