Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 Neytendur Nýjar ístegundir frá Emmessís. Emmessís: Nýr Yndis- auki Frá Emmessís hf. er kominn á markað nýr Yndisauki, After Dinner Mint. Áður voru komnar tvær tegundir Yndisauka á markaðinn, Cappuccino og Swiss Mint. Báðar þessar teg- undir hafa hlotið miklar og góð- ar undirtektir hjá neytendum. Yndisauki fæst í eins lítra öskj- um. Saltfisklundir þykja hið mesta góðgæti. DV-mynd S Saltfisk- lundir gómsætar Maður hafði sambandi við DV og sagðist hafa bragðað svokall- aðar saltflsklundir, fisklengjur sem teknar eru af við beingarð- inn og sjaldnast nýttar. Sagðist maðurinn ekki í annan tíma hafa bragðað jafnmikið sælgæti. Hjá fiskverkun Jóns Ásbjöms- sonar fengust þær upplýsingar að þar hefðu menn litla sem enga aðstöðu til þess að selja þetta en einstaka manni hefði verið bjargað um kíló og kíló af þessari gæðavöru. Hvatti við- mælandi DV til þess að fisksalar tækju sig til og færu að bjóða upp á þetta góðgæti. Umræddum lundum hefur í gegnum tíðina verið hent með hryggnum þegar fiskurinn er flattur. Nú hafa menn í auknum mæli handskorið lundimar frá hryggnum og flutt þær út. Goggar og trýni: Nýtt fyrir hunda Verslunin Goggar og trýni er að selja nýjungar sem hundaeig- endur ættu að fagna. Eitt af því er geltisstoppari sem komið er fyrir í ól um háls hundsins og gefur frá sjálfvirkt frá sér lykt þegar hann geltir. Lyktin hefur truflandi áhrif á hundinn og hann hættir að gelta. Lyktin er alls ekki slæm og hefur ekki nei- kvæð áhrif á fólk. Vilji hunda- eigendur að hundar þeirra gelti eins og varðhundar er stoppar- inn tekinn og hundurinn geltir að nýju. Annað sem hefur vakið at- hygli hundaeigenda er kambur og leikfang fyrir hundinn. -sv Miklu skiptir að verð á grænmeti sé þannig að fólk hafi ráð á að kaupa það. Rannsóknir sýna að þeir sem neyta grænmetis í ríkum mæli séu síður í áhættuhópi vegna hjartasjúkdóma og ýmissa krabbameina. Verð á grænmeti hefur áhrif á neysluna: Grænmetisát hefur Mjólkursamsalan: Hrísmjólk á markað Á næstu dögum kemur á markað á íslandi ný mjólkuraf- urð, sk. hrísmjólk, sem fram- leidd er hjá Mjólkursamlaginu i Búðardal. Á meginlandi Evrópu hafa ýmis afbrigði af sambærilegri vöru notið mikilla vinsælda. ís- lendingar á ferð um Þýskaland hafa prófað þarlenda hrísmjólk og sumir þeirra hafa komið með ábendingar til MS og óskað eftir þessum valkosti á matseðilinni. Hrísmjólk er að miklu leyti gerð úr mjólk. Hún inniheldur m.a. soðin hrísgrjón og er pökk- uð í tvíhólfa dósir. í minna hólf- inu eru mismunandi sósur til bragðauka, svo sem jaröarberja- og rabarbarasósa, vanillusósa og kanilsósa. Sláturfélag Suðurlands: áhrif á hjartasjúk- dóma og krabbamein - segir Laufey Steingrímsdóttir „Það er alveg ljóst að verð á græn- meti skiptir gríðarlega miklu máli og í rannsóknum erlendis hefur ver- ið bent á augljós tengsl á milli neyslu og verðs. i manneldismark- miðunum svokölluðu er fólki upp- álagt að borða sem mest af græn- meti en síðan er ekkert gert til þess að stuðla að því að fólk hafi ráð á að kaupa það,“ segir Laufey Stein- grímsdóttir, næringaráðgjafi hjá Manneldisráði íslands. Laufey segir hollustuna í grænmetinu óvefengj- anlega þótt auðvitað geti menn lifað ágætu lífi þótt þeir borði ekki mikið af þvi. „Allir vita að grænmeti er hollt. Það er fitulaust og því létt, það er bætiefnarikt og trefjaefnaríkt. Það sem skiptir kannski meira máli er að þeir sem borða ríflega af græn- meti fá síður hjartasjúkdóma og ýmis krabbamein. Það hafa tugir rannsókna sýnt fram á þessi tengsl enda þótt menn séu ekki alveg klár- ir á því hvaða efni í grænmetinu geri þetta að verkum," segir Laufey. Hún segir að menn hallist að svokölluðum andoxunarefnum, efn- um sem verji frumur líkamans gegn skemmdum sem verða vegna meng- unar, reykinga og ýmissa annarra þátta. í sumum vítamínum eru andoxunarefnum, að sögn Laufeyj- ar. „í kjölfar þess að Gatt-lögin voru samþykkt höfðum við samband við landbúnaðarráðherra og ýmsa þing- menn til þess að benda þeim á það hvað háir toflar þýddu í sambandi við grænmetisneyslu. Það hafði lítið að segja og sýnir okkur kannski fyrst og fremst hversu sterkir hags- munahópar standa þama að baki. Því miður er það of oft svo að holl- ustan þarf að víkja fyrir öðmm hagsmunum," segir Laufey Stein- grímsdóttir. -sv Vísitala neysluverðs: Lækkar um 0,3% Vísitala neysluverðs, miðað við verðlag i nóvemberbyrjun 1995, hef- ur lækkað um 0,3% frá því í októ- ber. Ástæðan fyrir lækkun vísitöl- unnar er helst sögð vera vegna verð- lækkunar á kartöflum, dilkakjöti og grænmeti. Verðhækkun á lottómið- um hafði hins vegar töluverð áhrif í gagnstæða átt. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,1% og vísitala neysluverðs án húsnæðis sömuleiðis um 2,1%. Undanfama þrjá mánuði hefur vísitala neyslu- verðs hækkað um 0,5% sem jafngild- ir 1,9% verðbólgu á ári. Sambærileg þriggja mánaða breyting á vísitölu neysluverðs án húsnæðis svarar til 2,0% verðbólgu á ári. í töflu um verðbólgu í nokkrum ríkjum frá september 1994 til sept- ember 1995 kemur í ljós að verðbólg- an í ríkjum Evrópusambandsins var Verðbólga í nokkrum ríkjum .....j hækkun neysluyerö.svísitölu frá sept. '94 til sept. '95 Meðaltal ESB ov 3,1% að meðaltali. Lægst var hún í 1,5% í Hollandi. Verðbólgan á ís- Finnlandi, 0,3%, 1,2% í Belgíu og landi á sama tímabili var 1,8%. -sv Danskar pylsur ! vikunni komu á markað nýj- ar pylsur undir vörumerkinu Pölsemesteren. Hér er á ferð nýtt vörumerki frá Sláturfélagi Suðurlands og er markmiðið með þessari nýjung að bjóða upp á fjölbreyttara úrval og nýja notkun á pylsum. Við fram- leiðslu og þróun á vörunni naut Sláturfélagið aðstoðar danskra sérfræðinga og líkt og með aðrar danskar pylsur eru þessar nán- ast eingöngu úr svínakjöti. Dönsku pylsumar verða seldar sex saman í pakka og þær kosta 698 krónur kílóið. íslenska borðið á sýningunni í Herning. islenskir ostar verðlaunaðir Dagana 1. og 2. nóv. tóku ís- lensku mjólkursamlögin þátt í viðamikilli mjólkurvörusýningu í Herning í Danmörku. Samfara vömsýningunni fór fram gæða- mat og þóttu íslensku mjólkur- vörurnar standa sig með mikl- um sóma. Á sýningunni voru um 1.100 tegundir af osti, smjöri og ferskvörum. íslendingar sýndu 72 gerðir osta frá 8 mjólk- ursamlögum og 44 afbrigði af ferskvöru (jógúrt, skyri o.þ.h.) frá 7 mjólkursamlögum. Allar tegundirnar tóku þátt í gæðakeppni við dönsku vömrn- ar og vom dómarar 85 talsins. Tvær íslenskar vörutegundir hlutu heiðursverðlaun, sex korna þykkmjólk með ferskjum frá KB í flokki ferskvara og rjómamysuostur frá KEA. i flokki osta. Allsunnu íslensku vömrnar til 44 verðlaunakppn- inni. I -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.