Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 4
4
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 DV
fréttir
^ OFramkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins hættir störfum:
Astæðan var samskipta-
örðugleikar við formanninn
- mikil eftirsjá að Guðjóni, segir landlæknir sem á sæti í Almannavarnaráði
„Það er veruleg eftirsjá að þeim
manni því hann hefur staðið sig
mjög vel. Hans þáttur í uppbyggingu
Almannavama á íslandi er ómetan-
legur,“ segir Ólafur Ólafsson, land-
læknir og stjórnarmaður í Al-
mannavamaráði, um uppsögn Guð-
jóns Petersens, framkvæmdstjóra
Almannavama ríkisins.
DV hefur heimildir fyrir því að
uppsögn Guðjóns tengist samskipt-
um hans við formann Almanna-
varnaráðs, Jíafstein, forstjóra Land-
helgisgæslunnar. Guðjón hafi lengi
verið ósáttur við afskipti Hafsteins
af störfum sínum og stefnu. Þetta
hafi vafið upp á sig og á endanum
hafi Guðjón ekki talið sig hafa nauð-
synlegan starfsfrið og því sagt upp
störfum.
Uppsögn Guðjóns er óvænt en
hann er nú 57 ára að aldri og heim-
ildarmenn blaðsins benda á að sá
starfsvettvangur sem hann nú velur
sé einhver sá ótryggasti sem til er.
Bæjarstjórar séu reglubundið í
lausu lofti atvinnulega séð háðir því
hverjir skipa meirihluta hverju
sinni.
DV hefur heimildir fyrir því að
óánægja sé innan Almannavamar-
áðs vegna þessara málaloka. Ólafur
Ólcdsson vildi ekki tjá sig um þetta
mál og þegar blaðamaður spurði
hann hvort honum væri kunnugt
um ástæður þess að Guðjón hætti
nú svaraði Ólafur með langri þögn.
Guðjón Petersen vildi heldur ekki
tjá sig um málið.
„Ég vil ekkert tjá mig um þetta
mál. Ég fer nú til nýrra starfa sem
ég hlakka tii að takast á við,“ segir
Guðjón.
Hafsteinn Hafsteinsson, formaður
Almannavamaráðs, vUdi ekki stað-
festa'að ágreiningur hefði leitt tU
uppsagnar Guðjóns.
„Ég kannast ekki við neinn
ágreining og óska honum velfarnað-
ar í nýju starfi," segir Hafsteinn.
- Varst þú sáttur við störf Guð-
jóns sem framkvæmdastjóra Al-
mannavarna ríkisins?
„Ég hef aðeins unnið meö Guð-
jóni í tvö ár og það era aðrir færari
um að dæma hans störf en ég,“ seg-
ir Hafsteinn og vUdi ekki svara
spurningunni frekar.
-rt
Setti möl
kringum bíl
veiðimannsins
Daníel Úlafsson, DV, Akranesi:_
Maður frá Akranesi fór ný-
lega á rjúpnaveiðar í Borgar-
flrði og var á stað þar sem
bannað er að skjóta rjúpu.
Lagði hann bU sínum skammt
frá og hélt á veiðar.
Þegar hann kom aftur að
bílnum hafði bóndinn á bænum
mokað upp möl með vélskóflu
og hlaðið kringum bUinn svo að
útilokað var að hreyfa hann.
Þaö vUdi manninum tU happs
að björgunarsveitarmenn voru
á æfingu þarna skammt frá og
aðstoðuðu þeir manninn við að
grafa bílinn út..
Fatapökkun:
Fýrsta sending-
in til Bosníu
Daníel Ólafsson, ÐV, Akranesi:_
Fatapökkunárstöð Rauða
Kross íslands var formlega tek-
in í notkun á Vemduðúm
vinnustað á Vesturlandi á
Akranesi 10. nóvember.
Fatnaður, sem RK hefur tekið
á móti til þessa, hefur verið
sendur tU Danmerkur tU pökk-
unar. RK tók við 50 tonnum af
fatnaði 1994. Nú verður breyt-
ing á. Fatnaðurinn fer til Akra-
ness þar sem hann verður þveg-
inn, flokkaður og pakkaður.
Fjórir starfsmenn vinna við
pökkunina og fyrsta sendingin
af fatnaði fer tU Bosníu. Fata-
pökkunin er stærsta verkefni
vinnustaðarins, en þar starfa
nú 20 manns.
Húnaflói: ~
Rglguveidi á ný
Guðfinnur Rnnbogason, DV, Hójinayjjc
Starfsmenn Hafrannsóknar-
stofnunar könnuðu rækjumið í
HúnaUóa um síðustu helgi. Far-
ið á fjórum heimabátum og í
framhaldi af þeirri rannsókn
hefur Húnaflóinn nú verið opn-
aður fyrir rækjuveiöum á ný
Eins og fyrr hefur fram komið
reyndist mikiö magn þorskseiða
vera á slóðinni um mánaðarmót-
in september/október. Hitastig
sjávar viö botn hefur nú lækkað
um tvær gráður frá því sem þá
mældist. Það með öðru mun
skýra brotthvarf seiðanna nema
í Steingrímsfirði innan við
Grímsey. Þar verður lokað
svæði fyrst um sinn.
Styrktartónleikar:
Bíður eftir
hjarta- og
lungna-
skiptum
Olgeir Helgi Ragnarsson, DV, Borqamesi:
Fólk í Borgarfirði stendur að
styrktartónleikum á sunnudag
til stuðnings Halldóri Bjama
Óskarssyni, 19 ára Borgfirðingi
frá Krossi í Lundarreykjadal,
sem nýlega fór til Svíþjóðar
ásamt foreldrum sínum og bíð-
ur þar eftir nýju hjarta og lung-
um. Halldór er fæddur með al-
varlegan hjartagalla.
„Það eru mjög margir sem
standa að þessu,“ sagði Hugrún
Óladóttir, kennari við grunn-
skólann á Kleppjámsreykjum,
við DV. KennaÉþr við skólann
eiga frumvæðið að tónleik-
unum en tvö yngri systkini
Halldórs Bjama stunda nám í
Kleppjámsreykjaskóla. Tónleik-
arnir hefjast kl. 15.30 á sunnu-
dag. Allar tekjur af þeim renna
til styrktar Halldóri Bjarna.
„Hugmyndin vaknaði þegar
fréttist að þau væm að fara út.
Það er vitað mál að það er mjög
dýrt fyrir fjölskyldur að standa
1 svona auk þess sem þau þurfa
m.a. að fá fólk til að standa fyr-
ir búinu á meöan,“ segir Hug-
rún. Þaö hefur verið opnaður
reikningur á nafni HaUdórs í
Búnaðarbankanum í Borgar-
nesi. Númer reikningsins er
2806.
Rúðan brotn-
aði í ástar-
leiknum
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Lögreglunni í Eyjum var til-
kynnt um rúðubrot nýlega í
versluninni Fatabónusi í Dríf-
andahúsinu við Bámstíg í Vest-
mannaeyjum. Það þykir varla í
frásögur færandi þó rúða sé
brotin í miðbænum um helgar
en þarna var um óviljaverk að
ræðá.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar var þar par á ferð
sem lét vel hvort að öðm við
Fatabónus. Ástríðuhitinn varð
það mikill að þegar þau hölluðu
sér upp að rúðunni lét hún und-
an og brotnaði. Ekki varð fólk-
inu meint af óhappinu.
Mjólkandi hryssur
í Austur-Landeyjum
Jón Benediktsson, DV, Hvolsvelli:__
Eiður Hilmisson, bóndi á Bú-
landi í Austur-Landeyjum, hefur
hafið framleiðslu á kaplamjólk og er
hún væntanleg í Hagkaup um helg-
ina. Kaplamjólk er mjög næringar-
rík fæða og hefur oft verið notuð
sem fæða fyrir ungböm sem hafa
mjólkurofnæmi. Þórarinn Leifsson,
kennari í Hólaskóla, sem hefur látiö
rannsaka kaplamjólk, segir að hún
sé mun líkari móðurmjólkinni en
kúamjólk.
Kaplamjólkin verður seld ógeril-.
sneydd. Hún er fituminni og sætari
en kúamjólk og létt í maga. Hér
áður fyrr drukku margir kapla-
mjólk sem ekki þoldu kúamjólk og
döfnuðu vel.
Hryssur hafa einungis tvo spena
og notar Eiður mjaltatæki sem em
ætluð fyrir geitur og sauðkindur.
Hryssumar þurfa góðan undirbún-
ing við mjaltir og næði á meðan á
þeim stendur. Selji hryssan vel þá
mjólkar hún 1-2 lítra í mál. Eiður er
með 8 mjólkandi hryssur og ganga
folöldin undir þeim, sem gefur
möguleika á sveigjanlegum mjalta-
tíma svo að ekki skaðar að sleppa úr
mjöltum.
Þar sem hún er notuð sem ung-
bamafæða, að sögn Þórarins, er lík-
legt að í framtíðinni skapist mögu-
leikar á útflutningi kaplamjólkur.
Rétt er þó að benda á að rannsókna
er þörf áður en af útflutningi verð-
ur. Bæði þarf að athuga hryssurnar
og hvaða áhrif mjaltir hafa til lengri
tíma litið með tilliti til júgurheil-
brigðis og næringarástands og
kanna markaðinn áður en af út-
flutningi getur orðið.
Eiður Hilmisson ao undirbua mjaltir.
uv-myna uon oen.
Kaplamjólk á markað í höfuðborginni:
236% söluaukning á árinu, annað árið í röð
■0-