Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Qupperneq 35
UV LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
43
„Það fylgir smæð íslenska hag-
kerfisins að lánstraustseinkunn ís-
lendinga er ekki jafnhá og ná-
grannaþjóðanna þótt íslendingar
hafi á hvert mannsbarn jafngóðan
eða jafnvel betri efnahag en flestar
Norðurlandaþjóðirnar. Sveiflu-
kennd útflutningsstarfsemi og fá-
menni veldur því að við fáum ekki
lánshæfiseinkunn í samræmi við
langtímastyrk íslenska hagkerfis-
ins. Þetta þýðir að íslendingum nýt-
ist vel sú sterka staða sem Norræni
fjárfestingarbankinn hefur á alþjóð-
legum lánamarkaði,“ segir Jón Sig-
urðsson, aðalbankastjóri Norræna
fjárfestingarbankans.
Lítið hefur farið fyrir Jóni hér á
landi að undanfömu enda er nokk-
uð síðan hann hætti í pólitík og
sneri sér að stjórn Norræna fjárfest-
ingarbankans, NIB, í Finnlandi. Jón
átti einmitt þátt í að byggja bank-
ann upp á sínum tíma og var full-
trúi íslands í bankastjóm NIB á ár-
unum 1976- 1987 og stjórnarformað-
ur 1984-1986. Blaðamaður DV heim-
sótti hann í stórglæsilegum húsa-
kynnum bankans í miðborg
Helsinki nýlega og átti við hann
spjall um mádefni NIB og íslensk
efnahagsmál.
I viðtalinu kom meðal annars
fram að íslendingar hafa haft góðan
hlut í útlánum Norræna fjárfesting-
arbankans eða um níu prósent af
heildarútlánum bankans innan
Norðurlanda. Jón segir að NIB hafi
hæstu lánshæfiseinkunn hjá öllum
helstu fyrirtækjum í heiminum sem
meta lánstraust stofnana og ríkja og
betra lánstraust en nokkur annar
lántakandi á Norðurlöndum að ríkj-
unum ekki undanskildum. Því sé ís-
lendingum í hag að taka lán hjá
bankanum. v
„Þetta er kannski besta dæmið
um það hópefli sem norrænt sam-
starf getur haft í för með sér,“ segir
Jón.
Umhverfissjónarmið
fara sívaxandi
Markaðslausnir
til áhrifa
Jón segir að efnahagur hinna
norrænu ríkjanna sé einnig góður
og íslendingar hafi notið betra jafn-
vægis, vaxandi framleiðslu og stöð-
ugleika í efnahagsmálum frá árinu
1993. Þetta hafi smám saman mynd-
að grundvöll undir fjárfestingar-
starfsemi.
„Mönnum blandast ekki hugur
um að að baki liggur sú umbótaþró-
un sem varð á árunum 1988-1994
þegar markaðslausnir voru leiddar
til áhrifa á fjármagnsmarkaðinum.
Efnahagsaðstæðurnar fengu að ráða
vöxtum og gengi og fjármagnsmark-
aðurinn var opnaður, samkeppni
aukin og opnað fyrir möguleika
allra fyrirtækja til að hafa sam-
skipti við erlendar lánastofnanir.
Þetta voru ekki óumdeildar ákvarð-
anir en til þeirra má rekja mikil-
vægar skýringar á þvi sem hefur
færst til betri vegar á íslenskum
efnahagsmálum," segir hann.
Stöðugleiki
fær hærri
sess en áður
Jón Sigurðsson er hættur í íslenskri pólitík og hefur snúið sér að stjórn Norræna fjárfestingarbankans, NIB, í
Þegar sótt er um lán til Norræna Helsinki. Hann vill ekki segja af eða á um það hvort hann geti hugsað sér að verða aftur forystumaður í íslenskum
fjárfestingarbankans gerir bankinn stjórnmálum. DV-mynd GHS
Þegar rætt er um innlend málefni
segist Jón ekki vilja kveða upp
neina dóma. Öllum sé ljóst að
spenna hafi verið á vinnumarkaði
að undanförnu. Ekki sé þó vafi á því
að hugarfarsbreyting hafi orðið hjá
verkalýðsforystu og stjórnmála-
mönnum þar sem stöðugleiki í efna-
hagslífi fái miklu hærri sess en
áður.
„Menn hafa einfaldlega gert sér
ljóst að almannahagur er ekki fólg-
inn í því aö fá uppsprengda peninga-
launahækkun heldur vilja menn nú
taka þátt í að leggja traustari grund-
völl, eins og Jón orðar það.
Jón segir að aöildin að Evrópska
efnahagssvæðinu sé snar þáttur i
þessum breytingum. EES-samning-
urinn geri íslendingum kleift að
biða með að sækja um aðild að ESB.
Jón Sigurðsson, aðalbankastjóri Norræna fjárfestingarbankans, um íslensk þjóðmál:
Hagurinn er ekki fólginn í
uppsprengdum launahækkunum
í flestum tilfellum kröfu til þess að
verkefnið, sem lán er veitt til, feli í
sér samstarf milli fyrirtækja eða
yfir landamæri. Til eru undantekn-
ingar frá þessari reglu. Bankinn lán-
ar til eflingar orkukerfum, umhverf-
isvemdar, rannsóknar- og þróunar-
starfsemi, útflutningsverkefna í
vissum tilvikum og innviðafjárfest-
inga, svo sem samgöngukerfa. Gott
dæmi um slíkt er lán til byggingar
járnbraut milli Arlanda-flugvallar
og Stokkhólms. Einnig má nefna far-
símakerfm sem vaxa nú ört.
„Umhverfissjónarmið hafa vax-
andi þyngd í okkar útlánum. Þaö er
óhætt að segja að þriðjungur okkar
útlána í heild séu rökstudd með til-
vísun til þess að fjárfestingin dragi
úr mengun eða bæti umhverfis-
áhrif,“ segir Jón og bætir við að
orkugeirinn sé mjög mikilvægur,
um fjórðungur af heildarútlánum
innan Norðurlanda. Á árinu 1995
nemi lán til innviðafjárfestinga tæp-
um helmingi af útlánum og 30 pró-
sent útlána hafi verið til rannsókna
og þróunar. Umhverfisvæn fram-
leiðsla verði atvinna framtíðarinn-
ar.
Eistlendingum
gengur best
Um 16-17 prósent af útistandandi
lánum NIB eru utan Norðurland-
anna, fyrst og fremst í lánshæfum
þróunarlöndum auk landanna í
Mið- og Austur-Evrópu með sér-
stakri áherslu á Eystrasaltslöndin.
Bankanum hefur verið falið að
stuðla að stofnun og eflingu fjárfest-
ingarlánastofnana í Eystrasaltsríkj-
unum, fjármagna fjárfestingarbanka
og ráðstafa tækniaðstoðarfé frá
Norðurlöndum. Minna er um að
bankinn láni beint til fyrirtækja en
Jón telur þó hugsanlegt að slík lán
verði veitt ef stuðningur Norður-
landanna við Eystrasaltsríkin held-
ur áfram. Íslenskt-sænskt-litháísk
lyfjafyrirtæki sé til að mynda meðal
áhugaverðustu lántakenda NIB á
Eystrasaltssvæðinu.
„Það hefur verið ánægjulegt að
taka þátt í stuðningi Norðurlanda
við þá breytingu úr miðstýrðu
kommúnistisku hagkerfi yfir í vest-
rænt lýðræðis- og markaðshagkerfi
sem á sér stað í Eystrasaltslöndun-
um. Þessi þróun hefur gengið betur
í Eistlandi en hinum löndunum. Að-
alskýringin er sú að þar eru náin
söguleg og persónuleg tengsl við
Finna og Svía. Þessara tengsla njóta
nú Eistlendingar. Sennilega hefur
markaðshagkerfi staðið traustari
fótum í Eistlandi fyrir stríð,“ segir
Jón.
Vaxtarhagkerfin
eru mikilvægust
Mikilvægustu löndin í útlánum
NIB utan Norðurlanda eru vaxtar-
hagkerfin í Suðaustur-Asíu. Þar ber
Kína hæst en einnig Indónesíu,
Taíland og Indland. Jón segir að
norræn fyrirtæki komi við sögu
þessara fjármögnunarverkefna, ann-
að hvort sem eigendur eða fram-
kvæmdaaðilar, til dæmis orkufyrir-
tæki og orkuveitur. Virkir-Orkint
taki þátt í slíkum verkefnum í Kina.
Þá láni bankinn einnig til Visegrad-
landanna, Póllands, Tékklands,
Slóvakíu og Ungverjalands.
Aðalbankastjórinn segir að lán-
veitingar bankans hafi aukist mikið
á þessu ári vegna þeirrar ánægju-
legu breytingar sem hafi orðið á
efnahag allra Norðurlandanna. Þau
séu nú með hagvöxt yfir meðallagi
meðal iðnrikjanna, sérstaklega hafi
orðið mikil aukning fjárfestinga í at-
vinnulífinu. Fjárfestar hafi beðið
eftir ákvörðun Finna og Svía um
inngöngu í Evrópusambandið, ESB,
og sú ákvörðun hafi tekiö vissa
„stíflu úr fjárfestingarfarveginum"
eftir efnahagsþrengingar undanfar-
inna ára.
Hann bendir á að hlutverk alþjóða-
samninga sé fyrst og fremst að
skapa einstaklingunum sem þjóð-
irnar mynda möguleika til þroska
og þátttöku í því fjölbreytta sam-
starfi sem á sér stað yfir landamær-
in með þeim tæknibreytingum sem
eiga sér stað.
„í okkar sögu sem þjóðar er
reynslan sú að íslendingum hefur
jafnan vegnað best þegar þeir hafa
átt sem mest samskipti við aðrar
þjóðir. Bestu tímabilin í okkar sögu
eru einmitt þau tímabil þegar ís-
lendingar fóru víða og voru með
þjóðum. Þetta hefur ekki breyst,"
segir hann.
- En getur Jón Sigurðsson hugsað
sér að verða aftur ráðherra á ís-
landi?
„Ég sinni nú því starfi sem ég hef
tekið að mér og er ánægður með þau
verkefni sem ég hef,“ segir hann.
-GHS