Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Blaðsíða 34
42 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 {ibiglingaspjall Eflum félagslíf í skólum Hvað er svona merkilegt við listir og menningu spyrja sumir og eru þá jafnvel að hugsa um einhver lista- verk á safni eða menningu ein- hverra íjarlægra íanda. Svo þarf þó ekki að vera. Listir og menning í framhalds- skólum eru eitthvað það mikilvæg- asta í félagslifi skóla. Þetta snýst ekki bara um það að fara á listasöfn eða fara á kaffihús og hlýða á ljóð og sögur. Auðvitað er þetta allt mjög merkilegt en hvað er það sem flestum ungling- um þykir skemmti- legt? Tónlist! Allir þeir sem leggja stund á tónlist eru listamenn. Mikið er um að öldurhús borgarinnar haldi tónleika og þá ekki síst á þessum tíma árs þegar allar jóla- plöturnar fara að koma út. Vandamálið er hins vegar það að tuttugu ára aldurstak- mark er á flesta staðina. Höfundur er ekki að fara fram á að aldurstakmarkið verði lækkað heldur að ítreka að hægt er að halda fleiri tón- leika í framhaldsskólunum og þá jafnvel í félagsmiðstöðv- unum. Framhalds- skólar ættu að geta unnið meira saman til að bæta þama úr. Félag framhaldsskólanema hefur lagt sitt af mörkum til að sefa hung- ur unglinga í skemmtanir. Til dæm- is heldur það söngvakeppni sín á meðal. Hitt húsið hefur unnið að ýmsum listrænum og menningarleg- um verkefnum. Af hverju ekki að styrkja þennan þátt félagslífs fram- haldsskóla á íslandi frek- ar en gert er? Hægt er að halda ýmiss konar keppni og tónleika og svona er hægt að halda áfram endalaust. Hvert er þá vandamálið? Af hverju er ekki hægt að drífa í þessu? Þessum spurningum er auðsvarað. Nemend- ur eru hreinlega ekki nógu duglegir að stunda félagslíf í skólum sínum. Til eru dæmi þess að varla hafi ver- ið hægt að halda árshátíðir í skólum vegna lélegrar þátttöku. Spyrja má hvort það geti verið að foreldrar leggist gegn því að börn þeirra stundi félagslíf í skólum. Ég verð að segja að mér finnst ólíklegt og reyndar ómögulegt að geta mér til um ástæðu þessa. Mér finnst sem ekki sé hlustað allt of mikið á það sem unglingar hafa að segja og það ekki fullkom- lega virt sem þeir gera. Það hefur og mun í framtíðinni hins vegar breyt- ast til muna eftir blysfórina sem Fé- lag framhaldsskóla stóð fyrir vegna hörmunganna á Flateyri. Það er lýsandi dæmi um hversu öflugir og tillitssamir unglingar eru. Ungdóm- urinn í dag mun erfa landið. Ung- dómurinn í dag er framtíð landsins. Af hverju ekki að hlusta á það sem þeir segja og virða það sem þeir gera. Að endingu vil ég hvetja alla þá sem hafa tækifæri til að taka þátt í félagslífi síns skóla. Ágúst Þór Sigurjónsson, nemandi í Fjölbrauta- skólanum við Ármúla. „Ungdómurinn mun erfa landið," segir Ágúst Þór Sigurjónsson. DV-mynd S ihin hliðin_____________________El Vinnan er skemmtilegust - segir Kiddi Bigfoot Kristján Þór Jónsson eða Kiddi Bigfoot, eins og hann kallast í dag- legu tali, hefur tekið að sér skemmtanastjórn veitingahússins Ömmu Lú. Staðnum hefur verið breytt í diskótek og sér Kiddi um músíkina, auk þess sem hann fær til sín ýmsa aðila meö sýningar. „Það hefur verið mikil aðsókn frá því við opnuðum að nýju og aldur- inn frá 22-25 ára,“ segir Kiddi. Það er diskótekarinn sem sýnir hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Kristján Þór Jónsson. Fæðingardagur og ár:15. mars 1966. Maki: Karólína Margrét Hreið- ars- dóttir. Börn: Þau eru tvö, Hreið- ar, 3ja ára, og Alex- andra, 7 ára. Bifreið: Citroén, árgerð 1989. Starf: Plötusnúður og skemmtana- stjóri Ömmu Lú. Laun: Góð. Áhugamál: Markaðssetning, fjölmiðlar og tónlist. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Aldrei nokkum tíma. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Vinna og vera með fjöl- skyldunni - það er það eina sem ég geri. Hvað flnnst þér leiðinlegast að gera? Að vera í löngu fríi. Uppáhaldsmatur: Mexíkóskur. Uppáhaldsdrykkur: Bristol Cr- eam sérri. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag að þínu mati? Guðmundur Bragason vaxtarrækt- armaður. Uppáhaldstímarit: DV. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan eiginkon- una? Janet Jackson. Ertu hlynntur eða andvigur rík- isstjóminni? Alveg sama. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Janet Jackson. Uppáhaldsleikari: Robin Willi- ams. Uppáhaldsleikkona: Edda Björg- vinsdóttir. Uppáhaldssöngvari: Þorsteinn í Vinum vors og blóma. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Davíð Oddsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Mikki mús. Uppáhaldssjónvarpsefni: Grín- þættir. U^ppáhaldsmatsölustaður: Hard Rock Café. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Enga sérstaka. Hver útvarpsrásanna flnnst þér best? FM 957. Uppáhaldsútvarpsmaður: Maggi Magg. Hvort horflr þú meira á Sjón- varpið eða Stöð 2? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig- mundur Emir Rúnarsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Amma Lú. Uppáhaldsfélag í íþróttum: KR. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að hafa það betra en ég hef haft. Hvað gerðir þú 1 sumarfríinu? Ég tók ekkert sumarfrí. -ELA kraftur. DV-mynd BG Lífið hefur verið erfitt hjá Home Alone snillingnum, Macaulay Culkin, farna mánuði. undan- Macaulay Culkin: r Ovíst hvort hann leikur í fleiri myndum Macaulay Culkin hefur ekki leik- ið í kvikmynd í meira en eitt ár og það er ekki ætlunin hjá honum að leika í nýrri fljótlega. Reyndar hefur Mac ekki þurft að leika i bíómynd til að vera í sviðsljósinu. í júní í sumar skildu foreldrar hans, Pat- ricia Brentrup og Christopher „Kit“ Culkin, og þá hófst sannkallað stríð um börnin. Bæði vildu þau hafa for- ræöið yfir hinum frægu börnum sínum en bæði Mac og bróðir hans, Kieran, hafa leikið í kvikmyndum. Svo illskeytt hefur þessi deila stund- um verið að nágrannar hafa hringt i lögreglu og móðirin hefur fengið sér sérstakan lífvörð. Mál þeirra mun fara fyrir rétt þann 4. desember nk. Saga þeirra er sögð harmleikur því hún snýst um börn og peninga. Macaulay Culkin varð heimsfræg- ur eftir kvikmyndina Home Alone. Hann varð eftirsóttur leikari og all- ir þeir peningar sem hann þénaði gátu gjörbreytt lífsstíl fjölskyldu hans. Sagt er að alla tíð hafi verið spenna milli Mac og fóður hans sem sjálfur hafði ætlað sér að verða leik- ari. Patricia og Christopher eiga sex börn, Dakotu, 17 ára, Macaulay, 15 ára, Kieran, 13 ára, Quinn, 11 ára, Christian, 8 ára, og Rory, 6 ára. Christopher er sagður drykkfelldur og hefur haft slæm áhrif á andrúms- loftið innan veggja kvikmyndastúd- íóa þar sem synir hans hafa verið I vinnu. Þegar hann var gagnrýndur opinberlega vegna þess sagðist hann vera góður faðir sem hugsaði fyrst og fremst um hag barna sinna. Pabbinn fór að heiman Christopher fór að heiman fyrir sjö mánuðum og dvelur á hóteli ná- lægt heimili sínu. Dómari ákvað í sumar, eftir skilnaðinn, að börnin ættu að dvelja hjá móður sinni en heimsækja föður sinn á þeim dögum sem ákveðnir væru. Einnig átti fað- irinn að fá lífeyri en báðir foreldr- arnir hættu í atvinnu sinni til að gerast umboðsmenn barna sinna. Þeir hafa þénað stórar upphæðir í gegnum Macaulay. Vinir fjölskyldunnar segja að börnin líði mjög fyrir skilnað for- eldranna og það ástand sem rikt hef- ur í kringum forræðismálin. Blöðin hafa verið uppfull af fréttum af þessu máli og það hefur komið illa við Mac, sérstaklega þar sem ýmis- legt hefur komið í ljós sem börnin vissu ekki. Christopher Culkin var hippi á ungdómsárum sínum og flutti til Kalifomíu frá New York eftir að móðir hans lést. Culkin ætlaði sér að verða leikari og lék reyndar smá- hlutverk á Broadway árið 1961. Syst- ur hans hefur hins vegar gengið bet- ur í leiklistinni því hún hefur leikið í Die Hard myndunum. Móðir Mac, Brentrup, var hins vegar sveitastelpa sem kynntist hippanum frá New York. Hún var þá nitján ára gömul og það var árið 1974. Patricia Brentmp hafði þá yf- irgefið fjölskyldu sína á Nýja- Englandi, sex bræður og þrjár syst- ur, til að skoða heiminn. Hún dvaldi i litlu þorpi þar sem hún hafði feng- ið vinnu og einn daginn kom þang- að töffari mikill - það var Culkin. Ólust upp í fátækt Brentrup og Culkin ólust bæði upp við mikla fátækt og lifðu sjálf fátæklegu lífi fyrstu sambúðarárin. Árið 1980 fæddist þriðja barnþeirra, drengur sem þau skírðu í höfuðið á Bretanum Thomas Babington Mac- aulay. Fjölskyldan átti heima í þriggja herbergja íbúð í New York og heldur var þröngt um hana. Vinir íjölskyldunnar segja að hún hafi verið ósköp venjuleg þangað til peningarnir fóru að streyma til hennar. Og stríðið er ekki búið...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.