Þjóðviljinn - 12.04.1991, Blaðsíða 28
ÍSLENDINGAR
ERU EIN
FJÖLSKYLDA
VIÐ SKORUM Á ÞIG, KJÖSANDI GÖÐUR,
AÐ SPYRJA FRAMBJÓÐENDUR HVAÐ ÞEIRÆTLA
AÐ GERA TIL AÐ BÆTA OG JAFNA LÍFSKJÖR.
Hvað ætlar þú
frambjóðandi góður að
til að bæta velferð allra, einkum þeirra er við
lökust kjörin búa?
til að tryggja félagsleg réttindi allra?
til að tryggja heimilishjálp og heimahjúkrun
er tekur mið af þörfum þeirra er þjönustunnar
skulu njöta?
til að tryggja börnum góð uppvaxtarskilyrði?
til að bæta og auka starfsmenntun?
til að öllum gefist kostur á atvinnu við sitt hæfi?
Alþýðusamband íslands Bandalag starfsmanna Sjálfsbjörg, Öryrkjabandalag íslands
rlkis og bæja landssamband fatlaðra
Tökum höndum saman um að tryggja
öllum mannsæmandi kjör. Að öðrum
kosti er árangur baráttunnar fyrir
jöfnuði og jafnrétti í hættu, stétta-
skipting mun aukast hröðum skrefum
og bilið milli ríkra og fátækra breikka.
Sjáum til þess að trygg afkoma og öfl-
ugt velferðarkerfi verði aðalsmerki ís-
lenska þjóðfélagsins. Sameinuð mun-
um við sjá til þess að sú ríkisstjórn
sem mynduð verður að loknum kosn-
ingum standi vörð um það.