Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
Hljómsveitin Rolling Stones:
711 atlögu við einmenningstölvuna
í PÉRÍWHgRfi i HfiA8 im SOUhffi OF
; SUMM6R S rtCflfi AN0 'fH^SSNí
3ur wnar cah *>*.*># Æk ™
excw ?o .RW Vit * ÍU>CK >; ROftHSIa?
CAiíStí iN SLfcfc*-'* TOWNr
THfclW S HiiSt H0 PiACíi,.ttr t, gfo«$ HÖSfiNO fywöw'
NC
HfcY! TWNK. Trtfc C.Yifc' IS KM£H? A^LACg RfcVL>LLrf *OM
ÖUT WfcifcRfi ': UVIsTfcflB GAAfefTCí;-PU?‘ iS COMHíOMiSfc •aCS.UTfCI*:
Wfitu ip wmt CAH a i«vjr uofbo
EXCfiFT ÍO VJNC iCiR 'i R!ÖCV W W- Ö. vNL’
; CAfcSRí m SLSfiPjy LO*J0^ TOW*
íHHiifi'S Nfcp&ver wfSHnm mam
W ' W | %N
HfcY! SAIB YH* VAíVíl;; ii§ <Í|Lfiiv Tiífj CRjfc-CvC- ■'
*:iL SHCi/T Aí*U? -MWimmMii CU W.Xjm t'fckftÁifc 'AT.AtU ••*»•: •$$
wat, WHAT CAN A KVtf- ÍpV X?
EXCfiW TO ÍfYÖ KWfc-i; *v SfÖfife »AíW
CAUSt iN SLitíW tOUXW ibVH
THfiRfi'S Nft feCSC «?R A sjnfe* K«2HI'íNöJYW
QH, ROY'
STRfcfcT, OH, »CY
TILBOÐ I
Ný mynd og ein mynd úr flettirekka, kr. 350
TILBOÐ II
1 lítri ís og videospóla, kr. 500
Þeir sem tóku virkan þátt í Bítla-
æðinu og Stonesæðinu á sjöunda
áratugnum verða raunverulega að
klípa sig í handlegginn til að trúa
því. Gömlu keppinautarnir eru byrj-
aðir að berjast á ný. Paul, George og
Ringo eru í óðaönn að skapa nýtt
Bítlaæði og Jagger, Richards og fé-
lagar svara fyrir sig eins og best
þeir geta: með nýrri plötu sem kom
í verslanir í byrjun vikunnar og síð-
an tölvudiski sem er væntanlegur í
næstu viku.
Platan heitir Stripped. Snemm-
sumars fóru að berast af því fréttir
að hún væri væntanleg með haust-
inu og hún átti að innihalda óraf-
magnaðar upptökur af gömlum og
nýjum lögum með fjórmenningun-
um. Síðastliðið sumar tók hljóm-
sveitin upp órafmagnaðan þátt fyrir
MTV í Paradisoklúbbnum í Amster-
dam. Flestir bjuggust við að tónlist-
in frá þeirri upptöku yröi á Stripp-
ed. Þegar platan kom út í síðustu
viku kom í ljós að einungis voru tvö
lög á henni hljóðrituð í Paradiso,
Street Fighting Man og Dead Flow-
ers. Hin voru hljóðrituð í Tokyo
(The Spider and the Fly, Wild Hor-
ses, Slipping away, Love in Vain og
Little Baby eftir Dixon), í París
(Like a Rolling Stone, Shine a Light,
Let It Bleed og Angie) og í Lissabon
(Not Fade Away, I’m Free og Sweet
Virginia).
Viðtöl og myndefni
Þótt lögin fjórtán séu góðra gjalda
verð og sannkallaður fengur fyrir
hvem aðdáanda Rolling Stones er
það annað á plötunni sem vekur enn
meiri athygli. Hún er jafnframt
tölvudiskur sem á eru ríflega hundr-
að og þrjátíu megabæti af ýmiss
konar fróðlegu efni um fjórmenn-
ingana, stutt viðtal við hvern
þeirra, textar plötunnar Stripped
með sýnishornum laganna og einnig
bútur af myndbandi meö „aðallag-
inu“, Like a Rolling Stone, sem gef-
ið hefur verið út á smáskífu. Fjöldi
mynda er af Mick Jagger, Keith Ric-
hards, Charlie Watts og Ronnie
Wood, kynning á þeim plötum
hljómsveitarinnar sem gefnar voru
út á áttunda, níunda og tíunda ára-
Rolling Stones: Ekki lengur eingöngu í geislaspilurum aðdáendanna heldur
einnig í geisladrifum tölvanna.
1f5 I Coke kr. 119
Orville örbylgjupopp, kr. 119
Samlokur (tilbúnar)
og súperdós af Coke, kr. 200
tugnum og eitt og annað til viðbót-
ar.
Til að geta notið þessa efnis þarf
að setja geislaplötuna í diskadrif
Apple- eða PC-tölvu. Sé um PC að
ræða þarf hún að vera 386, 486 éða
Pentium, að minnsta kosti 25
megariða, með fjögurra megabæta
innra minni, tveggja hraða geisla-
drif og Soundblaster eða sambæri-
legt hljóðkort. Best er vitaskuld að
tölvan sé sem stærst og öflugust. Þá
kemur mynd- og hljóðefnið best út.
Þetta tölvuefni á Stripped-geisla-
diskinum gefur honum heilmikið
meira gildi en ef um venjulega
geislaplötu væri að ræða. Því er þó
fyrst og fremst ætlað að kynna
fyrsta tölvudisk (CD-ROM) hljóm-
sveitarinnar í fullri lengd. Hann
heitir Rolling Stones Voodoo Loun-
ge og kom út erlendis sjöunda nóv-
ember. Hann er sem fyrr sagði
væntanlegur í verslanir hér á landi
í næstu viku.
Á þessum margmiðlunardiski
hljómsveitarinnar kennir fjöl-
margra grasa. Þar eru áður óútgefin
lög, myndefni af hljómsveitinni á
hljómleikaferö sem aldrei fyrr hefur
komið fyrir almenningssjónir, við-
töl og fleira. Sá. sem stýrir
tölvumúsinni getur komist inn í
svefnherbergi, baðherbergi, bóka-
safn og á barinn þar sem hægt er að
velja sér drykk, búa til skjámynd
fyrir tölvuna og velja við hana bak-
grunnstónlist af Voodoo Lounge
geislaplötunni með hljóðblöndunum
sem ekki hafa verið gefnar út áður.
Á bókasafninu er hægt að velja efni
til að skoða og hlusta á með gömlum
blústónlistarmönnum sem höfðu
áhrif á liðsmenn Stones í gamla
daga. Síðast en ekki síst má nefna
athyglisverða mynd þar sem tölvu-
notandinn er nánast kominn á svið
með bestu rokkhljómsveit í heimi.
Það efni var unnið þannig að örlít-
illi myndþandstökuvél var komið
fyrir í gleraugum Rons Woods og
síðan var tekið upp það sem fyrir
augu hans bar á sviðinu á Olympia
í París.
Fáeinir margmiðlrmardiskar sem
þessi hafa verið gefnir út áður.
Prince reið á vaðið í fyrra með diski
sem hefur selst í um áttatíu þúsund
eintökum og þykir allgóður. Þá kom
út diskurinn Highway 61 Interactivé
með Bob Dylan fyrr á þessu ári og
hefur hann fengið góðar viðtökur. í
nýjasta hefti tölvublaðsins CD ROM
Review var fjallað um Rolling Sto-
nes Voodoo Lounge diskinn. Efni
hans fær góða umsögn og þykir
komast nokkuð nálægt því að not-
andinn sé í góðu samkvæmi með
liðsmönnum hljómsveitarinnar.
Einkunnin sem Voodoo Lounge fær
er sjö af tíu mögulegum.
Samantekt: ÁT
Fullt af góðum tilboðum
Alltaf meö nýjustu myndirnar
1 pk. Pox, frítt meö öllumvideospólum
IS - VIDEO
GRENSÁSVEGI 50 -
SÍMI 588 4455