Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Qupperneq 45
XjV LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
53
Fáðu þér miða fyrir kl. 20.20 á laugardaginn.
Tvöfaldur
1. vinningur!
-vertu viðbúinav vinningi
Foringi á framabraut
sakaður
um fjölþreifni
„Hvenær sem þú þarfnast uppörv-
unar þá verð ég við hlið þér,“ orti
Everett L. Greene, skipherra í sér-
sveitum bandaríska flotans, árið
1993. Ljóðið orti hann til undir-
manns síns, Mary Elizabeth Felix.
„Hvenær sem þú þarfhast huggunar
þá verð ég við hlið þér. Hvers sem
þú þarfnast nú eða í framtíðinni þá
verð ég við hlið þér.“
11. október síðastliðinn var Ever-
ett við hlið Mary í Washington þar
sem hún hafði kært hann fyrir kyn-
ferðislega áreitni. Fáir höfðu búist
við þessu. Everett, sem er 47 ára
gamall, mátti búast við því að verða
sjötti bandaríski blökkumaðurinn
til að komast í hóp 220 aömírála í
bandaríska flotanum. í staðinn varð
hann hæst setti foringinn í banda-
ríska flotanum í hálfa öld sem varð
að svara til saka fyrir herrétti.
Kveðskapurinn varð helsta sönnun-
argagniö gegn þessum manni sem
var sakaður um kynferðislega
áreitni og hegðun sem þykir ósæmi-
leg foringja í bandaríska sjóhernum.
Hver svo sem niðurstaða dómsins
verður má Everett allt eins eiga von
á því að framtíð hans í sjóhemum
verði engin þvi þetta er ekki í fyrsta
skiptið sem hann er ákærður fyrir
kynferðislega áreitni. Lögfræðingur
í sjóhemum, þrítug kona, kærði
Everett á sama tíma og Mary en
ásökunum hennar var vísað á bug
sem órökstuddum.
Siðgæðispostuli í starfi
Það er sennilega kaldhæðni örlag-
anna að Everett stýrði áður deild
innan bandariska flotans sem fór
meö jafnréttismál. Þá heyrði Mary
undir Everett þegar hann stýrði
símaþjónustu innan bandaríska
hersins fyrir herkonur sem töldu sig
hafa orðið fyrir kynferðislegri
áreitni. Símaþjónustunni var komið
á árið 1991 í kjölfar þess að fjöldi
kvenna kærði foringja í bandaríska
sjóhernum fyrir kynferðislega
áreitni á ráðstefnu í Las Vegas sama
ár. .
Það er mál manna í Bandaríkjun-
um að þetta ákveðna mál sé próf-
steinn á hve langt má ganga í sam-
skiptum kynja á vinnustað áður en
hægt er að tala um kynferðislega
áreitni. Mary hefur sagt að Everett,
sem er giftur og þriggja barna faðir,
hafi aldrei notað klúrt orðalag í
sinni viðurvist eða leitað á sig.
Reyndar hafi hann aldrei komið við
sig. Áreitnin hafi falist í orðsending-
um og kortum. Mary segir að auk
þessa hafi Everett fært sér gjafir:
tyggjópakka og íþróttagalla. „Mér
mislíkaði þetta. Hann var giftrn-, yf-
irmaður minn og nógu gamall til að
vera faðir minn,“ sagði Mary í sam-
tali við vikuritið People.
Þótt Everett viðurkenni að hafa
sent Mary gjafir segir hann ekkert
ósæmilegt hafa búið þar að baki.
Mary hafi komið honum fyrir sjónir
sem ung kona sem átti í erfiðleikum
og hafði leitað til hans eftir erfið-
leika í fyrra ástarsambandi. Ljóðin
og kortin hafi átt einungis átt að efla
sjálfstraust hennar. „Ég hélt að
þessi leið yrði áhrifameiri en bréfa-
skipti á opinberan pappír," sagði
Everett sem fullyrðir að kynferðis-
lega áreitnin hafi veriö af hálfú
Mary en ekki sinni.
Hvað sem þessu líður þá er Eu-
gene R. Fiddel, lögfræðingur og sér-
fræðingur í lögum hersins, ekki i
vafa um að Everett hafi farið yfir
strikið.
Málið er allt hið undarlegasta og
svipar mjög til söguþráðar kvik-
myndarinnar Disclosure sem Demi
Moore og Kirk Douglas léku í ekki
fyrir löngu. Everett hefði gétað feng-
ið áminningu og málið verið látið
niður falla en hann vildi frekar fara
alla leið með málið og standa á rétti
sínum og þannig eiga einhverja
möguleika á stöðuhækkun og fram-
tíð innan hersins.
„Asakanir einar eiga ekki að verða tii þess að eyðileggja framtíðina," segir Everett Greene, skipherra.
í bandaríska flotanum.
Bragi
Hlíðberq
spiiar á nikkuna
seinnipart
laugardags og
sunnudags og
áritar nýjasta
geisladisk sinn
Peysur frá kr. 990
llmvötn á frábæru verbi
Fatnabur, bækur, gjafavörur,
geisladiskar, kassettur, skartgripir,
ilmvötn, blævængir, silkiblóm,
myndir, málverk.
VORIIM AÐ TAKA UPP HERRAFATNAD
A GLASGOW-VERPI
Opiö virka daga 10-18,
■augardaga 11-17, sunnudaga 13-17
Ingrid
Hliðberg
Sölusýning
á handmáluöum
listmunum úr
postulíni