Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1995, Síða 10
10
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995
Fréttir
Guðmundur J. Guðmundsson:
Ömurleg uppgjöf
að urða kjötið
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þaö er hreint ömurlegt að horfa
upp á þetta sem er ekkert annaö en
aö þeir sem ráða ferðinni hafa gefist
upp. Þaö er verið að leysa vandamál
bænda með því að grafa afurðirnar
sem þeir framleiða," segir Guðmund-
ur J. Guðmundsson, formaöur
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar,
um urðun á kindakjöti sem átt hefur
sér stað undanfama daga.
„Á sama tíma og þetta gerist er
flöldi fólks sem ekki getur leyft sér
aö kaupa kjöt nema í mjög litlum
mæh en vUdi svo gjarnan kaupa
meira af því. Auðvitað hefði þetta
kjöt átt að fara til þessa fólks. Það
er ömurlegt að horfa upp á þessar
aðfarir," segir Guðmundur.
Mlkið um þorskseiði í Húnaflóa:
Óvissa um rækjuveiðar
Guðfinnur Pmnbogason, DV, Hólmavílc
Hefðbundin stofnmæling á vegum
Hafrannsóknastofnunar á rækju-
slóðinni í Húnaflóa fór nýveriö fram.
Niðurstöður hennar sýndu að meira
er um þorskseiði á öhu svæðinu en
mælst hefur í mörg ár. Vegna þessa
mun dráttur verða á að hægt verði
að hefja veiðar á inníjarðarrækju en
algengast er að þær heíjist í síðari
hluta október.
Annar rannsóknarleiöangur er
fyrirhugaður um miðjan nóvember.
Að honum loknum verður ákveðið
hvenær heQa má rækjuveiðar.
DV býður öllum landsmönnum í afmæli
hringinn í kringum landið
V* TÍGRI verður í afmælisskapi
/ HOPPKASTALI fyrir fjörkálfa
/ SAGA DAGBLAÐSINS í máli og myndum
/ ALLIR HRESSIR krakkar fá blöðrur,
stundatöflur og annan glaðning
Sauðárkrókur
DV og kvenfélög Sauðárkróks,
Skarðshrepps, Staðarhrepps og
Rípurhrepps bjóða bér og allri
fjölskyldunni til afmælis í Safnahúsi
Skagfirðinga á Sauðárkróki föstudaginn
20. október frá kl. 17-19.
Skemmtiatriði:
/Kristinn Baldvinsson leikur
af fingrum fram
Gómsætt í gogginn:
/ Kaffi
/ Afmælisveitingar
/ Ópal sælgæti
/ Tomma og Jenna
ávaxtadrykkir
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ÞIG
OG ALLA FJÖLSKYLDUNA!
Ein verðlaunamynda úr Ijósmyndamaraþoni Hins hússins, DV og Hans Petersen í fyrra. Þessi mynd vann í flokkn-
um „Ýkt“ og er eftir Helgu Sigurðardóttur.
Unglist ’95 - listahátíð unga fólksins:
Tólf tíma Ijós-
myndamaraþon
- að tilstuðlan Hins hússins, DV og Hans Petersen
Tólf klukkustunda langt ljós-
myndamaraþon hefst við Ráðhús
Reykjavíkur á hádegi á morgun.
Maraþonið er hluti af Unglist ’95 sem
er listahátíð unga fólksins og hefst
um helgina. Glæsileg verðlaun eru í
boði frá Hans Petersen fyrir bestu
maraþonmyndirnar en afhending
verðlauna fer fram í Háskólabíói nk.
miðvikudag. Verðlaunamyndirnar
verða síðan birtar í DV.
Maraþonið fer þannig fram að
keppendur mæta með 35 mm mynda-
vélar sínar viö Ráðhúsið fyrir kl. 12
á morgun. Þar fá þeir 12 myndverk-
efni, 12 mynda filmu, keppnisnúmer
og 12 klukkustundir til að festa verk-
efnin á filmuna í ákveðinni röð. Film-
unni verður að skila í Hitt húsið,
Aðalstræti 2, fyrir miönætti annað
kvöld. Skráning fer fram á staðnum
en einnig er hægt að hringja í Hitt
húsið í síma 551-5353.
Dómnefnd, skipuð fulltrúum frá
DV, Hans Petersen og Hinu húsinu,
munu síðan velja bestu myndirnar
úrhveijumflokkannatólf. -bjb
Leynllisti Q ármálaráðuneytisins:
Vil að allt sé lagt á
borðið um mín laun
- segir Guðlaugur Þorvaldsson sem er í toppsætinu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég vil að allt sé lagt á borðið
varðandi mín launamál á síðasta
ári. Það sem veldur því að ég var
með svona há laun þá er aðallega
tvennt: aukagreiðslur vegna sum-
arleyfa þegar mín starfslok voru
um áramót og hins vegar mjög
mikil yfirvinna vegna kjarasamn-
inga,“ segir Guðlaugur Þorvalds-
son, fyrrverandi sáttasemjari ríkis-
ins, en hann er í toppsæti leynilist-
ans svokallaða með ríflega 6 millj-
óna króna laun á síðasta ári.
„Mín starfslok voru um áramótin
og þá vildi svo til að ég fékk greidd
laun fyrir sumarleyfi á síðasta ári,
sem ég hafði ekki getað tekið vegna
veikinda, og einnig fékk ég greidd
áunnin réttindi vegna sumarleyfis
í ár. Þetta eru 2 1/2 mánaðarlaun
sem hækka heildarlaun mín á síð-
asta ári um 600-700 þúsund," segir
Guðlaugur.
Hann segir aö fost mánaðarlaun
sín hafi numiö 252 þúsund krónum.
„Við þau bættist mjög mikil yfir-
vinna vegna samninga þótt ég hafi
aldrei lagt að mönnum að vera á
fundum á nætumar eða um helgar.
Mín fóstu laun hafa aldrei veriö
topplaun hjá ríkinu. Það er vissu-
lega óþægilegt að vera dreginn inn
í þessa umræðu en fyrst það hefur
gerst er nauðsynlegt að það rétta
komi fram í málinu."