Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 Jj’V
sælkerinn
strengjabaunir soðnar svo og kúr-
bítur þar til hann mýkist.
Hitið smjörið og olíuna og svissið
lauk og hvítlauk án þess að taka lit.
Bætið selleríinu og steinselju út i og
látið malla í nokkrar mínútur. Þá er
kjúklingateningurinn settur út í og
soðna grænmetið. Bragðbætið með
salti og pipar og hitið sósuna.
Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum.
Sigtið það og blandið grænmetinu
saman við. Leggið ólífur ofan á og
stráið ostinum yfir.
Spagettí með
kræklingum
- fyrir fjóra
350 g spagetti
vatn, salt
1 dós af kræklingum (sa 400 g)
4 msk. ólífuolía
1-2 hvítlauksgeirar
1 lítill chilipipar
eða örlítið cayennepipar
steinselja
Setjið vel af vatni í pott, saltið eða
notið pastatening og sjóðið spaghet-
tíið eftir leiðbeiningum á pakkan-
um. Brúnið pressaðan hvítlaukinn í
ólífuolíu og bætið kræklingum og
soði af þeim á pönnuna. Látið
smámalla í 5-10 mínútur og látið
chilipiparinn út í en hann er síðan
fjarlægður. Blandið síðan sósunni
saman við nýsoðið spaghettíið. Strá-
iö steinselju yfir og gjarnan par-
mesanosti.
-ELA
Góðir pastaréttir
Sennilega vilja flestir fá sér eitt-
hvað létt núna fyrstu dagana á nýju
ári. Menn hafa kýlt vömbina yfir
hátíðisdagana og hugsa sér gott til
glóðarinnar að taka sér tak í mat-
aræöi og hreyfingu. Þá koma fyrst
upp í hugann góðir pasta- eða fisk-
réttir. Hér koma nokkrar góðar upp-
skriftir að pastaréttum sem bæði
eru einfaldir og góðir.
Pastaslaufur með
grænmetissósu
- fyrir fjóra
500 g pastaslaufur
1 gulrót, skorin í teninga
100 g djúpfrystar baunir
1 pakki djúpfrystar
strengjabaunir
1 kúrbítur í teningum
1 msk. smjör
2 msk. ólífuolía
1 laukur, skorinn í
þunnar skifur
1 hvítlauksgeiri,
pressaður
1 grein selleri, fínsöx-
uð
1 msk. hökkuð stein-
selja
1/2 kjúklingateningur
1/2 tsk. salt
pipar framan á
hnífsoddi
8-10’ólífur
rifinn parmesanostur
Byrjið á sósunni. Sjóð-
ið gulræturnar í vatni
í 2-3 mínútur. Takið
þær upp og látið
renna af þeim. Sjóðið
því næst baunirnar í
2-3 mínútur, takið
þær síðan upp og látið
renna af þeim. Þá eru
matgæðingur vikunnar
Appelsínu-
og
rækjusalat
Hér kemur uppskrift
að rækjusalati með appel-
sínum sem ætti að vera
góður réttur nú í ársbyrj-
un, léttur, hollur og ein-
faldur. Rétturinn er mið-
aður við fjóra.
3 appelsínur
3 blóðappelsínur
3 rauðir grapeávextir
400 g rækjur
grænt salat
ferkst estragon
Salat-
sósa
1 dl ólífuolía
4 msk. lime eða
sítrónusafa
2 tsk. balsamic edik
1 msk. fínhakkað
estragon
1 finhakkaður
vorlaukur
Leggið salatblöð í botn-
inn á skálinni. Afhýðið
og skerið ávextina í báta,
raðið þeim í skálina og
rækjunum ofan á. Bland-
ið öllu saman í salatoli-
una og hellið yfir salatið.
Loðnuhrogn og lamba-
hryggur með myntu
„Eg hef lengi haft áhuga á matar-
gerð, les mikið af uppskriftum og fæ
hugmyndir. Ég hef verið jafndugleg-
ur að elda á mínu heimili og eigin-
konan,“ segir Jón G. Kristjánsson,
lögfræðingur og matgæðingur vik-
unnar. „Ég hef mjög gaman af að
prófa eitthvað nýtt og á orðið mikið
safn af uppskriftum," segir Jón enn-
fremur.
Hann ætlar að bjóða lesendum upp
á loðnuhrogn sem hann segist fá nið-
ur á Granda þegar loðnuvertíðin
hefst en einnig er oft hægt að nálgast
þau i fiskbúðum. „Þetta er einfaldur
forréttur og mjög góður, að minnsta
kosti hefur hann gert lukku í matar-
boðum hjá mér.“
Loðnuhrogn
Jón segir að loðnuhrognin séu
bragðminni en t.d. laxahrogn, sem
eru eftirlæti hans. „Þau eru þó mjög
góð og með þeim ber ég ristað hvitt
brauð og sósu sem búin er til úr
sýrðum rjóma, örlítið salt, hvítan
pipar og töluvert mikið af smátt
klipptum graslauk. Það er líka
ágætt að hafa sítrónusneið með.
Þetta er fljótlagaður réttur. Það er
skemmtilegt að borða hrognin því
það brakar í þeim þegar maður tygg-
ur þau.“
Þá ætlar Jón að bjóða upp á lamba-
hrygg með myntusósu.
„Lambahrygginn snyrti ég vel og
sker burt fitu. Síðan ber ég á hann
ólífuolíu, salta hann og pipra. Síðan
er hann þakinn myntu, best er að
nota ferska myntu, og látinn
standa í 10-20 tíma með kryddinu
á.
Sósa
Sósuna geri ég ekki alltaf eins
Stundum geri ég soð úr teningum
en einnig sýð ég líka bein og bý til
mitt eigið soð með lauk, selleríi, sell-
erírót, lárviðarlaufum og timian.
Beinin eru brúnuð og síðan soðin
með grænmetinu þannig aö úr verði
sterkur kjötkraftur. Soðið er soðið
góðan tíma en síðan er allt síað úr
því og þá er það soðið niður með
smávegis púrtvíni. Þá er myntu-
hlaupi bætt í. í lokin er söxuð mynta
sett út í. Stundum hef ég þetta sem
soðsósu eða ég-þykki hana örlítið
með maizena. Mjög áriðandi er að
sjóða soðið vel niður þannig að sósan
verði kraftmikil
en hún á ekki
að vera
þykk. Einnig
set ég sósu-
lit í hana og
geri hana
dökka því
þá
koma myntublöðin skemmtilega í
gegn.
Lambahryggur með
myntu
Lambahryggurinn er steiktur í
ofni á venjulegum hita eða á útigrilli
en þá verður að passa að ekki logi í
honum. Þeir sem vilja geta úrbeinað
hrygginn. Mér finnst gott að hafa
bragðmikla og stökka pöru. 1
Með þessu er gott að hafa bakaðar
kartöflur eða pönnusteiktar og árs-
tíðabundið grænmeti.
Jón ætlar að skora á mág sinn,
Helmout Kreidler sjóntækjasérfræð-
ing, að vera næsti matgæðingur.
„Þegar hann tekur sig til er hann
mikill snillingur í matargerð."
-ELA
Jón G. Kristjánsson lögfræðingur er matgæðingur vikunnar.
Það er sagt að svo vel eigi
basil og tómatar saman að um
hjónaband geti verið að ræða.
Basil kemur upprunalega frá
Indlandi. Basil barst til Evrópu á
sautjándu öld og hefur verið
ómissandi með tómötum síðan
þá og þá sérstaklega hjá ítölum.
Á ítaliu er basil notað i margar
gerðir pastasósa og einnig út á
tómatsalöt. Einhver frægasta
basilsósan er pestó, blanda af
fersku basil, furuhnetum,
parmesanosti, hvítlauk og ólífu-
olíu.
En basil hefur einnig verið
vinsælt krydd í Austurlöndum
þar sem kryddjurtin er bragð-
mikil og því notuð í „heita“ rétti.
Basil er c-vítamíhríkt og því
gott fyrir húðina og heilsuna.
í blómapotti
Ef menn geta náo sér í ferskt
basil í potti skal plantan geymd á
björtum stað þar sem gustar ekki
um hana. Plantan þarf reglulega
og góða vökvun til að lifa.
Tómatsúpa
Þessi heimsfræga súpa er
alltaf jafhvinsæl en hún er gerð
úr tómötum, rauðri papriku og
basil. Þessi skammtur er miðað-
ur viö fjóra.
3 msk. olía
1/2 laukur, hakkaður
450 g ferskir tómatar, flysjaðir
og skomir í bita
2 rauðar niðurskomar paprik-
ur
850 ml kjúklinga- eöa græn-
metissoð
5 lauf basil, hökkuð
salt og pipar
Hitið olíu á pönnu og steikið
laukinn mjúkan en brúnið ekki.
Færið hann yfir í pott. Setjið
tómatana og paprikurnar á
pönnuna og steikið þar til allt
verður mjúkt en færið síðan yfir
í pottinn. Setjið soðið yfir og lát-
iö suðuna koma upp. Lækkið hit-
ann og látið malla áfram í 10
mínútur.
Setjið súpuna í matvinnsluvél
og maukið hana. Setjið hana aft-
ur í hreinan pott og bætið basil
út í. Kryddið með salti og pipar.
Látið suðuna aftur koma upp og
berið súpuna heita á borð.