Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
15
Hagur heimilanna
Við lestur íjárlagafrumvarpsins
fyrir árið 1996 verður sú hugsun
áleitin að enn eigi að bjarga hag
ríkissjóðs með því að skerða hag
þeirra lægstlaunuðu, aldraðra og
fatlaðra. Með þessum aðgerðum
ætlar ríkissjóður að spara 2,5 millj-
arða króna.
Það er gert með því að halda
óbreyttum persónuafslætti næsta
ár, sem skerðir 60.000 kr. mánaðar-
legar tekjur um 1,4%. Skertar eru
tekjur aldraðra og öryrkja með þvi
að rjúfa tengingu bóta við launa-
kjör í landinu. Einnig á að reikna
mönnum lífeyristekjur, án tillits
til þess hvort þeir fá þær eða ekki,
og draga það frá bótum almanna-
trygginga.
Ég spyr því: hvað um heima-
vinnandi fólk sem ekki hefur
greitt í lífeyrissjóð? Á það nú enn
að gjalda fyrir sín ólaunuðu störf á
heimilunum?
Sjálfvirkni á annan veginn
Þarna er ríkissjóður að fara inn
Samvinnumenn á Selfossi og
Suðurlandi hafa verið fremur
hljóðir um þær miklu breytingar
sem orðið hafa í rekstri Kaupfé-
lags Árnesinga nú á mjög skömm-
um tíma. Menn spyrja hver annan:
„Er verið að rústa þá fjölþættu
starfsemi sem kaupfélagið byggði
upp og stóð með miklum blóma
um áratuga skeið? Eða er með
ráðningu nýja kaupfélagsstjórans
Þorsteins Pálssonar kominn til
sögunnar annar kraftaverkamað-
ur eins og Egill heitinn Thoraren-
sen, þótt með öðrum formerkjum
sé?“
Það fer ekki fram hjá okkur fé-
lagsmönnum að kominn er til
starfa hjá K.Á. athafnasamur
framkvæmdastjóri sem hefir í
farteskinu djarfar hugmyndir og
þorir að tala fyrir þeim og fram-
kvæma. Hvort þær eiga síðan eftir
að ganga upp er önnur saga sem
tíminn einn mun leiða í ljós. Sel-
fossbúar og aðrir Sunnlendingar
fylgjast spenntir með og raunar
landsmenn allir.
Nýjar áherslur
Undir forustu þessa nýja leið-
toga koma fram áður óþekktar
áherslur, eins og þær að telja fé-
laginu hag í því að tengjast meira
en verið hefur einkarekstrinum
hér á staðnum, bæði með beinni
Kjallarinn
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir
fyrrv. alþingismaður
Kvennalistans
á nýjar brautir með því að afnema
tengsl lífeyris og launakjara sem
gilt hafa frá árinu 1946. Rétt er að
Kjallarinn
Hafsteinn Þorvaldsson
fyrrv. framkvæmdastjóri Sjúkra-
húss Selfoss
samvinnu í verslunarrekstri og
með útleigu á húsnæði til fjölda
einkafyrirtækja. Allir sem eitt-
hvað hugsa og ekki eru fjötraðir í
gamlar hefðir og fordóma sjá að
slík samvinna á heimaslóð okkar
Sunnlendinga er beinlínis lifs-
spursmál og óumflýjanleg ef við
ætlum að halda okkar hlut í versl-
un og þjónustu gagnvart höfuð-
borgarsvæðinu. Sem samvinnu-
maður er ég stoltur af stjórn Kaup-
minna á afleiðingar þess þegar
vísitölubinding launa var afnum-
in, á svipuðum tíma og verðtrygg-
ingu var komið á. Þá var verðbólg-
£m á mikilli ferð og talið nauðsyn-
legt að koma á verðtryggingu á
peningamarkaði til að sporna gegn
því að sparifé glataðist á verð-
bólgubálinu og til að auka almenn-
an sparnað.
Það tókst að vísu en skuldirnar
hækkuðu líka svo margfalt að
margir gátu ekki staðið í skilum
og misstu allar eigur sínar. Nægir
að minna þar á „Sigtúnshópinn“
svokallaða.
Með öðrum orðum: nú á að leika
félags Arnesinga að hafa þorað að
taka þá áhættu sem hér hefur ver-
ið lagt út í.
Áhættan er auðvitað mikil,
bæði félagsleg og fjárhagsleg og
fyrir þær persónur sem að henni
standa f.h. félagsheildarinnar.
Maður getur sér þess til að ef til
vill hafi verið um rangar fjárfest-
ingar að ræða á einhverjum tíma.
Óaröbærar rekstrareiningar sem
haldið var áfram með of lengi, til
þess m.a. að halda uppi atvinnu-
starfsemi á staðnum. En það sem
straumhvörfunum veldur er fyrst
og síðast hin harða samkeppni við
höfuðborgarsvæðið.
Ein glæsilegasta verslunin
Við Sunnlendingar eigum nú
eina glæsilegustu stórverslun
landsins sem er Vöruhús K.Á. Til
að efla enn meir þetta verslunar-
hús ákvað stjórn K.Á. að bjóða
sama leikinn og þegar vísitölu-
trygging launa var afnumin, nema
nú eru það aldraðir og öryrkjar
sem lenda í súpunni. Þó að verð-
bólgan sé lág um þessar mundir þá
munar aldraða og öryrkja um það
ef tekjur þeirra lækka um 3-4% á
sama tíma og aðrir tekjuhærri
telja sig illa setta með 15% hækk-
un launa.
Eftir að staðgreiðsla skatta var
tekin upp hefur verið í gangi há-
vær gagnrýni á þá tvísköttun sem
greiðslur í lífeyrissjóð hafa mátt
sæta. Áður voru gjöld í lífeyrissjóð
undanþegin tekjuskatti.
Fyrir ári síðan voru samþykkt
lög sem áttu að afnema þessa tví-
sköttun í áfóngum á tveim árum.
Nú á að ná þessari sjálfsögðu leið-
réttingu til baka með þessum árás-
um á kjör lífeyrisþega, sem koma
verst við þá sem lægstar hafa tekj-
urnar. Slíkt er ekki hægt að sætta
sig við.
Afnám ekkjulífeyris
Nú ætlar ríkisstjórnin að taka
heldur betur á í jafnréttismálun-
um!!! Spara á 5 milljónir króna á
næsta ári með því að fella niður
ekkjulífeyri. „Með þessari breyt-
ingu er komið á fullt jafnræði milli
kynja gagnvart bótagreiðslu vegna
fráfalls maka“ (tilvitnun í fjárlfrv.)
Náð er jafnréttinu með því að
fella niður þau réttindi sem konur
hafa haft umfram karlmenn, en
ekki méð því að karlar fái þarna
sömu réttindi og konur sem hefði
verið ólíkt notalegra. Verður það
framlag ríkisstjórnarinnar til jafn-
réttismála?
einkaframtakinu í þjónustu og
verslun í þetta hús. Þar hefur nú
verið opnuð þjónustumiðstöð sem
hlotið hefur nafnið Kjarninn. Ell-
efu fyrirtæki eru þar nú og eru þá
samtals 21 fyrirtæki til húsa í
þessu stórhýsi félagsins, auk þess
sem á neðstu hæðinni eru bifreiða-
stæði fyrir 60 bifreiðar.
Auk þessarar miklu uppsveiflu
á Selfossi, og er þó ekki allt upp
talið, er K.Á. að stórefla starfsem-
ina og endurskipuleggja vítt 'og
breitt í Suðurlandskjördæmi, með
höfuðáherslu á verslunar- og
ferðaþjónustu. Það er aftur komið
bros á andlit okkar Sunnlendinga
og starfsfólk K.Á. Til að styrkja
þessi áform kaupfélagsmanna ger-
um við best í því að sækja verslun
og þjónustu tU fyrirtækja í heima-
byggð.
Hafsteinn Þorvaldsson
Með og
á móti
Þátttaka félagsliða í EM í
handknattleik
Ómöguleg
án einingar
„Þátttaka ís-
lenskra fé-
lagsliða í Evr-
ópukeppnum í
handknattleik
orkar tvímælis
að mínu mati. Ef
einangrað lið og
einangruð
stjórn, án nokk-
urs stuðnings, á so’n, ’form.
að taka ákvörð- handknattleiks-
un um það hvort deildar Vals.
á að taka þátt I
Evróukeppni eða ekki þá er ekki
hægt annað en vera á móti þvf.
Það gengur alls ekki upp að
taka þátt í þessum keppnum ef öll
vinnan á að lenda á nokkrum
mönnum. Það sem er aftur á móti
að gerast hjá okkur í Val núna
varðandi leikina gegn Braga er að
fjölmennur hópur hefur staðið f
undirbúningi vegna þessara leikja
og þá er þetta ekkert mjög flókið.
Ef hægt er að mynda breiðan og
samhentan hóp, þar sem ríkir
mikfl eining og fólk nennir að
vinna að verkefninu, þá er þetta
vel hægt.
Handknattleiksdeild Vals er
skuldug. HeUdarskuldir fyrir síð-
asta leiktímabU voru um 27 mUlj-
ónir. Fyrir þetta tímabil voru þær
18 miUjónir. Þær verða vonandi
ekki meira en 12-13 mUljónir eftir
tímabUið og aUar þær skuldir
verða í formi langtímalána tU 15
ára. Þá fer að verða lífvænlegt í
handknattleiksdeild Vals. -Lang-
mestur hluti þessara skulda er tU-
kominn vegna þátttöku Vals í Evr-
ópukeppni undanfarin ár. Skuld-
imar eru ekki tilkomnar vegna
greiðslna tU leikmanna. Mín af-
staða er i stuttu máli þessi: Ef fjár-
hagsleg staða leyfir þá tökum við
þátt í Evrópukeppni en ef hún
leyfir það ekki þá tökum við ekki
þátt.“
Nauösynlegt
fyrir félögin
„Eins og þró-
unin hefur orðið
í handboltanum
í dag eru lands-
liðin nær ein-
göngu farin að
spila á stórmót-
um og æfinga-
leikir hafa að
mestu verið
aflagðir. Félags-
liðin þurfa auð-
vitað að taka
þátt í svona keppni til að sjá hvar
þau standa á alþjóðlegan mæli-
kvarða.
Það var hins vegar mjög slæmt
sem gerðist fyrir nokkrum árum
er svæðisskiptingin var afnumin.
Þátttakan var dýr fyrir en hefur
aukist gífurlega. Slæmi hluturinn
við Evrópukeppnirnar er kostnað-
urinn. Hins vegar er þetta kær-
komið tækifæri fyrir leikmenn til
að koma sér á framfæri ef liðin
lenda á móti andstæðingum þar
sem atvinnumennska er stunduð.
Einnig er þetta upplyfting fyrir
leikmenn félagsliðanna sem ekki
komast í landsliðshópinn hverju
sinni. Síðan má ekki gleyma þvi
að þátttaka í Evrópukeppnum
styrkir mórölsku hliðina hjá fé-
lagsliðunum. Menn eru að takast
á við verkefni á erlendri grund og
fá meiri innsýn í hlutina. Félags-
lega séð er þetta mjög nauðsynlegt
en málið er erfiðara viðfangs þeg-
ar kemur að fjármálahliðinni."
-SK
Greinarhöfundur vitnar í fjárlagafrumvapið fyrir 1996 og sparnaðarhugmyndir sem þar koma fram.
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir
Hvað er að gerast
í Kaupfélagi Árnesinga?
Með öðrum orðum: nú á að leika sama
leikinn og þegar vísitölutrygging launa
var afnumin, nema nú eru það aldraðir
og öryrkjar sem lenda í súpunni.“
„Allir sem eitthvað hugsa og ekki eru
fjötraðir í gamlar hefðir og fordóma sjá
að slík samvinna á heimaslóð okkar
Sunnlendinga er beinlínis lífsspursmál og
óumflýjanleg ... “
Einar Þorvarð-
arson, þjálfari
Aftureldingar.