Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Side 47
I>V|LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 Staöa Ólafs Jóhanns Ólafssonar hjá Sony: Honum var ekki vikið úr starf i - segir Jeffrey Fox, blaöafulltrúi Sony í Bandaríkjimum „Þetta eru gamlar fréttir og ekki réttar aö því leyti að mér hafi verið vikið úr starfi. Ef Sony vill losa sig við menn þá eru mjög klárar aðferð- ir við það; þeir eru látnir taka hatt sinn og ganga út. Þeir eru ekki settir í stjórnarformennsku," sagði Ólafur Jóhann Ólafsson í samtali við DV vegna frétta í dagblaðinu WaU Street Journal um að honum hafi verið vik- ið úr starfi hjá Sony í haust. Jeffrey Fox, blaðafulltrúi Sony í Bandaríkjunum, staðfesti ummæli Ólafs í samtaU viö DV. Honum hefði ekki verið vikið úr starfi. „Ólafur byggði upp þetta fyrirtæki Sony síðustu fjögur ár og tókst mjög vel til með það. Yfirmenn fyrirtækis- ins bera mikla virðingu fyrir honum. Hann hefur tekið við öðru starfi þar sem hann fer með stjórnarfor- mennsku yfir þróunarvinnu hjá Sony í Bandaríkjunum. Við vonum að fyrirtækið fái áfram að njóta hæfi- leika hans eins og hingað tU,“ sagði Jeffrey Fox. Ólafur sagði að WaU Street Journal hefði skrifað mikið á þessu ári um átök milU Sony í Japan og Sony í Bandaríkjunum. „Þar hefur komið fram að átökin hafi verið vegna mannabreytinga í Japan og að ég hafi helst þurft að taka á þeim Bandaríkjamegin. Átök eru aUtaf innan stórfyrirtækja og menn hafa ekki samræmdar hug- myndir." Ölafur sagði að það sem satt væri í Wall Street Journal væri að fyrr á þessu ári hefðu verið átök um tílhög- un viðskipta á nýjum vörum Sony, einkum sjónvarpstölvuleiknum PlayStation. Var nálægt því að ganga út „Ég setti það á oddinn að þetta yrði Ólafur Jóhann Ólafsson. gert öðruvísi, tímarnir hefðu breyst og ekki væri lengur hægt að hagnast eingöngu á græjunum, hagnaðurinn þyrfti að koma af hugbúnaði. Græj- urnar, s.s. sjónvarp, duga í 20 ár og breytast ekkert en hugbúnaðurinn tekur stöðugum breytingum. Þetta er kallað „rakvélamunstrið" því Gil- lette hagnast ekki á rakvélunum heldur rakvélablöðunum. Tillaga mín varð ofan á og það voru margir óánægöir með það. Harðlínumenn- irnir urðu að bakka og þá gerðist það sem ég var búinn að lýsa yfir fyrir löngu, að þegar þetta væri komið á koppinn og fyrirtækið komið með veltu upp á einn milljarð dollara þá myndi ég annaðhvort vilja draga mig úr starfi og fara að skrifa eingöngu eða að fara í stjórnarformennsku. Það síðara ’varð ofan á en ég var nálægt þvi að ganga út,“ sagði Olafur Jóhann. -bjb Heilbrigöiseftirlitiö á Suöurlandi: Mengun f rá svína- búi er á við úrgang frá stóru þorpi HeUbrigðiseftirUtið á Suðurlandi hefur gefið Árna Möller, svínabónda á Þórustöðum í Ölfusi, frest fram á næsta vor tíl að stækka haughús við svínabúið á staðnum. Birgir Þórðar- son heilbrigðisfuUtrúi segir að bónd- inn hafi losað skít í Ölfusá í 10-15 ár eða jafnlengi og hann hefur rekið svínabú á staðnum. Heilbrigðiseftir- Utið var með mælingar vegna þessa í sumar og kom þá í ljós að mengun- in slagar hátt upp í mengun frá þorpi á borð við HeUu þó að hún hafl þynnst verulega í lækjum á leiöinni í ána. „Úrgangurinn rennur fyrst í skurðum, svo í læk og þaðan í ána þannig að mengunin þynnist töluvert á leiðinni. Þetta er lífrænn úrgangur og Ufræn næringarefni að mestu leyti en í töluvert miklu magni því að svínabúið er það stórt. Úrgangurinn jafngildir mengun frá um það bil 1.000 manna bæjarfélagi að magni til. Úrgangurinn minnkar súrefni í árvatninu og eykur hugsanlega þör- ungagróður. Þetta er ekki jákvætt fyrir fiskinn í ánni,“ segir Birgir. „Þetta verður gert í vetur. Það er búið að teikna þetta á verkfræöistofu og ég er að byija á þessu núna. Við klárum þetta þegar frost fer úr jörðu í vor,“ segir Árni Möller, bóndi á Þórustöðum. BýUð að Þórustöðum er eitt stærsta svínabú á landinu, með 180 gyltur. Úrgangurinn frá búinu er umtals- verður á ári. Hann nemur rúmum 4.000 tonnum á ári miðað við að 800 tonna úrgangur komi frá 30 gyltum á þeim tíma. Verulegt átak hefur staðið innan ÖUushrepps á fráveitumálum og er búiö að koma fráveitumálum í Þor- lákshöfn í þokkalegt horf meö einni útrás. Birgir segir að mjög vel hafi veriö staðið aö framkvæmdum þar. -GHS Virkar sprengjur f undust Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum; Fleiri virkar sprengjur fundust á útivistarsvæðinu við Háabjalla og Snorrastaðatjarnir, skammt frá af- leggjaranum til Grindavíkur. Banda- rískir hermenn á Keflavíkurflugvelh fundu sprengjurnar en þeir leituðu á svæöinu að ósk íslenskra stjórn- valda. Sprengjumar voru geröar óvirkar þegar í stað enda gamlar og stórhættulegar. Fyrir skömmu fann nemandi við Myllubakkaskóla í Keflavík virka sprengju þegar hann var í skóla- ferðalagi ásamt fjölda nemenda á þesum slóðum. Svæðið var notað til skotæfinga fyrir rúmlega 35 árum og höfðu sprengjurnar falhð í mjúkan jarðveg og ekki sprungið þess vegna. Þetta svæði var fínkembt fyrir nokkrum árum og þá fundust fjöl- margar virkar sprengjur. fréttir „Ég hef aldrei flakað keilu áður,“ sagði Anna Jónasdóttir en hún og Guð- mundur Hjartarson voru að flaka nokkrar keilur í Fiskkaupum. Anna vinnur allan daginn og hefur verið í fiski meira og minna í rúma tvo áratugi. Hún segir að fátt annað sé í boði í bae eins og Ólafsvík. Guðmundur var lengi landverkamaður á vertíð með búskapnum en hefur síðustu ár unnið ein- göngu við fiskvinnslu. DV-mynd RaSi Reykjanes- braut verður endurbætt Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum; Vegageröin er þessa dagana að huga að ýmsum endurbótum á Reykjanesbraut milli Hafnarfjarð- ar og Reykjanesbæjar. Tvær hug- myndir eru uppi og er Vegagerðin að bera þær saman. Annar mögu- leikinn er að tvöfalda brautina frá Hafnarfirði til Straumsvíkur, hinn aö gera þriðju akreinina frá Straumsvík til Reykjanesbæjar. Sú akgrein verður í báðar áttir og verður lögð þar sem hún myndi nýtast m.a. til framúraksturs. Sú akgrein yrði svipuð og er í Kömb- unum á Hellisheiði og við skíöa- skálann í Hveradölum og segja vegagerðarmenn að þær hafi reynst ágætlega. „Þetta er hvorttveggja í skoðun og verður jafnvel tekin ákvörðun fyrir áramót. Sá verkhluti sem verður fyrir valinu verður boðinn út næsta surnar," sagði Jónas Snæ- björnsson, umdæmisverkfræðing- ur Vegagerðarinnar. Búið var að veita 105 mihjónir á næsta ári í endurbætur á Reykja- nesbraut. Alþingi hefur boðað nið- urskurð í vegaáætlun og verður einhverjum verkefnum frestað. Al- þingi mun taka ákvörðun og leggja fyrir Vegagerðina hvaða verkefni verður frestað og er af mörgum verkefnum að taka. Þeir sem DV ræddi við sögðu aö tími væri kominn til að gera endur- bætur á Reykjanesbraut og gera þriöju akgreinina frá Straumsvík til Reykjanesbæjar. Þar færu 5 þús- und bílar á sólarhring og myndað- ist oft mikil hflaröð vegna flugsins á Keflavikurflugvelli, ökumenn væru oft að taka mikla áhættu með framúrakstri. Með nýju akreininni ætti það að vera nánast úr sögunni. Stykkishólmur: Hátíð til heiðurs Árna Thorlacius Olgeir Helgi Ragnarsson, DV, Borgamesi: Samkoma verður haldin í Norska húsinu í Stykkishólmi í dag, fyrsta vetrardag, kl. 15 en 1. nóvember eru hðin 150 ár síðan Ámi Thorlacius hóf þar reglulegar veðurathuganir. Þessar veöurskýrslur eru meðal þeirra elstu og vönduðustu á Norður- löndum. Veðurfræðingarnir Trausti Jóns- son og Páh Bergþórsson munu flytja erindi og lesið verður úr ljóðum Sigrðar Breiðfjörðs en Ámi var vin- ur hans og velgjörðarmaður. Árni Thorlacius fæddist á Bfldudal árið 1802. Hann fór í menntaskóla til Kaupmannahafnar og tfl Björgvinjar í sjómannaskóla. Árið 1821 öðlaðist hann skipstjórnarréttindi tfl að stýra skipum mflli landa. Hann var fáein ár í siglingum erlendis. Árið 1825 tók hann við föðurarfi sínum, meðal annars Stykkishólmskaupstað. Kona hans var Magdalena Steenbach og bjuggu þau í Stykkishólmi. Þau eign- uðust 9 börn og 5 þeirra komust upp. Ámi rak útgerö, verslun og búskap og var umboðsmaöur jarða. Hann keypti frá Noregi tflbúið timburhús, tvflyft, og reisti það í Stykkishólmi og var þaö á sínum tíma eitt veglegasta íbúðarhús á ís- landi. Húsið, sem nefnt er Norska húsið, hýsir nú byggðasafn. Árni var mjög áhugasamur um ýmis fræði og átti stórt bókasafn. Hann var í bréfasambandi við vís- indamenn í Evrópu og skrifaði grein- ar í erlend tímarit. Hann kenndi sjó- mannafræði og skrifaði kennslubók í þeirri grein. Verðurathuganir hans eru einn stærsti minnisvarði um fræðiiðkanir hans. 55 ARM0RC0AT-0RYGGISFILMAN ER LÍMDINNAN Á VENJULEGT GLER • Breytir rúðunni í öryggisgler (innbrot, fárviðri, jarðskjáiftar) • Sólarhiti minnkar um 75% • Upplitun minnkar um 95% • Eldvarnarstuðull F-15 ARMORCOAT V SKEMMTILEGT HF. SÍMI587-6777 BÍLDSHÖFÐA 8 Nýti”^l kvöldverðartilboð 27/10 - 2/H Veturer qenqinn í qarð Frábær matur, Ijúfar veitinqar, rómantísktumhverfi yndisleq kvöldstund Glæsileq 3ja rétta kvöldverðartilboð Kr.l.995 HaGSTTD KÁDEGISVERDARTILBOD ALLA VWKA DAGA u) GuííniJfcmimD^ ^ Lau?avevi 178 ^ Bílahlutir Hjólkoppar 13”og 14” kr. 450 stk. Bremsuljós í afturglugga Verð frá kr. 760 og tengingu. Verð kr. 2.750 2 stk. i pakka 40-45-50 cm Verð frá kr. 860 pakkinn Síðumúla 34 - Fellsmúlamegin Sími 588 7332 Opið: mánud.- föstud. kl. 9-18 Laugard. kl. 10-16 Sætaáklæði á allan bílinn Verð kr. 2.600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.