Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 Hljómsveitin Rolling Stones: 711 atlögu við einmenningstölvuna í PÉRÍWHgRfi i HfiA8 im SOUhffi OF ; SUMM6R S rtCflfi AN0 'fH^SSNí 3ur wnar cah *>*.*># Æk ™ excw ?o .RW Vit * ÍU>CK >; ROftHSIa? CAiíStí iN SLfcfc*-'* TOWNr THfclW S HiiSt H0 PiACíi,.ttr t, gfo«$ HÖSfiNO fywöw' NC HfcY! TWNK. Trtfc C.Yifc' IS KM£H? A^LACg RfcVL>LLrf *OM ÖUT WfcifcRfi ': UVIsTfcflB GAAfefTCí;-PU?‘ iS COMHíOMiSfc •aCS.UTfCI*: Wfitu ip wmt CAH a i«vjr uofbo EXCfiFT ÍO VJNC iCiR 'i R!ÖCV W W- Ö. vNL’ ; CAfcSRí m SLSfiPjy LO*J0^ TOW* íHHiifi'S Nfcp&ver wfSHnm mam W ' W | %N HfcY! SAIB YH* VAíVíl;; ii§ <Í|Lfiiv Tiífj CRjfc-CvC- ■' *:iL SHCi/T Aí*U? -MWimmMii CU W.Xjm t'fckftÁifc 'AT.AtU ••*»•: •$$ wat, WHAT CAN A KVtf- ÍpV X? EXCfiW TO ÍfYÖ KWfc-i; *v SfÖfife »AíW CAUSt iN SLitíW tOUXW ibVH THfiRfi'S Nft feCSC «?R A sjnfe* K«2HI'íNöJYW QH, ROY' STRfcfcT, OH, »CY TILBOÐ I Ný mynd og ein mynd úr flettirekka, kr. 350 TILBOÐ II 1 lítri ís og videospóla, kr. 500 Þeir sem tóku virkan þátt í Bítla- æðinu og Stonesæðinu á sjöunda áratugnum verða raunverulega að klípa sig í handlegginn til að trúa því. Gömlu keppinautarnir eru byrj- aðir að berjast á ný. Paul, George og Ringo eru í óðaönn að skapa nýtt Bítlaæði og Jagger, Richards og fé- lagar svara fyrir sig eins og best þeir geta: með nýrri plötu sem kom í verslanir í byrjun vikunnar og síð- an tölvudiski sem er væntanlegur í næstu viku. Platan heitir Stripped. Snemm- sumars fóru að berast af því fréttir að hún væri væntanleg með haust- inu og hún átti að innihalda óraf- magnaðar upptökur af gömlum og nýjum lögum með fjórmenningun- um. Síðastliðið sumar tók hljóm- sveitin upp órafmagnaðan þátt fyrir MTV í Paradisoklúbbnum í Amster- dam. Flestir bjuggust við að tónlist- in frá þeirri upptöku yröi á Stripp- ed. Þegar platan kom út í síðustu viku kom í ljós að einungis voru tvö lög á henni hljóðrituð í Paradiso, Street Fighting Man og Dead Flow- ers. Hin voru hljóðrituð í Tokyo (The Spider and the Fly, Wild Hor- ses, Slipping away, Love in Vain og Little Baby eftir Dixon), í París (Like a Rolling Stone, Shine a Light, Let It Bleed og Angie) og í Lissabon (Not Fade Away, I’m Free og Sweet Virginia). Viðtöl og myndefni Þótt lögin fjórtán séu góðra gjalda verð og sannkallaður fengur fyrir hvem aðdáanda Rolling Stones er það annað á plötunni sem vekur enn meiri athygli. Hún er jafnframt tölvudiskur sem á eru ríflega hundr- að og þrjátíu megabæti af ýmiss konar fróðlegu efni um fjórmenn- ingana, stutt viðtal við hvern þeirra, textar plötunnar Stripped með sýnishornum laganna og einnig bútur af myndbandi meö „aðallag- inu“, Like a Rolling Stone, sem gef- ið hefur verið út á smáskífu. Fjöldi mynda er af Mick Jagger, Keith Ric- hards, Charlie Watts og Ronnie Wood, kynning á þeim plötum hljómsveitarinnar sem gefnar voru út á áttunda, níunda og tíunda ára- Rolling Stones: Ekki lengur eingöngu í geislaspilurum aðdáendanna heldur einnig í geisladrifum tölvanna. 1f5 I Coke kr. 119 Orville örbylgjupopp, kr. 119 Samlokur (tilbúnar) og súperdós af Coke, kr. 200 tugnum og eitt og annað til viðbót- ar. Til að geta notið þessa efnis þarf að setja geislaplötuna í diskadrif Apple- eða PC-tölvu. Sé um PC að ræða þarf hún að vera 386, 486 éða Pentium, að minnsta kosti 25 megariða, með fjögurra megabæta innra minni, tveggja hraða geisla- drif og Soundblaster eða sambæri- legt hljóðkort. Best er vitaskuld að tölvan sé sem stærst og öflugust. Þá kemur mynd- og hljóðefnið best út. Þetta tölvuefni á Stripped-geisla- diskinum gefur honum heilmikið meira gildi en ef um venjulega geislaplötu væri að ræða. Því er þó fyrst og fremst ætlað að kynna fyrsta tölvudisk (CD-ROM) hljóm- sveitarinnar í fullri lengd. Hann heitir Rolling Stones Voodoo Loun- ge og kom út erlendis sjöunda nóv- ember. Hann er sem fyrr sagði væntanlegur í verslanir hér á landi í næstu viku. Á þessum margmiðlunardiski hljómsveitarinnar kennir fjöl- margra grasa. Þar eru áður óútgefin lög, myndefni af hljómsveitinni á hljómleikaferö sem aldrei fyrr hefur komið fyrir almenningssjónir, við- töl og fleira. Sá. sem stýrir tölvumúsinni getur komist inn í svefnherbergi, baðherbergi, bóka- safn og á barinn þar sem hægt er að velja sér drykk, búa til skjámynd fyrir tölvuna og velja við hana bak- grunnstónlist af Voodoo Lounge geislaplötunni með hljóðblöndunum sem ekki hafa verið gefnar út áður. Á bókasafninu er hægt að velja efni til að skoða og hlusta á með gömlum blústónlistarmönnum sem höfðu áhrif á liðsmenn Stones í gamla daga. Síðast en ekki síst má nefna athyglisverða mynd þar sem tölvu- notandinn er nánast kominn á svið með bestu rokkhljómsveit í heimi. Það efni var unnið þannig að örlít- illi myndþandstökuvél var komið fyrir í gleraugum Rons Woods og síðan var tekið upp það sem fyrir augu hans bar á sviðinu á Olympia í París. Fáeinir margmiðlrmardiskar sem þessi hafa verið gefnir út áður. Prince reið á vaðið í fyrra með diski sem hefur selst í um áttatíu þúsund eintökum og þykir allgóður. Þá kom út diskurinn Highway 61 Interactivé með Bob Dylan fyrr á þessu ári og hefur hann fengið góðar viðtökur. í nýjasta hefti tölvublaðsins CD ROM Review var fjallað um Rolling Sto- nes Voodoo Lounge diskinn. Efni hans fær góða umsögn og þykir komast nokkuð nálægt því að not- andinn sé í góðu samkvæmi með liðsmönnum hljómsveitarinnar. Einkunnin sem Voodoo Lounge fær er sjö af tíu mögulegum. Samantekt: ÁT Fullt af góðum tilboðum Alltaf meö nýjustu myndirnar 1 pk. Pox, frítt meö öllumvideospólum IS - VIDEO GRENSÁSVEGI 50 - SÍMI 588 4455
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.