Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Qupperneq 12
12
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
Spurningin
Lesendur
Tekur þú lýsi?
Jónas Jónsson verkamaöur: Já,
stundum. Ég finn mun á mér og trúi
á mátt þess.
um. Það er bæði hollt og gott fyrir
líkamann.
___ Fótboltamörkin og börnin:
Færum þyngdar-
punktinn niður
Reynir Þór Valgarðsson
verslunarmaður: Nei, ekki lengur.
Þrefaldur meðalakstur Hjalta leigubílstjóra?
Atvinnubifreiðastjóri skrifar:
Hinn 30. okt. sl. skrifar Hjalti
Garðarsson leigubílstjóri og notar
slík orð i þeim merku skrifum að
varla er hægt að segja aö það sé okk-
ur atvinnubifreiðastjórum til sóma.
Hafa margir bílsijórar einnig haft
á orði, að þessi skríf séu stétt okkar
ekki til sóma, en ofangreindur
Hjalti telst greinilega ekki til okkar
stéttarfélaga (a.m.k. ekki eftir skrif-
um hans að dæma).
Þeirri spurningu mætti varpa
fram hvort Hjalti njóti kannski sér-
fræðiaðstoðar við það að geta ekið
„leigubifreið" tjónlaust i heila 55.000
kOómetra á ári - brosandi?
í gegnum árin höfum við atvinnu-
bifreiðastjórar ekki þurft að slá okk-
ur til riddara með blaðaskrifum um
það hversu mikið við ökum. Hvað
þá heldur að tiltaka tjónlausan akst-
ur. - Hins vegar fagnar hver og einn
ætíð tjónlausum akstri sínum.
Ef til vill hefur Hjalti slika „eðal“
hæfileika sem pistill hans virðist
bera vott um, að hann telur sig þess
umkominn að gefa öðrum þau ráð
að best sé að bíða og brosa, hvort
heldur beðið er eftir rauöu ljósi í
umferðinni eða þeim er hann vísar
til í sínum merku skrifum. - Að lok-
um óska ég öllum velfamaðar veg-
Ólafur Ólafsson verslunarmaður:
Ég er þokkalega duglegur við það.
Kvikmyndir, evrópskar og amerískar
- tæknin og öfundin
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Nokkuð hefur borið á því á um-
liðnum árum að fótboltamörk, sem
standa víða í bæjum og í höfuðborg-
inni, hafi fallið yfir börn og veitt
þeim áverka.
Slysin gerast oftast með þeim
hætti að krakkar hanga á þverslán-
um og sveifla sér þar með ofan-
greindum afleiðingum. Mörkin eru
þung og geta því veitt mikið högg
þeim er fyrir verður. Og þungt högg
á höfuð eða brjóstkassa getur orsak-
að mikil meiðsl og alvarleg.
Fólk verður að taka sig á og
ganga frá þessum mörkum þannig
að þau verði hættulaus bömum.
Vitaskuld em til færar leiðir i þeim
efnum. En staðreyndin er að hlutföll
markanna era ekki rétt. Ég á við að
faéra þarf þyngdarpunktinn niður til
mótvægis við hæðina. Það á að gera
með þvi að hafa þann hluta smíö-
innar sem liggur á jörðinni úr sver-
ara efhi (rörum) og aö láta hliðam-
ar ná þetta hálfan til einn metra aft-
ur fyrir þau og fylla síðan rörin með
steypu, þ.e.a.s. í þeim tilvikum þar
sem gegnheilt efni er ekki notað.
Einnig má hugsa sér að neðri
þversláin færðist aftur sem þessu
nemur, og festa síðan netið með
spotta sem strengdur yrði milli
stanganna neðanverðra. Þá hefur
a.m.k. tekist að færa þyngdarpunkt
marksins neðar og til réttara horfs
og gera það þar með öruggara og
áreiðanlega stöðugra þegar bömin
gleyma aðvörunarorðum hiima full-
Gunnar Gunnarsson verslun-
armaður: Já, ég hef tekið lýsi alveg
frá því ég man eftir mér.
„Þær amerísku hafa vinninginn og hafa haft frá upphafi,“ segir bréfritari. -
Úr myndinni Jurassic Park eftir Spielberg.
Sigurður Stefánsson skrifar:
Tilefni þessa pistils míns er viðtal
við formann Kvikmyndasjóðs, Bryn-
dísi Schram, sem útvarpað var um
sl. helgi. Þetta var hið besta spjall,
fróðlegt og skemmtilegt í alla staði.
Var heldur ekki við öðra að búast
þegar Bryndís er annars vegar, svo
lifandi og skemmtileg er hún í við-
tölum. Ég læt þó innihald þessa
spjalls liggja milli hluta, nema einn
þátt þess, þ.e. um kvikmyndir, sem
rétt var vikið að í spjallinu við
Bryndísi.
Bryndís sagðist vera mjög hrifin
af evrópskum kvikmyndum og hinn
evrópski heimur stæði sér nær en
hinn ameríski. Hins vegar sagðist
Bryndís játa aö tæknin í hinum
amerísku kvikmyndum væri öf-
undsverð, og þar stæðu evrópskar
kvikmyndir ekki hinum amerísku á
sporði. - Satt og rétt hjá Bryndísi.
Það er einmitt hérna sem á brýt-
ur í kvikmyndagerð í dag. Tæknin,
brellumar, tónlist og hljóð leika
stóran þátt í kvikmyndum. Og vei
þeim kvikmyndaframleiðendum
sem ekki hafa þessa þætti í góðu
lagi. - Myndir þeirra eru vart boð-
legar. Og þær verða aldrei vinsælar.
Það er reyndar á allra vitorði aö
amerísku kvikmyndimar era marg-
falt betur gerðar en þær evrópsku,
þótt ein og ein mynd frá Evrópu telj-
ist líka frábær. Þær eru þó undan-
tekningar frá reglunni. Þær amer-
ísku hafa vinninginn og hafa haft
allt frá upphafi. Það er hins vegar
staðreynd að landlæg öfund ein-
stakra menningarvita hér hefur ríkt
út í amerískar myndir vegna yfir-
burðatækni í þeim.
Það er mál til komið að viður-
kenna þetta, og það gerði Bryndís
líka á sinn einlæga og opinskáa hátt
í nefhdu útvarpsviðtali. Það er hins
vegar ekki á færi allra að viður-
kenna þennan leiða ágalla. Allra síst
hinna fanatísku menningarvita sem
sjá alltaf rautt þegar amerískt er
annars vegar.
Staðreyndin er að hlutföll fótboltamarkanna eru ekki rétt, segir m.a. í bréf-
inu.
orðnu og taka til við að príla í þeim.
Fátt er það sem sjómenn hræðast
meira en er ísing hleðst utan á skip
þeirra. Við það raskast nefnilega
jafnvægishlutfóll skipsins sem síðan
leiðir til að skipunum hvolfir. - Ein-
mitt vegna þess að þyngdarpunktur
þeirra var kominn ofar en eðlilegt
má telja.
En hve míkið viljum við gera?
Hve mikils metum við öryggi bam-
anna okkar? Og hve langt era menn
reiðubúnir að ganga til að afstýra
slysum með fyrirbyggjandi aðgerð-
um?
verslunarmaður: Eg tek lýsispillur.
Betri frétta-
flutningur
Kristín skrifar:
Ég vil hrósa DV fyrir betri
fréttaflutning að undanförnu. Ég
á sérstaklega við mál eins og t.d.
mál mannsins í Njarðvík sem
saklaus var sakaður um þjófnað.
Smágrein var birt um þetta þ. 3.
nóv. sl. Síðan var bætt úr þessu
4. nóv. sl. með 4 dálka grein og
áberandi fyrirsögn. Einnig um
mennina sem fluttu peningatösk-
ur frá bensinstöð i banka I Mos-
fellsbæ og voru ákærðir en mál-
ið uppgötvaðist ekki fyrr en
nokkram árum seinna. Og um
konurnar á Akureyri sem voru
þjófkenndar og reknar. Hver er
skaðinn orðinn hjá þessu fólki og
fjölskyldum þess? Óbætanlegm-
fyrir lífstíð. Ábyrgðin er mikil í
okkar litla þjóðfélagi. Hver er
næstur? Kannski einhver úr
ykkar fjölskyldu? Nóg er spill-
ingin og neðanjarðarstarfsemin,
þótt ekki sé logið sökum á fólk
vísvitandi. Jafhvel af einhverj-
um sem er bara illa við viðkom-
andi.
Hermennska eða
hryðjuverk?
Magnús skrifar:
Það er mikill munur á því að
gegna hermennsku og því að
stunda hryðjuverk. Ég get ekki
betur séð af fréttum gegnum tíð-
ina en Rabin hinn ísraelski hafi
verið hermaður fyrst og fremst,
en hins vegar hafi Arafat lagt á
ráðin, eða að minnsta kosti sam-
þykkt hryðjuverk sem Palestínu-
menn framkvæmdu víðs vegar
um heim. Þarna er mikill munur
á. Það er hveijum manni heiður
að því að hafa gegnt hermennsku
fyrir þjóð sína, en skömm er að
hryðjuverkum hvar sem þau eru
stunduð.
Hvar er Bessi
Bessason?
Einar Árnason hringdi:
Mér blöskra allar tilnefning-
amar um væntanlega forseta-
frambjóðendur. Ekki vegna van-
trausts á þessum aðilum heldur
þessum fjölda sem stungið er
upp á. - En með leyfí að spyrja:
Hvar er Bessi Bessason í þjóöfé-
laginu til að öllu sé nú til skila
haldið; nafni við hæfi og gríninu
sem einkennir umræðuna um
embættið?
Forsetaembættið:
Vinstri menn
fyrir Davíö
Katrín skrifar:
Þvi fleiri vinstri menn sem
finnast sem líklegir frambjóð-
endur til forsetaembættisins, því
meiri líkur eru á að Davíð Odds-
son verði sigurvegari, bjóði hann
sig fram. Mér datt þetta í hug
þegar ég sá frétt um að Ólafur
Ragnar Grímsson væri orðaður
við framboð. Tveir slíkir, jafnvel
þrír, til að reyta fylgi hver af öðr-
um, og Davíð stendur eftir sem
sigurvegari, kannski með svo
sem 20% atkvæða, en hvað gerir
það til?
Hví má ekki lækka
tekjuskatt?
Araór hringdi:
Ég skora á launþegasamtökin
og vinnuveitendur að þrýsta á
ríkisvaldið í komandi viðræðum
um launamálin að lækka tekju-
skattinn veralega. Tekjuskattur-
inn er kominn út í öfgar. Og miö-
að við að Sjálfstæðisflokkurinn
hefur margsinnis haft það á
sinni stefnuskrá að afnema
tekjuskattinn í áföngum, eins og
það var orðað, ætti að vera auö-
velt að taka nú til við þessa fram-
kvæmd. Viöskiptablaðiö hefur
sýnt fram á að lækkun tekju-
skatts er vel mögulegur. Og það
er einmitt mergurinn málsins.