Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Side 13
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
13
T«l*l» 4« Vllíi l.i;(i \
ÍSLENSKI LISTINN ER BÍRTÚRI DV Á HVERJUM LAUGARDEGI
OG SAMA DAG ER HANN FRUMFLUTTUR Á BYGLJUNNI FRÁ
KL. 16-18. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGS-
KVOLDUM MILLI KL. 20 OG 22.
Kynnir: jón axel Olafsson
GOTT lím«PI
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
ÍSLENSKI LISTINN ER SAMVINNUVERKEFNI BYLGJUNNAR, DV OG COCA-COLA A (SLANDI. LISTINN ER NIÐURSTAÐA SKOÐANAKÖNNUNAR SEM ER FRAM-
KVÆMD AF MARKAÐSDEILD DVIHVERRIVIKU. FJÖLDI SVARENDA ER A BILINU 300-400, A ALDRINUM14-35 ARA AF ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEK-
IÐ MK) AF SPILUN A ISLENSKUM ÚTVARPSSTÖÐVUM. ÍSLENSKI LISTINN BIRTIST A HVERJUM LAUGARDEGI í DV OG ER FRUMFLUTTUR A BYGJUNNI A
LAUGARDÖGUM KL16-18. LISTINN ER BIRTUR AÐ HLUTAI TEXTAVARPI MTV SJÓNVARPSSTÖÐVARINNAR. ÍSLENSKIUSTINN TEKUR ÞATT IVALI „WORLD
CART" SEM FRAMLEIDDUR ER AF RADIO EXPRESS (LOS ANGELES. EINNIG HEFUR HANN AHRIF A EVRÓPULISTANN SEM BIRTUR ER f TÓNLISTARBLAÐ-
INU MUSIC & MEDIA SEM ER REKIÐ AF BANDARÍSKA TONLISTARBLAÐINU BILLBOARD.
Þetta er önnur kvikmynd Gísla
Snæs Erlingssonar. Stuttur frakki
var fersk gamanmynd og ágætlega
heppnuð sem slík en er aðeins góð
æfing í samanburði við Benjamín
dúfu sem er gerð eftir einhverju
besta handriti sem skrifað hefur
verið fyrir íslenska kvikmynd.
Sögusviðið er afmarkað og þröngt
og í byrjun virkar myndin dálítið
þvinguð en fljótt taka að leysast úr
læðingi ýmis öfl í texta og mynd-
máli og hið þrönga sögusvið verð-
ur að litlum heimi þar sem hvers-
dagslegt mannlífið verður að ólgu i
lifsins öldusjó.
Leikstjórn Gísla Snæs er ákaf-
lega styrk og er ég viss um að hann
á ekki lítinn þátt í að drengirnir
fjórir, Sturla Sighvatsson, Gunnar
Atli Cauthery, Snorri Sturluson og
Hjörleifur Bjömsson, eru stórkost-
legir í hlutverkum sínum. Svo eðli-
legir eru þeir og lifandi í leik sín-
um að erfitt er að imynda sér að
þeir séu öðruvísi í raun og vera.
Tæknilega er myndin ákaflega
vel unnin, Sigurður Sverrir Páls-
son er hættur að koma manni á
óvart, frábær kvikmyndataka, eins
og stundum sést í Benjamín dúfu,
er það sem maður ætlast til af hon-
um og hann bregst ekki. Það sama
er að segja um Kjartan Kjartans-
son hljóðmann, nafn hans er gæða-
stimpill á hljóðvinnslu. Þá er vert
að geta tónlistar Ólafs Gauks sem
fellur vel að efninu og er þegar
best lætur hluti af atburðarásinni,
Bernskuárin lifa oft sterkast í
minningunni, enda eru það árin
þegar ímyndunaraflið er hvað
sterkast og ævintýraþráin mest.
Benjamín og félagar hans, Andrés,
Baldur og Roland, era samnefnar-
ar fyrir stráka á aldrinum tíu til
tólf ára, gæddir mikilli lífsorku,
sem brýst fram í ærslafullum leik,
eru tilfinninganæmir og hjálpsam-
ir, einnig auðsærðir og fljótir að
reiðast þegar sá gállinn er á þeim.
Þessum tilfinningum eru þeir að
vísu mismunandi mikið gæddir,
hver um sig. Það þarf gott handrit,
góðan skilning og góða túlkendur
til að koma þessum mótsagna-
kenndu tilfinningum til skila svo
að áhorfandinn hrífist með. Allt
þetta hefur Benjamín dúfa, sem er
einstaklega gefandi kvikmynd.
Sagan um sumarið í lífi Benja-
míns Þorsteinssonar, 12 ára, er
rifjuð upp af honum þegar hann er
sjálfur orðinn faðir og heimsækir
gamla hverfið sitt. í byrjun sum-
arsins er lífið leikur, drengirnir
klæðast riddarabúningum, kalla
sig Reglu rauða drekans og heita
því að vera sannir riddarar og
berjast gegn ranglæti með réttlæti.
Það koma brestir í samstöðuna og
einn þeirra hverfur á braut og
verður meðlimur í annarri reglu.
Þar með hefst atburðarás sem á
eftir að vera greypt í minningunni
en ekki mega ungu riddararnir
alltaf vera að því að leika sér. Þeir
standa við heit sitt um að berjast
gegn ranglæti með réttlæti á eftir-
minnilegan hátt þegar kviknar í
gömlu húsi bestu vinkonu þeirra,
Guðlaugar gömlu.
BfLASALAN
BUK
SKEIFUNNI 8 - SÍMI 568-6477
MMC GT 3000 24v doc ‘93,
5 g., 2 d., perluhv., ek. 53.000 km.
V. 3.350.
Toyota 4-Runner V6 3000 ‘91,
sjálfsk., 5 d., hvítur. Ek. 108.000.
V. 2.100.
Volvo 440 2000 ‘89, 5 g„ 4 d„
steingr., ek. 126.000 km.
V. 680.000.
Nissan Patrol díesil 2800 ‘91,
5 g„ 5 d„ rauður/grár, ek. 122.000
km. V. 2.850.000.
Peugeot 205 1100 ‘92,
5 g„ 5 d„ blágrár, ek. 57.000.
V. 680.000.
Chevrolet Corsica 2000 ‘92,
sjálfsk., 4 d„ gullsans., ek. 34.000
km. V. 1.250.000.
Pontiac Grand-am 2400 ‘93,
sjálfsk., 4 d„ blásans., ek. 85.000.
V. 1.750.000.
Honda Sonata 2000 ‘95, sjálfsk.,
4 d„ dökkgr., ek. 15.000 km.
V. 1.680.000.
Toyota Corolla XL 1300 ‘88, 4 g„
4 d„ steingr., ek. 104.000 km.
V. 420.000.
eins og kvikmyndatónlist á að
vera.
Á stuttum tíma hafa tvær ís-
lenskar kvikmyndir í hæsta gæða-
flokki litið dagsins ljós. Benjamín
dúfa fer eins og Tár úr steini auð-
veldlega í flokk bestu íslensku
kvikmynda sem gerðar hafa verið.
Leikstjóri: Gísli Snær Eriingsson.
Framleiðandi: Baldur Hrafnkell Jóns-
son.
Handrit: Friðrik Erlingsson eftir eigin
skáldsögu.
Kvikmyndataka: Sigurður Sverrir
Pálsson.
Tónlist: Ólafur Gaukur.
Leikmynd og búningar: Karl
Aspelund.
Hljóðeftirvinnsla: Kjartan Kjartans-
son.
Aðalleikarar: Sturla Sighvatsson,
Hjörleifur Björnsson, Sigfús Sturlu-
son, Gunnar Atli Cauthery, Kári Þórð-
arson og Guðrún Þ. Stephensen.
Riddarar Rauðu reglunnar munda vopn sín. Sturla Sighvatsson og Sigfús
Sturluson í hlutverkum sínum.
Chevrolet Camaro ‘89,
5 g„ 2 d„ blár.
V. 1.450.
VW Golf GL1600 ‘88,
5 g„ 5 d„ gylltur, ek. 123.000 km.
V. 500.000.
Stjörnubíó/Bíóhöllin: ★★★i.
Dagar
leiks og
alvöru