Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1996, Page 2
FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 1996
Fréttir
Birna Björnsdóttir fékk 2. og 3. stigs bnmasár í eldsvoðanum á Hverfisgötu 55:
Hef verið við að gefast
upp á að byrja að nýju
- allt ótryggt, þar á meðal nýleg húsgögn, skólatölva, bækur og önnur námsgögn
„Ég hef verið við það að gefast
upp en það þýðir ekkert. Ég missti
allt mitt í brunanum og það var
ótryggt. Allt brann sem brunnið gat,
meira að segja gullkross sem ég átti
bráðnaði. Ég var nýbúin að kaupa
húsgögn fyrir 100 þúsund krónur og
tölvu fyrir annað eins sem ég nota i
skólanum. Auk þess missti ég dýra
myndavél sem ég nota í skólanum.
Innbúið hefur verið upp á aðra
milljón króna. Það er erfitt að byrja
alveg upp á nýtt. í dag á ég í raun-
inni hvergi heima,“ sagði Birna
Björnsdóttir, 29 ára, íbúi 1. hæðar
hússins að Hverfisgötu 55 sem
brann í eldsvoða aðfaranótt 27. des-
ember síðastliðins.
Eldurinn kviknaði út frá jóla-
skreytingu viö glugga í íbúð Bimu
og hlaut hún 2. og 3. stigs brunasár
í andliti. Roskin hjón sem bjuggu á
hæðinni fyrir ofan og sonur þeirra
sem bjó á hæðinni fyrir neðan
Birnu náðu að komast út úr húsinu.
Birna segist hvergi eiga heima en
hún hefur fengið að gista hjá sínum
nánustu frá því að eldsvoðinn átti
Stuttar fréttir
Engar greiðslur
Tryggingastofnun telur ekki
rétt að læknarnir í Domus Med-
ica fái greiöslur fyrir rannsókn-
ir í segulómsjánni sem þeir
keyptu.
Rifist um nagga
Kjötiðja KÞ á Húsavík og Slát-
urfélag Suðurlands rífast nú um
réttinn á að geta kallað skyndi-
bitaframleiðslu sína nagga.
Þingeyingar telja sig eiga einka-
rétt á nafninu.
Viðræður um Funa
Áhugahópur nokkurra manna
hefur óskað eftir viðræðum við
bæjaryfirvöld á Ísafírði um að
taka yfir rekstur sorpbrennslu-
stöðvarinnar Funa. RÚV greindi
frá þessu.
Lækkandi bætur
Fjárlög gera ráð fyrir að bæt-
ur almannatrygginga lækki um
rúman milljarð á næsta ári mið-
að við það sem hefði orðið án
breytinga á kerfinu, samkvæmt
frétt RÚV.
Vextir hækkaðir
Seðlabankinn hefur gripið til
sérstakra aðgerða til aö hækka
vexti í landinu svo sporna megi
gegn eyöslu landsmanna og
versnandi stöðu bankanna. Stöð
2 greindi frá þessu.
Bankar sameinaðir
Hópur áhrifamanna í við-
skiptalífinu ræðir leiðir til aö
stokka upp bankakerfiö. Sam-
kvæmt frétt Stöðvar 2 er m.a.
rætt aö kaupa Búnaðarbankann
og steypa honum saman við ís-
landsbanka. -bjb
Hún hafði eins og aðrir gert sér grein fyrir því að það kviknar yfirleitt í á ein-
um til tveimur stöðum um jól og áramót. „En ég reiknaði ekki með að þetta
kæmi fyrir mig,“ segir Birna Björnsdóttir. Hún missti allt sitt og segir það
erfitt hlutskipti að þurfa að byrja algjörlega upp á nýtt. DV-mynd BG
sér stað. Hún er nemandi á iðn- og alla persónulega muni sína.
hönnunarbraut í Iðnskólanum og ' - En hvemig kviknaði eldurinn?
missti skólabækur sínar, fót, innbú „Ég bara horfði á þegar gardína
feyktist í jólaskreytinguna. Siðan
breiddist eldurinn út á skammri
stundu. Ég vissi auðvitað að þetta
var timburhús en grunaði ekki að
eldur gæti breiðst svona hratt út. Ég
foröaði mér síðan út berfætt og á
jólakjólnum og hringdi bjöllunni
hjá fólkinu fyrir ofan. Þegar ég sá
eldinn læsa sig í loftið fyrir ofan hjá
þeim varð ég mjög hrædd,“ sagði
Birna.
Birna segist vera að byrja upp á
nýtt - hún hafi keypt sér tannbursta
í gær en Rauði kross íslands hefði
útvegað henni úlpu. Hún sagði að
Ingvar ÁSmundsson, skólastjóri Iðn-
skólans, mundi hjálpa henni að út-
vega skólabækur á ný. „Ég verð
hins vegar að byrja upp á nýtt og fá
mér ibúð. En ef einhver gæti séð af
notuöum húsgögnum, til dæmis
gömlum ísskáp, væri það vel þegið.
Það er hjálp í öllu,“ sagði Birna
Björnsdóttir.
Þeir sem hafa áhuga á að láta eitt-
hvað af hendi rakna vegna Birnu
geta haft samband í síma 554 4356.
-Ótt
Forsetabústaðurinn á Bessastöðum lifnaði hressilega við í gær þegar Vigdís Finnbogadóttir bauð nokkrum börnum
og foreldrum þeirra á árlega jólaskemmtun. Um var að ræða börn sendiráðsstarfsmanna og vina og kunningja for-
setans. Að sjálfsögðu voru sungin jólalög og dansað í kringum jólatréð. Vel fór á með forsetanum og jólasveininum
og kunnu börnin sérstaklega vel að meta þann síðarnefnda. Þetta var síðasta jólaballið á Bessastöðum með Vigdísi
sem forseta. DV-mynd BG
Deilt um félagaskrá hjá Dagsbrún
Kristján Ámason, annar tveggja
frambjóðenda til formanns í verka-
mannafélaginu Dagsbrún, segist
hafa óskað eftir því við skrifstofu
Dagsbrúnar að fá afhenta félaga-
skrána til að auðvelda framboðs-
vinnuna fram að kosningum 19. og
20. janúar. Kristján segir að ósk
þeirra hafi verið hafnað án rök-
stuðnings þó að síðar hafi þau svör
borist að félagaskráin verði afhent
þegar framboðum verður skOað inn.
„Þeir vilja gera greinarmun á fé-
lagaskrá og límmiðum með nöfnum
félaga. Verslunin F&A fékk á sínum
tíma límmiða með nöfnum og til-
heyrandi og sendi bréf með yfir-
skriftinni „Kæri Dagsbrúnarmað-
ur“. Ég nefndi það við Halldór hvort
við gætum ekki fengið þessa sömu
þjónustu og hann kvað nei við því,“
segir Kristján.
Þegar DV bar fréttina undir
Halldór Björnsson, varaformann
Dagsbrúnar og frambjóðandi til for-
manns, sagðist hann ekki geta af-
hent félagaskrána hverjum sem
væri en frambjóðendurnir fengju
skrána afhenta þegar þeir væru
búnir að skila inn framboði. Að
öðru leyti vísaði hann á formann
kjörstjórnar.
Stefnt er að þvi að skila inn fram-
boðslista Kristjáns á föstudag.
Frambjóðandi tÚ varaformanns er
Sigurður Rúnar Magnússon, starfs-
maður Eimskips.
Á framboðslista uppstillingar-
nefndar Dagsbrúnar býður Halldór
Bjömsson fram til formanns. Vara-
formannsframbjóðandi er Sigríður
Ólafsdóttir borgarstarfsmaður. -GHS
Formaöur Einingar:
Verður
varla
naumt
skammt-
aötil
okkar
' DV, Akureyri:
„Það eru greinilega tvær launa-
stefnur ríkjandi í landinu. Ráða-
menn þjóðarinnar höfðu um það
mörg orð um áramótin að það
væri uppsveifla í landinu og
þeir hljóta þá að eiga við upp-
sveiflu í launagreiðslum til ein-
hverra sérhópa," segir Björn
Snæbjömsson, formaður Verka-
lýðsfélagsins Einingar í Eyja-
firði, um þá ákvöröun kjara-
nefndar að veita ýmsum opin-
berum embættismönnum 8-10%
launahækkun.
„Þetta þýðir að við hljótum að
búa okkur vel undir það að taka
á móti þessum kauphækkunum
eftir ár þegar samningar okkar
verða lausir og það verður varla
naumt skammtað til okkar fyrst
góðærið er jafn mikið og talað er
um. Ég fagna því að hægt skuli
vera að úthluta svona veglegum
kauphækkunum, og við hljótum
að fá þær líka,“ segir Bjöm. -gk
Úrskuröur kjaranefndar:
Launa-
ar of
hja rikinu
- segir Þórarinn V.
„Mér sýnist að þetta sé í takt
við það sem hefur verið að ger-
ast hjá ríkinu undanfarið ár.
Við höfum áður gagnrýnt það að
launakostnaðarbreytingar hjá
ríkinu eru allt of miklar. Þessi
úrskurður er fullkomlega í takt
við það,“ sagði Þórarinn V. Þór-
arinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands ís-
lands, VSÍ, við DV um nýfallinn
úrskurð kjaranefndar um laun
presta og embættismanna.
Þórarinn sagðist ekki vilja
leggja mat á það hvort þessir til-
teknu hópar ríkisstarfsmanna
ættu að lúta öðmm reglum en
aðrir hópar. Breytingarnar hjá
ríkinu hefðu almennt veriö of
miklar.
„Samningar eru bundnir til
næsta árs. Ef marka má yfirlýs-
ingar manna úr verkalýösforyst-
unni þá sýnist mér að þessir úr-
skurðir kjaranefndar og kjara-
dóms geti haft truflandi áhrif á
viðræður á næsta ári,“ sagði
Þórarinn. -bjb
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður með lausa samninga frá áramótum:
Heilsugæslulæknar samningslausir í rúmt ár
Kjarasamningar ríkisins við félög
hjúkrunarfræðinga og ljósmæður
hafa verið lausir frá áramótum.
Vegna þessa hefur samninganefnd
ríkisins fundað tvívegis með samn-
inganefnd hjúkrunarfræðinga og
þriðji fundur er fyrirhugaður í
næstu viku. Ekki hefur enn verið
boðað til fundar með ljósmæðrum.
- erum í naflaskoðun, segir formaður læknanna
Þá hafa fastráönir heilsugæslulækn-
ar hjá ríkinu, um 170 talsins, verið
með lausa samninga í rúmt ár án
þess að viðræður hafi farið fram.
Mun samninganefnd ríkisins vera
farið að lengja eftir þeim viðræðum.
Tvö félög opinberra starfsmanna
sögðu upp samningum frá síðustu
áramótum; annars vegar félag lausr-
áðinna lækna og hins vegar Starfs-
mannafélag ríkisstofnanna, og eru
þau mál á leiðinni fyrir félagsdóm
þar sem ríkið telur uppsagnirnar
ólöglegar.
Nuddum saman nefjum
Gunnar Ingi Gunnarsson, formað-
ur félags heilsugæslulækna, sagði
við DV að líklega yrði óskað eftir
fundi með samninganefnd ríkisins í
lok þessa mánaðar. Um ástæðu þess
að ekki hefði verið fundað fyrr
sagði Gunnar:
„Við erum að nudda saman nefj-
um og skoða veröldina. Eigum við
ekki að segja að við séum í nafla-
skoðun. Það er margt að gerast á
vinnumarkaðnum sem við þurfum
að skoða. Við þurfum ekki bara að
ná samkomulagi um einhveijar pró-
sentur heldur eru það starfsskilyrðin
fyrir þá upphæð sem brenna heitar á
okkur. Stöðu heilsugæslunnar og
heimilislækna þarf að skoða í heild
sinni, jafnt á höfuðborgarsvæðinu
sem á landsbyggðinni." -bjb