Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Síða 10
10
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
Menning
Attræður fyrrum bóndi gefur út spænsk-íslenska orðabók:
Eftir tuttugu ár
gerðist hið ótrúlega
- segir Sigurður Sigurmundsson á Flúðum og er ekki hættur
Sigurður Sigurmundsson, 80 ára
fyrrum bóndi á Hvítárholti í Hruna,
nú búsettur á Flúðum, hefur á eigin
spýtur gefið út spænsk-íslenska og
íslensk-spænska orðabók. Bókin
kom nýlega á markað og hefur ver-
ið dreift í flestar bókaverslanir
landsins. Spænsk-íslenska bókin
kom reyndar fyrst út árið 1973 á
vegum Isafoldar og var Sigurður
höfundur þeirrar bókar. Núna hefur
Sigurður hins vegar bætt við ís-
lensk-spænskri orðaskrá til viðbótar
við spænsk- íslensku orðaskrána
sem um leið hefur verið endurbætt
frá fyrstu útgáfu. Bókin hans Sig-
urðar er sú fyrsta sinnar tegundar
hér á landi ef vasaútgáfur eru und-
anþegnar.
Sigurður byrjaði að læra
spænsku árið 1953 upp á sitt eins-
dæmi. Þá segist hann ekki hafa skil-
ið eitt einasta orð í tungumálinu.
„Á þessum tíma fannst mér það
óvinnandi vegur að búa til orðabók.
Ég þurfti að fletta hverju orði upp í
gegnum tvær orðabækur, fyrst
enska orðabók og síðan spænska.
Því réðist ég í það að búa til orða-
bók og notaði það handrit í nokkuð
mörg ár. Eftir 20 ár, árið 1973, gerð-
ist hið ótrúlega að ég fékk útgefanda
að bókinni því mér datt aldrei í hug
að það yrði að veruleika," sagði Sig-
urður.
Þegar spænsk-íslenska orðabókin
var komin út sá Sigurður fljótt þörf-
ina fyrir íslensk-spænskri orðabók.
Hann fór því að safna efni í hana.
1 SP&NSK.
te»NSK
f ÍSLINSK-
SP&N5K
ORCABÓR
Sigurður Sigurmundsson með eintak af spænsk-íslensku/íslensk-spænsku
orðabókinni sem hann hefur sjálfur gefið út.
DV-mynd Sigmundur Sigurgeirsson
Handritið lá óhreyft í ein 15 ár og
gerði Sigurður nokkrar tilraunir til
að fá hana útgefna.
„Fyrir tveimur árum ætlaði Mál
og menning að taka að sér að gefa
bókina út en það dróst þá. Þegar
þeir voru byrjaðir að vinna verkið
var mér tilkynnt að þeir væru hætt-
ir við i miðjum klíðum. Það endaði
með því að ég tók við verkinu sjálf-
ur og lét setja eldri orðabókina al-
veg upp á nýtt,“ sagði Sigurður.
Bókin með orðasöfnunum tveim-
ur er hátt í 370 blaðsíður í vönduðu
broti. Hún er prentuð hjá Gutenberg
sem átti hagstæðasta tilboðið í verk-
'ið af þremur prentsmiðjum.
Sigurður hefur ekki eingöngu gef-
ið út orðabækur. Hann skrifaði bók
um sköpun Njálssögu og þýddi
spænska skáldsögu, Hljómkviðan ei-
lífa, sem kom út árið 1990. Hann var
bóndi í Hruna í nærri hálfa öld og
fékkst við ritstörf meðfram bústörf-
unum. Hann flutti frá Hvítárholti til
Flúða fyrir sex árum og lauk þar
með bústörfum sfnum.
„Ég er enn að dunda við ritstörfin
og hef gaman af. Ég geri mikið af
því að skrifa og hef gert það frá þrí-
tugsaldri. Ég get að lokum ekki
gleymt að minnast á það að ég hef
gefið út ævisögu mína, Á milli
landshorna. Hún hlaut góðar viðtök-
ur en hún endar þegar ég er aðeins
17 ára,“ sagði Sigurður þannig að
mestur hluti ævi hans er óskráður!
-bjb
íslensku barnabókaverðlaunin 1991:
Veislan vann
- í flokki myndskreyttra bóka fyrir yngstu kynslóöina
Veislan i barnavagninum, mynd-
skreytt barnabók eftir þær Herdísi
Egilsdóttur og Erlu Siguröardóttur,
hlaut íslensku barnabókaverðlaun-
in 1995 í flokki myndskreyttra sagna
fyrir yngstu lesendurna. Verðlaunin
voru afhent í fyrradag við upphaf
útgáfufagnaðar Vöku-Helgafells en
forlagið gefur bókina út.
Verðlaunasjóður íslenskra barna-
bóka veitir verðlaunin en að sjóðn-
um standa Vaka-Helgafell, fjöl-
skylda Ármanns Kr. Einarssonar,
Barnabókaráðið, íslandsdeild IBBY-
samtakanna og Barnavinafélagið
Sumargjöf. Stofnað var til verðlaun-
anna í tilefni af 70 ára afmæli Ár-
manns árið 1985 og eiga þau því 10
ára afmæli á þessu ári. í tilefni af af-
mælinu var ákveðið að tvískipta
verðlaununum en fyrr á þessu ári
fékk Þórey Friðbjörnsdóttir verð-
launin fyrir bókina Eplasnepla.
Veislan i barnavagninum var val-
in úr hópi 100 handrita frá á sjötta
tug aðila. Sagan fjallar um hana
Ellu litlu sem er send í bakaríið til
að kaupa kökur. Ekki vill betur til
en svo að hún týnir peningabudd-
unni á leiðinni. Þetta dregur dilk á
eftir sér og ferð hennar á eftir að
. verða hin sögulegasta.
„Veislan í barnavagninum er
hugljúf en um leið hressileg barna-
saga þar sem samspil mynda og
texta er eins og best verður á kosið.
Söguþráðurinn er sniðinn að áhuga
og þroska yngstu lesendanna og
myndirnar eru unnar af fag-
mennsku. Hvort tveggja ber jafn-
framt með sér persónulegan stíl höf-
undanna," sagði Ólafur Ragnarsson
Erla Sigurðardóttir og Herdís Egilsdóttir taka við barnabókaverðlaununum
úr hendi Ólafs Ragnarssonar bókaútgefanda. DV-mynd BG
hjá Vöku- Helgafelli þegar hann af- um og hlotið ýmsar viðurkenningar
henti Herdísi og Erlu verðlaunin en en flestir verðlaunahafar til þessa
hann er stjórnarformaður verð- hafa verið með sínar fyrstu bækur
launasjóðsins. Herdís og Erla hafa -bjb
áður látið að sér kveða á ritvellin-
Leikfélag Mos-
fellssveitar
frumsýnir á
sunnudag
Leikfélag Mosfellssveitar
frumsýnir á sunnudaginn í Bæj-
arleikhúsinu nýtt unglingaleik-
rit eftir Ólaf Hauk Símonarson
sem nefnist Ævintýri á harða
diskinum. Valgeir Skagfjörð
samdi tónlist og leikstjóri er
Guðjón Sigvaldason.
Um er að ræða samnorrænt
verkefni, skipulagt af Norræna
áhugaleikhúsráðinu. Verkefnið
gengur þannig fyrir sig að einn
leikhópur á hverju Norðurland-
anna er að æfa frumsamið ungl-
ingaleikrit og hóparnir munu
koma saman á leiklistarhátíð í
Kaupmannahöfn næsta vor. Sið-
an verður eitt af verkum hinna
landanna þýtt yfir á íslensku og
þessir sömu unglingar munu
setja það upp næsta vetur.
Fimmtán unglingar taka þátt í
þessu hjá Leikfélagi Mosfells-
sveitar.
Leikfélagið er að æfa hið sí-
gilda verk Deleríum búbónis eft-
ir þá bræður Jónas og Jón Múla
Árnasyni. Frumsýning verður í
kringum áramótin en leikstjóri
er Valgeir Skagfjörð.
Drakúla að
þorna upp!
Vegna um-
fangs næsta
verkefnis
Leikfélags
Akureyrar,
Sporvagnsins
Girndar, fer
sýningum á
Drakúla að
ljúka. Hinn
blóðþyrsti Drakúla í höndum
Viðars Eggertssonar er því að
þoma upp. Næstsíðasta sýning
verður á morgun, laugardag, og
sú síðasta laugardaginn 18. nóv-
ember nk.
Ágóði af Þreki
og tárum til
Flateyringa
Þjóðleikhúsið hefur ákveðið
að vera með aukasýningu á leik-
ritinu Þreki og tárum þriðju-
dagskvöldið 21. nóvember. Ágóð-
inn af sýningunni rennur óskipt-
ur tO Flateyringa sem átt hafa
um sárt að binda.
Leikarar, höfundur, hljóm-
sveit, tæknifólk og allt starfslið
leikhússins sýnir samhug í
verki og gefur vinnu sína við
sýninguna. Þjóðleikhúsið lætur
húsið í té endurgjaldslaust og
gefur sinn ágóðahlut. Miðasala
vegna þessarar sýningar hefst í
dag.
Áshildur verð-
launuð í Verona
Þessl reykvísku ungmenni kunnu vel aö meta leiðsögn leikhúsrottunnar í
Borgarleikhúsinu. DV-mynd GS
Borgarleikhúsið:
Leikhúsrottan leiðir börnin um húsið
Leikfélag Reykjavíkur hefur
bryddað upp á þeirri nýjung í Borg-
arleikhúsinu í haust að bjóða 9 ára
grunnskólanemendum í Reykjavík í
heimsókn í leikhúsið. Þar eru böm-
in frædd um leiklistina og sögu
hennar, Borgarleikhúsið og vinnu í
leikhúsi. Þessu verður framhaldið í
vetur og tíu ára börnum síðan bætt
við.
Það er leikhúsrottan svokallaða
sem fylgir börnunum um leikhúsið.
Þemað í heimsókn barnanna er
„ytri og innri veruleiki“. Börnin
fara í leiðangur sem kannar ytri
veruleikann sem og þann innri. Með
því að einbeita sér að þessu þema í
upplifun og leik er vonast til að
börnin kynnist hinu flókna samspili
sem leiklistin er.
Börnin fá að skyggnast á bak við
tjöldin og kynnast því sem almennir
leikhúsgestir sjá aldrei. Lögð er
áhersla á að kynna þeim starfið í
leikhúsinu frá öðru sjónarhorni en
þau eru vön, þ.e.a.s. sem þátttakend-
um í sköpunarferli sem á sér stað
áður en leiksýning kemst á svið.
Þrír leikarar, þau Guðrún Ás-
mundsdóttir, Ásta Arnardóttir og
Sigurþór Albert Heimisson, taka á
móti börnunum í leikhúsinu en öll
hafa þau mikla reynslu af að vinna
með börnum í leikrænni tjáningu.
Heimsóknin í Borgarleikhúsið
hefur verið unnin í samráði við
bekkjarkennara 9 ára barna og hef-
ur það samstarf gengið vel. Vonast
er til að heimsóknin verði fastur lið-
ur í menntun allra grunnskólabarna
í Reykjavík. -bjb
Áshildur
Haraldsdóttir
þver-
flautuleikari
vann til verð-
launa í alþjóð-
legri flautus-
amkeppni sem
nýlega var
haldin
skammt frá Verona á Ítalíu. Ás-
hildur var í hópi 50 flautuleik-
ara sem valdir voru til þátttöku
í keppninni úr 100 sem sóttu um
að vera með. Auk þess fékk Ás-
hildur sérstök verðlaun fyrir
flutning á nútímaverki.
Áshildur starfar nú í París og
víðar og hefur fengið tilboð um
að halda tónleika í París og New
York í kjölfar keppninnar í Ver-
ona.
-bjb