Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1995, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1995, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995 37 íþróttir fþróttir i'jain: Heimilisfang:----------- • Aníta Gísladóttir, starfsstúlka á DV, heldur hér á verðlaunum i kjöri íþróttamanns ársins. Um er að ræða glæsilegt ORION myndbandstæki frá Bræðrunum Ormsson hf. handa heppnum lesanda og ÍSLANDSSAGA A-Ö eftir Einar Laxness sem Vaka-Helgafell gefur út og íþróttamaður ársins fær að gjöf. DV-mynd Brynjar Gauti LesendurDV velja íþrótta- mann ársins 1995 - heppinn þátttakandi í kjörinu hlýtur glæsileg verðlaun Lárus 09 Steinunn líka Listinn sem var birtur í DV í gær yfir þá kylfmga sem hafa far- ið holu í höggi á árinu var ekki alveg tæmandi. 11 ára strákur frá Akranesi, Lárus Vilhjálmsson, náði draumahögginu í sumar á Leynisvellinum þegar hann fór holu í höggi. Einnig fór Steinunn Eggertsdóttir, GKJ, holu í höggí. Þeirra var hins vegar ekki getiö á listanum sem DV fékk sendan frá Einherjaklúbbnum. ErHerbertsson Dómarinn í leik Akraness og KR í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik á sunnudagskvöldið heitir Sigmundur Már Herberts- son en ekki Hermannsson eins og kom fram í DV í gær. Whelan til Coventry Enska knattspymufélagið Co- ventry keypti í gær sóknarmann- inn Noel Whelan frá Leeds fyrir 200 milljónir króna. Whelan er leikmaður meö enska 21 árs landsliðinu. Þetta er metverð sem Coventry hefur greitt fyrir leik- mann en það stendur væntanlega ekki lengi því félagið er í þann veginn að kaupa velska landsliðs- manninn Chris Coleman frá Crystal Palace fyrir 300 milljónir. Boltonaðleíta Colin Todd og Ray MacFariand, stjórar hjá Bolton, em að leita að leikmönum tíl að styrkja liðið enda veitir ekki af, liðið vermir botnsætið. Dean Saunders er á óskalista þeirra og einnig hafa þeir sýnt Skotanum Eoin Jess áhuga. Hann er 21 árs gamall framherji frá Aberdeen. Ferguson að spá Líklegt er aö Alex Ferguson, stjóri Manchester United, færi stuðningsmönnum liðsins þá jólagjöf að kaupa leikmann til að styrkja liðið í baráttunni sem er fram undan. Ferguson hefur ver- ið að skoða nokkra leikmenn. Hann er sagður hafa áhuga á að fá Steve Howie, varnarmann frá Newcastle og enska landsliösins. Ferguson sér Howie fyrir sér sem eftirmann Steve Bruce. Staunton ekki með Steve Staunton, sem var fyrir- liði íra í síðasta leik þeirra í Evr- ópukeppninni í knattspymu, get- ur ekki spilað hinn mikilvæga leik gegn Hollandi í Liverpool á morgun vegna meiðsla. írland og Holland leika þar til úrslita um 16. og síðasta sætíð í úrslitum EM. ZelictilFrankfurt Þýska knattspyrnufélagið Frankfurt fær ástralska landsl- iðsmanninn Ned Zelic lánaðan frá QPR þegar tímabilið hefst á ný í Þýskalandi eftír vetrarfríið. QPR keyptí Zelic frá Dortmund fyrir 125 milljónir króna i sumar, en hann hefur ekki náð að festa rætur í London. Haugeíbann Alþjóöa knattspymusamband- ið, FIFA, setti í gær norska um- boðsmanninn Rune Hauge í ótímabundið bann. Komið hefur í ljós að Hauge hefur verið meö puttana í samningamálum leik- manna, þrátt fyrir að hann væri settur í bann af enska knatt- spymusambandinu. Prunier látinn fara Franski landsliðsmaöurinn William Prunier hætti í gær sem leikmaður hjá Bordeaux en sagt var að um gagnkvæmt samkomu- lag beggja aðila væri að ræða. Prunier sýndi áhorfendum mjög óviðeigandi framkomu á heima- leik liösins gegn Bastia um helg- ina og þaö var kornið sem fyllti mælinn, en hann hefur áður ver- ið til vandræða hjá félaginu. Lesendum DV gefst nú kostur á því að velja íþróttamann ársins fyrir árið sem senn er liðið. í blaðinu í dag birtist fyrsti atkvæðaseðillinn. Þegar lesendur hafa gert upp hug sinn senda þeir seöilinn til DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík, og merkja hann „íþróttamaður ársins". Frestur til að senda inn atkvæöa- seðla rennur út kl. 16.00 þann 29. desember. Þá verða atkvæði talin og nafn heppins lesanda DV verður dregið út. Sá hinn sami fær í verð- laun glæsilegt ORION myndbands- tæki frá Bræðrunum Ormsson hf. Um er að ræða tveggja hausa tæki með fjarstýringu með aðgerðaupp- lýsingum, Scart inntengingu, búnaði sem breytir upptökutíma ef breytíng verður á dagskrá „Show View“ og sjálfvirkri hreinsun á myndhaus svo eitthvað sé nefnt. Afborgunarverð á tækinu er 43.100 krónur en staö- greiðsluverð 38.900 krónur. íþróttamaður ársins hlýtur glæsi: leg bókaverölaun, íslandssögu A-Ö eftir Einar Laxness sem Vaka-Helga- fell gefur út. í þessu mikla ritverki Einars Laxness, sem er í þremur bindum, er fjallað um sögu íslands eftír uppflettiorðum í stíl alfræði- orðabóka. Viðamiklar skrár fylgja ritinu sem gerir lesendum kleift að leita fróðleiks í því frá ólfkum sjónar- hornum. Ritið er 676 blaðsíður og kostar 14.900 krónur askjan. Atkvæðaseðill mun birtast alla virka daga í DV fram til 29. desemb- er. Úrslit í kjörinu verða birt í DV þann 2. janúar. -SK FIFA beygði frönsku ríkisstjórnina Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, sigraði í gær í rimmu sinni við frönsku ríkisstjórnina sem vildi ekki hleypa fulltrúum knattspymusam- bands Nígeríu inn í landið. Dregið verður í riðla fyrir undankeppni heimsmeistaramótsins í París í dag og þar á Nígería sína fulltrúa eins og flestar aðrar þjóöir heims. Ríkisstjórnin tilkynntí að Nígeríu- mennirnir fengju ekki vegabréfsárit- un vegna refsiaðgerða Evrópusam- bandsins gegn Nígeríu en níu menn voru teknir af lífi þar í landi í síðasta mánuði af pólitískum ástæðum. FIFA gaf ríkisstjóminni frest til klukkan fjögur í gær til að draga þessa ákvörðun sína til baka og vitn- aði tíl þess að þegar Frakklandi var úthlutað lokakeppni HM 1998 var sérstaklega tekið fram að ríkisstjórn- in hefði undirritað samkomulag um að allir sem tengdust HM fengju árit- un til landsins. Frakkarnir gáfu eftír og tilkynntu rétt fyrir klukkan ijögur að Nígeríu- mönnunum væri heimilt að mæta. Keith Cooper, talsmaður FIFA, sagði að ef það hefði ekki verið gert hefði FIFA gripið til refsiaðgerða en vildi ekki segja hverjar þær hefðu orðið. Dregið veröur í riöla fyrir HM í dag. Island er í fjórða styrkleika- flokki í Evrópu, eins og síðast, en það þýðir að íslendingar eru taldir vera í hópi 28-36 af 50 þjóðum í Evrópu. Njarðvík - Tindastóll (45-35) 95-86 4-4, 14-4, 23-10, 29-20, 37-20, 43-27 (45-35), 51-37, 59-37, 64-42, 66-59, 78-71, 85-77, 90-77, 95-86. Stig Njarðvíkur: Rondey Robin- son 22, Teitur Örlygssor. 20, Rúnar Ámason 13, Kristinn Einarsson 9, Jóhannes Kristbjörnsson 6, Gunn- ar Örlygsson 6, Páll Kristinsson 6, Jón Júlíus Árnason 6, Friðrik Ragnarsson 4, Sverrir Þór Sverris- son 3. Stig Tindastóls: Torrey John 26, Hinrik Gunnarsson 19, Pétur Guð- mundsson 15, Óinar Sigmarsson 13, Amar Kárason 6, Lárus D. Pálsson 4, Atli Þorbjömsson 3. Fráköst: Njarðvik 33, Tindastóll 40. 3ja stiga körfur: Njarðvík 4, Tindastóll 8. Dómaiar: Bergur Steingrímsson og Georg Andersen, slakir. Áhorfendur: Um 200. Maður leiksins: Rondey Robin- son, Njarðvik. Blak: frótturog HK eruátoppnunt Tveir leikir voru í 1. deild karla í blaki um helgjna. Þróttur R. sigraði Stjörnuna, 3-2 (15-9,15-9, 9-15, 9-15, 15-11) Og HK lagði ÍS 3-1 (10-15, 15-12, 15-12, 17-15). Staðan í deildinni er þannig: ÞrótturR.....12 10 2 33-18 33 Stjarnan.....11 7 4 28-19 28 HK...........11 8 3 25-16 25 ÍS...........11 5 6 20-20 20 Þróttur N....12 4 8 19-29 19 KA...........11 1 10 8-31 8 í l. deild kvenna sigraði HK lið ÍS, 3-2 (15-7, 8-15, 6-15, 15-4 Og 15-13). Staðan hjá konunum er þessi: HK............6 5 1 16-9 16 ÍS............6 3 3 13-13 13 Þróttur N.....6 3 3 12-12 12 Víkingur......6 1 5 1047 10 Knattspyma: Ferdinandfær lokstækifæri Les Ferdinand, „heitastí'* fram- herjinn í enska boltanum, fær loksins að spreyta sigmeð enska landsliðinu undir stjórn Terry Venables í kvöld þegar Englend- ingar mæta Portúgölum í vin- áttuleik á Wembley. Ferdinand og Alan Shearer leika saman í fremstu víglínu en Ferdinand fær tækifærið þar sem Teddy Sher- ingham er meiddur. Það verður fróðlegt að sjá þá saman en þeir hafa verið manna iönastir við að skora í úrvalsdeildinni, Shearer með 21 mark og Ferdinand 20. Shearar hefur hins vegar ekki verið á skotskónum í leikjum enska landsliðsins en honum hef- ur ekki tekist að skora í síðustu 9 leikjum. Gisli þjálfar Víðismenn Gísli Heiðarsson var í gær- kvöldi ráöinn þjálfari 3. deildar liðs Víðis í knattspyrnu. Gísh er þritugur og hefur variö mark Víðismanna í þrettán ár og mun halda því áfram næsta sumar. Hann tekur við af Njáli Eiðssyni sera hefur þjálfað Víðisliöið und- anfarin tvö ár. Staða íslands vænkastenn Staöa íslenska kvennalandsl- iösins í Evrópukeppninni vænk- aðist enn þegar Frakkland og Hoiland geröu jafntefli, 1-1, um heigina. Rússland, Frakkland og Holland hafa gert eíntómjafnteíli sín á milli og staðan þegar keppn- in er hálfnuð er þannig: Rússland..3 1 2 0 5-2 5 ísland....3 1116-7 4 Frakkland.3 0 3 0 4-4 3 Holland...3 0 2 1 2-4 2 Útileikir íslands fara aliir í'ram á næsta ári. Everton lagði West Ham á Goodison Park Everton sigraði West Ham á Goodison Park með þremur mörkum gegn engu í ensku úrvalsdeildinni í knattspymu í gærkvöldi. Everton var beittari aðilinn í leiknum og var sigur liðsins sanngjarn. Graham Stuart geröi fyrsta markiö í leiknum á 34. mínútu og skömmu fyrir leikhlé bætti David Unsworth við öðm marki úr vítaspyrnu. John Ebbrell inn- siglaði síðan sigur heimamanna með góðu marki á 69. mínútu. Miklosko, markverði West Ham, var vísað af leikvelli í fyrri hálileik og tók bakvörðurinn Julian Dicks stöðu hans í marki. Duncan Ferguson kom inn á hjá Everton um miðjan síðari hálfieik að lokinni sjö vikna fangelsisvist. Með sigr- inum fór Evérton í 11. sæti deildarinnar með 23 stig en West Ham er í 13. sæti með 20 stig. Sigurður Jónsson: Framhaldið er óljóst Knattspyrnumaðurinn Sigurður Jónsson átti fund með Knattspyrnu- deild ÍA vegna hugsanlegra félaga- skipta hans til sænska liðsins Örebro og fékkst engin niðurstaða á fundin- um. Örebro leggur ofurkapp á að fá Sigurð í sínar raðir en bíður átekta. „Við ræddum málin og reyndum að komast að samkomulagi. Það virðist ekki vera vilji hjá stjóm ÍA að ræöa frekar ákveðin atriði sem mér fmnst vera sanngjörn. Fram- haldið í þessum efnum er því með öllu óljóst en vonandi ræðum viö saman í dag,“ sagði Sigurður Jóns- son, landsliðsmaður af Skaganum, í samtali við DV í gærkvöldi. Oruggur sigur hjá Utah Jazz Tveir leikir voru í NBA í nótt. Utah lagði Charlotte, 110-100, og Philadelp- hia tapaöi fyrir Denver, 91-104. Karl Malone átti fínan leik með Utah og skoraði 24 stig, Chris Morris var með 22 stig og John Stockton skoraði ' 18 stig og átti 15 stoðsendingar. í liði Charlotte, sem lék án Larry Johnsons, var Glen Rice með 19 stig. Mahmoud Abdul-Rauf skoraði 22 stig fyrir Philadelphia en Bryant Stith var með 21 stig fyrir Denver. New York gerði út um leikinn gegn SA Spurs í fyrrinótt í tvíframlengd- um leik. John Starks og Gary Grant skoruðu öll 13 stíg New York í síðari framlengingunni. Sean Elliot jafnaði metín fyrir Spurs undir lok venjulegs leiktíma og fékk svo kjörið tækifæri til að gera út um leikinn í fyrri fram- lengingunni en skot hans geigaði úr opnu færi. John Starks var með 25 stíg fyrir New York og Patrick Ewing 19. David Robinson var allt í öllu hjá Spurs og skoraði 45 stig. Úrslitin: Indiana - LA Clippers.....111-104 Smits 44. New York - SA Spurs.......118-112 Starks 25, Ewing 19 - Robinson 45. Boston - Atlanta..........103-108 Radja 28, Norman 26. Vancouver - Toronto 81-93 - Stoudamire. Sacramento - Miami.........110-90 Ritchmond 15, Williamson 14 - Thom- as 29. LA Lakers - Detroit........ 87-82 Ceballos 22, Divac 20 - Hunter 21. Portland - Houston.........103-101 Strickland 32, Robinson 26 - Drexler 26, Olajuwon 21. Þaö þurfti einnig tvær framlenging- ar í leik Portland og Houston. Arvydas Sabonis tryggði Portland sigurinn meö körfu á síöustu sekúndu síðari framlengingarinnar. Alonzo Mouming, Kevin Willis og Billy Owens, allt leikmenn úr byrjun- arliði Miami, léku ekki gegn Sacra- mento vegna meiðsla. Toronto hafði betur í uppgjöri Kanadaliðanna og var þetta 18. tap- leikur Vancouver í röð. GH • Feðgarnir Guðmundur og Páll bregða á leik í Keilu í Mjódd i gærkvöldi. Þangað fór Guðmundur til að fylgjast með móður sinni i keilu en hún var einnig í handboltanum í gamla daga. DV-mynd GS Urtökumót í júdó fyrir OL: Vernharð náði í 27punktaíBasel Lítt þekktur leikmaður skaust fram í sviðsljósið: „Seint betri en karlinn* - segir Guðmundur Pálsson sem fór á kostum með Víkingi 22 ára gamall leikstjórnandi 1. deild- ar liðs Víkings í handknattleik vaktí mikla athygli í fyrrakvöld fyrir vask- lega framgöngu þegar Víkingar mættu KA-mönnum á íslandsmótinu. Leik- maðurinn sem hér um ræðir hefur ekki verið í sviðsljósinu fram að þessu en 11 mörk sem hann skoraði í leiknum vekja menn til umhugsunar og spyrja kannski sjálfa sig aö því hvaöa maður er eiginlega hér á ferð. Hann heitir Guömundur Pálsson og hefur lengst af leikið með ÍR en ákvaö í fyrra aö ganga í raðir Víkinga. Ekki nema eðlilegt þegar haft er í huga aö faðir hans gerði garðinn frægan með Víkingum um árabil. Eplið fellur sjald- an langt frá eikinni en faðir Guðmund- ur er Páll Björgvinsson sem lék á sjötta hundrað leiki meö meistaraflokki Vík- ings og klæddist landsliöspeysunni í sjötíu skipti. Páll var spurður hvort hann væri ekki stoltur af stráknum og ekki stóö á svarinu. „Auðvitað stoltur afstráknum" „Ég er þaö aö sjálfsögðu. Hann er í dag að gera þá hluti sem hann á að gera, skora mörk og drífa samherja sína áfram. Hann er ungur og efnilegur og á framtíðina fyrir sér. Ég hef fylgst með Guðmundi frá því aö hann var smá- strákur og veit alveg hvað býr i honum. Hann kom alltaf með mér á æfmgar þegar að ég æfði og lék með meistara- flokki. Það var samt alfarið hans vilji að fara út í handboltann. Við foreldrar hans vorum ekkert að ota honum út í þetta,“ sagði Páll Björgvinsson í spjall- inu við DV. „Frískur miðað við aldur“ Páll hefur ekki gleymt handboltanum, langt frá því, fylgist vel meö því sem í gangi er og leikur meö „old boys“ í Víkingi sem ekki hefur tapað leik á fimmta ár aö sögn Páls. „Ég er frískur í dag miðað við aldur,“ komst Páll að oröi. „Nýtti tækifærið til fuiinustu" Snúum okkur að syninum sem er ef tíl að springa út sem leikmaður ef marka má frammistöðu hans í fyrrakvöld. Guðmundur gerir nú ekki mikið úr frammistööu sinni og segir þó að þetta hafi óneitanlega veriö notaleg tilfinn- ing. „Síðan ég gekk í Víking fékk ég tæki- færið í fyrsta skiptíö. Fram aö því haföi ég alltaf vermt bekkinn hjá ÍR-ingum og gerði mér ljóst aö þannig ástand þyldi ég ekki öllu lengur. Ég ákvaö aö ganga í Víking, fékk þar tækifærið sem ég nýttí mér til fulls. Ég hef haft mjög gaman af þessu í vetur þó liðinu hafi ekki gengið sem skyldi. Árni Indriða- son er besti þjálfarinn sem ég hef kynnst. Ég datt niður á hörkuleik í fyrra- kvöld og kannski var þetta besti leikur- inn minn á ferlinum og vonandi að hann gefi mér aukið sjálfstraust. Ég stefni aö því aö bæta mig sem leikmað- ur en ég verð seint betri en karlinn. Ég vona aö liðið komi sér á rétta braut íljótlega og ég hef trú á að þaö takist. Lykilmenn eru að koma til baka eftír meiðsli svo þetta hlýtur að smella sam- an,“ sagði Guðmundur Pálsson sem skorað hefur 50 mörk í vetur í 11 leikj- um. „íþróttirnar eru góður félagsskapur“ Guðmundur sagöi í lokin að hann hefði alist upp við íþróttir frá því að hann mundi eftir sér. Pabbi var nánast alla daga á ferðinni og mamma líka lengi vel. íþróttirnar eru góður félagsskapur og fín hreyfing. • Vernharð Þorleifsson stefnir á ólympiuleikana. Júdómennirnir Bjarni Friðriks- son, Vernharö Þorleifsson og Eiríkur Kristinsson tóku um síðustu helgi þátt í alþjóölegu móti í Basel í Sviss. Um var að ræöa svokallað A-mót, það fyrsta af tíu, en mótin eru úrtökumót fyrir næstu ólympíuleika. Vernharð keppti í -95 kg flokki. Fyrsti andstæðingur hans var Etlin- ger frá Austurríki. Vernharð vann glímuna eftir fímm mínútur á dóm- araúrskurði. Næst kepþti hann við Jakl frá Tékklandi og vann Vernharð fullnaðarsigur á ippon. Til að komast í undanúrslitin þurfti Vernharð að sigra Knorrek frá Þýskalandi en hann tapaði glímunni og einnig upp- reisnarglímu í kjölfarið gegn Soares frá Portúgal. Vernharð vann sér inn 27 punkta á mótinu og er nú í 12.-13. sæti á listanum en aðeins 14 fyrstu frá Evrópu fá þátttökurétt á ólympíu- leikunum í hans þyngdarflokki. Etl- inger, silfurhafí frá Evrópumótinu 1993, var aö koma til keppni aftur eftir bann viö lyfjaáti. Etlinger komst ekki inn á umræddan Evrópulista þar sem Vernharð sigraði hann og Jakl, sem var miklu ofar á listanum, er nú kominn aftur fyrir Vernharð. Bjami Friðriksson keppti í þunga- vigt ( + 95kg). Hann tapaði fyrstu glímu sinni gegn Papaioanu tfá Grikklandi sem vann síðan silfur- verðlaun á mótinu. í uppreisnar- glímu kepptí Bjami við Czikes frá Ungverjalandi og stóð viðureignin í fimm mínútur. Báðir höfðu skorað Yuko (5 stig) en Czikes vann síðan með aðeins þriggja stiga mun. Czikes vegur 125 kg en Bjarni er 95 kg. Bjarni ákvað að reyna fyrir sér í þungavigtinni eftir sigur í opna flokknum á Opna skandinavíska mótinu á dögunum. Aöeins einn keppandi frá hverju landi fær keppn- isrétt á leikunum í hverjum þyngdar- flokki. Ef Bjarna tækist aö tryggja sér keppnisrétt í Atlanta á næsta ári yrði það í fimmta skipti í röð sem hann keppti á ólympíuleikum. Sem stendur er Bjami eini júdómaðurinn í heiminum sem keppt hefur á fern- um leikum í röð. Næsta mót verður í París dagana 9.-11. febrúar. -SK Nafn íþróttamanns 1____________________ „Það var gott að geta sparað sig“ - Njarðvík vann Tindastól, 95-Ö6 dv Níarðnk: mönnum. Þeir mættu í húsið __1_____________________ kiukkan átta og voru aðeins með „Ég hafði það á tilfínningunni áttaleikmenn.ísíðarihálfleikvoru allan timann að þetta væri öraggt. þrír þeirra komnir út af með 5 vill- Við spiluðum ekki svo vel en sigld- ur, þar á meðal Torrey John, og um þessu örugglega í höfn. Það er þrir aðrir voru með 4 villur, svo mjög gott að geta spilað svona og ekki mátti tæpara standa. sparaö sig fyrir erfiðari leikina sem Rondey Robinson og Teitur Ör- eru fram undan,“ sagði Hrannar lygsson voru bestir hjá Njarðvík Hólm, þjálfari Njarðvíkinga, eftir og Rúnar Árnason var sterkur á öruggan sigur á baráttuglöðum lokamínútunum. Hjá Tindastóli leikmönnum Tindastóls i úrvals- var Torrey John góður, Hinrik deildinní í körfuknattleik í gær- Gunnarsson og Ómar Sigmarsson kvöldi, 95-86. vom ötlugir í síöari hálfleik og Pét- Leiknum seinkaði um 20 mínútur ur Guðmundsson var traustur. vegna tafa á flugi hjá Tindastóls- -ÆMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.