Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 58
66
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
Afmæli
Franz Gíslason
Franz Gíslason kennari, Kjartans-
götu 7, Reykjavík, veröur sextugur
á morgun.
Starfsferill
Franz fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Fljótshverfi. Hann var tvo
hálfa vetur í barnaskóla í Múlakoti
á Síðu, lauk landsprófi frá Skóga-
skóla 1953, stundaði nám við ML
en lauk stúdentsprófi frá MR1957,
lauk dipl. hist.-prófi við háskólann
í Leipzig 1965 og prófi í uppeldis-
og kennslufræði við HÍ1967.
Franz stundaði sveitastörf í
æsku, var verkamaður hér og þar
á námsárunum, blaðamaður við
Þjóðviljann 1957 og skrifaði mikið
í blaðið næstu árin, var skrifstofu-
maður hjá verölagsstjóra 1958-59,
kenndi við Gagnfræðaskólann í
Kópavogi 1965-66 og hefur síðan
kennt við Vélskóla Islands.
Franz starfaði mikið með Æsku-
lýðsfylkingunni, SÍA og HRÍM á
árunum 1958-69, var félagi í Al-
þýðubandalaginu í fáein ár til 1969
er hann sagði sig úr því og þjóð-
kirkjunni en hefur síðan starfað í
kennarafélögum og Kommatrimm-
inu.
Franz hefur þýtt úr þýsku skáld-
sögur eftir Heinrich Böll, Peter Bic-
hsel, Deszö Monosloy og Hertu
Múller, og úr ensku eftir D.M.
Thomas og Jerzy Kosinski, var
þýðandi og meðútgefandi að ís-
landshefti tímaritsins die horen í
Bremerhaven 1986, vann, ásamt
fleirum, að þýðingu ljóðasafnsins
Ich hörte die Farbe blau, útg. 1992,
þýddi, ásamt Wolfgang Schiffer,
safn ljóða Stefáns Harðar Gríms-
sonar, Geahnter Flúgelschlag, útg.
1992, og ljóða Snorra Hjartarsonar,
auk fleiri þýðinga á þýsku, ásamt
Wolfgang, skrifaði sögu Vélskól-
ans, Vélstjóramenntun á íslandi
1915-90, situr í ritnefnd tímarits
þýðenda, Jón á Bægisá, og vinnur
ásamt fleirum að nýju véistjóratali.
Fjölskylda
Franz kvæntist 16.6.1957 Helgu
Harðardóttur, f. 30.10.1938, skrif-
stofumanni. Hún er dóttir Harðar
Gestssonar og Ragnheiðar Sveins-
dóttur. Franz og Helga skildu 1964.
Sonur Franz og Helgu er Örn, f.
20.3.1962, rafiðnfræðingur í Mos-
fellsbæ, er 1 sambúð og á einn son.
Franz kvæntist 6.4.1966 Sigrúnu
Guðjörgu Björnsdóttur, f. 7.8.1941,
kennara. Hún er dóttir Björns Lax-
dals Jónssonar og Kristjönu Kristj-
ánsdóttur. Þau skildu 1980.
Synir Franz og Sigrúnar Guð-
bjargar eru Bjarki, f. 17.8.1965, raf-
magnstæknifræðingur í Reykjavík,
og á hann son á Akureyri; Brjánn,
f. 19.12.1968, sálfræðingur í Reykja-
vík, í sambúð og á hann eina dóttur
ogtvo syni.
Albróðir Franz er Ágúst Ragnar,
f.3.10.1938, rafvirki.
Hálfbróðir Frans, sammæðra, er
Franz Gíslason.
Gissur Björn Eiríksson, f. 5.11.1956.
Foreldrar Gísla voru Gísli Gunn-
arsson, f. 2.5.1895, d. 1964, sjómað-
ur, og Olöf Gissurardóttir, f. 16.1.
1916, d. 7.9.1995, verkakona og hús-
móðir.
Til hamingju með
afmælið18.nóvember
Jón Bjarnason
95 ára
Sigriður Konráðsdóttir,
Hvanneyrarbraut 37, Siglufirðí.
90 ára
Sesselja Sveinsdóttir,
Mýrargötu 18, Neskaupstað.
Birna Jónsdóttir,
Freyjugötu 13, Sauðárkróki.
85 ára
80 ára
Elín Sigurðardóttir,
Langholtsvegi 86, Reykjavík.
Sigurveig Eyjólfsdóttir,
Skálatanga I, Innri-Akraneshreppi.
Sigurveig tekur á móti gestum að
Skálatanga II milli kl. 16.00 og 22.00
ídag.
75 ára
Gústaf Ófeigsson,
Árskógum 6, Reykjavík.
Gústaf er að heiman.
HólmgeirGuðmundsson,
Brekkubraut 15, Keflavik.
Jónas Ástvaldur Þorsteinsson,
Neskinn 4, Stykkishólmi.
Sigurður Magnússon,
Ásvallagötu 75, Reykjavík.
70 ára
Hjalti Karlsson,
Bjamhólastíg 17, Kópavogi.
Kristveig Jónsdóttir,
Hólmgarði 15, Reykjavík.
Vilmundur Þorsteinsson,
Kirkjulundi 8, Garðabæ.
Vilmundur er að heiman.
Georg Georgsson,
Hringbraut 92B, Keflavík.
Georgtekurá
móti gestum í
Iðnsveinahús-
inu.Tjarnar-
götu 7, Kefla-
vik. í dag milli
kl. 15.00 og
19.00.
60ára_____________
Ólafur Einarsson,
Skólagerði30, Kópavogi.
Sigrún Ragnarsdóttir,
Hi'isalundi 2B, Akureyri.
Svava Kjartansdóttir,
Dalselí 12, Reykjavik.
50ára
Ruth Kjartansdóttir,
Melbæ 24, Reykjavík.
Kristrún Helgadóttir,
Hverafold 112, Reykjavik.
Halldór Bragason,
Dalseli 21, Reykjavik.
Halldór er að heiman.
Sigrún Sveinbjarnardóttir,
Lækjarbraut 12,Hólhreppi.
Þorvaldiu- Ágústsson,
Noröurgarði 10, Hvolhreppi.
40 ára
Sigurður Eyþór Benediktsson,
Kirkjubraut 4, Höfn í Hornafirði.
Þorgerður Jóhannsdóttir,
Bessahrauni 8, Vestmannaeyjum.
Sveinn Pálmi Guðmundsson,
Hlaöhömrum 32, Reykjavík.
Louisa Aradóttir,
Reykási 27, Reykjavik.
Oddný Ólafsdóttir,
Engjaseli 64, Reykjavik.
Bjarki Hrafn Ólafsson,
Smáratúni 7, Selfossi.
Soffie Guðrún Ragnarsdóttir,
Espilundi 2, Akureyri.
Ólafur Ásgeir Rósason,
Lautasmára53, Kópavogi.
Jón Bjarnason, bóndi að Bakka í
Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu,
er sjötugur í dag.
Sta rfsferil I
Jón fæddist í skólahúsinu í
Sveinsstaðahreppi og ólst upp í for-
eldrahúsum á Marðarnúpi, í
Hvammi og á Eyjólfsstöðum. Hann
flutti að Bakka í Vatnsdal 1954 en
þar hefur hann byggt upp öll hús
og stundað þar blandaðan búskap
síðan.
Þá hafa þau hjónin stundaði
ferðaþjónustu í vaxandi mæli á síð-
ari árum.
Fjölskylda
Jón kvæntist 24.5.1952 Kristínu
Lárusdóttur, f. 5.12.1931, bónda.
Hún er dóttir Lárusar Björnssonar
og Petrínu Bjargar Jóhannsdóttur,
bænda í Grímstungu í Vatnsdal,
sem bæði eru látin.
Börn Jóns og Kristínar eru Lárus
Björgvin, f. 12.3.1953, húsasmiður
og deildarstjóri hjá Kaupfélagi
Húnvetninga á Blönduósi, kvæntur
Sigrúnu Zophoníasdóttur, skrif-
stofumanni við Héraðssjúkrahúsið
á Blönduósi og eiga þau fimm börn;
Bjami Jónas, f. 19.11.1954, pípu-
lagningameistari á Blönduósi,
kvæntur Sólveigu Olgu Jónsdóttur,
starfsmanni við Héraðssjúkrahús-
ið á Blönduósi og eiga þau þrjú
börn; Jakob Jóhann, f. 9.6.1956,
húsasmiður á Blönduósi, kvæntur
Katrínu Líndal, starfsmanni við
Héraössjúkrahúsið og eiga þau
þrjú börn; Sveinn Eggert, f. 18.3.
1960, rafvirki, nú í matreiðslunámi
í Reykjavík, og á hann eina dóttur;
Jón Baldvin, f. 9.6.1974, bifvéla-
virki í Reykjavík, en kona hans er
Lilja Björg Gísladóttir iðnnemi.
Systkini Jóns eru Ingibjörg
Bjarnadóttir, f. 8.6.1923, húsmóðir
á Blönduósi, gift Ingvari Stein-
grímssyni, fyrrv. bónda; Jóhanna
Jón Bjarnason.
Bjarnadóttir, f. 12.2.1929, búsett á
Blönduósi.
Foreldrar Jóns voru Bjami Jón-
asson, f. 8.3.1896, d. 22.12.1981,
lengst af bóndi á Eyjólfsstöðum, og
k.h., Jenný Rebekka Jónsdóttir, f.
26.7.1898, d. 1.1.1991, bóndi.
Jón og Kristín verða að heiman
á afmælisdaginn.
Andlát___________________
Hafþór Ferdinandsson
Haíþór Ferdinandsson, ferðafröm-
uöur, kennari, atvinnurekandi og
húsgagnasmíðameistari, lést í
Kópavogi 7.11. sl. Útför hans fór
fram frá Dómkirkjunni í gær.
Starfsferill
Hafþór fæddist í Reykjavík 6.5.
1952 og ólst þar upp. Eftir gagn-
fræðaskóla stundaði hann nám í
málmsmíði í járniðnaðardeild Iðn-
skólans í Reykjavík 1969-70, í hús-
gagnasmíði viö sama skóla 1971-75,
lauk sveinsprófi 1975, öðlaðist
meistarabréf þremur árum síðar
og lauk námi í uppeldis- og sálar-
fræði frá KHÍ1982.
Haíþór var flokksstjóri í Skrúð-
görðum Reykjavíkur á sumrin á
námsárum, starfaði við húsgagna-
smiði hjá Trésmiðju Björns og
Indriða og í ísbirninum 1971-78,
var kennari í Ölduselsskóla í
Reykjavík 1978-86 og við Grunn-
skóla ísafjarðar 1986-87, uppeldis-
fulltrúi á meðferðarheimili fyrir
taugaveikluð börn á vegum Geð-
deildar Borgarspítalans 1987-89,
kennari í Fellaskóla í Reykjavík
1990-91, rak heildsölu og verslun
1988-92 og starfaði mikið að ferða-
málum síðustu árin en hann rak
fyrirtækið Fjallaferðir frá 1993.
Hafþór var löngu landsþekktur
fyrir áhuga sinna á öræfunum og
jeppaferðum um hálendið. Hann
hlaut viðurnefnið Hveravallas-
kreppur vegna tíðra ferða sinna á
Hveravelli en hann fór fjölda ferða
þangað með póst og aðföng. Hann
var einn hvatamanna að stofnun
Ferðaklúbbsins 4X4 og sat lengi í
stjórn klúbbsins.
Fjölskylda
Hafþór kvæntist 18.11.1972
Hrafnhildi Þorgeirsdóttur. Þau
skildu.
Börn Hafþórs og Hrafnhildar eru
Arnar Þór, f. 11.5.1974, og Auður,
f. 1.4.1986.
Dóttir Hafþórs og Ragnhildar Sig-
mundsdóttur er Bára, f. 1.8.1987..
Hann var í sambúð með Svöiu
Nordahl og er dóttir þeirra Viktoría
Sandra, f. 9.12.1991.
Hafþór kvæntist 10.9.1994 Ernu
Laugdal. Þau skildu. Eftirlifandi
unnusta Hafþórs er Margrét Vík-
ingsdóttir, f. 4.8.1956.
Systkini Hafþórs: Ægir, f. 5.7.
1934, heildsali í Reykjavík; Hall-
varður, f. 8.5.1941, vörubifreiða-
stjóri í Reykjavík; Kristín, f. 2.6.
1942, hárgreiöslumeistari og starfs-
maður á Reykjalundi, búsett í Mos-
fellbæ.
Foreldrar Hafþórs: Ferdinand
Hafstein Jóhannsson, f. 2.9.1910,
d. 4.5.1984, skrifstofumaðurá
Hafþór Ferdinandsson.
Manntalsskrifstofu, og Bára Lýðs-
dóttir, f. 27.3.1917, húsmóðir.
Ætt
Ferdinand var sonur Jóhanns
Hafsteins Jóhannssonar úr Reykja-
vík og k.h., Guðlaugar Árnadóttur
frá Eyrarbakka.
Bára er dóttir Lýðs Illugasonar
úr Helgafellssveit og k.h., Kristínar
Hallvarðsdóttur frá Litla-Langadal
á Skógarströnd.