Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Síða 29
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
37
Eggert Kristinsson sýnir á
tveimur stöðum.
Tvær sýningar
í Árnessýslu
Um þessar mundir sýnir Egg-
ert Kristinsson frá Tjaldanesi
málverk sín á tveimur stöðum í
Árnessýslu. Önnur sýningin er í
verslum KÁ í Þorlákshöfh og
hin er í Kaffi Lefoli á Eyrar-
bakka.
Sýningar
Eggert málar með rússnesk-
um litum og á rússneskan striga
og eru verkin unnin í olíu. Öll
eru málverkin unnin á síðustu
þremur árum og er þar að finna
margar staðarmyndir. Sýningin
á Eyrarbakka stendur eitthvað
fram eftir vetrinum en sýningin
í KÁ stendur til 18. nóvember.
Flow í
Rósenberg-
kjallaranum
Heitasta hljómsveit norðan
heiða, Flow, heimsækir Reykja-
vík og heldur tónleika í Rósen-
bergkjallaranum í kvöld.
Félagsvist
Félag eldri borgara efnir tO
félagsvistar í Risinu í dag kl.
14.00. Göngu- Hrólfar fara í sína
venjulega göngu um bæinn kl.
10.00 í fyrramáliö.
Basar
Kvenfélag Grensássóknar
verður með köku- og munabasar
í safnaraðheimOinu á morgun
kl. 14.00. Tekið á móti munum
miOi kl. 17.00 og 19.00 í kvöld og
eftir ki. 10.00 í fyrramálið.
Átthagafélag Strandamanna
heldur haustfagnað í Gullhamri,
sali I Iðnaðarmannahúsinu við
Hallveigarstíg 1, í kvöld kl.
22.00.
T-World í Norðurkjallara
Á vegum Listfélags MH verð-
ur efnnt til tónleika í Norður-
kjaOaranum í kvöld. Hljómsveit-
in T-World leikur.
Samkomur
Sveitaball á
Seltjarnarnesi
Á vegum Stúdentaráðs Há-
skólans verður efnt til sveita-
balls með Sýrupolkahljómsveit-
inni Hringirnir (voru áður í
Júpiter) og Skárr’ en ekkert í fé-
lagsheimilinu Seltjarnamesi.
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga
Hana nú í Kópavogi verður í
fyrramálið kl. 10.00. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.00.
Skítamórall á Gauknum
Hljómsveitin SkítamóraU
heldur í kvöld og annað kvölkd
tónaleika á Gauki á Stöng.
KÍN 3 i | 8
-leikur að Itera! «5 E C
Vinningstölur 7. október 1995
1 *7*9»23»25*26*27 Eldri úrslit á sfmsvara 568 1511
Innanlandsflug Flugleiða
Húsavík
Akureyrl
Egilsstaðir J
Ari í Ögri:
Irsk stemning
írski skemmtikrafturinn Tich Fri-
er skemmtir í kvöld og næstu kvöld á
Ara í Ögri, Ingólfsstræti 3. Hann leik-
ur og syngur irska og skoska þjóð-
laga- og pubtónlist en auk þess leikur
hann alþjóðleg vinsæl lög eftir heims-
þekkta flytjendur, Bítlana, Elton
John og fleiri. Auk þessa prógramms
er Tich Frier þekktur „stand up“
spaugari og verða án efa nokkrir góð-
ir látnir fjúka.
Tich Frier hefur um langt skeið
Skemmtanir
skemmt um allan heim og notið vin-
sælda. Lög með honum hafa orðið
vinsæl í útvarpi og hefur hann kom-
ið fram í fjölmörgum sjónvarpsþátt-
um. Einstæð rödd og beinskeyttur
húmor hefur skipað honum á bekk
með vinsælustu „eins manns hljóm-
sveitum“ sem völ er á í dag. Hefur
hann gefið út þrjár plötur og auk þess
leikið með mörgum hljómsveitum á.
litríkum ferli.
Tich Frier leikur á gítar, syngur og segir brandara.
Hálka víða
á vegum
Hálka er víðast hvar á öllum veg-
um á Suðvesturlandi, Vesturlandi
og Vestfjörðum og á heiðum og fjall-
vegum í öðrum landshlutum en
Færð á vegum
hálkulaust er á Suður- og Suðaust-
urlandi. Snjór er á sumum leiðum,
til dæmis má nefna Holtavörðu-
heiði. Á Vestfjörðum er snjór á
heiðum og hálka víðast hvar. Á
Austurlandi er Mjóafjarðarheiði
ófær vegna snjóa. Fjarðarheiði er
fær en snjór er á veginum. Á Suður-
landi er Gjábakkavegur ófær vegna
snjóa. Allir hálendisvegir eru orðn-
ir ófærir vegna snjóa.-
m Hálka og snjór
án fyrirstööu
Lokaö
® Vegavinna-aögát
[D Þungfært
@ Öxulþungatakmarkanir
^ Fært fjallabílum
Systir Gunnars
og Arnþórs
Á myndinni er lítil stúlka sem
fæddist á fæðingardeild Landspítal-
ans 2. nóvember kl. 21.51. Hún var
Barn dagsins
3960 grömm að þyngd og 54 sentí-
metra löng. Foreldrar hennar eru
Þómý Elín Ásmundsdóttir og Guð-
mundur Júlíusson. Hún á tvo bræð-
ur, Gunnar Júlíus, 11 ára, og Arn-
þór Fannar, 5 ára.
Tony Leong leikur ieigukerru-
stjórann í Cyclo.
Leigukerru-
stjórinn
Regnboginn og Hvíta tjaldið
fara af stað með kvikmyndahátíð
i dag og verður sérstaklega vand-
að til hátíðarinnar í tilefni 100
ára afmælis kvikmyndarinnar.
Bæði verða fleiri myndir og hún
stendur í lengri tíma. Boöið er
upp á nýjar eða nýlegar myndir
sem vakið hafa athygli og sígild-
ar perlur í bland.
Kvikmyndahátíðin hefst í
kvöld með sýningu á Cyclo, en
aðeins eru nokkrar vikur síðan
hún vann til aðalverðlaunanna á
Kvikmyndir
kvikmyndahátíðinni í Feneyj-
um. Myndin gerist í Víetnam nú-
tímans og segir af ungum leigu-
kerrustjóra í Saigon, sem dregst
inn í undirheima borgarinnar
þegar hann lendir í skuld við
glæpalýðinn. Hann hlýðir skip-
unum þeirra i einu og öllu þar
til honum er skipað að drepa, þá
getur hann ekki hugsað sér að
framkvæma verknaðinn, en á
enga aðra möguleika í lífinu.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Clueless
Laugarásbíó: Apollo 13
Saga-bíó: Sýningarstúlkurnar
Bíóhöllin: Hættuleg tegund
Bíóborgin: Dangerous Mind
Regnboginn: Leynivopniö
Stjörnubió: Netið
Gengið
Almenn gengisskráning Ll nr. 267.
10. nóvember 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 64,300 64,620 64,690
Pund 101,480 102,000 101,950
Kan. dollar 47,480 47,770 48,430
Dönsk kr. 11,7410 11,8040 11,8280
Norsk kr. 10,3200 10,3770 10,3770
Sænsk kr. 9,6420 9,6950 9,7280
Fi. mark 15,1600 15,2490 15,2030
Fra. franki 13,1890 13,2640 13,2190
Belg. franki 2,2150 2,2283 2,2311
Sviss. franki 56,5600 56,8700 66,8400
Holl. gyllini 40,6700 40,9200 40,9300
Þýskt mark 45,5700 45,8000 45,8700
ít. líra 0,04032 0,04057 0,04058
Aust. sch. 6,4730 6,5130 6,5240
Port. escudo 0,4329 0,4355 0,4352
Spá. peseti 0,5277 0,5309 0,5296
Jap. yen 0,63800 0,64180 0,63480
írskt pund 103,750 104,390 104,670
SDR 96,47000 97,05000 96,86000
ECU 83,3900 83,8900
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270.
Krossgátan
7 2 T 4 r (d
2
\ó I
IX JT r vr
mmm
PT l 2o Zl
22 2‘i
Lárétt: 1 detta, 8 blað, 9 tryllt, 10 man-
ar, 11 svörð, 12 lagleg, 14 nagli, 16
rigsa, 19 spýja, 20 gauð, 22 bundið, 23
áma.
Lóörétt: 1 hraukar, 2 kropp, 3 planta,
4 ljótt, 5 hreinan, 6 útlim, 7 mikill, 13
hyggja, 15 skaða, 17 fljótfæmi 18 for, 19
áköf, 21 klafi.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 skjól, 6 æf, 8 álögur, 9 ráf, 10
agat, 11 þrumuna, 13 eira, 14 Týr, 15
núna, 17 tá, 19 knappt.
Lóðrétt: 1 sár, 2 klárinn, 3 jöfur, 4
ógaman, 5 lugu, 6 æra, 7 fetar, 11 þekk,
12 nýtt, 14 tap, 16 úa., 18 ás.