Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1995, Side 9
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995
Útlönd
Jeltsín Rússlandsforseti kemur imheiminum enn á óvart:
Kleip tvo einka-
ritara sína í bakið
- ætlar að láta Kozyrev utanríkisráðherra víkja
Borís Jeltsín Rússlandsforseti lét
það ekkert á sig fá þótt sjónvarpsvél-
ar umheimsins beindust að honum í
Kreml í gærmorgun og kleip tvo rit-
ara sína í bakið þegar hann var á
leið á fimd með fréttamönnum.
Forsetinn heiisaði konunum þegar
hann gekk framhjá þeim og kleip þær
milli herðablaðanna. Önnur þeirra
hrökk í kút við þessa óvæntu snert-
ingu forsetans en hin sat grafkyrr
og starði á eftir Jeltín. Hún tuldraði
eitthvað fyrir munni sér en ekki
heyrðist hvað hún sagði.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jelts-
ín hagar sér einkennilega á almanna-
færi en aðstoðarmenn hans þóttust
ekkert um málið vita. „Enginn hér
sá þetta svo við vitum ekki hvaö
gerðist," sagði talsmaður Jeltsíns
þegar hann var spurður um þreiíing-
ar forsetans.
Embættismenn í Kreml hafa hvað
eftir annað þurft að verjast ásökun-
um um að forsetinn hafi fengið sér
Borís Jeltsín Rússlandsforseti er
þekktur fyrir undarlega hegðun á
almannafæri. Símamynd Reuter
einum of mikið neðan í því. Sjálfur
segist Jeltsín ekki eiga í neinum
vandræðum með áfengisneyslu, þótt
mikið sé um það fjallað bæði í rúss-
neskum og erlendum fjölmiölum.
Á fundinum með fréttamönnum í
gær sagði Jeltsín að hann væri aö
leita að manni í stað Andrejs Koz-
yrevs í embætti utanríkisráðherra.
Þar með staðfesti hann vangaveltur
manna upp á síðkastið um að þessi
dyggi stuðningsmaður hans yrði lát-
inn víkja. Kozyrev hefur sætt mikilfi
gagnrýni og verið ásakaður um að
láta það viðgangast að Rússar væru
ekki hafðir með í ráðum í friðarum-
leitununum í fyrrum Júgóslavíu.
Rússneska þingið krafðist þess í síð-
asta mánuði að hann yrði rekinn.
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær að
Kozyrev væri enn utanríkisráðherra
Rússlands og nýjustu upplýsingar
sínar bentu til að hann yrði áfram í
því embætti.
„Ég er að undirbúa fund með hon-
um í New York á laugardagskvöld,"
sagði Christopher. Reuter
Hundur reynir að sleppa frá flóðum á götu i Caracas í Venezúela. Mikil flóð urðu eftir tveggja daga úrhelli og
misstu 160 fjölskyldur heimili sin.
Simamynd Reuter
Smuguviðræður í Moskvu:
Samkomulag
vart f augsýn
Norðurlandaráð:
Norrænahúsið
ogeidfjallastöð-
invarlaíhættu
Gagnsemi Norræna hússins er
mikil eða í meðallagi og gagnsemi
Norrænu eldfjallastöðvarinnar
er í meðallagí samkvæmtskýrsiu
sem samstarfsráðherrar Norður-
landaráðs hafa fjallað um. Sam-
kvæmt skýrslunni eru 19 af 47
stofnunum Norðurlandaráðs
gangslitlar og kemur til greina
að leggja þær niður nema auka
megi þjónustutekjur þeirra veru-
lega. Meðal stofnana sem taldar
eru gagnslitlar eru norræna
bygginganefhdin, rannsóknar-
stofnun í alþýðukveðskap, tungu-
málaskrifstofa, norræna töl-
fræðiskrifstofan, sem gefur út
Nordisk statistikk, norræna lista-
miðstöðin, norræna blaöamann-
amiöstöðin, nefnd um málefni
fatlaðra, norræna hagrann-
sóknanefndin, lýðskóli um hús-
stjórnarfræöi og samvinnunefiid
um fíkniefhamál. Norræn nefnd
um alkóhól- og fíkniefharann-
sóknir er þó talin mjög gagnleg.
„Okkur ber mikið í milli og það eru
mörg ljón í veginum. Viö höfum af-
greitt marga hluti en rekumst sífellt
á vandamál varðandi grundvallar-
atriði og eins atriði tæknilegs eðlis.
Það er engin ástæða til að vera of
bjartsýnn varðandi samninga í þess-
um viðræðum. Við erum nú á spori
í viðræðunum sem ekki leiðir okkur
áfram,“ sagði Káre Bryn, formaður
norsku sendinefhdarinnar í Smugu-
viðræðum íslendinga, Norðmanna
og Rússa sem fram fara í Moskvu.
„Við höfum átt uppbyggilegar við-
ræður og höldum áfram á fostudag,"
var þaö eina sem haft var eftir Guð-
mundi Eiríkssyni, formanni íslensku
viðræðunefndarinnar.
Enginn nefndarmanna vildi gefa
upplýsingar um efni viðræðnanna
en víst þykir að stærð kvóta til handa
íslendingum í Smugunni hafi verið
uppi á borðinu. Einnig spumingar
um hvar í Barentshafi íslendingar
gætu veitt en gefið hefur verið í skyn
að þeir fái að veiða á norsku og rúss-
nesku væði.
Káre Bryn vildi ekki tjá sig sérstak-
lega um kröfur íslendinga en NTB
fréttastofan sagði hann hafa verið
sposkan á svip og sagt að þær væru
„ekki verri en menn væru vanir á
þessum árstíma".
Á fundinum í gær voru menn sam-
mála um að halda viðræðunum
áfram og sagði Bryn að ef grundvöll-
ur yröi fyrir frekari fundum yrði
jafnvel fundað um helgina. Utanrík-
isráðherrar landanna hafa látið í ljós
vonir um aö samningar náist fyrir
áramót.
NTB
ÍELÉfUMKEÚ
r SJONVARPSTÆKlg
VAKTAIAUSTlAH
|/12' MÁ/vm /j
e'Kfl'inn (UL&a-/logt«CLðoLr /
I
TELEFUNKEN S 8400 M NIC
BB" sjónvarpstæki • Black Matrix FST-skjár
4 hátalarar, þar af 2 snúanlegir • Nicam Stereo
HiFi-hljómur með 40 W Surround magnara
Isl. textavarp • Upplýst fjarstýring sem er aubveld
í notkun, barnalæsing, tímarofi o.m.fl. Verð: 177.600,-
TELEFUNKEN S-540 C NIC
29" sjónvarpstæki • Nýr Black D.I.V.A.-skjár
4 hátalarar • Nicam Stereo HiFi-hljómur m^ð
40 W Surround-magnara • 2 þrepa Zoom Isl.
textavarp • Upplýst fjarstýring sem er auöveld
í notkun, barnalæsing, tímarori o.m.fl. Verð: 131.400,-
I
TELEFUNKEN S-531 NIC
28" sjónvarpstæki • Black Matrix FST-skjár
4 hátalarar • Nicam Stereo HiFi-hljómur meb
40 W Surround magnara • ísl. textavarp
Fjarstvring sem er auöveld í notkun,
barnaíæsing, tímarofi o.m.fl. Verð: 107.700,-
~ I W3M
RADGREIOSL UR
I TIL. 34 MANAOA
Skipholtí 1 9
Sími: 552 9Ö00
111 sz&ahv 11