Þjóðviljinn - 12.04.1991, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 12.04.1991, Qupperneq 22
Um menningu (List og peninga) Fyrir nokkru sá Pressan ástæðu til að taka mig tali og spyija út í húsnæðismál Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík og eftir að hafa skýrt stöðu þeirra mála, vék ég að öðrum atriðum sem betur mættu fara og beindi þá spjótum mínum sér- staklega að ríkinu. Eitt þeirra atriða sem ég nefndi var svokölluð „Utflutnings- miðstöð menningarinnar“ sem ég sagði „fáránlega" og síðar: „það liggur í augum uppi að ef allt skapandi starf leggst niður er ekkert hægt að flytja út.“ Þessi um- mæli voru síðan borin undir mennta- málaráðherra viku seinna (4. apríl sl.) og þar segir hann: „Eg skil ekki hvemig nokkur maður getur gagnrýnt ákvörðun um að efla útflutning á íslenskri menn- ingu. Hver hefur verið þar lfamar í flokki en forseti Islands.“ Utúr þessu ætla ég ekki að snúa, en vil að fram komi að ég er ekki og hef aldrei verið á móti því að efla útflutning á íslenskri menningu og þá sérstaklega íslenskri list. Raunar hef ég haldið því gagnstæða frarn á öðmm vett- vangi, en látum hér gott heita. Það sem ég hinsvegar gagnrýni er „fáránlegt“ frumvarp ráðherrans í þessum efiium og ætla ég að nefna hér nokkrar ástæður þeirrar afstöðu minnar. I fyrsta lagi talaði ég um lítinn stuðn- ing menntamálaráðuneytisins við mynd- listarfélögin (fagfélögin) í landinu, raun- ar svo lítinn að hann skrifast kr. 0. Fleiri atriði um afstöðu fjárveitingavaldsins til myndiistarmanna nefndi ég máli mínu til stuðnings en læt það ógert hér. Hvað útflutningsmiðstöðina varðar er ekki gert ráð fyrir því að efla útflutning á íslenskri menningu, enda segir i greinar- gerð með frumvarpinu að notast eigi við sömu fjárhæð og verið hefur og engu eigi þar við að bæta. Þó er látið að því liggja að sérstök skrifstofa sem annast á þessi mál verði á einhvem hátt hagkvæmari í rekstri en það kerfi sem verið hefur und- anfarin ár. Það þykir mér afar ósennilegt. í öðru Iagi var gjörsamlega gengið fram hjá samtökum listamanna við undir- búning og samningu frumvarpsins (svo sem á því má sjá) og ekkert gert með ábendingar þeirra og óskir. Enda segir í bréfi frá Bandalagi ísl. listamanna til ráð- herra: „Það vekur hins vegar furðu Bandalagsins að ekki skuli hafa verið MYNDLIST * NÝTT í VIKUNNI ! LÝKUR UM HELGINA ! Ásmundarsalur, Freyju- götu: Anna Þóra Karlsdóttir með myndverk úr ull. Opið dagl. 15-18 til 14. apríl. ! FlM-salurinn, Garðastræti 6: Sara Jóhanna Vilbergsdóttir m. sýningu á olíumálverkum. Opið daglega kl. 14-18, til 14. apríl. Bókasafn Kópavogs, Jón G. Ferdínandsson sýnir dúk- prent í liststofu. Opið má-fö 10- 21, lau 11-14, til 20. apríl. ! Gallerí B12, Baldursgötu 12 (Nönnugötumegin); Ásgeir Lárusson með sýningu á gou- ache-myndum, opið kl. 12-16, um helgar 14-18. Lýkur 14 apr- íl. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9: Jón Steingrímsson með ol- íumálverk og kolateikningar. Opið virka daga 10-18 og um helgar 14-18 til 16. apríl. Gallerí einn einn, Skóla- vörðustíg 4A: Svala Sigurleifs- dóttir sýnir málverk, dagl 14-18 til 18. apríl. Hafnarborg: Björgvin Sig- haft samráð við stjóm samtakanna um undirbúning þessa máls og að í neftidina skuli ekki hafa verið valdir fulltrúar sem hafa umtalsverða reynslu eða þekkingu á kynningu íslenskrar listsköpunar erlend- is.“ I þriðja lagi vil ég nefna að útflutn- ingsmiðstöð þessi er hreint ekki í þeim anda valddreifingar sem mig minnir endilega að ráðherrann hafi boðað fyrir nokkru og vildi að samtök listamanna sæju að mestu um sín mál sjálf. „í þriðja lagi vil ég nefna að útflutningsmiðstöð þessi er hreint ekki í þeim anda vald- dreifingar sem mig minnir endilega að ráðherrann hafi boðað fyrir nokkru og vildi að samtök listamanna sæju að mestu um sín mál sjálf ‘ Og þá er það lokahnykkurinn. Um hvað er „Frumvarp til laga um kynningu á íslenskri menningu“? Ég vil til að mynda fá að vita hvað átt er við með þessari grein í frumvarpinu: „Meginhlut- verk skrifstofunnar er að vinna að því að kynna erlendum aðilum íslenska menn- ingu af öllu tagi.“ Er ástæða til að óska iðnrekendum og SIF til hamingju með nýjan bandamann eða á að fara að státa af einhveijum öðrum afrekum? Með öðrum orðum, hvaða hluta íslenskrar menningar á að flytja út til kynningar? „Það er menning að baka brauð“ og „það er menning að gera hlutina vel“ og „menning er það sem við höfum helst áhyggjur af þessa dagana." Varasamt get- ur verið að tala um menningu á svo al- mennum nótum sem í frumvarpinu og í ljósi þess að hvergi er minnst á list eða nýsköpun í listum í þessu frumvarpi get- ur ráðherra ekki vænst þess að listamenn séu i baráttuhópi fyrir framgangi þess. Raunar er minnst á „allar helstu listgrein- ar“ í athugasemdum við frumvarpið og látið þar við sitja. Menning og list eru háskaleg hugtök og vandmeðfarin og varla til of mikils mælst að farið sé með þau af fullri gát og ekki síst þar sem um lagasetningu um menninguna er að ræða. Þar eð frumvarpið náði ekki ffam að ganga á sl. þingi væri æskilegt að endur- skoða það með tilliti til óska samtaka listamanna og þess að kynna eigi íslenska list og þá helst nýsköpun í listum á er- lendum vettvangi. Ef það væri ætlunin. En það er fleira. í áðumefndu Pressu- „Vissulega eru kaup á hús- næði fyrir listaháskóla og viðgerð á Þjóðleikhúsi þörf mál og menningarauki en á það má minna að hús er ekki skóli og hús er ekki leiklist“ viðtali upplýsir Svavar Gestsson að menningarffamlög hafi aldrei verið hærri en nú og segir þau vera 3,8 miljarða. Tveir miljarðar em að vísu vegna niður- fellingar virðisaukaskatts og 1,8 miljarð- ar em svokölluð bein framlög. Nú veit ég ekki fyrir víst hvort rétt er, en gmnur minn er sá að þar af hafi 1,1 miljarður farið í að kaupa hús undir lista- háskóla og endurbyggja Þjóðleikhúsið. Sé þetta rétt standa effir. 700 miljónir sem ffóðlegt væri að sjá hvemig dreifðust og hversu mikið af því fé fer í nýsköpun í listum. Vissulga em kaup á húsnæði fyrir listaháskóla og viðgerð á Þjóðleikhúsi þörf mál og menningarauki en á það má minna að hús er ekki skóli og hús er ekki leiklist. Og er nú enn og aftur komið að menningarskilningi ráðherrans og finnst mér í raun algjör óþarfi að hann bræði viðhald á eignum ríkisins saman við ffamlög til listastarfsemi í landinu. Það er í hæsta máta villandi. Hinsvegar á Svav- ar mikið hrós skilið fyrir þann dugnað og áræði sem hann hefur sýnt í báðum þess- um málum og verður mér þá sérstaklega hugsað til Myndlista- og handíðaskólans. Og vissulega hefur hann af fleiru að státa sem vert er að nefna og ber þar hæst stuðning hans við Nýlistasafnið, vinnu- stofumar í Straumi og að lokum nýtt launakerfi listamanna. En annað er ekki gert og hefði ég gjama viljað sjá eftirtalin atriði á affeka- skrá Svavars Gestssonar: — Beinan stuðning við fagfélög myndlistarmanna, sem nú er enginn. — Fullt ffamlag til Listskreytingasjóðs ríkisins, en hann er nú sem endranær skertur um 50% miðað við það sem lög gera ráð fyrir. — Stofnun Serrasjóðs, en loforð um stofhun hans á síðustu Listahátíð hefur enn ekki verið efht. — Aukin ffamlög til Listasafns Is- lands. — Að lokum ætla ég að vona að Svavar Gestsson falli ekki í sömu gryfju og aðrir stjómmálamenn sem hreykja sér af sjálf- sögðum hlutum og enda að lokum í frem- ur ógeðfelldum mónúmentalisma. I því sambandi má nefna að umbúðimar um listina hafa aldrei verið meiri en einmitt nú og sér ekki fyrir endann á því dæmi. — Listamenn þurfa síst á slíku að halda. Að lokum vil ég fara ffam á það við ráðherrann að hann birti okkur lesendum blaðsins stefhuskrá flokks síns í menn- ingarmálum fyrir kosningar og þá með sértakri áherslu á nýsköpun í listum. urgeir Haraldsson, 50 akríl- málverk, til 21. apríl. Sverrissalur: Verk safnsins. Listagallerí: Hafnfirskir listamenn. Dagl nema þri 14- 19. Kjarvalsstaöir: Listmálara- félagið í vestursal. 12 þekktir listamenn sýna. I vestur- og austurforsal: Vattstungin bandarísk teppi. I austursal: Kjarval og náttúran. Dagl 11-18 til 21. apríl. ! Listasafn ASl: Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, myndverk úr ull, kl 14-19 til 14. apríl. Listasafn Einars Jónsson- ar: lau og su 13.30-16, garður- inn alla daga 11-17. Listasafn Islands: Sýning á verkum danskra súrrealista. Til 5. maí. „Fiðrildi og furðudýr", myndir og skúlptúrar nemenda Bústaðaskóla. Opið 12-18 nema mánudaga. Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar: Andlitsmyndir 1927- 1980. Um helgar 14-17 og þrið.kvö 20-22. * Listasalurinn Nýhöfn, Hafnarstræti, lau kl 14: Opnun sýningar á dönskum grafík- listaverkum. Listhús, Vesturgötu 17: El- ías B. Halldórsson með sýn- ingu á olíumálverkum og tré- ristum. Opið 14-18 daglega. Menntamálaráðuneytið: 17-19 virka daga, Kristbergur Pétursson, Magnús S. Guð- mundsson og Tryggvi Þór- hallsson. Til 19. apríl. Mokkakaffi, Skólavörðustíg 3A: Magnús Kjartansson með smámyndir, 9:30-23:30, su 14- 23:30. * Norræna húsið LAU kl 15: Jón Reykdal opnar málverka- sýningu. SU kl 17: Öystein Hjort list- fræðingur með erindi um myndlist í Danmörku á 9. ára- tugnum. SU kl 14: Opnun sýningar- innar Bækur og bókahönnun, í anddyri. Til 19. apríl. Nýlistasafnið: Eggert Pét- ursson, málverk, Ijósmyndir, gólfverk, opið 14-18 alla daga til 21. apríl. TÓNLIST Akureyrarkirkja SU kl 17: Afmælistónleikar, Áskell Jóns- son og Björgvin Guömunds- son. Söngvarar og kór Glerár- kirkju, hljómsveit. Stj. Jóhann Baldvinsson; Bústaðakirkja SU kl 17: Kirkjuleg sveifla, jazz, blús og negrasálmar. Söngvarar, hljómsveit, Barna- og Bjöllukór Bústaðakirkju. (slenska óperan MÁ kl 20:30: Tónlistarskólinn í Reykjavík, einleikarapróf, Stef- án Örn Arnarson, selló, David Knowles, píanó. Kirkjuhvoll LAU kl 17: EPTA píanótónleikar, Jónas Sen m verk e Scriabin, Janac- ek, Prokofieff Norræna húsið LAU kl 20:30: Hvað er tónlist? Danski tónlistarmaðurinn Peter Basti- an flytur spjall. Norræna húsið SU kl 20:30: Píanótónleikar Peter Westenholz frá Danmörku. Norræna húsið MÁ kl 20:30: Blásarakvintett Reykja- víkur ásamt danska píanóleik- aranum Peter Westenholz. HITT OG ÞETTA Borgarleikhúsið, 14-17: Sýningin „I upphafi var óskin“. Félag eldri borgara, Gönguhrólfar brottför LAU kl 10 frá Risinu, Hverfisgötu 105. Hana nú, LAU kl 10-11, ganga frá Digranesvegi 12. Kattavinafélagið SU 14. apríl: Aðalfundur í húsnæði fé- lagsins Kattholti, Stangarhyl 2. Kvikmyndaklúbburinn 14,- 20. apríl: Svissnesk kvik- myndavika í Regnboganum. M(R, Vatnsstíg 10 SU kl 16 Kvikmyndin „Ófullgert verk fýr- ir sjálfspilandi píanó“ eftir verk- um Tsjekovs, leikstj. Nikita Mikhalkov. Enskir textar. Norræna húsið, bókasafn: Sýning á úrslitum Norrænu bókbandssamkeppninnar. FÖ-LAU: Líffræðifélag (s- lands, ráðstefna um spendýr. LAU kl 20:30: Danski tón- listarmaðurinn Peter Bastian með erindið „Hvað er tónlist?" SU kl 14: Opnun sýningar- innar Bækur og bókahönnun, í anddyri. Til 19. apríl. SU kl 17: Öystein Hjort list- fræðingur með erindi um myndlist í Danmörku á 9. ára- tugnum. MÁ kl 17:15: Danski tónlist- armaðurinn Peter Bastian með fyrirlesturinn „Intelligens og musikalitet" Útivist: Vorferð 12.-14. apr- íl, um suðurströndina og Þórs- mörk. SU kl 10:30 og 13: Heklugangan 2. áfangi. Brott- förfrá Umferðarmiðstöð, bens- ínsölu, stansað við Árbæjar- safn.SU kl 13 frá Árbæjarsafni: Hjólreiðaferð, Dyravegur og komið f rútu með Heklugöng- unni í bæinn. UM HELGINA 22 SÍÐA— NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 12. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.