Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Side 59
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
67
Afmæli
Matthías Guðmundsson
Matthías Guömundsson húsa-
smíðameistari, Hringbraut 104,
Keflavík, verður sjötíu og fimm ára
á morgun.
Starfsferill
Matthías fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Vestmannaeyjum. Hann
lærði húsasmíði hjá Óskari Kristj-
ánssyni á Brautarhóli í Ytri-Njarð-
vík 1955-59, stundaði nám við Iðn-
skólann í Keflavík og lauk sveins-
prófi 1961.
Matthías var við húsabyggingar
í sveitum til 1947 þar sem hann
byggði m.a. hús á Kirkjubóli í Stað-
arsveit 1946, á Akranesi hjá Jóni
Guðmundssyni 1947-51 ogstundaði
smíðavinnu í Hvalstöðinni í Hval-
firði og starfaði síðan við vinnslu
þar til 1953.
Matthias starfaði á Keflavíkur-
flugvelli 1953-55 þar sem hann var
við pípulagnir hjá varnarliðinu og
vann síöan við byggingarvinnu í
Keflavík og nágrenni. Hann var
síðan verkstjóri hjá byggingaverk-
tökum frá 1957 en er nú hættur
störfum.
Matthías sat í stjórn Verkstjóra-
félags Suðurnesja og í stjórn Iðnað-
armannafélags Suðurnesja 1966-68,
var varamaður í prófnefnd húsa-
smiða og hefur setið í fasteigna-
matsnefnd.
Fjölskylda
Matthías kvæntist 6.10.1956 Frið-
björgu Ólínu Kristjánsdóttur, f. 8.6.
1928, dóttur Kristjáns Jónssonar
skósmiðs, sem lést 1970, og k.h.,
Jóneyjar Jónsdóttur sem lést 1994.
Börn Matthíasar og Friðbjargar
eru Siguröur Sævar, f. 16.2.1946,
framreiðslumeistari i Reykjavík;
Hafdís, f. 14.12.1955, fulltrúi í Kefla-
vík, gift Sigbirni Ingimundarsyni,
bifvélavirkja og lagerstjóra hjá
Hitaveitu Suðurnesja, og eiga þau
þrjúbörn, Ingibjörguf. 17.9.1977,
Matthías f. 14.6.1984 og Pétur Inga,
f. 17.9.1986. Sonur Ingibjargar og
unnusta hennar, Svanbergs Inga,
er Sigbjörn Helgi, f. 14.09.1995.
Albræður Matthíasar voru Ás-
þór, f. 20.3.1918, d. í nóvember 1985,
búsettur í Vogum; Kristján Rós-
berg, f. 17.09.1919, d. 24.7.1975,
pípulagningameistari í Vogum.
Auk þess átti Matthías fimm hálf-
systkini, samfeðra.
Foreldrar Matthíasar: Guðmund-
ur Jónsson frá Heiðarbóli í Þing-
vallasveit, f. að Ártúni við Elliöaár,
11.4.1876, d. 32.10.1958, ogk.h.,
Guöríður Þórunn Ásgrímsdóttir,
ættuð úr Árnessýslu, f. 26.9.1880,
d. 11.5.1954.
Ætt
Föðurforeldrar Matthíasar voru
Jón Jónsson úr Húnavatnssýslu og
Matthías Guömundsson.
Guðlaug Tómasdóttir frá Kárastöð-
um í Þingvallasveit.
Móðurforeldrar Matthíasarvoru
Ásgrímur Guðmundsson frá Reykj-
um í Ölfusi og Þórunn Guðmunds-
dóttir sem var ættuð af Suðurnesj-
um.
Þau hjónin eru erlendis.
afmælið19.nóvember
70 ára
40 ára
Guðmundur Sigurður
Sigurjónsson
Steindór Finnbogason,
Öldugötu 7, Reykjavík.
Þorvaldur Þorgrimsson,
Raufarfelli n, Austur-Eyjafjalla-
hreppi.
60 ára
Rafn Helgason,
Bleiksárhlíð 35, Eskifirði.
Ragnar Heiðar Magnússon,
Hamri, Hólmavíkurhreppi.
Sigríður Steingrímsdóttir,
Kirkjubraut 24, Höfn í Hornafiröi.
50 ára
Halldór G. Halldórsson,
Jörfabakka 10, Reykjavík.
Jón Egill Egilsson,
Ránargötu 30, Reykjavík.
Ragnar Sigurjónsson,
Hamarsgötu 18, Fáskrúðsfiröi.
Guðlaug Bára Þráinsdóttir,
Leirubakka 26, Reykjavík.
Friðbert R. Hafþórsson,
Bústaðavegi 71, Reykjavík.
Jóna Birna Þóroddsdóttir,
Austurvegi 18, Þórshöfn.
Elín Bjarnadóttir,
Akurgerði 6, Akranesi.
Guðmundur Símonarson,
Vallarhúsum 17, Reykjavík.
Gunnar Theódórsson,
Fífuseli 34, Reykjavík.
Þorsteirm Friðriksson,
Kleifarseli 51, Reykjavík.
Ingi G. Ingimundarson,
Ofanleiti 5, Reykjavík.
ísak Geir Stefánsson,
Flétturima 15,Reykjavík.
yigdís B. Sigurgeirsdóttir,
Ásbraut 17, Kópavogi.
Georg Óiafur Tryggvason,
Ásbúð 104, Garðabæ.
Jóna Karen Pétursdóttir,
Einholti 1, Gerðahreppi.
Þórdís Lárusdóttir,
Gauksmýri, Kirkjuhvammshreppi.
Guðmundur Sigurður Sigurjóns-
son bifreiðarstjóri, Fagrabæ 1,
Reykjavík, verður sjötíu og fimm
ára á morgun.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann starfaði
lengst af hjá Reykjavíkurhöfn eða
í rúm fimmtíu ár. Þá hefur Guö-
mundur verið meðhjálpari við Ár-
bæjarsöfnuð frá 1971.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 19.11.1943
Ingu Sigríði Kristjánsdóttur, f. 30.6.
1919, húsmóður, en hún er dóttir
Kristjáns Lárussonar og Þóru
Björnsdóttur, bændahjóna sem
lengst af bjuggu að Miklaholtsseli
í Miklaholtshreppi.
Börn Guðmundar og Ingu Sigríð-
ar eru Þórir Guðmundsson, f. 19.2.
1944, d. 20.12.1944; Þórir Kristján
Guðmundsson, f. 13.7.1945, bifreiö-
arstjóri í Reykjavík, kvæntur Sig-
urbirnu Oliversdóttur húsmóður
og á Þórir fjögur börn og hún tvö;
Jóhanna Sveinbjörg Guðmunds-
dóttir, f. 21.3.1947, húsmóðir í
Keílavík, gift Arnari G. Arngríms-
syni leigubílstjóra og eiga þau
fimm börn; Sigurjón Guðmunds-
son, f. 3.11.1949, verkstjóri hjá
Slippfélaginu í Reykjavík, kvæntur
Ósk Magnúsdóttur húsmóður og
eiga þau fjögur börn; Smári Guö-
mundsson, f. 2.10.1956, d. 12.6.1995,
verkamaður í Reykjavík.
Systkini Guðmundar: Elías Sig-
urjónsson, f. 29.11.1920, d. 1921;
Elías Sigurjónsson, f. 23.5.1922,
verkamaöur í Reykjavík; Hafsteinn
Sigurjónsson, f. 18.3.1925, múrara-
meistari í Reykjavík; Halldóra Sig-
urjónsdóttir, f. 19.7.1926, húsmóðir
í Reykjavík. Hálfsystur Guðmund-
ar, samfeðra, eru Henný Ágústa
Bartels, f. 7.4,1941, starfsmaður við
Seðlabankann í Reykjavík; Ólöf
Ingibjörg Laugdal Sigurjónsdóttir,
f. 1951, húsmóðir í Reykjavík.
Guðmundur S. Sigurjónsson.
Foreldrar Guðmundar voru Sig-
urjón Jóhannesson, f. 18.1.1892, d.
1.10.1961, leigubifreiðarstjóri í
Reykjavík, og k.h., Ólöf Guðrún
Elíasdóttir, f. 6.8.1897, d. 20.5.1950,
húsmóðir.
Menning
Þaö er alltaf gaman að fylgjast með því
þegar leikfélög framhaldsskólanna heija
vertíð sína. Ómældum tíma er fórnað í undir-
búning en þeim tíma er nú sem betur fer
oftast vel varið og eftir stendur dýrmæt
reynsla og góðar minningar um skemmtilega
galinn tíma.
Leikfélag Verzlunarskólans valdi sér það
verkefni að þessu sinni að'færa upp fjörugan
spennutrylli með gamansömu ívafi og svo-
litlu ofbeldi í bland. Þau fengu Hilmi Snæ
Guðnason til þess að vera leikstjóra verksins
Leiklist
Auður Eydal
og afraksturinn birtist nú í vikunni þegar
Myrkur (Wait until Dark eftir Frederick
Knott) var frumsýnt í samkomusal skólans.
Verkið fjallar um samskipti blindrar konu
og tveggja smákrimma sem fengnir eru til
að leita að brúðu. Þetta er ekkert venjuleg
brúða því að hún er úttroðin af eiturlyfjum
og hefur verið smyglað til landsins. - Og nú
er hún týnd.
Hið óvenjulega í fléttunni er að krimmarn-
ir þurfa að leita í íbúð blindu konunnar án
þess að grunsemdir hennar vakni. Leikurinn
er ójafn þangað til henni tekst að snúa taflinu
við og hreinlega nýta það forskot sem sjón-
leysið gefur henni.
Því að hver hefur betur í kolniöamyrkri?
Sennilega er þetta fyrsta leikstjórnarverk-
efni Hilmis Snæs og hann hefur virkjað alla
aðstandendur sýningarinnar á jákvæðan
hátt. Ágætt jafnræði er með leikendunum
og skemmtilega leyst úr ýmsum tæknimál-
um, bæði lýsingu og hljóðsetningu. Eins og
endranær í áhugamannasýningum á leik-
stjórinn stóran hlut að máli og geysimikil-
vægt þegar unnið er með ungu fólki að ná
upp þeim anda sem hér svífur yfir vötnum.
Vænst þótti mér um að heyra skýra fram-
sögn leikendanna. Satt best aö segja er það
stundum veikasti hlekkurinn í annars ágæt-
um skólasýningum og getur sett óbærilega
leiðinlegan svip á annars góðar sýningar að
hlusta á tafs og ógreinilega framsögn.
En hér var þetta í góðu lagi og leikendurn-
Tveir af aðalleikurunum I leikritinu Myrkur
sem Leikfélag Verzlunarskóla íslands hefur
tekið til sýninga.
ir voru furðu fagmannlegir í túlkun þessara
ólíku persóna. Eyrún Valsdóttir leikur
ráðsnjöllu, blindu konuna, Suzy, Kjartan
Vilhjálmsson Mike, smákrimma sem er góö-
ur inn við beiniö, og Haukur Þór Hannesson
Crocker, vitgrannan félaga hans. Davíð
Hauksson leikur Roat, sem er öllu hættu-
legri, og íris María Stefánsdóttir leikur
stelpuskottið á efri hæðinni, Gloríu. Auk
þeirra koma fram Guðleifur Kristjánsson,
Arna María Geirsdóttir og Georg Haralds-
son.
Það hafði greinilega verið lögð mikil vinna
í sýninguna og allan umbúnað hennar. í for-
sal gaf að líta sýnishorn af ýmiss konar ann-
arri listiökun nemenda og tvær ungar stúlk-
ur glöddu gesti með fallegum söng og tónlist
í hléi.
Allt bar þetta vott um metnað og virðingu
fyrir verkefninu. Nemendur Verslunarskól-
ans geta sannarlega verið ánægöir með af-
raksturinn.
Leikfélag Verzlunarskóla íslands sýnir:
Myrkur
Höfundur: Frederick Knott
Leikstjóri: Hilmir Snær Guónason