Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Blaðsíða 22
- þar blandast saman gleði og sorg og líf og dauði á ótrúverðugan máta Fyrstu tvo dagana í nóvember ber reykelsisilm að vitum þess sem heimsækir Oaxaca-hérað í fjöllun- um sunnan Mexíkóborgar. Þá eru dagar hinna dauðu haldnir hátíðleg- ir; allrasálnamessa og allraheilagra- messa samkvæmt almanaki kirkj- unnar, en i vitund Mexíkóbúa eiga helgisiðirnir tengdir þessum dögum sér rætur í menningarheimi Azteka og fLeiri þjóða frumbyggja er réðu lögum og lofum í Mexíkó fyrir komu spænsku kristniboöanna. Upphaf daga hinna dauðu má rekja til hinn- ar sammannlegu löngunar til að skyggnast handan landamæra lífs og dauða. Hátíðahöldin hefjast: þann 31. okt- óber þegar fjölskyldur versla hin hefðbundnu dauðradagablóm, “cempazuchitl”, reykelsi úr copal, sætabrauð með mannsmyndum úr marsipani, kerti, mat og skreyttar hauskúpur úr sykri. Þessu, ásamt fleiri hlutum nátengdum látnum ástvini, er síðan komið fyrir á altari sem fjölskyldan útbýr i stofunni eða jafnvel utan dyra. Altarið er venju- lega borð eða skápur sem sveipaður er dúk eða útklipptum þunnum pappír. Þar á eru fórnargjafimar Guelaguetza dansarar. settar. Þær samanstanda af ljúffengum réttum sem þóknuðust hinum látna, sem og uppáhalds víntegund hans og síga- rettupakka, ef vill. Meðal réttanna er jafnan hið þekkta “mole" Oaxacabúa, eins- konar sambland svartr- ar baunakássu og súkkulaðís. Samkeppni í altaragerð Mæðgin í kirkjugarðinum í Cocotlán. Eitt sérstæðasta birt- ingarform dauðradýrk- unar í Mexíkó er án efa altarisgerðin. Þar er haldin samkeppni í alt- arisgerð þessa daga og öltur eru 1 hverju skoti, jafnt innan sem utan dyra - i heimahúsum, verslunarmið- stöðvum og veitingahúsum. Er undirritaðan bar að garði í Oaxaca fyrir réttu ári var rúmur sólarhringur fram að allrasálna- messu og hvarvetna mátti sjá papp- írshauskúpur, sykurhauskúpur og beinagrindur úr tré. Fólk gerði sér glaðan dag. Hljómsveitir léku á að- altorginu, sem skáld á borð við D.H. Lawrence hafa líkt við miðpunkt al- heimsins. Og þar dönsuðu karl- menn, klæddir skrautlegum íjaðra- búningi frumbyggja, þjóðdansinn “guelaguetza”, en konumar döns- uðu hinsvegar ananasdansinn með ananas á höfðinu. Á dauðastundinni dreymdi Fri- edrich Nietzsche um að flytjast til Oaxaca, því þar taldi hann sig myndu ná heilsu á ný. Fleiri þekkt- ir rithöfundar á borð við fyrmefnd- an D.H. Lawrence hafa búið þar og rómað borgina og Aldous Huxley lét i ljós þá skoðun að Santo Domingo kirkjan þar væri með þeim fegurstu í heimi. Óhætt er að taka mark á þeim orðum því fólk þarf sannarlega að sjá gullskrúðið þar inni til að trúa eigin augum. Oaxaca, framborið VA-HA-KA, hét áður Huaxyacac á náhuatl, máli hinna herskáu Azteka er lögðu borg- ina undir sig um 1400 e.Kr., eftir mikla bardaga við frumbyggja Zapo- teka og Mixteka. Nafnið mun tákna “Nærri stað akasíuttjánna”, en fjall það er trónir yfir borginni og Spán- verjar nefndu Monte Albán, heitir svo einmitt vegna hins hvíta litar blómstrandi akasíutijánna í hlíðum þess. Oaxaca liggur í dalverpi í háljöll- um Sierra Madre 400 kílómetrum norðaustan við Mexíkóborg. Þar kallast saga innbyggja á átakainik- inn hátt á við sögu nýlendunnar og færaskýringarmyndir að ræða. Zapotekar og Mixtekar háðu hins- vegar styrjaldir um þriggja alda skeið áður en þeir sameinuðust gegn Aztekum. Undir lok þess skeiðs var Monte Albán yfirgefln borg. Henni var breytt í grafreit yf- irstéttarinnar, en höfuðborg héraðs- ins færð til Mitlá. Því er ekki að undra að þegar Spánverjar komu til Monte Albán hafi þeir talið borgina nekrópólis, borg afturganga þar sem mannfómir hefðu gengið alla leið. Mitlá ætti í raun allt eins skilið slíka nafnbót því heiti þeirrar borg- ar merkir beinlínis “staður hinna dauðu”. Kirkjugarðsför á miðnætti Konur i Oaxaca selja dauðradagsblom. nútímans. Áætlað er að í borginni búi u.þ.b. 500.000 manns, en ekkert manntal er til að staðfesta þá ágisk- un. Á fjallinu Monte Albán eru hvað best varðveittar pýramídarústir í Mexíkó. Fjallið er afar sérkennilegt, því engu er líkara en fleygað hafi verið ofan af því til að koma pýra- mídaborginni fyrir. Þar voru um 1930 ósköp venjulegir akrar innan- um gróðri hulda pýramída er litu út einsog hæðir. Er í ljós kom hvaða leyndardóm- um Monte Albán bjó yfir hófust stjómvöld handa við uppgröft með aðstoð bandarískra stjórnvalda, sem ætíð hafa stutt fomleifarannsóknir í Mexíkó. Landið var keypt af bænd- unum og uppgröfturinn stendur í raun enn yfir enn þann dag í dag. Merkustu fundina má hiklaust telja tvær grafir er voru númeraðar 7 og 104.1 fyrrnefndu gröfinni fund- ust fimm hundruð hlutir úr gulli, túrkís, jaði, beini, skornum stein- kristal, perlum og fleiru. Gröf núm- er 7 hefur verið endurbyggð og má sjá þar veggmálverk meðal annars. Gripirnir hafa hinsvegar allir verið fluttir á Mannfræði- og sögusafnið við hlið kirkjunnar gullskreyttu Santo Domingo í hjarta bæjarins. Gröf 104 er einnig prýdd máluðum veggmyndum til að dreifa hugum hinna látnu. Að áliti margra fomleifafræðinga var Monte Albán lækningamiðstöö á blómaskeiði sínu frá fjóröu og fram á sjöundu öld e. Kr. Rökin fyr- ^ir þeirri ályktun em m.a. þau að fundist hafa brot risastórrar vegg- myndar er Spánverjar hugðu vera af dönsumm. í seinni tíð er mynd- imar hafa verið athugaðar nánar hefur komið í ljós að “dansarar” þessir era margir afmyndaðir og auk þess virðist hér vera um líf- Ekki var hægt að yfirgefa Oaxaca á dögum hinna dauðu án þess að koma í kirkjugarð, en þar er gleð- skapur mikill þessa daga. Fólk býð- ur látna ættingja velkomna að stíga uppúr gröfunum stundarkom og bragða á kræsingum, fá sér mezcal og ef til viU eina sígarettu. Hefð er fyrir því að allrasálnamessa skuli tileinkuð látnum bömum, en aUraheil- agramessa hinum fuU- orðnu. Á tímum Az- teka var raunar um heUan mánuð að ræða tileinkaðan hvorum hópnum um sig, en spænsku prelátarnir gátu þjappað þessum minningarathöfnum saman í tvo daga. Þar sem kirkjugarður- inn í Cócotlán er í út- jaðri borgarinnar og þar að auki á ótryggu svæði fyrir ferðamenn ákváðum vér mör- landar að panta ferð með leiðsögmnanni í kirkjugarðinn er hafði verið auglýst vítt og breift um borg- ina. Það rannu á okk- ur tvær grímur þegar í ljós kom að rúturnar vora fimmt- án talsins og aUar þéttskipaðar túr- hestum af ýmsu þjóðemi. Er í kirkjugaröinn kom varð slík örtröð að við komumst ekki inn strax. Það tókst þó að lokum. Þá höföu aUir fengiö hjá leiðsögumann- inum zempazuchitl-blóm, mezcaltár, dauðrabrauð og kerti til aö líta út sem raunverulegir syrgjendur, eða öUu heldur gleðskaparfólk. En held- ur var gleðskapurinn blandinn er inn kom. Þar voru konur er vöktu aUa nóttina yfir leiðum látinna bama sinna í leifturljósabaði mynd- þyrstra ferðamanna úr heimi sem ber sýnUega ekki tilhlýðUega virð- ingu fyrir kringumstæðum sem þessum. í Oaxaca blandast saman gleði og sorg, líf og dauði á þann hátt að enginn verður samur eftir. Ólafur J. Engilbertsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.