Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
Fréttir
Piltur ákærður fyrir að hafa kveikt 1 atvinnuhúsnæði á Höfn með eldfimum vökva:
19 ára krafinn um 9,1
milljón 1 skaðabætur
- var á síðasta ári dæmdur fyrir að leggja eld að tveimur sumarhúsum í Önundarfirði
19 ára piltur hefur verið ákærður
fyrir stórfelld eignaspjöll með því að
hafa af ásetningi kveikt 1 húsnæði
Rafeindaþjónustu Jóhanns Ársæls-
sonar á Höfn í Homafírði. Vátrygg-
ingafélag íslands hefúr lagt fram 9,1
milljónar króna skaðabótakröfu
vegna tjóns sem varð í brunanum.
Sami piltur var á síðasta ári dæmd-
ur í 6 mánaða skilorðsbundið fang-
elsi fyrir að hafa lagt eld að tveimur
nýstandsettum sumarbústöðum í
Önundarflrði á árinu 1993.
Piltinum er gefið að sök að hafa
brotist inn í húsnæði Rafeindaþjón-
ustunnar aðfaranótt 9. júní síðast-
liðinn. Þar fór hann inn á skrifstofu
þar sem hann fann kontakt-spray
sem hann sprautaði síðan á veggi og
gegnumvætti einnig stólsetu með
vökvanum áður en hann lagði eld
að. Pilturinn forðaði sér síðan en
eldurinn breiddist um húsiö. Hann
þykir með þessu hafa valdið elds-
voða sem hafði almannahættu í för
með sér sem olli verulegu eignatjóni
og hættu á enn meira tjóni ef eldur-
inn hefði breiðst meira út. Slökkvi-
liðinu á Höfn tókst að koma í veg
fyrir að skemmdir yrðu meiri en
raun bar vitni.
í júní 1993 fann lögreglan á ísa-
firði piltinn ölvaðan, skólausan,
blóðugan og blautan með sviðið hár
á gangi í Önundarfirði. Þá hafði eld-
ur kviknað í tveimur sumarhúsum.
Við yflrheyrslur viðurkenndi piltur-
inn að hafa komið að Görðum, farið
þar inn í reykkofa og kveikt í spreki
í plastfotu. Þaðan hefði hann gengið
að sumarhúsinu, brotiö rúðu og
skriðið inn en síðan lagt eld að
gluggatjöldum og sófa í einu her-
bergjanna. Gólfið var hulið reyk er
hann yfirgaf húsið. Pilturinn skýrði
jafnframt frá því að hann hefði kom-
ið að Kaldeyri. Þar hefði hann sest
við borð þar sem hann hafði kveikt
á olíulampa. Þarna kvaðst hann
hafa rekið olnbogann í lampann
þannig að hann féll i gólfiö og eldur
gaus upp. Pilturinn sagðist ekki
hafa talið sig hafa ráðið við eldinn
og ákveðið að koma sér á brott.
Hann kvaðst fyrst og fremst hafa
verið að leita skjóls í húsunum.
Héraðsdómur Vestfjarðá komst að
þeirri niðurstöðu að pilturinn hefði
kveikt í sumarhúsinu að Görðum af
ásetningi en gáleysi hefði valdið
brunanum að Kaldeyri.
Skaðabótakröfum upp á samtals á
áttundu milljón króna var vísað frá
dómi þar sem þær þóttu ailt of háar
og órökstuddar auk þess sem mið
var tekið af ungum aldri og efnahag
piltsins.
Réttarhöld vegna málsins á Höfn
verða haldin á næstunni hjá Héraðs-
dómi Austurlands. -Ótt
Stuttar fréttir
Raforka á útsöluverði
Raforkusamningur Lands-
virkjunar og Alusuisse-Lonza
gerir ráð fyrir að álverið í
Straumsvík greiði einungis um
10 mills fyrir raforkuna fyrstu 7
árin miðað við núverandi ál-
verð. Skv. Sjónvarpinu kostar
um 20 mills að framleiða ork-
una.
Áfengi á laugardögum
Þrjár verslanir ÁTVR í
Reykjavík og á Akureyri verða
framvegis opnar á laugardögum.
RÚV greindi frá þessu.
Skölamáltíöir í athugun
Borgaryfirvöld kanna þessa
dagana hvort grundvöllur er fyr-
ir því að fjöldaframleiða máltíð-
ir fyrir grunnskólaböm. Skv.
Tímanum verða foreldrar spurð-
ir hvað bömin vilji borða.
Óvenjumikill hafís
Óvenjumikill hafís er úti fyrir
Vestfjörðum miðað við árstíma.
Skv. Tímanum er búist viö að ís-
inn haldist svipaður næstu
daga.
Rýmri áfengisreglur
Fjórir þingmenn úr jafnmörg-
um flokkum hafa lagt til að ald-
ursmark til að kaupa áfengi
verði lækkað í 18 ár. Skv. RÚV
eru rökin meðal annars þau að
núgildandi lög séu úrelt og að
fólk virði þau ekki.
íslendingar eyöa mest
íslenskir ferðamenn eyða
meiru en aðrir ferðamenn í
Bretlandi. Skv. bresku hagstof-
unni eyða íslendingar að meðal-
tali 11.830 krónum á dag. Mbl.
greindi frá.
BÍ styður blaðamann
Stjórn Blaðamannafélags ís-
lands hefúr lýst yfir stuðningi
við Agnesi Bragadóttur, hlaða-
mann Morgunblaðsins, sem
neitar að gefa upp nafn heimild-
armanns vegna frétta um mál-
efni SÍS. í siðareglum félagsins
segir að blaðamanni beri aö
virða trúnað við heimildarmenn
sína.
Brotið á blindum
Blindrafélagið telur það ský-
laust brot á jafnréttislögum að
ekki er hægt að aðgreina nýja 2
þúsund króna peningaseðilinn
frá öðrum seðlum út frá stærð.
Þá eigi sjónskertir örðugt með
að aðgreina seðlana út frá lit.
Mbl. greindi frá.
Borholur spilla Geysi
Borholur í nágrenni Geysis í
Haukadal hafa hugsanlega spillt
þessum heimsfræga hver. Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir hélt
þessu fram á Alþingi í gær.-kaa
Fyrrum forstöðumaður hagdeildar Búnaðarbankans fær fangelsisdóm vegna gjaldeyrisviðskipta:
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ meðal annarra á LÍÚ-þinginu.
Vélstjóraþing og LÍÚ-þing haldin í Reykjavík:
Verkföll vegna frekju og
yfirgangs hóps útgerðarmanna
- sagði Helgi Laxdal formaður 1 setningarræðu sinni
Vélstjóraþing var sett á Grand
Hótel í gær. Þingið hófst með ávarpi
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs-
ráðherra en síðan flutti Helgi Lax-
dal, formaður Vélstjórafélags ís-
lands, setningarræðu. Hann gerði að
umtalsefni það fjárhagslega tap sem
útgerðarmenn urðu fyrir vegna
verkfalls sjómanna í vor. Hann
sagði ástæðu til að velta fyrir sér
ástæðum verkfallsins.
„Var það vegna óbilgirni sjó-
manna eða var það vegna óbilgimi
ákveöins hóps útgeröarmanna? Tví-
mælalaust vegna óbilgimi og frekju
ákveðins hóps útgerðarmanna sem
forysta LÍÚ hefði átt að sefja ofan í
við strax í stað þess að taka undir
málflutning þeirra og athafnir,"
sagði Helgi.
• Hann sagði endanlegt markmið
Landssambands íslenskra útgerðar-
manna haldið sömu daga í Reykja-
vík.
Fundarmenn á Vélstjóraþingi f gær.
varðandi sölu afla vera að mestur
hluti fari um fiskmarkaði.
Auk ársfundar vélstjóra er þing
Mun ræða
við starfsmenn
Funa
— segir bæjarstjóri
„Ég mun ræða þessi mál beint
og milliliðalaust við starfsmenn
Funa en ekki í gegnum
fjölmiðla,“ segir Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á ísafirði,
vegna þeirra ásakana fjögurra
starfsmanna sorpbrennslunnar
Funa á ísafirði í DV i gær að þeir
hafi aldrei verið varaðir við snjó-
flóðahættu á vinnustað sínum
þrátt fyrir að hættan væri þekkt.
Fram kom hjá starfsmönnunum
að á byggingartíma stöðvarinnar
hefði verktökum verið vísað út
vegna hættu á snjóflóði. Kristján
Þór segist ekki þekkja til þess
þar sem hann hafi ekki tekið við
sem bæjarstjóri fyrr en eftir að
byggingu stöðvarinnar lauk. -rt
Slökkviliðs-
menn fresta
aðgerðum
Ægir Már Kárason, DV, Suöurnesjum:
Slökkviliðsmenn á Kelfavík-
urflugvelli samþykktu á fundi í
gær að fresta aðgerðum sínum í
eina viku. Landssambandi
slökkviliðsmanna bárust tiimæii
frá varnarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins um að aðgerð-
um um hægagang slökkviliðs-
manna yrði frestað í eina viku
og verður sá tími notaður af
hálfu vamarmálaskrifstofú til að
finna lausn á ágreiningsmálun-
um.
Niðurstaðan verður kynnt á
fundi með starfsmönnum
slökkviliðsins 17. nóvember.
Ákvöröunin var tekin í trausti
þess að lausn fengist eftir viku.
Sekur þrátt fyrir leyfi aðstoðarbankastjórans
- fær 3 milljónir í sekt en 20-25 milljóna hagnaöur starfsmannsins taldist tjón bankans
Á nánast sama hátt og Héraðs-
dómur Reykjavíkur sýknaði alfarið
Kristján Gunnarsson, fyrrum for-
stöðumann hagdeildar Búnaðar-
bankans, af sakargiftum um um-
boðssvik og brot í opinberu starfi
með því að hafa misnotað aðstöðu
sína þegar hann hagnaðist um 20-25
milljónir króna með spákaup-
mennsku sinni sakfelldi Hæstirétt-
ur manninn í gær og hnekkti alfar-
ið dómi héraðsdóms. Hann hefur nú
verið dæmdur í 8 mánaða fangelsi
sem þó þótti mega skilorðsbinda af
ýmsum ástæðum og til að greiða ,
þriggja milljóna króna sekt til ríkis-
sjóðs.
Héraðsdómur komst aö þeirri nið-
úrstöðu að Kristján hefði á engan
hátt misnotað aðstöðu sína né stöðu
sem starfsmaður bankans við gjald-
eyrismillifærslur sínar og hefði í
engu leynt yfirmenn sína viðskipt-
um sínum við bankann - þvert á
móti hefði hann gert sérstakt sam-
komulag um afsláttarkjör vegna
millifærslnanna.
Þessu hnekkti Hæstiréttur. Fimm
manna dómur taldi viðskipti Kristj-
áns hafa verið afbrigðileg að því
leyti að hann naut sérstakra kjara
umfram aðra viðskiptamenn, reynd-
ar samkvæmt samkomulagi sem
hann gerði við aðstoðarbankastjóra
- hann hefði einkum notið þess þar
sem hann var starfsmaður en við-
skiptin hins vegar stunduð á kostn-
að bankans - hagnaður Kristjáns
hefði verið á kostnað bankans og
viðskiptin verið skipulögð og kerfís-
bundin.
Hæstiréttur telur að þrátt fyrir
heimildir „stjómenda bankans" hafi
það ekki leyst Kristján undan trún-
aðarskyldum sínum gagnvart bank-
anum. Auk þess hlyti honum fljót-
lega að hafa orðið ljóst að kaup-
mennska hans væri ósamrýmanleg
stöðu hans og umfang viðskiptanna
væri orðið annað en það sem stjóm-
endur gerðu sér grein fyrir - það
væri því óhjákæmilegt að líta svo á
að Kristján hefði misnotað aðstöðu
sína sér til ávinnings og tjóns fyrir
bankann, þar með hefði hann brotið
starfsskyldur sínar.
Á hinn bóginn var það virt Kristj-
áni til málsbóta að vitneskja stjóm-
enda bankans lá fyrir enda hafði
hann gert samkomulag um sérstök
kjör. Einnig það að upplýsingamar
sem hann nýtti sér vom ekki trún-
aðarmál. Auk þess var tekiö mið af
því að Kristján hefur ekki gerst
brotlegur við hegningarlög áður.
Greiði Kristján ekki 3 milljónir
króna innan fjögurra vikna er hon-
um gert að sæta 6 mánaða fangelsi í
stað sektarinnar. -Ótt