Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Side 16
16
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
„Ég fór í keppnina Miss Europe í
október sl. en í raun er um tvær
keppnir aö ræða fyrir fegurðar-
drottningar auk hennar, það er Miss
World og Miss Universe. Ég myndi
telja að þær tvær síðarnefndu væru
glæsilegri og betur að þeim staðið á
allan hátt. í Miss Europe keppninni
eru stúlkur sem lent hafa í öðru eða
þriðja sæti fegurðarsamkeppni síns
lands þannig að mér hefði fundist
réttara að stúlkan, sem hafnaði í
öðru sæti hér, færi í þá keppni til að
gefa sem flestum tækifæri. Ég mun
taka þátt í Miss Universe í apríl á
næsta ári og er mjög ánægð með
það. Ég hefði þó viljað að íslending-
ar ættu þátttakanda í Miss World
keppninni núna hvort sem það hefði
verið ég eða einhver önnur,“ segir
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, fegurð-
ardrottning íslands, sem nú stundar
skólann af kappi í stað þess að taka
þátt í gleðinni í Miss World keppn-
inni í Suður-Afríku.
„Ég skal viðurkenna að ég er
svekkt yfir því að ekki fór stúlka í
Miss World. Ég hefði miklu frekar
viljað fara í hana en Miss Europe.
Keppnin um ungfrú heim er miklu
betri landkynning heldur en Evr-
ópukeppnin auk þess sem íslensk-
um stúlkum hefur gengið vel í
þeirri keppni. Það var haft eftir
Ólafi Laufdal, sem sér um keppnina,
að norrænt útlit ætti ekki upp á
pallborðið hjá dómurum í Miss
World um þessar mundir. Ég get þá
bent á að ég er ekki með mjög nor-
rænt útlit - þess vegna heföi vel ver-
ið hægt að senda mig í hana. Það er
ekki nokkur vafi að Miss World og
Miss Universe eru stærstu og flott-
ustu keppnirnar,“ segir Hrafnhiídur.
Engir peningar
Ástæða þess að Hrafnhildur fór
ekki í keppnina Miss World er sögð
sú að ekki hafl verið fjármagn til að
kosta hana en þátttökugjald er 300
þúsund krónur, síðan bætist ferða-
kostnaður við. „Það hefði kostað um
hálfa milljón að senda mig í keppn-
ina en ég er þess fullviss að ferða-
málayfirvöid, jafnvel utanríkisráðu-
neytið og fleiri aðilar, hefðu verið
tilbúin að kosta förina."
Hrafnhildur segist ekki vera reið
vegna þessa en viðurkennir að hún
sé hissa. „Mín ósk er sú að betur
verði staðið að þessum málum hér á
landi og að íslensk stúlka fái tæki-
færi til að vera með.“
Miss World keppnin hefur verið
íslendingum að góðu kunn enda
hafa tvær stúlkur, Hólmfríður
Karlsdóttir og Linda Pétursdóttir,
unnið hana. Hólmfríður varð Miss
World árið 1985 og Linda árið 1988.
Þá hafnaði Anna Margrét Jónsdóttir
í þriðja sæti keppninnar. I fyrra fór
Birna Bragadóttir til Suður-Afríku í
Miss World en að sögn Hrafnhildar
voru það sænskir aðilar sem kost-
uðu hana.
Hefði sleppt skólanum
Hrafnhildur var kjörin ungfrú ís-
land í maí sl. og hefur verið áber-
andi í þjóðlífinu síðan. „Þetta hefur
verið skemmtilegur tími,“ segir
hún. „Ég fékk samning við O’Neill
sportvörur í Bandaríkjunum og
starfaði fyrir þá í sumar. Það gaf
mér tækifæri til að vinna við fyrir-
sætustörf en ég dvaldi í Kalifomíu,"
segir hún. „Eftir að ég kom heim
vann ég um tíma í sjoppu og á sól-
baðsstofu. Skólinn byrjaði síðan í
september en þá hófst undirbúning-
ur fyrir keppnina Miss Europe.
Þetta var glæsileg keppni og ágæt-
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, fegurðardrottning Islands, stundar nú nám í Verslunarskóla íslands í stað þess að taka
þátt í Miss World keppninni í Suður-Afríku.
DV-mynd Brynjar Gauti
ég hafa sleppt skólanum í eitt ár.
Það hefði verið gaman að upplifa þá
reynslu."
Hrafnhildur segist ekki hafa feng-
ið mörg störf út á titilinn en hefur
þó verið í nokkrum auglýsingum og
tískusýningum. „Markaðurinn er
ekki stór hér á landi og titillinn Feg-
urðardrottning íslands veitir manni
ekki mörg atvinnutækifæri. Vissu-
lega tekur fólk þó frekar eftir
manni.“
- Hefur titilinn breytt einhverju í
þínu lífl?
„Já, hann hefur auðvitað gert
það. Ég er bæði sjálfstæðari og lífs-
reyndari."
I símsambandi
við kærastann
Mannlíf birti viðtal i haust við
Hrafnhildi og unnusta hennar, Arn-
ar Gunnlaugsson, sem nú starfar
sem atvinnumaður í knattspyrnu í
Frakklandi. Hún segir að þau séu
ennþá saman en sambandið sé þó
bara símleiðis um þessar mundir.
„Hann kemur heim um jólin og þá
hittumst við aftur.“
- En þú hefur ekki hugsað þér að
flytja til hans?
„Það hafa margir spurt mig þess-
arar spurningar en allt er óráðið í
þeim efnum. Ég stefni á að fara út í
vor eftir skólann og reyna fyrir mér
í fyrirsætuheiminum í Mílanó eða í
Frakklandi. Ef það gengur vel er
Enginn íslenskur þátttakandi í Miss World:
gjaman viljað vera með
- segir Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, fegurdardrottning Islands
aldrei að vita hvað framtíðin ber í
skauti sér.“
- En hefur þú orðið vör við nei-
kvætt umtal í þinn garð?
„Ég hef fundið fyrir kjaftasögum
en reyni að láta þær ekki á mig fá.
Ef maður trúir á sjálfan sig er þetta
í lagi. Ég veit hverjir eru vinir mín-
ir og sjálf veit ég hvað er satt og
rétt. Hins vegar er leiðinlegt þegar
fólk, sem ekki þekkir mig, er að
blaðra um eitthvað sem aldrei hefur
átt sér stað. Það þarf sterkan karakt-
er til að bera þennan titil því það er
erfitt að meðhöndla alla þessa at-
hygli. Hins vegar hef ég ekkert
breyst og geri það ekki.“
Á peysufötum
Hrafnhildur segist vonast til að
sömu mistökin verði ekki gerð á
næsta ári og þá muni íslensk stúlka
taka þátt í Miss World keppninni.
„Það þarf líka að bæta mjög aðbún-
að þeirra stúlkna sem fara utan í
keppni. Þetta er dýrt því við þurfum
að stunda líkamsrækt, kaupa mikið
af snyrtivörum, fötum og það safn-
ast þegar saman kemur. Ég fann t.d.
mjög fallegan þjóðbúning áður en ég
fór til Tyrklands. Síðan kom í ljós
að ekki var hægt að borga tryggingu
á honum fyrir mig en þetta var kjóll
upp á eina milljón króna. Ég þurfti
því að fara með peysufot sem pöss-
uðu engan veginn á mig og það var
ekki nógu gott.“
Hrafnhildur segist hafa lent í tólf
stúlkna úrslitum i keppninni Miss
Europe og er fegin að hafa ekki
hafnað í efstu sætum. „Stúlkurnar
sem unnu mega ekki taka þátt í öðr-
um fegurðarsamkeppnum í eitt ár.
Mitt aðalmarkmið er að standa mig
vel í Miss Universe keppninni," seg-
ir Hrafnhildur Hafsteinsdóttir sem
vakti mikla athygli fjölmiðla í Tyrk-
landi, ekki síst þar sem íslendingar
voru að keppa í fótbolta á sama tíma
á móti Tyrkjum. Veðbankar í Ist-
anbul spáðu henni reyndar einu af
efstu sætunum.
-ELA
lega að henni staðið en mér finnst
engu að síður að það hefði átt að
gefa þeim stúlkum sem lentu í öðru
og þriðja sætinu kost á að fara í
hana. Eftir að ég kom heim frá
Tyrklandi, þar sem Miss Europe fór
fram, hef ég veriö að reyna að vinna
upp það sem ég hef misst úr skólan-
um. Ég stefni á að fá góðar einkunn-
ir úr jólaprófunum.”
- En hefði ekki verið erfltt fyrir
þig að fara í Miss World keppnina
út af skólanum?
„Ef ég hefði fengið tækifæri til að
fara í Miss World keppnina myndi
Linda Petursdottir og Hólmfríður Karlsdóttir hafa báðar borið sigur úr býtum í keppninni Miss World. Islendingar
eiga engan þátttakanda í henni núna.