Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 T">~\7' Ég vaknaði klukkan hálfellefu þennan laug- ardag og byrjaði dag- inn á að fara út í búð- ina hér rétt hjá og kaupa skólaskyr handa Magnúsi, syni mínum. Hann átti afmæli þenn- an dag og skyrið var afmælisóskin. Timinn leið hratt og ég átti að vera mætt í leikhúsið fyrir hádegi enda var frumsýning á Kar- d i m o m m u b æ n u m klukkan eitt. Ég fór á bílnum, þó ég búi stutt frá, enda kom ég við í lafía Hrönn Jónsdóttir leikkona ásamt sonum sínum, Magnúsi, 10 ára, og Skarphéðni, 5 ára. DV-mynd GVA Dagur í lífi Ólafíu Hrannar Jónsdóttur leikkonu: hafa stuðning meðan ég reyndi að ræða við gestina en gat síðan ekki staðið upp. Ég hef aldrei fyrr fengið jafn slæmt í bakið. Maður- inn minn þurfti að styðja mig inn í rúm en ég var alveg að drepast. í rauninni er maður þó líka þakklátur fyrir að kynnast því slæma því þá veit maður betur hversu gott maður á að vera þó heilbrigður. Ég vaknaði jafnslæm næsta morgun og þurfti að láta sprauta mig til Soffía frænka sprautuð niður blómabúð til aö kaupa engil handa Kamillu litlu (sem heitir reyndar Guðbjörg) en hún er algjör engill. Ég kom heldur seint í Þjóðleik- húsið og mátti hafa mig alla við að gera mig klára fyrir sýninguna. Það var mjög afslöppuð stemning í leikhúsinu þótt frumsýning væri rétt að hefjast. Flestir fara á undan mér og pylsugerðarmanninum inn á sviðið. Ég hélt að ég hefði klúðr- að minni senu þar sem ég mis- mælti mig en það tók víst enginn eftir því. Sjálf bölvaði ég irfér í hljóði fyrir þetta. Þaö var mikil stemning í saln- um og fólkið glatt. Þessi sýning er líka svo litrik og lífleg. Eftir frum- sýninguna var boðið upp á veiting- ar í nýju mötuneyti okkar uppi á fimmtu hæð en það er mikill mun- ur frá því sem áður var. Mötuneyt- ið var áður í pínulitlu gluggalausu herbergi í kjallaranum. Núna höf- um við útsýni yfir Esjuna og höfn- ina. Mér var ekki til setunnar boðið þar sem afmælisveisla sonar míns var að byrja og ég átti eftir aö fara i Bónus og versla fyrir hana. Hann vildi reyndar panta pítsu fyrir vin- ina og fékk það en ég keypti í tert- ur fyrir fullorðna fólkið sem ætlaði að koma um kvöldið. í leiðinni keypti ég ís og snakk. Veisla fyrir fullorðna Krakkarnir voru rólegir og góð- ir þegar ég kom heim. Ég slapp við að vera með leikþátt en um daginn bað Skarphéðinn, yngri sonur minn, mig að leika með sér Kar- dimommubæinn eftir að hafa séð æfingu og hann rændi mér undan borðstofuborðinu. Um kvöldið fóru síðan hinir full- orðnu að tínast i veisluna og það gekk nú allt ágætlega fyrir utan það að allt í einu fékk ég þvílíkt í bakið að ég gat mig ekki hreyft. Ég settist við borðstofuborðið og til að að geta leikið á annarri sýningu Kardimommubæjarins. Næsta sýn- ing er um helgina og ég vona að þetta verði orðið gott þá. Ég tognaði í baki fyrir ekki löngu síðan og ég býst viö að sú tognun hafl tekið sig upp á ný. Þetta var sannarlega ekki þægi- legt. Dagurinn var engu að síður ánægjulegur og engin ástæða til að kvarta. Finnur þú fimm breytingar? 330 manaleika frekar... Nafn:_____________ Heimili:---------- Vinningshafar fyrir þrjú hundruð tuttugasta og níunda getraun reyndust vera: 1. Halldór P. Kjartansson 2. Matthildur Óskarsdóttir Túngötu 62 Faxabraut 38 d Eyrarbakka 230 Keflavík Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið- stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verðlaun heita Líkþrái maðurinn og Athvarf öreigans, úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790. Bækumar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fhnm breytingar? 329 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.