Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 47
I>V|LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
Staöa Ólafs Jóhanns Ólafssonar hjá Sony:
Honum var ekki
vikið úr starf i
- segir Jeffrey Fox, blaöafulltrúi Sony í Bandaríkjimum
„Þetta eru gamlar fréttir og ekki
réttar aö því leyti að mér hafi verið
vikið úr starfi. Ef Sony vill losa sig
við menn þá eru mjög klárar aðferð-
ir við það; þeir eru látnir taka hatt
sinn og ganga út. Þeir eru ekki settir
í stjórnarformennsku," sagði Ólafur
Jóhann Ólafsson í samtali við DV
vegna frétta í dagblaðinu WaU Street
Journal um að honum hafi verið vik-
ið úr starfi hjá Sony í haust.
Jeffrey Fox, blaðafulltrúi Sony í
Bandaríkjunum, staðfesti ummæli
Ólafs í samtaU viö DV. Honum hefði
ekki verið vikið úr starfi.
„Ólafur byggði upp þetta fyrirtæki
Sony síðustu fjögur ár og tókst mjög
vel til með það. Yfirmenn fyrirtækis-
ins bera mikla virðingu fyrir honum.
Hann hefur tekið við öðru starfi þar
sem hann fer með stjórnarfor-
mennsku yfir þróunarvinnu hjá
Sony í Bandaríkjunum. Við vonum
að fyrirtækið fái áfram að njóta hæfi-
leika hans eins og hingað tU,“ sagði
Jeffrey Fox.
Ólafur sagði að WaU Street Journal
hefði skrifað mikið á þessu ári um
átök milU Sony í Japan og Sony í
Bandaríkjunum.
„Þar hefur komið fram að átökin
hafi verið vegna mannabreytinga í
Japan og að ég hafi helst þurft að
taka á þeim Bandaríkjamegin. Átök
eru aUtaf innan stórfyrirtækja og
menn hafa ekki samræmdar hug-
myndir."
Ölafur sagði að það sem satt væri
í Wall Street Journal væri að fyrr á
þessu ári hefðu verið átök um tílhög-
un viðskipta á nýjum vörum Sony,
einkum sjónvarpstölvuleiknum
PlayStation.
Var nálægt því að ganga út
„Ég setti það á oddinn að þetta yrði
Ólafur Jóhann Ólafsson.
gert öðruvísi, tímarnir hefðu breyst
og ekki væri lengur hægt að hagnast
eingöngu á græjunum, hagnaðurinn
þyrfti að koma af hugbúnaði. Græj-
urnar, s.s. sjónvarp, duga í 20 ár og
breytast ekkert en hugbúnaðurinn
tekur stöðugum breytingum. Þetta
er kallað „rakvélamunstrið" því Gil-
lette hagnast ekki á rakvélunum
heldur rakvélablöðunum. Tillaga
mín varð ofan á og það voru margir
óánægöir með það. Harðlínumenn-
irnir urðu að bakka og þá gerðist það
sem ég var búinn að lýsa yfir fyrir
löngu, að þegar þetta væri komið á
koppinn og fyrirtækið komið með
veltu upp á einn milljarð dollara þá
myndi ég annaðhvort vilja draga mig
úr starfi og fara að skrifa eingöngu
eða að fara í stjórnarformennsku.
Það síðara ’varð ofan á en ég var
nálægt þvi að ganga út,“ sagði Olafur
Jóhann. -bjb
Heilbrigöiseftirlitiö á Suöurlandi:
Mengun f rá svína-
búi er á við úrgang
frá stóru þorpi
HeUbrigðiseftirUtið á Suðurlandi
hefur gefið Árna Möller, svínabónda
á Þórustöðum í Ölfusi, frest fram á
næsta vor tíl að stækka haughús við
svínabúið á staðnum. Birgir Þórðar-
son heilbrigðisfuUtrúi segir að bónd-
inn hafi losað skít í Ölfusá í 10-15 ár
eða jafnlengi og hann hefur rekið
svínabú á staðnum. Heilbrigðiseftir-
Utið var með mælingar vegna þessa
í sumar og kom þá í ljós að mengun-
in slagar hátt upp í mengun frá þorpi
á borð við HeUu þó að hún hafl
þynnst verulega í lækjum á leiöinni
í ána.
„Úrgangurinn rennur fyrst í
skurðum, svo í læk og þaðan í ána
þannig að mengunin þynnist töluvert
á leiðinni. Þetta er lífrænn úrgangur
og Ufræn næringarefni að mestu leyti
en í töluvert miklu magni því að
svínabúið er það stórt. Úrgangurinn
jafngildir mengun frá um það bil
1.000 manna bæjarfélagi að magni
til. Úrgangurinn minnkar súrefni í
árvatninu og eykur hugsanlega þör-
ungagróður. Þetta er ekki jákvætt
fyrir fiskinn í ánni,“ segir Birgir.
„Þetta verður gert í vetur. Það er
búið að teikna þetta á verkfræöistofu
og ég er að byija á þessu núna. Við
klárum þetta þegar frost fer úr jörðu
í vor,“ segir Árni Möller, bóndi á
Þórustöðum.
BýUð að Þórustöðum er eitt stærsta
svínabú á landinu, með 180 gyltur.
Úrgangurinn frá búinu er umtals-
verður á ári. Hann nemur rúmum
4.000 tonnum á ári miðað við að 800
tonna úrgangur komi frá 30 gyltum
á þeim tíma.
Verulegt átak hefur staðið innan
ÖUushrepps á fráveitumálum og er
búiö að koma fráveitumálum í Þor-
lákshöfn í þokkalegt horf meö einni
útrás. Birgir segir að mjög vel hafi
veriö staðið aö framkvæmdum þar.
-GHS
Virkar sprengjur f undust
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
Fleiri virkar sprengjur fundust á
útivistarsvæðinu við Háabjalla og
Snorrastaðatjarnir, skammt frá af-
leggjaranum til Grindavíkur. Banda-
rískir hermenn á Keflavíkurflugvelh
fundu sprengjurnar en þeir leituðu á
svæöinu að ósk íslenskra stjórn-
valda. Sprengjumar voru geröar
óvirkar þegar í stað enda gamlar og
stórhættulegar.
Fyrir skömmu fann nemandi við
Myllubakkaskóla í Keflavík virka
sprengju þegar hann var í skóla-
ferðalagi ásamt fjölda nemenda á
þesum slóðum. Svæðið var notað til
skotæfinga fyrir rúmlega 35 árum og
höfðu sprengjurnar falhð í mjúkan
jarðveg og ekki sprungið þess vegna.
Þetta svæði var fínkembt fyrir
nokkrum árum og þá fundust fjöl-
margar virkar sprengjur.
fréttir
„Ég hef aldrei flakað keilu áður,“ sagði Anna Jónasdóttir en hún og Guð-
mundur Hjartarson voru að flaka nokkrar keilur í Fiskkaupum. Anna vinnur
allan daginn og hefur verið í fiski meira og minna í rúma tvo áratugi. Hún
segir að fátt annað sé í boði í bae eins og Ólafsvík. Guðmundur var lengi
landverkamaður á vertíð með búskapnum en hefur síðustu ár unnið ein-
göngu við fiskvinnslu. DV-mynd RaSi
Reykjanes-
braut verður
endurbætt
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
Vegageröin er þessa dagana að
huga að ýmsum endurbótum á
Reykjanesbraut milli Hafnarfjarð-
ar og Reykjanesbæjar. Tvær hug-
myndir eru uppi og er Vegagerðin
að bera þær saman. Annar mögu-
leikinn er að tvöfalda brautina frá
Hafnarfirði til Straumsvíkur, hinn
aö gera þriðju akreinina frá
Straumsvík til Reykjanesbæjar. Sú
akgrein verður í báðar áttir og
verður lögð þar sem hún myndi
nýtast m.a. til framúraksturs. Sú
akgrein yrði svipuð og er í Kömb-
unum á Hellisheiði og við skíöa-
skálann í Hveradölum og segja
vegagerðarmenn að þær hafi
reynst ágætlega.
„Þetta er hvorttveggja í skoðun
og verður jafnvel tekin ákvörðun
fyrir áramót. Sá verkhluti sem
verður fyrir valinu verður boðinn
út næsta surnar," sagði Jónas Snæ-
björnsson, umdæmisverkfræðing-
ur Vegagerðarinnar.
Búið var að veita 105 mihjónir á
næsta ári í endurbætur á Reykja-
nesbraut. Alþingi hefur boðað nið-
urskurð í vegaáætlun og verður
einhverjum verkefnum frestað. Al-
þingi mun taka ákvörðun og leggja
fyrir Vegagerðina hvaða verkefni
verður frestað og er af mörgum
verkefnum að taka.
Þeir sem DV ræddi við sögðu aö
tími væri kominn til að gera endur-
bætur á Reykjanesbraut og gera
þriöju akgreinina frá Straumsvík
til Reykjanesbæjar. Þar færu 5 þús-
und bílar á sólarhring og myndað-
ist oft mikil hflaröð vegna flugsins
á Keflavikurflugvelli, ökumenn
væru oft að taka mikla áhættu með
framúrakstri. Með nýju akreininni
ætti það að vera nánast úr sögunni.
Stykkishólmur:
Hátíð til heiðurs
Árna Thorlacius
Olgeir Helgi Ragnarsson, DV, Borgamesi:
Samkoma verður haldin í Norska
húsinu í Stykkishólmi í dag, fyrsta
vetrardag, kl. 15 en 1. nóvember eru
hðin 150 ár síðan Ámi Thorlacius
hóf þar reglulegar veðurathuganir.
Þessar veöurskýrslur eru meðal
þeirra elstu og vönduðustu á Norður-
löndum.
Veðurfræðingarnir Trausti Jóns-
son og Páh Bergþórsson munu flytja
erindi og lesið verður úr ljóðum
Sigrðar Breiðfjörðs en Ámi var vin-
ur hans og velgjörðarmaður.
Árni Thorlacius fæddist á Bfldudal
árið 1802. Hann fór í menntaskóla til
Kaupmannahafnar og tfl Björgvinjar
í sjómannaskóla. Árið 1821 öðlaðist
hann skipstjórnarréttindi tfl að stýra
skipum mflli landa. Hann var fáein
ár í siglingum erlendis. Árið 1825 tók
hann við föðurarfi sínum, meðal
annars Stykkishólmskaupstað. Kona
hans var Magdalena Steenbach og
bjuggu þau í Stykkishólmi. Þau eign-
uðust 9 börn og 5 þeirra komust upp.
Ámi rak útgerö, verslun og búskap
og var umboðsmaöur jarða.
Hann keypti frá Noregi tflbúið
timburhús, tvflyft, og reisti það í
Stykkishólmi og var þaö á sínum
tíma eitt veglegasta íbúðarhús á ís-
landi. Húsið, sem nefnt er Norska
húsið, hýsir nú byggðasafn.
Árni var mjög áhugasamur um
ýmis fræði og átti stórt bókasafn.
Hann var í bréfasambandi við vís-
indamenn í Evrópu og skrifaði grein-
ar í erlend tímarit. Hann kenndi sjó-
mannafræði og skrifaði kennslubók
í þeirri grein. Verðurathuganir hans
eru einn stærsti minnisvarði um
fræðiiðkanir hans.
55
ARM0RC0AT-0RYGGISFILMAN
ER LÍMDINNAN Á VENJULEGT GLER
• Breytir rúðunni í öryggisgler
(innbrot, fárviðri, jarðskjáiftar)
• Sólarhiti minnkar um 75%
• Upplitun minnkar um 95%
• Eldvarnarstuðull F-15
ARMORCOAT
V
SKEMMTILEGT HF.
SÍMI587-6777
BÍLDSHÖFÐA 8
Nýti”^l
kvöldverðartilboð
27/10 - 2/H
Veturer
qenqinn í qarð
Frábær matur, Ijúfar veitinqar,
rómantísktumhverfi
yndisleq kvöldstund
Glæsileq 3ja rétta
kvöldverðartilboð
Kr.l.995
HaGSTTD KÁDEGISVERDARTILBOD ALLA VWKA DAGA
u) GuííniJfcmimD^
^ Lau?avevi 178 ^
Bílahlutir
Hjólkoppar 13”og 14”
kr. 450 stk.
Bremsuljós í afturglugga
Verð frá kr. 760
og tengingu. Verð kr. 2.750
2 stk. i pakka
40-45-50 cm
Verð frá kr. 860
pakkinn
Síðumúla 34 - Fellsmúlamegin
Sími 588 7332
Opið: mánud.- föstud. kl. 9-18
Laugard. kl. 10-16
Sætaáklæði á allan bílinn
Verð kr. 2.600