Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Síða 29
JjV LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
Salmonellubakterían um allt land:
29
Þaö eru ekki mörg ár síðan ís-
lendingar héldu að salmonella væri
einangruð við kjúklingakjöt vegna
þess að þar varð hennar fyrst vart.
Nú er komið i ljós að hana er að
finna bæði í sláturhúsum í landinu
og i fiskimjölsverksmiðjum, þvi að
salmonella hefur fundist í fiski-
mjöli.
Sóðaskapur
Staðreyndin er sú að hrikalegur
sóðaskapur og kæruleysi í um-
gengni okkar íslendinga við náttúr-
una er orsökin fyrir því hvemig
salmonellan hefur breiðst út og við-
haldist. Um allt land er að finna
skolpræsi sem ná ekki lengra út en
í fjöruna og þar breiðist óþverrinn
út um allt. Sjófuglar fara í úrgang-
inn, smitast af salmonellu, sem síð-
an berst með saur þeirra um tún og
engi og vatnsból dýra og smitar fé
og jafnvel annan búsmala.
Alveg það sama er að segja um
opna sorphauga. Þá er að finna um
allt land. Það eru ekki mörg ár síð-
an sorphaugum Reykvíkinga í Gufu-
nesi var lokað. Síðan bætast við
fréttir nær árlega um hvemig úr-
gangi hvers konar er fleygt í ár og
læki landsins.
í sumar er leið komu fréttir af því
að sláturúrgangi væri fleygt í
Rangá. Óþverrinn barst niður á
þekkt laxa- og silungaveiðisvæði.
Fyrir ári komu fréttir af því að Ölf-
usá væri blóðlituð. Úrgangur frá
sláturhúsi hafði borist i ána. Ein-
angrað tilfelli? Varla.
Magnús Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri umhverfisráðuneytisins, segir
Sveinbjarnargerði:
Enn í gjörgæslu
Kjúklingabúið í Sveinbjarnar-
gerði í Eyjafirði er dæmi um
hvemig salmonellubakterían get-
ur orðið illsigrandi eða jafnvel
ósigrandi. Það mun h'afa verið
áríð 1979 sem salmonellu varð
fyrst vart í Sveinbjarnargerði.
Síðan hefur hennar orðið vart
ööru hverju. Síðast kom upp al-
varlegt tilfelli í desember í fyrra.
Þá var sett algert dreifingarbann
á kjúklinga frá Sveinbjarnargerði.
Valdimar Brynjólfsson, yfir-
maður Heilbrigðiseftirlits Eyja-
fjarðar, sagði í samtali við DV að
eftir að því dreifingarbanni var
aflétt væri öll kjúklingafram-
leiðsla í Sveinbjai-nargerði undir
mjög ströngu eftirliti.
Þegar kemur að slátrun eru tek-
in sýni úr lifandi fuglum úr
hverju kjúklingahúsinu fyrir sig.
Og strax að lokinni slátrun eru
aftur tekin sýni. Verði vart við
salmonellu verða allir kjúklingar
sem þá hefur verið slátrað að fara
í sérstaka og viðurkennda steik-
ingu sem á að drepa bakteríuna.
Ef sýnin era hins vegar hrein
má senda kjúklingana ósoðna á
markað.
Salmonellu hefur einnig orðið
vart í kjúklingabúum stinnan
fjalla og alveg suður á Suðurnes.
Hins vegar hefur í flestum tilfell-
um tekist að koma í veg fyrir að
bakterían verði viðvarandi. Samt
sem áður er feikilega strangt eftir-
lit núorðið með kjúklingaslátrun
og kjúklingakjöti um allt land.
í viðtali við DV
að á meðan
ástandið væri
svona gætu
menn alltaf átt
von á salmon-
ellusmiti í mat-
vælum.
f samtali við
DV sagði
Brynjólfur
Sandholt yfir-
dýrédæknir að
forvamaátak
hefði lagað
ástandið mjög
mikið varðandi
kjúklinga. Nú
væm tekin sýni
úr þeim áður en
þeir koma til
slátrunar og
áður en þeir
koma í slátur-
húsið. Þar með
segir hann að
líkurnar á að
salmonella finn-
ist í kjötinu sé
mun minni en
áður, jafnvel
nærri hverf-
andi. Þetta er
ekki gert með
sauðfé né annan
Mávar, fýlar og aðrir sjófuglar eru aðal smitberar salmonellubakteríunnar í
vatnsból, bithaga og í þrær fiskimjölsverksmiðja.
búsmala sem kemur til slátrunar.
Talið var að
salmonellan
hefði borist
með sjófugli,
mávum og fýl,
sem lá í loðn-
unni meðan
hún var í þrón-
um. Enginn
veit í hve mikl-
um mæli salm-
onella hefur
verið í fiski-
mjöli hér á
landi. Kaupend-
ur þess erlendis
gera flestir nán-
ast engar kröf-
ur, nema Þjóð-
verjar, að því er
Ingólfur Sig-
urðsson, þáver-
andi aðstoðar-
forstjóri SR,
sagði í samtali
við DV.
Magnús
Jóhannesson,
ráðuneytis-
stjóri í um-
hverfisráðu-
neytinu, segir i
samtali við DV
að ítrekuð
salmonellutil-
felli i matvælum hér á landi geti
stefnt matvælamörkuðum okkar er-
lendis í hættu. Þar em fiskmarkað-
ir ekki síður í hættu en markaðir
fyrir önnur matvæli.
Enn má sjá sjómenn og aðra sem
vinna við fisk ganga um á skítugum
stígvélum í fiskkös. Sömu menn
gætu hafa stigið á salmonellusmitað
sjófugladrit rétt áður en þeir stigu í
fiskkösina. Þetta gerist sem betur
fer fátíðara en áður var en þá var
þetta algilt en er í dag undantekn-
ing. Sóðaleg umgengi um matvæli
er enn til staðar enda þótt ástandið
hafi batnað.
Magnús Jóhannesson segir að það
kosti 10 til 15 milljarða króna að
koma skolpræsamálum landsins í
viðunandi horf. Þá eru sorp-
haugamir ekki taldir með. Þetta
sýnir að langvarandi sóðaskapur og
kæruleysi okkar í þessum málum er
orðið okkur dýrt. Hefðu þessi mál
verið tekin réttum tökum um leið og
aukin þekking og tækni gerði það
mögulegt að lagfæra ástandið stæð-
um við ekki frammi fyrir þeim tug
milljarða kostnaði, sem það kostar
nú að koma þessum málum í viðun-
andi horf. Og á meðan það er ekki
gert getum við hvenær sem er búist
við salmonellusmituðum matvælum
í umferð, að sögn þeirra sérfræð-
inga sem DV hefur rætt við.
Hrossin sem drápust
Ekki eru mörg ár síðan hross
drápust í haga í Landeyjum. Við
skoðun kom í ljós að þau drápust af
salmonellusýkingu sem talin var
komin úr vatnsbóli þeirra og hafði
þangað borist með sjófugli. Þetta at-
vik varð ekki til þess að upp væri
tekið sams konar forvarnarstarf við
slátrun búsmala og gert hefur verið
við kjúklingaslátrun. Að vísu sýndu
rannsóknir árið 1993 að 13 prósent
alifúgla bám með sér salmonellu-
smit, þannig að eitthvað varð að
gera.
Árið 1988 var til nefnd sem kölluð
var salmonellunefnd. Hún var stofn-
uð til að gera úttekt á kjúklingabú-
um landsins og kjúklingasláturhús-
um. Nefndin skilaði mjög svartri
skýrslu um ástandið.
Fréttaljós
Sigurdór Sigurdórsson
í samtali við DV árið 1988 sagði
formaður nefndarinnar, Ingimar
Sigurðsson, að sum kjúklingabúin í
landinu væru hreinustu sóðabæli.
Þess væru dæmi að öll sýni sem tek-
in hefðu verið á kjúklingabúi væm
jákvæð. Mörg bú væru líka í góðu
standi og einnig kjúklingasláturhús-
in.
Upp úr þessu var farið út i það
forvarnastarf að taka sýni úr
kjúklingum áður en þeir koma í
sláturhúsin. Það hefur leitt til þess
að salmonellutilfellum í kjúklingum
hefur fækkað.
Salmonella í fiskimjöli
Árið 1987 kom upp salmonella í
fiskimjöli hjá Sildarverksmiðju rik-
isins á Siglufirði. Mjölið hafði verið
selt til Þýskalands en þar er eftirlit-
ið strangt og þar fannst bakterían.
FYRIR ÞIG
IBICI
Pöntunarsími: 552 0222
Utsölustaðir:
Versl. Joss, Kringlunni Snyrtivöruversl. Brá, Laugavegi Snyrtivöruversl. Sandra, Laugavegi Græna línan, Laugavegi
Versl. Daman, Laugavegi Kjötbúr Péturs, Austurstræti Snyrtivöruversl. Dísella, Austurstræti Snyrtihöllin, Glæsibæ
Videoljónið, Dunhaga Hárgreiðslust. Manda, Hofsvallagötu Hárgreiðslust. Rögnu, Mýraseli Hárgreiðslust. Brúskur,
Höfðabakka Hárgreiðslust. Dóra, Langholtsvegi Apotek Árbæjar Nes Apótek, Olafsvík Apótek, Dalvík Apótek,
Húsavík Apótek Akureyrar Stjörnu Apótek, Akureyri Klettur Vestmannaeyjum Versl. Ynja, Akureyri Versl. Esar,
Húsavík Verslunin Lónið, Hornarfirði Versl. Mai, Selfossi Versl. Heimahornið, Stykkishólmi