Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1995, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1995, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995 Útlönd Jeltsín Rússlandsforseti kemur imheiminum enn á óvart: Kleip tvo einka- ritara sína í bakið - ætlar að láta Kozyrev utanríkisráðherra víkja Borís Jeltsín Rússlandsforseti lét það ekkert á sig fá þótt sjónvarpsvél- ar umheimsins beindust að honum í Kreml í gærmorgun og kleip tvo rit- ara sína í bakið þegar hann var á leið á fimd með fréttamönnum. Forsetinn heiisaði konunum þegar hann gekk framhjá þeim og kleip þær milli herðablaðanna. Önnur þeirra hrökk í kút við þessa óvæntu snert- ingu forsetans en hin sat grafkyrr og starði á eftir Jeltín. Hún tuldraði eitthvað fyrir munni sér en ekki heyrðist hvað hún sagði. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jelts- ín hagar sér einkennilega á almanna- færi en aðstoðarmenn hans þóttust ekkert um málið vita. „Enginn hér sá þetta svo við vitum ekki hvaö gerðist," sagði talsmaður Jeltsíns þegar hann var spurður um þreiíing- ar forsetans. Embættismenn í Kreml hafa hvað eftir annað þurft að verjast ásökun- um um að forsetinn hafi fengið sér Borís Jeltsín Rússlandsforseti er þekktur fyrir undarlega hegðun á almannafæri. Símamynd Reuter einum of mikið neðan í því. Sjálfur segist Jeltsín ekki eiga í neinum vandræðum með áfengisneyslu, þótt mikið sé um það fjallað bæði í rúss- neskum og erlendum fjölmiölum. Á fundinum með fréttamönnum í gær sagði Jeltsín að hann væri aö leita að manni í stað Andrejs Koz- yrevs í embætti utanríkisráðherra. Þar með staðfesti hann vangaveltur manna upp á síðkastið um að þessi dyggi stuðningsmaður hans yrði lát- inn víkja. Kozyrev hefur sætt mikilfi gagnrýni og verið ásakaður um að láta það viðgangast að Rússar væru ekki hafðir með í ráðum í friðarum- leitununum í fyrrum Júgóslavíu. Rússneska þingið krafðist þess í síð- asta mánuði að hann yrði rekinn. Warren Christopher, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að Kozyrev væri enn utanríkisráðherra Rússlands og nýjustu upplýsingar sínar bentu til að hann yrði áfram í því embætti. „Ég er að undirbúa fund með hon- um í New York á laugardagskvöld," sagði Christopher. Reuter Hundur reynir að sleppa frá flóðum á götu i Caracas í Venezúela. Mikil flóð urðu eftir tveggja daga úrhelli og misstu 160 fjölskyldur heimili sin. Simamynd Reuter Smuguviðræður í Moskvu: Samkomulag vart f augsýn Norðurlandaráð: Norrænahúsið ogeidfjallastöð- invarlaíhættu Gagnsemi Norræna hússins er mikil eða í meðallagi og gagnsemi Norrænu eldfjallastöðvarinnar er í meðallagí samkvæmtskýrsiu sem samstarfsráðherrar Norður- landaráðs hafa fjallað um. Sam- kvæmt skýrslunni eru 19 af 47 stofnunum Norðurlandaráðs gangslitlar og kemur til greina að leggja þær niður nema auka megi þjónustutekjur þeirra veru- lega. Meðal stofnana sem taldar eru gagnslitlar eru norræna bygginganefhdin, rannsóknar- stofnun í alþýðukveðskap, tungu- málaskrifstofa, norræna töl- fræðiskrifstofan, sem gefur út Nordisk statistikk, norræna lista- miðstöðin, norræna blaöamann- amiöstöðin, nefnd um málefni fatlaðra, norræna hagrann- sóknanefndin, lýðskóli um hús- stjórnarfræöi og samvinnunefiid um fíkniefhamál. Norræn nefnd um alkóhól- og fíkniefharann- sóknir er þó talin mjög gagnleg. „Okkur ber mikið í milli og það eru mörg ljón í veginum. Viö höfum af- greitt marga hluti en rekumst sífellt á vandamál varðandi grundvallar- atriði og eins atriði tæknilegs eðlis. Það er engin ástæða til að vera of bjartsýnn varðandi samninga í þess- um viðræðum. Við erum nú á spori í viðræðunum sem ekki leiðir okkur áfram,“ sagði Káre Bryn, formaður norsku sendinefhdarinnar í Smugu- viðræðum íslendinga, Norðmanna og Rússa sem fram fara í Moskvu. „Við höfum átt uppbyggilegar við- ræður og höldum áfram á fostudag," var þaö eina sem haft var eftir Guð- mundi Eiríkssyni, formanni íslensku viðræðunefndarinnar. Enginn nefndarmanna vildi gefa upplýsingar um efni viðræðnanna en víst þykir að stærð kvóta til handa íslendingum í Smugunni hafi verið uppi á borðinu. Einnig spumingar um hvar í Barentshafi íslendingar gætu veitt en gefið hefur verið í skyn að þeir fái að veiða á norsku og rúss- nesku væði. Káre Bryn vildi ekki tjá sig sérstak- lega um kröfur íslendinga en NTB fréttastofan sagði hann hafa verið sposkan á svip og sagt að þær væru „ekki verri en menn væru vanir á þessum árstíma". Á fundinum í gær voru menn sam- mála um að halda viðræðunum áfram og sagði Bryn að ef grundvöll- ur yröi fyrir frekari fundum yrði jafnvel fundað um helgina. Utanrík- isráðherrar landanna hafa látið í ljós vonir um aö samningar náist fyrir áramót. NTB ÍELÉfUMKEÚ r SJONVARPSTÆKlg VAKTAIAUSTlAH |/12' MÁ/vm /j e'Kfl'inn (UL&a-/logt«CLðoLr / I TELEFUNKEN S 8400 M NIC BB" sjónvarpstæki • Black Matrix FST-skjár 4 hátalarar, þar af 2 snúanlegir • Nicam Stereo HiFi-hljómur með 40 W Surround magnara Isl. textavarp • Upplýst fjarstýring sem er aubveld í notkun, barnalæsing, tímarofi o.m.fl. Verð: 177.600,- TELEFUNKEN S-540 C NIC 29" sjónvarpstæki • Nýr Black D.I.V.A.-skjár 4 hátalarar • Nicam Stereo HiFi-hljómur m^ð 40 W Surround-magnara • 2 þrepa Zoom Isl. textavarp • Upplýst fjarstýring sem er auöveld í notkun, barnalæsing, tímarori o.m.fl. Verð: 131.400,- I TELEFUNKEN S-531 NIC 28" sjónvarpstæki • Black Matrix FST-skjár 4 hátalarar • Nicam Stereo HiFi-hljómur meb 40 W Surround magnara • ísl. textavarp Fjarstvring sem er auöveld í notkun, barnaíæsing, tímarofi o.m.fl. Verð: 107.700,- ~ I W3M RADGREIOSL UR I TIL. 34 MANAOA Skipholtí 1 9 Sími: 552 9Ö00 111 sz&ahv 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.