Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Qupperneq 40
/ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 . Loni Anderson og Burt Reynolds gefa út ævisögur: Loni hélt við Tom og Burt vissi af því Ólyginn sagði... ... að Shannon Doherty, stjarn- an úr Beverly Hills 90210, hefði heimtað giftingarhringana af sínum fyrrverandi, Chris Fou- fas, á dögunum. Stuttu síðar sást hún ásamt nýja fylgdar- sveininum sínum, Rob Weiss, við frumsýningu myndarinnar Mallrats þar sem þau voru bæði með gömlu hringana. Burt og Loni með syni sínum á meðan allt lék í lyndi, eða svo töldu menn. Loni Anderson segir frá því í ný- útkominni ævisögu sinni að hún hafi haldið fram hjá Burt Reynolds, sem nú er 59 ára, árið 1988, tveimur árum eftir að þau byrjuðu að vera saman. Aðspurð neitar hún að gefa upp hver hjásvæfill hennar var en segir að hann sé vel þekkt sjón- varpsstjarna núna. Loni, sem er 10 árum yngri en Burt, var gift Burt allt þar til árið 1993 og í viðtali við bandaríska fjöl- miðla nýlega sagði einhver vina Burts að friðill Loni hefði verið Tom Selleck, sem er fimmtugur. Sagði hann Burt hafa vitað þetta allt frá upphafi en ekki rætt málið utan heimilis síns og Loni. Tom var ein- hleypur þegar ástarsamband þeirra Loni stóð yfir en hún hafði nýverið flutt inn í stórhýsi Burts í Los Ang- eles. Er haft eftir vini hennar í bandarísku tímariti að hún hafi sagt Tom afburða góðan elskhuga á með- an hún gaf Burt aðeins 6 í einkunn sem elskhuga. Sagði vinur Loni hana hafa þráð Tom í rúminu sem utan þess og elskað að finna loðna bringu hans strjúkast við stinn brjóst sín. Enn fremur sagði hún frá ferð þeirra til Hawaii. 1 ferð frá flug- vellinum átti Loni i mesta basli með að verjast ástaratlotum Toms sem reif næstum utan af henni fötin í leigubílnum. Klykkti Loni út með því að segja að hún kiknaði í hnjáliðunum undan augnaráði Toms einu saman og ekki liði henni verr að sjá hann nakinn því hann væri karlmenni frá toppi til táar. Elskhugi í annarri deild Kunnugir segja að Burt hafi núið Loni því um nasir að Tom hafi aldrei meikað það í kvikmyndum og gert gys að kvikmynd hans, Three Men and a Baby. Loni mun þá hafa tautað með sjálfri sér að Tom væri þó deild fyrir ofan hann sem elsk- hugi. í bók sinni lýsir Loni hins vegar ástarsambandi sínu við hinn ónefnda mann fjálglega. Segist hún aðeins hafa notið ásta með honum í eitt skipti þegar Burt ætlaði að taka saman á ný við Sally sína Field. „Alla nóttina var sem ég sæi stjömuljós. í fyrstu ætlaði ég mér að ná mér niðri á Burt en síðan tók girndin völdin. Elskhugi minn í þetta skipti hafði þanið hverja taug í líkama mínum og snert mig alla. Ég var fullnægð og ánægð. Svo ánægð að mér fannst ég geta hlaup- ið Los Angeles-maraþonhlaupið ber- fætt eða sofið vikum saman. . . . að John F. Kennedy yngri hefði sést á tali við unga, Ijós- hærða og langleggjaða film- stjörnu á hóteli einu í Kaliforníu nýlega. Stúlkan líktist ekki Carolyne Bessette sem er unnusta hans um þessar mund- ar, en hann sást ítrekað á tali við þá Ijóshærðu og langleggj- uðu umrædda helgi. ... að Dudley Moore hefði end- anlega sagt skilið við barns- móður sína, Nicole. Segir hann Nicole hafa haldið fram hjá sér og heimtar að DNA-próf fari fram svo sannað sé að hann sé faðir barns sem hún fæddi með- an þau voru gift. ... að ráðgjafar Paulu Barbieri, spúsu O.J. Simpson, hefðu ráð- lagt henni að kyssa karlinn sinn bless ef hún vildi ekki gera frama sinn í kvikmyndum og tískusýningum að engu. O.J. óskaði eftir því við yfirmenn Paramount kvikmyndaversins að sér yrði boðið á frumsýningu kvikmyndarinnar Jade en var hafnað. . .. að Lisa Marie Presley hefði verið svo ánægð með nýja förð- unarmeistarann sinn að hún hefði talað karl sinn, Michael Jackson, til að kosta markaðs- setningu nýrrar snyrtivörulínu sem förðunarmeistarinn er að setja á markað. Caruso þykir skap- hundur hinn mesti David Caruso sparkaði ruslafötu í höfuðið á mótleikara sínum, Dennis Franz, sem fór í fýlu fyrir vikið. Það eru engin takmörk fyrir því hvað gefið er út í bókar- formi í Bandaríkjunum. Nýver- ið var gefin út kilja þar í landi sem fjallar um framleiðslu á NYPD Blue eða New York lögg- um, sjónvarpsþáttum sem sýnd- ir eru á Stöð 2. Þar er hinn rauðhærði David Caruso, sem reyndar hefur sagt skilið við þættina, sagður skaphundur hinn mesti. Eitt sinn á hann að hafa sparkað ruslafötu í höfuðið á mótleikara sínum, Dennis Franz, en eftir það atvik töluð- ust þeir ekki oftar við í vinn- unni. Það atvik átti sér stað þeg- ar Caruso og Franz voru við tökur á atriði sem gerast átti í búningsherbergi lögreglunnar. Franz mundi aldrei línurnar sínar og endaði það á því að Caruso missti stjórn á sér og sparkaði jámruslafótu í höfuðið á Franz. Að sögn handritshöfundar þáttanna, David Milch, mun Caruso hafa ofmetnast þegar hann fór að fá aðdáendabréf frá þúsundum kvenna í viku hverri. Samstarfsfólk hans var orðið þreytt á honum og allt ætlaöi einu sinni um koll að keyra þegar Caruso fullyrti að mótleikari hans, Franz, sæist meira í þáttunum en hann. Þá heimtaði hann kauphækkun og að vinnutíma hans yrði breytt ef til þess kæmi að hann fengi tilboð um að leika í kvikmynd- um. Eins og fyrr sagði hefur Caruso snúið sér að kvik- myndaleik eftir að hann hætti að leika í sjónvarpsþáttunum NYPD Blue. Hann hefur leikið í tveimur myndum, Kiss of Death og Jade, og hafa báðar slegið í gegn vestra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.