Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
11
VJUSG>
Síðumúla 30 - sími 568 6822
Ófögur aðkoma var á Vatnsendasvæðinu nýlega þegar pokar með hræjum
af gæsum og álftum lágu þar við veginn frá Elliðavatni til Garðabæjar. Svo
virðist sem einhver hafi skotið þessa fugla, álftirnar líka þó að þær séu frið-
aðar. „Ég var ekkert að rífa þetta upp en fuglar eða lausir hundar á svæðinu
voru auðsjáanlega búnir að fara í pokana," sagði Ijósmyndarinn. Hann lét
starfsmenn Náttúrufræðistofnunar vita af pokunum og skömmu síðar voru
þeir horfnir. DV-mynd RaSi
mmf/t/r
Opið: mánudaga-föstudaga 9-18
laugardaga 10-16
sunnudaga 14-16
Fréttir
Niðurstaða rannsóknarnefndar um rútuslysið í Hrútafirði:
Samverkandi þættir
orsök slyssins
Nefndin, sem skipuð.var af dóms-
málaráðuneytinu til að rannsaka
rútuslysið í Hrútafirði 22. október
síðastliðinn, hefur skilað skýrslu
sinni. Telur nefndin að orsök slyss-
ins megi rekja til nokkurra sam-
verkandi þátta, það er krapaflots,
vindhviðu, hjólbarða og hraöa bif-
reiðarinnar. Afleiðing þess að bif-
reiðin valt hefði verið minni ef far-
þegar hefðu verið i öryggisbeltum.
Nefndin var skipuð daginn eftir
slysið og fór strax til rannsóknar-
starfa á vettvangi. Mynstrið á hjól-
börðum bifreiðarinnar reyndist inn-
an lögmæts ramma en nefndin telur
að miðað við aðstæður hefði dýpra
mynstur og naglar í dekkjunum
hjálpað mikið. Bifreiðin var komin
rúmlega 8 km leið frá Staðarskála
og var á fullri ferð í akstri er slysið
varð. Að sögn nefndarmanna voru
engar skemmdir í veginum.
Það er mat nefndarinnar að grein-
ing, merking og fyrsta meðferð slas-
aðra ásamt flutningi á sjúkrahús
hafi verið góð.
Til að gera flutning farþega í hóp-
bifreiðum sem allra öruggastan
leggur nefndin til ýmis atriði. Kann-
að verði hvort unnt sé að setja ör-
yggisbelti í öll sæti hópferðabif-
reiða. Einnig leggur nefndin til að
ökumenn hópbifreiða geri ferðaá-
ætlun ef þeir aka yfir heiðar eða
fjallvegi á leiðum sínum. Þar verði
tekið tillit til veðurs og færðar með
hliðsjón af aksturseiginleikum
þeirrar bifreiðar er í hlut á og að
sérstaklega verði til staðar vitneskja
um veður, færð, krapaflot, vind-
styrk, hálku og þess háttar.
Sjá þurfi til þess að hópbifreiðin
sé ávallt búin miðað við aðstæður,
einkum að hjólbarðar séu gróf-
mynstraðir með nöglum eða keðjum
þegar gera má ráð fyrir snjó, krapa-
floti eða annars konar hálku. Lagt
er til að gerð verði tæknileg úttekt á
því hvort hægt sé að setja öruggt net
eða lok fyrir farangursgeymslur yfir
höfðum farþega í hópbifreiðum.
Leiðbeiningarskilti verði í bifreið-
unum með áletrun um að þunga
hluti eða hluti sem skaðað geti fólk
i umferðaróhappi skuli geyma í far-
angursgeymslu en ekki farþega-
rými.
Jafnframt að gerð verði tæknileg
úttekt á því hvaða tæknibúnaður
þurfi að vera hjá löggæsluaðila til
að unnt sé að rannsaka og varðveita
gögn á hópslysavettvangi. Umferð-
arráði verði falið að láta taka til
sérstakrar skoðunar og rannsóknar
vatns-, hálku- og krapaflot hópbif-
reiða.
Þá telja nefndarmenn, sem voru
þeir Magnús Einarsson yfirlögreglu-
þjónn í Kópavogi, Brynjólfur Mog-
ensen yfirlæknir og Kristján Vigfús-
son, deildarstjóri í samgönguráðu-
neytinu, rétt að starfrækt verði lög-
bundin rannsóknamefnd umferðar-
slysa.
Lögreglan á Blönduósi hefur skil-
að niðurstöðum rannsóknar sinnar
til saksóknara. * -IBS
UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Eyrarflöt 6, Siglufirði, þingl. eig. Grá- steinn hf„ gerðarbeiðandi Byggingar- sjóður verkamanna, 15. nóvember 1995 kl. 11.25.
Eyrarflöt 8, Siglufirði, þingl. eig. Grá- steinn hf„ gerðarbeiðandi Byggingar- sjóður verkamanna, 15. nóvember 1995 kl. 11.30.
Eyrarflöt 10, Siglufirði, þingl. eig. Grásteinn hf„ gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður verkamanna, 15. nóvemb- er 1995 kl. 11.35.
Suðurgata 24, efri hæð og ris,_Siglu- firði, þingl. eig. Leó Reynir Ólason, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, 15. nóvember 1995 kl. 11.00.
Eyrarflöt 12, Siglufirði, þingl. eig. Grásteinn h£, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður verkamanna, 15. nóvemb- er 1995 kl. 11.40.
Túngata 37, Siglufirði, þingl. eig. Sig- urður Öm Baldvinsson og Halldóra Ólafía Jörgensen, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, 15. nóvemb- er 1995 kl. 10.50.
Eyrarflöt 2, Siglufirði, þingl. eig. Grá- steinn hf., gerðarbeiðandi Byggingar- sjóður verkamanna, 15. nóvember 1995 kl. 11.15.
SÝSLUMAÐURINN Á SIGLUFIRÐI
Eyrarflöt 4, Siglufirði, þingl. eig. Gra- steinn hf„ gerðarbeiðandi Byggingar- sjóður verkamanna, 15. nóvember 1995 kl. 11.20.
N0RSH0LM
SÆTA
WMá
m
>